Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1985, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.1985, Blaðsíða 8
ella færi hann í mola og þegar allt er til reiðu, setur Kristjana upp asbesthanzka, tekur á hlutnum með armlangri áltöng, fær einhvern af heimilisfólkinu til að taka í keðjuna sem opnar ofninn — og rennir hlutnum niður í 800—900 gráða hita. En stundum beitir Kristjana jarð- brennslu. Þá er hluturinn kældur vel og lengi. Ofninn er þá ef til vill ekki opnaður fyrr en sólarhring eftir að hann slökkti á sér. Við jarðbrennslu er notuð gröf, sem minnir á kolagröf, þar sem viðarkol eru búin til. Þessi gröf er hálfur annar metri á dýpt og henni er lokað að ofan með plöt- um. Hægt er að jarðbrenna marga hluti í einu; Kristjana staflar þeim í gröfina, en lætur sag, harðvið eða hrossaskít með og þessi eldsmatur er látinn brenna ofanfrá. I þessu fóðri getur lifað í heila viku; það kraumar svona eins og í kolagröf, enda er vandlega lukt yfir og hitinn í gröfinni get- ur orðið mikill, á að gizka 600—700 gráður. Það er ævinlega mjög spennandi augna- blik að opna gröfina, segir Kristjana; ailt- af kemur eitthvað á óvart. Til dæmis sýndi hún mér tvö eða þrjú mannshöfuð, sem höfðu ekki fengið þá áferð, sem hún óskaði eftir; þau voru með þessum föla leirlit í framan, en jarðbrennslan hafði litað á þeim kollinn, svo þau voru líkt og með húfur. En þetta kemur ekki að sök; hlutir sem þannig fara, eru látnir fijóta með í næstu jarðbrennslu. Áhættan við þessa vinnslu felst einkum í sprunguhættu og margan hefur það leik- ið grátt, þegar allt springur. Sú hætta er fyrst og fremst fyrir hendi í hrábrennsl- unni, — sé leirinn illa þurr, getur orðið hörkusprenging, og sundrar þá öðru sem í ofninum er. Þessi áhætta er einnig fyrir hendi í rakú-brennslunni. „Það tók sinn tíma að skipuleggja vinn- una og fá tíma til þess að ganga að þessu verki jafnframt heimilisstörfunum. Nú orðið er ég hörð á því að fara bara í mína vinnu úti í vinnustofu, jafnvel þótt hjá okkur séu gestir, sem búa kannski hjá okkur svo dögum skiptir eins og komið hefur fyrir. Gestirnir veiða bara að sjá um sig sjálfir. Mér finnst fólk skilja það núna, að ég þarf að fá næði til að vinna. Að undan- förnu hef ég getað verið löngum stundum úti á verkstæði, já, alla daga. Þetta er seinunnin vinna; hún krefst mikils tíma og þolinmæði. Þetta væri ekki hægt, ef maður hefði aðeins stolnar stundir til þess. Ef maður gleymir sér aðeins, þá kemur mað- ur kannski að öllu í molurn." En sjálf myndefnin, það sem óneitan- lega skiptir máli ekki síður en útfærslan, — hvernig koma þau til Kristjönu? Um þá hlið málsins segir hún: „Vinnan sjálf leiðir af sér nýjar hug- myndir. Ég hef nóg af hugmyndum á lager og meira en ég hef komizt yfir að vinna úr. Hugmyndir fæðast á meðan verið er að vinna, — en það gerist líka, að maður setj- ist niður með blýant og blað. Það gerist ekki sízt, að hugmyndir komi til mín að loknum vinnudegi, þegar litið er í hugan- um yfir dagsverkið og á að fara að sofa, — og þá halda þær fyrir manni vöku. Mínar hugmyndir standa oftast í sam- bandi við fólk — bæði hinn ytri og innri mann. Kannski þó öllu meira þann innri. Ég vona að það sjáist, að það er verið að tjá einhverjar kenndir og að þetta eru a.m.k. stundum myndir með sálrænu inn- taki. Líkaminn — þá gjarnan kvenlíkam- Horft á rígningu. Kossinn. inn — er form sem hentar mér vel núna. Stundum er það aðeins höfuð og brjóst — torsó — en brjóstið er holt, að hluta opið og stundum má sjá eitthvað innanbrjósts. Ég kalla þetta myndhvörf; það vex ekki kaktus innan í manni í bókstaflegum skilningi og enginn er heldur með mörg hjörtu. Þetta er einskonar raunsæi með fantasíuívafi." Sumar þessara kvenmynda hefur Krist- jana unnið úr leirþynnum, sem flattar eru út eins og kökudeig með kefli, sem svipar til kökukeflis. Þessar þynnur verða ákaf- lega vandmeðfarnar, til dæmis sem efni- viður í mannsmynd. Þær hafa ekki burð í sjálfum sér og verður því að gefa þeim einhvern stuðning. Sumar þessara mynda eru útafliggjandi á stöplum úr límtré, — og vegna þess að skúlptúrar á sýningum hér hafa frá gamalli tíð fremur staðið lóð- réttir upp af stöplum sínum, er við því að búast að þetta þyki framandi. Útafliggj- andi myndir hafa þó vissulega sézt hér, enda er víst fátt nýtt undir sólinni. Má minna á í því sambandi að einn fremsti myndhöggvari heimsins, Henry Moore, hefur margoft gert myndir af fólki, sem liggur útaf. Sýning Kristjönu