Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.1973, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 04.02.1973, Blaðsíða 6
Gunnlaugur Guðbrandsson Briem sýslumaður 1773 - 13. janúar - 1973 r ’kmnmrn VRf\ BRJpRSlifíiI \ sem sneri sér að lögfræði og varð ættfaðir Briem-ættarinnar Eftir Sigurð Líndal Hér verður nokkuð sagt frá Gunnlaugi Briem (1773-1834) sýslumanni að Grund í Eyjafirði af því til- efni, að þann 13. janúar síðastliðinn voru liðin 200 ár frá fæðingu hans. Ævi hans var á ýmsan hátt merkileg. Hann byrj- aði feril sinn með list- námi og starfaði um stutt skeið sem myndhöggvari. Meg- in ævistarf hans er þó bundið við bú- sýslu og embættis- störf. Kunnastur er hann þó e.t.v. sem einn mesti ættfaðir á íslandi á síðari öld- um. Ætt og uppvöxtur Gunnlaugur Guðbrandsson Briem var fæddur að Brjáns- læk í Barðastrandarsýslu 13. janóar 1773. Foreldrar hans voru Guðbrandur Sigurðs- son (1735—1779) prestur að Brjánslæk og kona hans Sigríður Jónsdóttir (1747— 1835). Séra Guðbrandur, faðir Gunnlaugs, var sonur Sigurð- ar Þórðarsonar prests að Brjámlslæk og konu hans Sigr- iðar Gunnliaiugsdóttur úr Svefneyjum. Bróðir Sigrið- ar var Ólafur Gunnlaugsson faðir Eggerts Ólafssonar nátt- úrufræðings og skálds, þannig að þeir voru systkinabörn séra Guðbrandur og Eggert Ólafs- son. Guðbrandi pmesti er lýst svo, að hann hafi verið mikið hraust menni, smiður, málari, kenni- maður góður og hagorður. Hann lézt eins og fyrr sagði árið 1779. Var hann í embætt- isferð að vitja sjúks manns, er hann hrapaði i náttmyrkri íyr- ir björg og höfuðkúpubrotn- aði. Var Gunnlaugur son- ur hans þá sex vetra gamall. Ári Síðar tóku þau hann í fóstur séra Björn Hall- dórsson prófastur i Sauðlauks- dal og kona hans Rannveig Ólafsdóttir ffá Svefneyjum (1734—1814) systir Eggerts, en þau hjónin voru bæði skyld Gunniaugi. Ólst hann síðan upp með þeim næstu 8 ár, lengst af að Setbergi í Eyrarsveit, en það prestakall fékk séra Bjöm árið 1781 en fluttist þangað 1782. Bjöm Halldórsson var í tölu merk- ustu Islendinga á 18. öld. Hann var sem kunnugt er brautryðj- andi í garðrækt á Islandi, m.a. kartöflurækt, lærdómsmaður í mörgum greinum, skáld og rit- höfundur. Þekktustu rit hans em Atli, fyrst prentað í Hrappsey 1780 og hin mikla ís- lenzk-latnesk-danska orða- bók — Lexicon Islandico — Latino — Danicum, sem út kom í Kaupmannahöfn 1814. Hafði Rasmus Kristján Rask að visu samið dönsku þýðingarnar. Er ekki að efa, að hjá þeim hjón- um hefur Gunnlaugur fengið mjög þroskavænlegt uppeldi. Við nám í listahá- skólanum í Kaup- mannahöfn Árið 1788 siglir Gunnlaugur utan til náms í Danmörku — aðeins 15 'ára að aldri. Fékk hann að vera í fylgd séra Sig- urðar Stefánssonar, sem þá fór utan til að taka við biskups- vigslu til Hóla. örlogin höguðu þvi þannig, að þetta varð síðasta vigsluför Hóla biskups, þar eð Hólastóll var lagður niður eftir andlát Sig- urðar. Þegar til Kaupmannahafnar kom, var Gunnlaugur skráður í nemendatölu listaháskólans, sem þá hét á dönsku: Det Kongelige Maler, Bild- hugger og Bygnings-Akademie. Er skóli þessi enn við lýði og til húsa í Charlottenborg við Kóngsins Nýjatorg. Hefur hann allt fram á þennan dag fóstrað mikinn fjölda íslenzkra myndlistarmanna. Á undan Gunnlaugi höfðu m.a. Sæmund- ur Hólm (1749—1821), síð- ar prestur að Helgafelli í Eyr- arsveit og Ólafur Ólafs- son (1753—1832) síðar prófess- or að Kóngsbergi í Noregi stundað þar nám og hlot- ið margvíslega viðurkenningu fyrir námsárangur. Þegar Gunnlaugur hóf nám í skólanum, var þar fyrir Bertel Thorvaldsen, sá sem viðfræg- astur hefur orðið allra mynd- höggvara frá Norðurlöndum. Er til heimild — bréf, sem Gunnlaugur ritaði Thorvald- sen löngu