Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1976, Side 4
rT',~
mmmm
Þessi mynd er af svokölluðu Sönduhverfi, Sandgerði,
Sólbakka, Sandprýði og Sanda er lengst til hægri. Það
býli er eitt af fyrstu þurrabúðarbæjum á Stokkseyri. Þess
er fyrst getið um 1824 en var svo í eyði um tíma. 1884
reisti Torfi Nikulásson sér þar hús. Hann fórst með allri
skipshöfn sinni 20. °mars 1897. Nikulás, sorfur hans,
sem þá var aðeins 11 ára bjó þar svo þegar honum óx
fiskur um hrygg, stækkaði húsið og breytti þvi. Siðan
hafa aðrir búið þar. Nú býr þar Jón Jónsson frá
Loftsstöðum.
mmmrnr
w-.- "
Stokkseyri er hvorki stórt pláss né rismikið. Þó
býr þessi bær yfir sérstæðum töfrum, sem erfitt er
að skilgreina. Að baki er aðeins marflatur Flóinn,
en á skerjunum framundan byltir sér það fræga
brim, sem hefur haft sjónræn áhrif á suma og
tónræn áhrif á menn eins og Pál ísólfsson tónskáld,
þann fræga Stokkseyring. Maður fer ekki um
Stokkseyri öðruvísi en að hugsa til Páls og fleiri
landskunnra andans kappa, sem þaðan hafa komið.
Við Þuríðarbúð verður hugstæð sagan af Þuríði
formanni, sem var langt á undan sinni samtið i
jafnréttisbaráttunni og auk þess einn mesti
„sérlokk" sem íslenzk saga greinir frá og fengu
Kambránsmenn að kenna á því. Á Stokkseyri hafa
til þessa verið sérstæð og falleg húsanöfn við lýði
og vonandi verður þeim ekki útrýmt; nöfn eins og
Roðgúll, Sanda og Sjólyst eru ekki á hverju strái.
Sem betur fer hefur Stokkseyri ekki ennþá orðið
fyrir barðinu á nútíma skipulagi þar sem
reglustikan ræður ein. Aðalgatan sveigist á ýmsa
vegu eins og náttúran sjálf hefði lagt hana. Og
ennþá standa nokkur hús, sem bera vitni um
tímaskeið bárujárnshúsanna. Hér hafa menn
kindur, kýr og hesta; búfénaðurinn er á beit innan
um húsin, allt í fallegu samræmi. Trjágarðar setja
hinsvegar ekki sinn svip á Stokkseyri. Myndirnar
eru frá í fyrrasumar, þegar Ijósmyndari Lesbókar
var þar á ferðinni, en staðkunnugur maður,
Sigurður Guðjónsson á Litlu Háeyri á Eyrarbakka
hefur verið hjálplegur með texta undir myndirnar.
GS.
HAUST
HUS
Einn af Beinateigsbæjunum talinn byggSur 1896. Þar
bjó um tfma Jósteinn Kristjánsson og hafði hann
smáverzlun I hvftu steinbyggingunni, sem er næst ð
myndinni.
Þetta er einn af Beinateigsbæjunum, byggSur 1896 af
Runólfi Jónassyni frð Magnúsfjósum.