Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1983, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1983, Blaðsíða 3
Dr. Meyer Friedman er heimsþekktur hjartasérfræðingur. hann er yfir- læknir við Mount Zion-sjúkrahúsið og heilsugæslustöðina í San Fran- cisco í Bandaríkjunum. í eftirfarandi grein lýsir hann þeirri skoðun sinni og annarra lækna, að visst fas, hegðun og framgangsmáti manna geti verið orsakavaldur kransæðasjúkdóms. Hér er um að ræða hina svokölluðu A-manngerð sem alltaf liggur á, iðar í skinninu og er í sífellu kappi við tíma og samborgara. Greinin birtist í tímaritinu Hjartavernd og birtist hér með leyfi tímaritsins. C. Sérkennileg einkenni 1. Sjálfsvitund um óþolinmæði. 2. Tvennt eða þrennt haft í tak- inu í einu, bæði í hugsun og gerð. 3. Gengið hratt, etið hratt og staðið fljótt upp frá borðum. 4. Viss hlutur hafður til að minna á stundvfsi. 5. Tíðum ráðlagt að hægja á sér. 6. Örðugleikar með að sitja kyrr. 7. Sífelld not tölustafa í tfma og ótíma. 8. Óþolinmæði við aðra fyrr en varir. Ef til vill meira en áhættuþáttur? Snemma á árinu 1957 styrkt- ist grunur okkar um mikilvægi hegðunar A-manngerðar þegar við lögðum spurningar fyrir 300 framkvæmdastjóra og 70 lækna sem önnuðust kransæðasjúkl- inga. Við spurðum þá hvað þeir teldu að flýtt hefði fyrir því að vinur þeirra eða sjúklingur fékk kransæðastíflu. Okkur til undrunar svaraði þriðjungur framkvæmdastjór- anna að „óhófleg samkeppnis- áreynsla og annir við að ljúka ætlunarverki í tæka tíð“ hefði verið meginorsakavaldur krans- æðastíflu vinarins. Og okkur til enn meiri furðu svaraði um það bil þriðjungur læknanna á sömu lund, jafnvel þótt skýrslurnar sem þeir höfðu fyrir framan sig sýndu það svart á hvítu að margir sjúklinganna höfðu venjulega áhættuþætti, svo sem umdeilanlegt mataræði, þeir reyktu mikið og hreyfðu sig í minna lagi. Þetta benti til þess að hjarta- sjúklingar og læknar þeirra kæmust í framtíðinni á allt aðra skoðun um orsök sjúkdómsins en læknar þeir sem þegar höfðu rannsóknir með höndum og rit- uðu um þær greinar. Þessi staðfesting lækna og leikmanna á grun okkar varð okkur hvatning til að hefja skipulagðar rannsóknir, læknis- fræðilegar, faraldsfræðilegar og í rannsóknarstofum. Eftir nálega 25 ára rannsókn- ir og meira en 150 greinar um þetta efni er ég þeirrar skoðun- ar að við höfum svo miklar upp- lýsingar i fórum okkar, að líkur megi leiða að því að hegðun A- manngerðar sé ekki einungis jafn- alvarlegur áhættuþáttur krans- æöasjúkdóms og aðrir sem hingaö til hafa veriö taldir valda mestu, heldur megi líta á hana sem und- anfara þeirra sumra. Læknisskoðun á „heilbrigöum“ A-manngerðareinstaklingum og kransæðasjúklingum leiðir svipað í Ijós. Við fjölda læknisskoðana höf- um við komist að raun um að löngu áður en heilbrigðir ein- staklingar með A-manngerðar- einkenni verða kransæðasjúk- dómi að bráð finnast í líkama þeirra sömu efnaskiptaeigin- leikar og venjulegir eru í krans- æðasjúklingum. Kransæðasjúklingar hafa venju- lega hærra kólesteról- og þríglys- eríðagildi en heilbrigðir einstakl- ingar. A-manngerðareinstaklingar Stefán Júlíusson þýddi. hafa einnig sama óeðlilega kólest- eról- og þríglyseríðagildi. Ennfremur er það einkenn- andi fyrir kransæðasjúklinga að rauðu blóðkornunum hættir til að límast saman eftir fituríka máltíð. Þetta truflar blóð- strauminn um aðalkransæðarn- ar sem næra hjartavöðvann, en meira máli skiptir þó að þessar truflanir stuðla að þrengslum í nýjum minni æðum sem líkam- inn hefur virkjað í stað þeirra skemmdu og þannig eykur blóð- þykknið á líkur á öðru hjarta- áfalli. Við höfum komist að raun um að A-manngerðareinstaklingar sem enn eru heilbrigðir eru undir sömu sök seldir eftir sams konar máltíðir. Sú tilhneiging er algeng hjá kransæðasjúklingum að dulin offramleiðsla verði á hormón sem nefnist noradrenalín og getur verið skaðlegur veilu hjarta. Með sanni má segja að of mikil framleiðsla á noradrenal- ín-hormón sé að verða umtals- verður ógnvaldur kransæða- sjúklinga. A-manngerðareinstakl- ingar