Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1976, Blaðsíða 10
Á vinnustofu listakonunnar í Finnlandi.
I heimsókn
hjá finnsku
listakonunni
TERTTU
JURVAKAINEN
sem sýnir að
Kjarvalsstöðum
um þessar mundir
Myndir og texti:
Kristín Jónsdóttir stud arch
og Oli Hilmar Jónsson.stud arch
Jurvakainen hefur haldið sýningar i Þýzkalandi og Stokkhólmi fyrir
utan Finnland Það skal tekið fram. að sýning hennar hafði veiið
samþykkt á Kjarvalsstöðum áður en núverandi listráð komst á
laggirnar.
Terttu Jurvakainen er vel-
þekktur málari í Finnlandi.
Hún hefur haldið fjölda sýn-
inga bæði innan Finnlands og
utan. Hún ætlar nú að halda
til íslands og sýna um
70 málverk að Kjarvals-
stöðum eftir páska. Við
lögðum því land undir
fót og heimsóttum lista-
konuna þar sem hún býr og
málar í Muhos sem er lítið
þorp í Norður-Finnlandi. Okk-
ur var tekið tveim höndum af
listakonunni og tíkin Móna
tók undir með gelti miklu.
Terttu Jurvakainen leiddi
okkur til stofu og bauð sæti.
Raunar líkist hún miklu frek-
ar senjórítu af Spánarströnd-
um, sem hrafnsvart hárið og
brún augun, heldur en inn-
fæddum Norður-Finna. At-
hyglin beindist brátt að olíu-
málverkum á veggjum og tal-
ið barst fljótt að myndlist.
Jurvakainen sagðist hlakka
mikið til að koma til íslands
en spurði okkur um leið, hálft
Að neðan: Terttu Jurvakainen
heima hjá sér.
í gamni og hálft í alvöru,
hvernig það væri með jarð-
skjálfta og eldgos þessa
stundina á íslandi. Annars
kvaðst hún engar sérstakar
áhyggjur hafa af því, — „ef
gysi þá væri það hún sjálf"
sagði hún og hló.
Að svo búnu leiddi hún
okkur um undraveröld verka
sinna. Vinnustofa hennar var
þéttskipuð málverkum þeim
er eiga eftir að sigla yfir
„Atlants ála" og prýða veggi
Kjarvalsstaða. Hún kvaðst
vona að ekki yrði af yfirvof-
andi verkfalli hafnarverka-
manna í Finnlandi, — það
gæti sett slæmt strik í reikn-
inginn. Mikil vinna og tími
hefur farið í undirbúning sýn-
ingarinnar. Það yrðu henni
mikil vonbrigði ef ekki gæti
orðið af íslandsförinni sagði
hún.
Margar mynda hennar eru
sambland af natúralisma og
abstrakt þótt einnig megi
meðal þeirra finna fullkom-
lega figúratíf verk. Listakon-
an kvaðst mikið leita út i
náttúruna að viðfangsefnum,
sérstaklega hefðu trén og
skógurinn sterk áhrif á sig,
en hún málar þó alltaf inni.
Terttu Jurvakainen er út-
lærður barnakennari en hug-
ur hennar hneigðist fljótt að
myndlistinni. Hún lagði
stund á nám i myndlist við
listaskóla i Helsinki og fékkst
mikið við grafik á tímabili.
Um 1965 náðu oliulitirnir
tökum á henni og hafa þeir
alla tið siðan verið hennar
aðal efniviður i listsköpun-
inni. Hún kennir nú tvisvar i
viku listir við menntaskólann
í Muhos en mestur tíminn fer
þó í að mála.
Eftir rabb yfir kaffibolla og
kruðeríi fórum við að tygja
okkur heim á leið. Kvöldsólin
hékk eins og rauður bolti i
trjákrónunum er við kvödd-
um og óskuðum Terttu Jur-
vakainen góðrar ferðar til ís-
lands.
Jurvakainen virðist mála í mörgum stíitegundum eins og með-
fylgjandi myndir ættu að gefa til kynna. Myndin hér að ofan
„Stúlkur og flöskur" er svo ólík þeirri til vinstri, að hún sýnist vera
eftir allt annan höfund.