Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1979, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1979, Blaðsíða 8
Jörðin var mannkyninu gefin, ekki til þess að það skyldi tæ'.a hana sundur og leggja stór flæmi hennar í auðn, heldur sem nokkurs konar smíðarefni, er það skyldi fegra og um bæta eftir þörfum sínum og hentugleikum. Hér hefir aö vísu gengið á ýmsu, en undiraldan er þó æ hin sama, að mannlegt hyggjuvit og sköpunarþrá reynir að gera jörðina betri og byggilegri. Maöurinn er alltaf að umbreyta jörðinni eftir hentisemi sinni, og á þetta jafnt við um ein- staklinga og þjóöir. En í þessum miklu önnum gleymist furöu oft sá sannleikur, sem felzt í þessum oröum skáldsins (E. Ben.) lýtt, en lyft upp í framför, hafið og prýtt. Aö fortíö skal hyggja, ef frumlegt skal byggja, án fræöslu þess liöna sést ei hvaö er nýtt. Reykvíkingar eru sem aðrir aö endur- skapa sitt umhverfi eftir þörfum sínum og allra íslendinga. Úr fátæklegu fiski- rinannaþorpi eru þeir að skapa höfuð- borg lands síns. Þeir reyna eftir megni aö fegra og bæta þaö sem var. Á grýttum holtum hafa þeir reist hvert borgarhverfið á eftir ööru, með götum og gangstéttum, vatnsveitu, hitaveitu úr iörum jaröar, raflögnum og síma, frárennsli og þrifnaöarráöstöfunum, útvarpi og sjónvarpi strætisvagna- feröum um allan bæ, bílum og flug- vélum og þó eigi síst meö því aö rækta fagra skrúögarða umhverfis snotur hús sín. En hvaö er þá um hinn gamla bæ aö segja, þann er stóö hér um aldamót, og kalla má vöggu þeirrar Reykjavíkur, sem nú er. Án fræðslu hans sjáum vér ekki hvaö nýtt er. Um gamla bæinn veröur ekki sagt, aö hann sé eins og haugfé frá liðnum öldum, miklu fremur veröur honum líkt viö brotasilfur, sem smiöir eru aö kasta í deiglu og bræöa upp og smíöa úr nýar gersemar. Margan manninn fýsir að' fylgjast meö þeim vinnubrögöum og sumir telja aö eigi megi allt brotasilfriö fara forgöröum, því aö þar á meðal finnist ómetanlegir kjörgripir. Með því hugarfari leggjum vér leið vora til gamla bæjarins og þó aöallega í þeim tilgangi aö láta fræöslu hins liöna sýna oss hvaö er nýtt. Reykjavík var bóndabýli fram um miðja 18. öld, en varö verksmiðjuþorp 1952. Þá hefst saga Aðalstrætis og þar eru reist fyrstu timburhúsin. Þegar talað er um gömul hús í Reykjavík, veröur því að hafa í huga, aö þau elztu geta ekki veriö nema rúmlega 200 ára, og eitt þeirra er enn í Aöalstræti. En þaö var ekki fyrr en eftir að Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi 1786, aö skriöur kemst á byggingar- sögu hennar. Þá rís upp röö timburhúsa meöfram sjónum alla leið frá Aöalstræti austur aö læk. Þaö var upphaf Hafnar- strætis og byggöin var þá eins og vinkill í laginu tvær götur, sem mynduöu nokkurn veginn rétt horn á tvo vegu viö gamla túniö í Reykjavík, Austurvöll, sem náöi austur aö læk og suöur aö tjörn. Hér á vel viö aö minnast ofurlítiö á lækinn. Arnarhólslækur hét hann upphaflega, en menn höföu fyrir löngu stytt nafn hans og kölluðu hann bara lækinn. Hann kom úr noröausturhorni tjarnar- innar, hlykkjaöist meöfram löndum hjáleiganna Skálholtskots og Stöðla- kots og rann síöan á landamerkjum Reykjavíkur og Arnarhóls til sjávar, örskammt frá Arnarhólsklettum. Hann var talinn 198 faðma langur, víöast svo sem tveggja faöma breiður og holbekktur. Meö hverri fjöru féll hann í stríðum straumi til sjávar, en meö hverju flóöi snerist straumurinn viö og sjór beljaði þá inn í tjörnina. Hvergi var vaö á botnum nema niðri tijá ósnum. Hann hafði verið nokkurs konar landa- merkjaflóg, allt frá þeim tíma, er Arnarhóll varö sjálfstæö jörð. Og nú átti hann þaö nafn enn betur skilið, því aö hann afmarkaöi kaupstaöarlóö Reykja- víkur á þann veginn. Aö vestan af- markaöist hún af Grjótabrekkunni, aö noröan af sjónum og aö sunnan af tjörninni. Þeir, sem settu henni þessi takmörk, voru einhuga um, aö

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.