sem við læknisskoðun reyn- ast enn lausir við kransæðastíflu hafa einkenni um offramleiðslu á þessum hormón frá degi til dags. Margir kransæðasjúklingar eiga við að búa truflanir á insúl- íninnstreymi og þannig raskast sykurefnamagnið í blóðinu. Oft leiðir þetta til beinnar sykur- sýki. Þessara óeðlilegu efnaskipta gætir einnig hjá mörgum A-mann- gerðareinstaklingum. í sem fæstum orðum: Þessi óeðlilegu efnaskipti í flestum kransæðasjúklingum gera einn- -ig var við sig í A-manngerðar- einstaklingum löngu áður en þeir verða sjúkdómnum að bráð. Eftir niðurstöðum af þessum ranpsóknum að dæma virðast lík- ur benda til þess að það sé sjálf hegðun A-manngerðarinnar sem komi af stað og viðhaldi þessum sjúklegu efnaskiptum sem margir vísindamenn hafa fram til þessa álitið orsakavalda í þróun krans- æðasjúkdóms. Reynist þetta rétt er það ekki í fyrsta sinn sem kerrunni hefur verið beitt fyrir hestinn. Sópað undir teppið Sé raunin sú að andleg truflun geti orsakað þær óeðlilegu efna- breytingar og þau sjúklegu efnaskipti í mannslíkamanum sem venjulega eru talin fyrir- boði og orsök kransæðastíflu eru miklar líkur á því að koma megi af stað svipuðum breyting- um í völdum dýrum ef unnt er að koma þeim í viðlíka sálar- ástand. Við höfum einmitt kom- ist að raun um þetta. Þegar kanínur, sem gefin var kólesterólrík fæða, voru sam- tímis truflaðar tilfinningalega (þ.e. ákveðnar stöðvar í heilan- um ertar) jókst ekki einungis kólesterólmagnið í blóði dýr- anna miklu meira en í þeim dýr- um sem látin voru afskiptalaus heldur þréngdust æðar þeirra einnig stórum meira. Sömuleiðis urðum við varir við sömu einkenni, hækkun á kólesterólgildi í blóði og þreng- ingu æða, í kanínum sem við lét- um dynja yfir linnulausan sker- andi hávaða. En kanínur voru ekki einu dýrin sem við gátum stuðlað að æðakölkun í með ertingu tilfinn- ingastöðva í heilanum. Okkur tókst einnig að trufla nokkrar heilastöðvar í rottum með sömu afleiðingum. Meðan þessu fór fram urðu þær grimmilega snakillar og árásargjarnar. Ög skömmu seinna fóru að koma í ljós hjá þeim sömu efnaskipta- einkennin og algeng eru í krans- æðasjúklingum. Nýlega gerði hópur vísinda- manna tilraun á kanínum og sneri blaðinu alveg við. í stað þess að vera með ýfingar við dýr sem alin voru á kólesterólríkri fæðu var talað hlýlega til þeirra og þeiin strokið með vissu milli- bili nokkrum sinnum á dag. í þessum eftirlætiskanínum fund- ust miklu minni einkenni æða- kölkunar en í hinum sem mót- læti mættu. Ég er að sjálfsögðu þeirrar skoðunar að þessar tilraunir gefi allglögglega til kynna að allar rannsóknir á fólki þar sem andlegt ástand einstaklinganna er ekki tekið með í reikninginn bjóði þeirri hættu heim að verið sé að sleppa áhættuþætti krans- æðasjúkdóms sem ef til vill gæti verið þýðingarmeiri en aðrir. Flestar þessar umræddu rannsóknir voru ekki gerðar á síðustu mánuðum, þær voru gerðar og niðurstöður þeirra birtar fyrir meira en áratug. Sem sagt, þar til nýlega hefur þeim verið sópað undir teppið. A-manngerð og B-manngerð Hegðunarfas A-manngerðar sem við höfum veitt athygli hjá kransæðasjúklingum benti til þess að ef um tengsl væri í raun að ræða milli þess og kransæða- sjúkdóms ættum við að geta leitt annað í ljós. Okkur átti að vera fært að komast að raun um að tíðni kransæðasjúkdóms væri meiri hjá körlum og konum af A- manngerð en hjá hinum rólegri og ljúfari B-manngerðarein- staklingum. Og þetta er nákvæmlega sú niðurstaða sem við dr. Rosenman komumst að í athugun okkar á tíðni sjúkdómsins með A-mann- gerðar- og B-manngerðareinstakl- ingum, sem valdir voru fyrir okkur af leikmönnum. í þessari rannsókn kom á dag- inn að tíðni kransæðasjúkdóms var sjö sinnum meiri hjá körlum með ótvíræða A-manngerðar- hegðun en hjá B-manngerðar- körlum. Eftir þetta vorum við næstum vissir um það með sjálf- um okkur að sambandið milli hegðunar A-manngerðar og sjúkdómsins væri ekki tilviljun. Þessi skoðun okkar styrkist að mun eftir næstu rannsókn. 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.