Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1982, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1982, Blaðsíða 15
OG MINJAR Bíldudalskirkja er frá 1906 og ein af kirkjum Rögnvalds Ólafs- sonar arkitekts, sem teiknadi nokkrar fallegar kirkjur, þar á medal kirkjuna á Húsavík og þjódkirkjuna í Hafnarfiröi. Mynd- irnar tók Hannes Pálsson Ijósmyndari. Einaf kirkjum Rögnvalds Olafssonar búin góðum gripum Altaristaflan er frá 1916 og eftir einn af brautrydjendum íslenzkrar myndlistar á þessari öld, Þórarin B. Þorláksson. Bíldudalskirkja varö sjötíu og fimm ára annan desember síðastliðinn, en Bjarni Símonarson prófastur á Brjánslæk vígði kirkjuna 2.12. 1906. Ásamt honum voru viö athöfnina séra Jón Árnason sem var að taka við sem fyrsti sóknarprestur Bildu- dalskirkju, en þar áður var hann prestur í Otradal. Við þessa athöfn var einnig séra Böðvar Bjarnason prestur á Hrafnseyri. Bíldudalskirkja stendur á lítt áberandi stað á sléttri eyri, en hún myndi sóma sér vel hvar sem er, því hún er hið reisulegasta hús. Svo rúmgóð aö hún tekur um tvö- hundruð og fimmtíu manns í sæti, sem er mikið miðað við stærð safnaðarins þegar hún var byggð. En þá er þess að geta, aö Bíldudalur var í hröðum uppgangi og fór fólki þar fjölgandi þegr mesti athafnarmað- ur landsins Pétur Thorsteinsson var búinn aö byggja upp staðinn í athafna og félags- málum. Sumir kölluðu hann Arnarfjarðar- kónginn og vissulega var hann kóngur i ríki sínu. Maður með hugsjónir langt á undan sinni samtíð. Þeir voru ekki á hverju strái í þá daga. Enda gerðust hér þeir hlutir sem hreinlega þekktust hvergi annarsstaðar á landinu. Hér i kauptúninu stendur minnisvarði um þau hjónin Pétur og Ásthildi eftir Ríkharð Jónsson. Þau hjón áttu mörg börn. Eitt þeirra var Muggur listmálari, en honum var reistur minnisvarði hér í sumar sem leið eftir Guðmund Elíasson. Muggur er mjög ástsæll með þjóðinni. Eitt verka hans er altaristaflan í Bessastaðakirkju. Það mun hafa kostað tólf þúsund krónur að byggja kirkjuna hér á Bíldudal en það mun hafa verið mikið fé í þá daga, því þá kostuðu altir hlutir færri aura en krónur nú. Bíldudalskirkja er úr steini með viðar inn- réttingu. Stöpullinn er einnig steyptur með áttstrendum timburturni. Krossmarkið efst á turninum er í 17,5 metra hæð. Ýmsa gamla merka muni á Bíldudalskirkja, sem hún fékk úr Otradal. Þar var áður prests- setur og sóknarkirkja Bílddælinga svo og kirkjugarður. Meðal þessara muna er altar- istafla frá 1737 með kvöldmáltíðarmynd. Hún hangir ekki fyrir altarinu; þar er nýrri tafla máluð af Þórarni B. Þorlákssyni 1916, sem sýnir Maríu viö gröfina er Kristur mæt- ir henni og segir: „Kona hví grætur þú.“ Annar forngripur kirkjunnar er prédikun- arstóllinn frá 1699. Á honum eru myndir af Kristi og postulunum. Þriðji forngripurinn er skírnarfontur með mynd af skírn Jesú. En munir Bíldudalskirkju minna ekki aðeins á liöna tið. Inni í þessum helgidómi er stór og mikil bók, er geymir minningar og svipmót og æfiatriði þeirra mörgu Bílddæl- inga er fórust með vélskipinu Þormóði nóttina milli 17. og 18. febrúar 1943. Mun Jens Hermannsson þáverandi skólastjóri hafa staðiö fyrir því að þessi bók varð til. Ennfremu eru silfurskildir sem tilheyra þessu sjóslysi og öðrum af sömu tegund. Rögnvaldur Ólafsson, arkitekt teiknaði kirkjuna, en hann var fyrsti arkitekt lands- ins. Múrarar voru Þorkell Ólafsson, Reykja- vík og Þorsteinn Guðmundsson og Finn- bogi Jóhannsson báðir frá Bíldudal. Tré- smiðir voru Björn Jónsson, Kristinn Grímur Kjartansson og Valdimar Guðbjartsson, allir frá Bíldudal. Þessi minnisvarði þeirra er nú oröinn sjötíu og fimm ára og vonandi á kirkjan eftir að þjóna um langan tíma og bjóða kynslóðum sóknarinnar skjól í stormbyljum lífsins. Megi hún standa sem lengst. Þeir prestar sem hafa þjónað við Bíldu- dalskirkju frá fyrstu tíð til þessa dags eru Jón Árnason, Helgi Konráðsson, Jón Jak- obsson, Jón Kr. ísfeld, Sigurpáll Óskars- son, Óskar Finnbogason, Tómas Guð- mundsson (þjónaði frá Patreksfirði), Hörö- ur Þ. Ásþjörnsson, Erlendur Sigmundsson og Þórarinn Þór (prófastur á Patreksfirði). Núverandi prestur við Bíldudalskirkju er séra Dalla Þórðardóttir. Jón Kr. Ólafsson, Bíldudal. Myndskreytingar á gamla predikunarstólnum eru ekki mádar að ráói og hann getur vel talizt kjörgripur. 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.