Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1976, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1976, Blaðsíða 12
Teikning: Árni Elfar ' / Arni Ola Kroppsmenn og Hellismenn — Hverjir voru þeir? „Torfi Valbrandsson drap Kroppsmenn 12 saman, og hann réð mest fyrir drápi Hólmverja, o{> hann var á Hellisfitjum og Illugi hinn svarti og Sturla goði þá er drepnir voru 18 Hellismenn, en Auðun Smiðkelsson brenndu þeir inni á Þorvarðsstöðum." Svo segir Landnáma frá stórvirkjum Torfa. Verður ekki annað séð á frásögninni, en að hér hafi verið um óaldarflokka að ræða og hafi þótt mesta landhreinsun að losna við þá. Torfi hefir svo orðið frægur af þessum verkum, líkt og Ari í Ögri varó frægur af því að drepa Spánverja.nna forðum á Vestfjörðum. Harðar saga segir frá örlögum Hólmverja og hvern hlut Torfi átti að því að þeir voru sviknir og drepnir. Var það seinasta frægðarverkið af þessum þremur og þarf ekki um það að ræða hér. En vér eigum engar sögur af Kroppsmönnum ög Hellismönnum. Hverjir voru þeir? A Landnámu eru tvö einkenni, seiii fáir munu hafa veitt athygli. Hið fyrra einkenni eru hin mörgu þráðarslit í voð frásagnarinnar af landnámum á ýmsum stöðum, þar sem miklar likur eru á, að verið hafi irskar byggðir áður en norrænir landnámsmenn komu til sögunnar. Hafi Land- námshöfundar ekki séð þess neinn kost að þegja alger- lega um írskar byggðir, hafa þeir tekið það til bragðs að gera hændur þar að landnámsmönnum og gefa þeim flestum norræn nöfn. En hvar sem þeir treystu sér til að hylma yfir, að hér hafi verið írskir bændur, hafa þeir gert það, og þess vegna verður sagan hjá þeim í molum. Annað einkenni er það, að hvar som i Landnámu (eða Islendingasögum) er farið óvirðulegum orðum um menn og konur og þeim borin fjölkyngi á brýn, má ganga að því vísu, að þar sé um írskt fólk að ræða. Þótt vér höfum trúað þvi fram að þessu að hér hafi engin byggð verið áður en norrænir landnámsmenn komu, má þó glöggt sjá, að'slíkt er sögufölsun. Fólksfjöld- inn í landinu sýnir áþreifanlega, að hér hlýtur þá að hafa verið margt fólk fyrir. Til hægðarauka skulum vér telja, að hingað hafi komið 400 landnámsmenn og á hverju skipi hafi verið 30 manns til jafnaðar, og þá hafa hingað flutzt 12 þúsundir manna. Þessi innflutningur dreifist á 55 ár. Sé svo tekið tillit til þess, að barnadauði hefir þá sennilega verið meiri en nú og altaf voru mikil vígaferli, þá er vel í lagt sé gert ráð fyrir, að þjóðinni hafi fjölgað um helming á rúmum hundrað árum og hér í landi hafi verið 24 þúsundir manna þegar kristni var lögtekin. Sé svo ennfremur gert ráð fyrir því að sjötti hver maður af þjóðinni hafi verið vígfær, þá ættu að hafa verið 1000 menn vígfærir í hverjum fjórðungi árið 1000 til jafnaðar. En af frásögn- um um flokkadrætti í landinu og liðsafnað, má fljótt sjá, að þetta nær ekki neinni átt. Þegar Tungu-Oddur sat fyrir Þórði gelli við Hvítá árið 962, hafði hann 480 vígra manna, sem hann hafði safnað í uppsveitum Borgarfjarð- ar. Arið eftir hittust þeir á Alþingi og þá hafði Oddur 360 manna lið, en Þórður var miklu fjölmennari. Svo fjöl- mennum herflokkum hefði ekki verið unnt að safna á tiltölulega litlunt svæðum, ef ekki hafði verið nema 24.000 íbúar í öllu landinu. En þó tekur yfir þegar Víga-Styrs saga segir frá herferð Snorra goða til Borgar- fjarðar árið 1005 til að hefna