Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1983, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1983, Síða 4
Sýning á Kjarvalsstööum: Ljósmyndarinn EMILE ZOLA Ljósmyndasafnið hf. og Menningardeild franska sendiráðsins standa saman að sýningu á Ijósmyndum rithöfundarins Emile Zola, sem bregða Ijósi á líf rithöfundarins og mannlíf í París fyrir aldamót, þegar glæsileikinn sat í fyrirrúmi og menn fóru um götur á hestvögnum. Sýningin stendur á Kjarvalsstööum frá 26. febrúar—8. marz og verða þar sýndar 140 myndir af þeim 7000 Ijósmyndum, sem Zola tók á síöustu árum ævi sinnar. Sýningin hefur gengiö á milli borga í Frakklandi, en þetta er í fyrsta sinn sem hún er sett upp utan Frakklands. Á sama tíma og sýningin stendur, verður kvikmyndahátíð í Regnboganum um helgar, þar sem sýndar veröa kvikmyndir, gerðar eftir bókum Emile Zola. Jean Dieuzaide: Þriöja auga Emile Zola Borgin Chateau d’Eau á því láni að fagna að mega halda fyrstu sýningu á myndum rithöfundarins Emile Zola í Frakklandi. Ef til vill mun ég ennþá særa einhverjar íhaldssamar sálir þeg- ar ég lýsi yfir, án þess að hafa á tilfinn- ingunni að ég sé að ýkja, að við séum himinlifandi yfir að fá að bæta nafni hans á lista þeirra frægu ljósmyndara sem hafa heiðrað sýningarsal okkar síð- astliðin átta ár. En Zola verðskuldar sannarlega þennan heiður. „Heimildaljósmyndin er bókmennta- leg án þess að vita af því,“ skrifar Pierre MacOrlan. Á móti er hægt að setja fram þá hugmynd að flestir rit- höfundar séu ljósmyndarar án þess að vita af því. Besta dæmi um slíkt er skáldsagnahöfundurinn Emile Zola, sem hefur verið kallaður „ljósmyndari þjóðfélagsins á tímum síðara keisara- dæmisins", en nákvæmni lýsinga hans er slík, að hún nálgast tærð og næmi ljósopsins. Engum datt í hug að hægt væri að taka þessa fullyrðingu í bók- staflegri merkingu. Reyndar höfðu margir frægir rithöf- undar og listamenn í lok nítjándu aldar mikinn áhuga á „þessari nýju list“; sem dæmi má nefna Flaubert, Victor Hugo, Guy de Maupassant, Jules Verne, Deg- as, Ingres, Manet, Monet og Delacroix og fleiri sem ég man ekki í svipinn ... Paul Valéry kveður fast að orði er hann skrifar hjá sér: „Ljósmyndagerðin er Hjákonan Jeanne. Um myndina skrifaöi Zola svohljóð- andi: „Hárið var kraftaverki líkast, ótrúlegt lokkaflóð fullt af djúpum liðum, hlýr og lifandi kjóll, ilmandi af hreinu, nöktu holdi“. (Emile Zola, „Le reve“ (Draumur- inn), 1888). Emile Zola og Alexandrine kona hans. Það er dálítið fyndið, að þegar Zola reynir að vera í hlutverki hins ærukæra eiginmanns á mynd, er því líkast sem steinmyndin að baki hrópi á hann, yfír sig hneyksluð. hvati til að hætta að vilja lýsa því sem getur lýst sér sjálft.“ Þessi tilfinning er ríkjandi hjá Zola á síðustu æviárum hans. Fundum Zola og ljósmyndarinnar hlaut að bera saman. Því veldur með- fædd athyglisgáfa, og tilraunir hans til að greina í venjuleika hversdagsins hluti sem járngreipar vanans meina okkur að sjá. Zola reynir að finna feg- urð og skáldskap í hverfulustu augna- blikum tilverunnar. Loks er einfaldlega mikilvægt að vera talsmaður „natúral- isma“ í bókmenntum. Zola finnst natúr- alisminn líka vera til í ljósmyndagerð: „Hann er sú athygli sem veitt er þýð- ingarmiklum hreyfingum og skilningur á mikilvægi augnabliksins." Rithöfundurinn Emile Zola getur því ekki litið á ljósmyndagerð eingöngu sem þægilega aðferð til að drepa tímann. Þvert á móti skilur hann fljótt raun- verulegt og vísindalegt sjálfstæði þessa tjáningarmiðils: „Ég álít,“ skrifar hann, „að ekki sé hægt að segjast hafa séð eitthvað nema að hafa tekið mynd af því. Á henni koma í ljós mörg smáat- riði, sem ekki væri annars hægt að greina í sundur." Þrátt fyrir það hefur Emile Zola ekki leitað til ljósmyndarinnar í þeim til- gangi að fá fram hárnákvæmni þá sem Gustave Flaubert notaði í lýsingum á landslagi Norður-Afríku þar sem saga hans Salammbo gerist. „Þegar ég tala um hluti sem ég hef séð, sé ég þá eins og þeir eru í raun og veru, útlínur þeirra, lögun, liti, lykt þeirra og hljóð. Þetta er að gera hlutina alltof efnislega," segir Zola,„ sólin sem skín á þá gerir mig næstum blindan." Emile Zola er uppi um aldamótin 1900. Það tímabil er mikilvægt augna- blik fyrir þróun ljósmyndarinnar. Hún breytist úr myndum áhugamanna, „minningum frá heiminum", í myndir 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.