síðar 1) — er sýn- ir, að með þeim hefur tekizt kunningsskapur og Thorvald- sen haft álit á Gunnlaugi sem myndhöggvara. Er að vísu ekki unnt að gera nánari grein fyr- ir bréfi þessu að svo stöddu. Annars er fátt kunnugt um list nám Gunnlaugs og listfer- il, enda hefur þeim þætti ævi hans verið lítill gaumur gefinn. Ekki er hans að neinu getið, hvorki í bók Matthíasar Þórð- arsonar Islenzkir listamenn I—II, sem út kom 1920 og 1925 né heldur í riti Björns Th. Björnssonar íslenzk myndlist I, sem út kom 1964. Væri áreið- anlega ómaksins vert að kanna nánar en gert hefur verið feril Gunnlaugs á þessu sviði, enda þótt engum getum verði að þvi leitt, hvað sú könnun kynni að leiða i ljós. En hvað sem þessu líður, tók Gunnlaugur lokapróf frá lista- háskólanum árið 1795 og „á © Málverk var gert af Gunnlaugi Briem 1796 eða 1797, þegar hann var 23 ára gamall og er það enn til í Danmörku. Árið 1848 málaði I. L. Ussing prófessor eftirmynd málverksins og er hún nú í eigu Johanns Briems listmálara. Eftir málverkinu var gerð steinprentun, sem ýmsir eiga og birtist 'hér mynd af henni. sama ári þáði hann af konst- akademíiinu silfurmedalíu til heiðurs fyrir atgjörfi sitt í bí- lætasmiði" segir séra Jón lærði í Möðrufelli í æviágripi hans sem út kom árið 1838. Jafnframt námi sínu við lista skólann aflaði hann sér al- mennrar menntunar, m.a. lærði hann latinu hjá Jóni Ólafssyni Svefneyingi frænda sínum — bróður Eggerts og segir í ævi ágripi því, sem birtist í Sunn- anpóstinum árið 1836 (sem styðst við æviágrip séra Jóns í Möðrufelli), að hann hafi náð „þar í þeim framförum, að hann ski'ldi latinu á rek við sikól'agengna memý'. 1 Sunnan- pósti segir einnig, að þýzku hafi hann talað og Skrifað sem sitt móðurmál. Myndlistamaður og lögfræðingur Að loknu námi i listaháskól- anum vann Gunnlaugur að list sinni, en hóf jafnframt að ieggja stund á lögfræði. Eftir stuttan námsferil tók hann próf í þeirri grein 25. október 1797. Að vísu var próf hans hið minna lagapróf — eða próf í dönskum lögum, eins og það var kallað af því að þar var ekki lesinm Rómarréttur. Slíkt próf gátu þeir tekið, sem voru ekki latínulærðir, — þ.e. höfðu ekki stúdentspróf, — en Gunn- laugur var ekki stúdent, þótt numið hefði latínu í einkatím- um eins og áður sagði. Fylgdi þessu minna lagaprófi lærdóms titilinn examinatus juris, en hinu meira candidatus juris. Segir í æviágripinu i Sunnan- póstinum, að Gunnlaugur hafi fengið „sem danskur júristi bezta vitnisburð" og verið álit- inn hæfur til dómaraembættis. Eins og áður er vikið að er fátt kunnugt um störf Gunn- laugs sem myndhöggvara, og er ekki annað að sjá en hann hafi með öllu lagt: þá iðju á hill- una, er til íslands kom; éin- ungis litillegia fem/gizt við tré- skurð. Er þetta vafalaust ástæðan fyrir því, hversu lítt hans er getið sem listamanns. í Þjóðminjéisafni eru til 4 muoir eftir hann eða honum eignaðir með sterkum líkum — allir skornir í tré. Fylgja grein þessari myndir af tveimur þeirra ásamt nánari greinar- gerð um þá. Fáeinar teikning- ar — eða riss eru einnig til. Af hinum fáu munum verður e.t.v. ekki margt ráðið um lista mannshæfileika Gunnlaugs; fágað handbragð og gott form- skyn vekur þó strax eftirtekt. Lögsagnari og jaröamatsmaöur Þegar lögfræðiprófi er lokið, dvelst Gunnlaugur enn um sinn í Kaupmannahöfn, en hverfur ti'l Islands sumar- ið 1799 eftir 11 ára útivist og gerist aðstoðarmaður eða lög- sagnari Jóns Jakobssonar sýslumanns í Eyjafjarðarsýslu — föður Jóns Espólíns — sýslu manns og sagnaritara. Gekk hann árið eftir, eða 21. júni 1800, að eiga Valgerði Árnadóttur (1779—1872). For- eldrar hennar voru séra Árni

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.