Styrs. Þá haföi hann 800 manna en Borgfirðingar voru sunnan Hvítár með 1200 manna. Þarna eru þá taldar tvær þúsundir vígfærra manna úr tveimur þingum. En nú voru þrjú þing í fjórðungi hverjum og koma þá að meðaltali 3000 vígfærir menn á hvern fjórðung, en það samsvarar því, að þá hafi allur landslýður verið 72.000 manna, eða þrisvar sinnum mannfleiri heldur en hann hefði getað verið með eðli- legri fólksfjölgun, ef norrænu landnámsmennirnir hefðu komið hér að auðu landi. Þetta sýnir að 2/3 þjóðarinnar hafa þá verið af írskum stofni. Nú skal horfið að því að athuga hvað Landnáma segir um Iandnám f einu héraði, Borgarfjarðarsýslu norðan Skarðsheiðar, og Hvítársíðu, en á þessum slóðum gerðust atburðir þeir, sem sagt er frá að upphafi. Sumir eru farnir að draga f efa að Skallagrímur hafi numið land sunnan Hvítár og úthlutað því sínum mönn- um. Þessi skoðun verður látin liggja milli hluta hér og fylgt frásögn Landnámu. Skallagrímur fékk Grfmi háleygska land milli Andakíls og Grímsár, Ölafur hjalti fékk land frá Grímsá að Reykholtsdalsá og Ketill blundur fékk tunguna milli Flókadalsár og Reykholtsdalsár alla leið upp að Rauðsgili og „Flókadal allan fyrir ofan brekkur", — Björn gullberi nam Lundarreykjadal. Svo eru þarna tvö landnám enn, Skorradalur og Flóka- dalur, sem Landnáma eignar strokuþrælum Ketils gufu, Skorra og Flóka. Segir svo ekki meira af þeim en að þeir hafi verið drepnir, hvor í sínu Iandnámi. — Við þetta er ýmislegt að athuga. Höfundar Landnámu hafa vitað vel, að þrælar gátu ekki numið land, og allra sízt strokuþrælar. Þessir dalir hafa verið byggðir írskum landnemum áður en norrænir menn komu. En norrænu aðkomumennirnir gefa helztu mönnum dalanna þessi nöfn, Skorri og Flóki, og kenna svo dalina við þá. Nöfnin á dölbnum hafa verið orðin svo föst í málinu þegar Landnáma var rituð, að ekki hefir verið viðlit að ganga fram hjá þeim. Og þá er gripið til þess örþrifaráðs að segja, aó strokuþrælar Ketils gufu hafi fyrstir numið þessa dali, enda þótt sú fullyrðing væri óhugsandi fjarstæða. 1 öðru orðinu segir svo, að Ketill gufa hafi komið út „síð landnámstiðar“, en það þýðir, að Borgarfjarðarhérað hefir þá verið alnumið. Hér rekst hvað á annars horn, eins og vant er þegar farið er með ' blekkingar. Þessir menn, sem kallaðir eru Skorri og Flóki, hafa verið írskir bændur, og hið eina sem satt mun i sögunni, er þetta, að þeir hafi báðir verið drepnir. Ekki fara margar sögur af Skorrdælum, en þó má finna líkur til þess, að þar hafi haldizt írsk byggð: — Þorvaldur hét maður er bjó að Vatnshorni i Skorradal. Kona hans hét Þorgríma og var kölluð „smiðkona". Þau voru foreldrar Indriða á Indriðastööum, sem var mágur Ilarðar Grimkelssonar. Þorgríma liföi bónda sínum lengur og fluttist þá að Hvammi þar í dalnum. Sagt er að hún hafi ekki verið við alþýðuskap og fjölkunnug mjög. Einu sinni fóru Hólmverjar þangað og rændu yxnum hennar, en misstu þau öll úr höndum sér vegna galdra hennar. Afdrif hennar urðu ekki góð, því að þær Katla i Brynjudal hittust í Múlafjalli, flugust á í illu og drápu hvor aðra þannig, að skrokkarnir fundust rifnir sundur í smábúta. „Þykir reimt hjá dysjum þeirra." — Þau hjónin i Vatnshorni munu hafa verið irsk, það sýnir Iýsingin á konunni og andúð söguritarans á henni. 