Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1982, Blaðsíða 4
Hugmyndir um götur, yfirgerðar meö gleri, geta ekki heldur talizt nýjar. Marg- sinnis hefur veriö íaö aö þessum mögu- leika hér í Lesbók; síðast með spurning- um til núverandi og fyrrverandi ráöa- manna. Þar kom í Ijós, aö áhugi þeirra á þessu efni stendur svo aö segja á núlli. Líklegt er þó að þeir hafi veriö meö í huga yfirbyggingu á Austurstræti, eöa einhvern álíka fjarstæðukenndan mögu- leika. Hugmynd Þóröar er frumleg og góö vegna þess aö hann sýnir að yl- stræti þarf ekki aö vera flókin fram- kvæmd, ef málið er tekiö föstum tökum frá upphafi: allar leiðslur í einskonar kjallara undir götunni, en byggt í sam- fellu meöfram götunni báöum megin. Önnur hæö slútir lítið eitt framyfir þá fyrstu og þannig áfram unz komnar eru til dæmis fimm hæöir. Þá er gert yfir meö gleri. Þórður gerir ráö fyrir aö jarðhitinn veröi notaður til þess aö ylja upp þessar yfirbyggöu götur, þar yröu rótföst tré, trjágróöur í kerjum og pottum, klettar og mosi, rennandi vatn og gosbrunnar. Forfeður okkar kunnu ekki aö klæöa sig. Þeir höfðu gærurnar en kunnu ekki aö búa sér til hentugar flíkur úr þeim. Á öld tækninnar búum viö að sama rysj- ótta tíöarfarinu, en viö kunnum ekki til fulls aö byggja bæi, sem hæfa þessu tíðarfari. Til aö kóróna allt saman höfum við jaröhitann og notum hann vissulega, en langt í frá eins og hægt væri. Viö gætum gert Reykjavík aö heimsfrægri borg, sem væri yndisleg íveru og Þóröur benti á, að við eigum ekki aðeins að líta á heita vatniö sem náttúruauðlind, held- ur nátturuyndi. Þriöji þátturinn í sýningu Þóröar Ben voru nýjar gerðir íbúöarhúsa í þéttbýli, sem hann hugsaö sér aö gætu komiö í staö blokkanna. Þarna var vissulega hrært upp í því venjubundna af talsveröu hugrekki. Ekki svo aö skilja, aö hér væri sýnt eitthvaö sem kalla mætti geimald- arstíl eöa annaö þvíumlíkt, sem framtíö- arspámenn gætu látiö sér detta í hug. Ég kalla þaö hugrekki á þessum tímum, aö Þóröur sækir sér aö verulegu leyti hugmyndir til liöins tíma. Hann leggur til aö hver íbúö sé á tveimur hæöum, en garðhús, yfirgert meö gleri þar ofaná. Sem sagt: í staö þess aö ganga frá þaki á heföbundinn hátt ofan á steypta plötu, gerir Þóröur ráö fyrir grind og gler- klæöningu á hana. Þarna veröur hvort- tveggja í senn: Innigaröur og útsýnis- staöur. Sjálft útlit húsanna vakti þó ekki síður athygli, en Þóröur hafnar kassalaginu og vinkilforminu sem einu nýtanlegu lausn- inni, og notar hringformiö og þríhyrn- íngsformiö einnig. Varla fer þaö milli mála, að afstaðan er mun rómantískari en sú sem ríkt hefur allt frá því Bau- haus-stíllinn varö allsráöandi. I þessum hústeikningum Þóröar kemur fyrir ein- kennilegt sambland af stíltegundum. Sumt minnir sterklega á Jungend-stíl, annaö á Gaudi hinn spænska, en ívafiö er þjóðlegt og íslenzkt, t.d. grjót, sem notaö er á veggi. I því sambandi má minna á, aö í myndlist hræra menn saman expressjónisma og raunsæisútfærslu, fantasíum og afstrakti. Formalisminn, sem ríkti í myndlist er úr sögunni og ef til vill er hann brátt úr sögunni í arkitektúr einnig, enda hefur þetta tvennt löngum haldizt í hendur. Er þetta útópísk draumsýn hjá Þóröi, eöa raunhæfur möguleiki? Og annað, sem ekki skiptir minna máli: Yröi Reykjavík einhvers bættari; yrði hún betri borg aö búa í? Ég hika ekki viö aö svara því játandi. í fyrsta lagi er ég ekki einn um þá skoöun, aö viö byggjum heldur Ijót hús og sálarlaus. Einhver uppstokkun á bygpingarhugmyndum yröi vafalítið til góös. Eg hef áöur minnst á, aö þaö eru undarleg ósköp aö væla 4 Þétting byggðar í Reykjavík — skipulagstillaga Þórðar Ben Sveinssonar. Hann leggur m.a. til aö byggt veröi á núverandi flugvallarsvæði, en flugvöllur ffyrir innanlandsflug færöur vestast á Seltjarnarnes, þar sem ennþá er óbyggt. Auk þess gerir Þóröur ráö ffyrir lágri, en .þéttri byggö íbúöarhúsa nyrst á Seltjarnarnesi og aö sú byggö verði tengd miðbænum meö brúm eins og sést á teikningunni. Þórður Ben Sveinsson hefur í liðlega áratug starfað sem kennari í sjónmenntum í DUss- eldorf í Vestur-Þýzka- landi, en hann var einn af stofnendum framúrstefnuhópsins SÚM og hefur haldiö áfram að starfa undir merki nýlistastefnu. Á sýningunni aö Kjarv- alsstööum var Þóröur með eitt stórt verk, sem stingur mjög í stúf við framúrstefnu- list yfirleitt, en þaö var hefðbundið málverk af morgunbirtu við Þing- vallavatn — fremur þó mynd af morgun- stemmningu en ákveðnum bletti í landslagi — og situr Þóröur hér framan viö þessa mynd. yfir skorti á byggingarlandi og vera meö fast upp viö miðbæinn annað eins flæmi óbyggt og Vatnsmýrin og flugvallar- svæöiö er. Fyrir nokkrum árum birtust hér í Lesbók hugmyndir Bjarka Jóhann- essonar, arkitekts og verkfræöings um byggö á flugvallarsvæöinu. Raunar haföi sú lausn veriö prófverkefni hans. Hann geröi ráö fyrir þéttri en fremur lágri byggö íbúðarhúsa á svæöinu, en mér þykir hugmynd Þóröar um ylstræti frum- legri og eftirsóknarveröari. Það er engin spurning, aö þetta er allt saman hægt; aðeins þarf vilja, kjark og þor — og kunna aö hagnýta sér tækn- ina. En þaö er eins víst, aö mörg Ijón eru á veginum. í fyrsta lagi gerist ekkert nema pólitískur vilji sé fyrir hendi. j ööru lagi er viö rótgróna íhaldssemi aö eiga, sem ekkert fer eftir stjórnmálaflokkum, en vill helzt viöhalda þeim vanþróun- arbrag og doöa, sem lengi hefur ein- kennt gamla miðbæinn. í þriðja lagi er við ýmsa hagsmuna- og þrýstihópa aö eiga, til dæmis þá, sem umfram allt vilja halda í flugvöllinn á núverandi staö. Þóröur Ben sýndi ekki aöeins teikn- ingar sínar af skipulagi, ylstrætum og íbúðarhúsageröum. Hann reifaði sjón- armið sín í rituöu máli á veggspjöldum og hefur hann gefiö leyfi til þess aö birta það, sem þar stóö. Veröur þaö væntanlega gert síöar. Gísli Sigurösson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.