Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.1979, Blaðsíða 3
Fonda í hlutverki Barbarellu 1967 og til hægri í Cat Ballou.
Elísabet Jökulsdöttir
LÍTIÐ BARÁTTULJÖÐ
tileinkaö vinstri-intellektúalkllkunni í reykjavík
Vaknaöu!
Klukkan nálgast níu
og byltihgin er aö hefjast
Hana!
Reyndu aö drulla þér frammúr
Þú getur allavega lagt þig
þegar þú kemur heim
klukkön fimm.
HÆTTU AÐ HUXA
Hættu aö huxa vinur
huxun leiöir aldrei til neins
þú átt aö gera
Vera
Bíddu ekki eftir neinu
þaö er veriö aö bíöa eftir þér
stattu þig
Komdu
Þaö er ekkert aö óttast í lífinu
nema óttann sjálfan
ekki hika
Þú ert
Þú ert búinn aö velta þér nógu lengi
uppúr eigin sleni
stattu upp
Sjáöu
Með hálfu fjalli skal ég gefa þér heilan skóg
árnar renna allar til sjávar
og voriö kemur á sínum tíma
andaöu.
Meðal þess sem Jane Fonda hefur gengið í gegnum er að verða eiginkona Roger Vadim,
fyrrum eiginmanns Birgitte Bardot, og um svipað lcyti var Fonda víðfrægt kyntákn og
einskonar Bardot vestra; upphcfð sem henni finnst nú lítils virði.
aöskilja vinnuna, fjölskylduna, stjórnmái-
in o.s.frv., eins og algengt er aö menn
geri; ég kæri mig ekki um aö lifa lífinu í
aöskildum pörtum.“
Þau Fonda og Tom Hayden eru nú
búin aö vera glft í sex ár og engin merki
þess aö hjónabandiö muni rofna. Þykir
þetta merkilegt í Hollywood. En þau eru
trúlega samrýmdari en gengur og gerist
þar í borg, hafa sameiginlega hugsjón og
vinna aö henni saman enda þótt þau
skipti meö sér verkum daglega, hann er í
pólitíkinni alla daga en hún sér um
heimiliö — eldar og kaupir inn, ekur
börnunum í skólann og þar fram eftir
götunum. Þau búa spart miðað viö efni,
aö vísu í einbýiishúsi en þaö er lítið og
enginn íburöur Innl. „Viö viljum lifa
óbrotnu lífi,“ segir Fonda. „Við gætum aö
sjálfsögöu flutt í Beverly Hills ef okkur
sýndlst. En ég fæddist til auðs og
munaöar og mér leiddist þaö alla tíö aö
lifa í þessari sérstöku veröld sem auöugt
fólk byggir og er utan viö allt annaö í
heiminum. Þaö er ekki eölilegt og mér féll
þaö aldrei." Maöur hennar fæddist hins
vegar til sárrar fátækar og honum er
meinilla viö þaö aö berast mikiö á.
Hayden berzt gegn
áhrifum risafyrirtækja
— og ffyrir sólarorku
Fonda hefur orðiö manni sínum aö
miklu liði á framabrautinni, ekki aöeins
vegna þess hve miklar tekjur hún hefur
heldur líka vegna vinskapar síns viö
frægöarfólk í kvikmyndaheiminum. í
kosningabaráttunni 1976 voru t.a.m.
Brenda Vaccaro og Donald Sutherland
og fleiri á borö viö þau aö útbýta
kosningapésum fyrir Hayden, og
Groucho gamli Marx reis upp úr körinni
til þess aö koma fram á framboösfundi
Framhald á hls. 13