1 Flókadal og Bæjarsveit mun hafa verið samfelld byggð. Þess er getið, að Gnúpur, sonur Flóka, hafi búið í dalnum, en höfuðbölið hefir verið á Kroppi. Þess vegna segir frá því, að Torfi hafi drepið 12 Kroppsmenn. Ekki er þess getið hvað þeir hafi til saka unnið, en í Ármanns- sögu, sem þó er ekki talin heimildarit, er getið um deilur milli Tungu-Odds og Kroppsmanna. Risu þeir úfar af því, að fé Kroppsmanna fór inn yfir ána i land Odds. Flugu- fótur getur verið fyrir þessu, þótt frásögnin sé ýkju- kennd, þvf oft urðu beitingar orsök fjandskapar, og má því vera að hér hafi verið stuðzt við munnmæli. En þótt Oddur sýndi stillingu, þá var úti allur friður er Torfi mægðist við hann og fluttist að Breiðabólstað, því að „Torfi var grimmur og harðúðugur, vitur maður en ódæll og illur viðskiptis". Torfi hefir talið, að Kroppsmenn hafi unnið til óhelgi sér, og auk þess hafa þeir verið réttlausir i hans augum, vegna þess að þeir voru írskir. Ilann fer að þeim og drepur 12 þeirra og er i sögunni látið líta út sem þetta hafi verið landhreinsun, um óaldarflokk hafi verið að ræða. Trúi því hver sem vill, að óaldarflokkur hafi getað haldizt við i miðri sveit. Hitt mun sönnu nær, að Torfi hafi viljað losna við þá vegna þess að Jjeir voru irskir. Þetta ætti að hafa gerzt um 950, eða litlu seinna. Þrátt fyrir þetta mun írsk byggð hafa haldizt í Bæjar- sveit enn um langa hríð. Hróðólfur biskup kom út 1030. Hann settist að i Bæ í Bæjarsveit og stofnaði þar kennimannaskóla. Hvers vegna valdi hann þennan stað? Mundi það ekki hafa verið vegna þess, að þar var enn þéttbýli írskra manna? Irar höfðu verið kristnir um margar aldir, og afkomendur þeirra héldu fast við menningu þeirra. Hjáleigubændurnir þarna í Bæjarsveit munu hafa verið skriftlærðir og miklu betur að sér i kristnum fræðum heldur en afkomendur norrænu landnemanna. Hér var trúin ung og mikil skortur kenni manna. Hróðólfur stofnar skólann til þess að bæta úr þessu, og þá var mikill munur á að fá nemendur af írsku kyni heldur en norrænu. Þegar af þeirri ástæðu má ætla, að langflestir þeirra kennimanna, er útskrifuðust frá skólanum, hafi verið af irskum ættum. Nú var svo um samið, þegar kristni var lögtekin hér, að goðarnir hefði forráð kirknanna. Er því von að þeim hafi ekki litizt á, þegar ekki var völ annarra kennimanna en af írskum ættum. Það gat orðið háskalegt yfirráðum þeirra, ef svo héldi áfram. Og sennilega hefir það verið ástæðan til þess, að skyndilega brutust höfðingjar í þvi að kjósa hér innlendan biskup af norrænu kyni. Isleifur, sonur Gissurar hvita, varð fyrir valinu. Hann stofnaði biskups stól í Skálholti og stofnaði þar einnig kennimannaskóla. Er líklegt að sá skóli hafi aðeins kennt mönnum af norrænu kyni og reynt þannig að hamla á móti, að hér yrði nær eingöngu prestar af irsku kyni. — Mun ekki prestatal Ara fróða 1143, þar sem eingöngu eru taldir „kynbornir“ prestar I landi, hafa meðal annars verið samið til að sýna, að hættunni væri afstýrt. Menn af irsku ætterni voru ekki „kynbornir". Straumnum hafði verið snúið við og kirkna-yfirráðum höfðingjanna borgið. I Geitlandi mun hafa verið írsk byggð fyrir landnám. Dreg ég það af þvi, að þeir bræður Kalman og Kýlan, sem höfðu numið land i Hvalfirði og bjuggu á Katanesi, flýðu þaðan undan Finni auðga á Miðfelli og fluttust upp i Kalmanstungu. Þann stað hafa þeir valið vegna þess, að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.