Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1973, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1973, Blaðsíða 8
Nú hefur yfirlitssýning Sverris Haralds- sonar staðið yfir á Kjarvalsstöðum. Um það leyti er undirbúningur þessa blaðs hófst, var Sverrir ekki búinn að hengja upp. Undir- búningurinn mótaði samt dagsins önn í Hulduhólum; það er annars ótrúlegt, hvað mörgu þarf að hyggja að fyrir sýningu. Og það telst alltaf merkur áfangi í lífi lista- manns, þegar hann hefur yfirlitssýningu. Sverrir Haraldsson hefur um sína daga ekki farið varhluta af blaðamönnum. En í stað þess að gera eitt viðtalið enn, fór Baltasar einn á stúfana og hann teiknaði það, sem hann»sá á Hulduhólum: í fyrsta lagi húsið sjálft, fallegt hús og sérkennilegt. Allir þekkja það, vegna þess að það stendur á brún þjóðvegarins. Þar er ævintýralegt um að listast, þegar inn kemur; heimur fullur af myndum. Ef við fylgjum myndunum frá hægri til vinstri, þá sjáum við húsið fyrst og hauststörfin í garðinum: Sverrir með ein- hvers konar klóru, Steinunn með könnu og Haraldur sonui þeirra horfirá. Síðan inn úr dyrunum. Sverrir situr í ruggustöl, eða öllu tremur rólu. Þarna getur hann bæði slappað af eða notað tímann og . hugleitt áframhald einhverra'r myndar. Við höldum áfram: Kassi og á honum litaspjald Sverris. En að baki heilir staflar af myndum, sumar á byrjunarstigi, sumar hálfkaraðar og margar fullunnar. í horninu til hægri komum við að teikniborðinu: Hér er unnið að skyssu og blýanturinn flýgur yfir blaðið. Kaffi- ketillinn er líka þarna nærri. Listfengi hús- ráðendanna segir til sín í stóru sem smáu. Innréttingarnar að mestu úr furu. Og svo til dæmis hvernig rótinni er komið fyrir, þannig að hún verður eðlilegur hluti af öllu saman. Við sjáum rótina hér. Hægra megin við hana liggur kisa í stól og þvær sér. Hún heldur sínu striki eins og aðrir kettir og tekur ekki þátt í sýningarundirbúningi. Yfir kisu sjáum við einkennilega dranga. Þeir sjást líka af þjóðveginum. Raunar eru þeir gerðir af manna höndum, höndum Sverris. Hann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.