á Kjarvalsstöðum er fyrsta einkasýning hennar og þar af leið- andi merkur áfangi fyrir hana. En aðeins áfangi. Sú leið, sem framundan er, hefur ekki verið vörðuð, en um leirinn segir Kristjana, að hann sé tvímælalaust gott efni í skúlptúr. Hún telur að hún muni halda áfram að vinna með leir, en síðar meir stefnir hún að því að vinna í brons og aðra málma. Gísli Sigurösson Að leir sé notaður í höggmyndir er ekki alveg nýtt af nálinni. Terracotta-myndir eru jafn gamlar skráðum frásögnum af mannkyninu; sumar þær elztu sem um er vitað eru af frjósemisgyðjum. Þessi tækni var notuð meðal Forn-Egypta, einnig á Krít og í Grikklandi hinu forna og bæði Etrúrskar og Rómverjar notuðu þessa að- ferð. Það vakti athygli ekki alls fyrir löngu, þegar gröf fannst í Kína með miklu „fjölmenni" úr brenndum leir, og þannig mætti lengi telja. Hinsvegar hefur þróunin á íslandi og á Norðurlöndum að mestu fallið í þann farveg að gera nytjahluti úr leir. Á þeim fjórum árum sem liðin eru síðan Kristjana kom frá námi í Arizona, hefur hún verið að þróa það sem hún lærði og á tveimur undanförnum árum að vinna að þeim verkum, sem á sýningunni eru. En hvað um tímann til þess arna; hvernig fer hún að því að sinna þessu jafnframt móð- urhlutverki og heimilisstörfum. Um það sagði hún: Konumynd. Selda brúðurin eftir Smetana Aþessu ári er liðin ein öld frá andláti tékkn- eska tónskáldsins Smetana og 160 ár frá fæðingu hans. Hann fæddist 2. mars 1824 í Bæheimi. Faðir hans rak ölgerðarhús, en lék á fiðlu og lét sér annt um að hlúa að tón- listargáfu sonarins. Hann lærði á fiðlu og píanó og söng í kirkju- kór meðan hann var barn að aldri, og átta ára samdi hann fyrsta verk sitt — dans fyrir píanó. Foreidrar háns skiptu oft um búsetu á æskuárum Smet- ana, svo að námsferill hans mót- aðist af því. Síðast var Smetana z við tónlistarnám í Prag, en sló heldur slöku við námið. Samt lauk hann námi um 1847 og fór þá í tónleikaferð sem varð þó endaslepp vegna fjárhagsörðug- leika og það sama ár varð hann píanókennari hjá Thun-Hohen- stein greifa. Smetana var virkur þátttakandi í marsuppreisninni í Prag 1848 og samdi kórlög og marsa af því tilefni, en fjárhag- ur hans var erfiður og hann leit- aði ásjár Liszts og tileinkaði honum fyrstu tónsmíð sína (opus 1). Ári síðar gekk hann í hjóna- band og var kona hans píanó- leikari, en þar bar skugga á því að þrjú af börnum þeirra dóu í æsku. Árið 1856 í október settist Smetana að í Gautabcrg og kom þar á fót tónlistarskóla og stjórnaði hljómsveit. Konu sína missti hann úr tæringu 1859, en kvæntist aftur ári síðar og árið 1861 fór hann frá Gautaborg og settist að í Prag og vann þar að tónlistarmálum bæði sem hljómsveitarstjóri og einleikari á píanó. Hann lauk fyrstu óperu sinni árið 1863 og 2 árum síðar hóf hann að semja Seldu brúðina og var hún frumflutt í Prag 30. maí 1866. Á næstu árum samdi hann fleiri óperur, en engin þeirra hefir náð sömu vinsæld- um og Selda brúðurin, sem kalla má þjóðaróperu Tékka. Fimm árum síðar var Selda brúðurin flutt í fyrsta skipti erlendis, það var í Pétursborg (nú Leningrad). Síðustu æviár Smetana voru dapurleg. Hann hrökklaðist úr starfi sínu og missti heilsuna, en fékkst þó við tónsmíðar fram undir það síðasta. Hann andað- ist 12. maí 1884. Selda brúðurin er gamanóp- era, sem fjallar um hjúskapar- miðlun og ástir í meinum, en allt fer þó vel að lokum. Hún gerist í sveitaþorpi og sveitafólkið syng- ur og dansar og tónlistin sem Smetana lætur það syngja er hrífandi og gædd sérstökum þjóðlegum þokka sem ekki verð- ur með orðum lýst. Eins og að líkum lætur hafa Tékkar ekki látið sitt eftir liggja að leika Seldu brúðina inn á hljómplötur, ein og sú nýjasta kom út á árinu 1982. Það er Supraphon digital 1116 3511-3, stjórnandinn er Zdenek Kosler, og hlutur hans í upptökunni er mjög góður. Gabriela Benakova syngur Marenku (Maríu), hún hefur mjög blæfagran mezzo- sópran og túlkar hlutverkið með ljóðrænum trega sem fellur vel að tónlistinni. Peter Dvorský syngur Jeník (Hans) og tvísöng- ur þeirra í upphafi óperunnar er stílhreinn og fagur. Um önnur hlutverk má segja að þar sé rétt- ur maður á réttum stað. Ekki þarf að taka fram að hér er sungið á tékknesku. Til er eldri útgáfa á 2 plötum, þar er sungið á þýsku, stjórn- andinn er Rudolf Kempe, aðal- hlutverkin eru í höndum Pilar Lorengar, Fritz Wunderlich og Gottlop Frick og það er Bam- berg-sinfóníuhljómsveitin sem leikur. Enda þótt þessi útgáfa -EMl IC 149 30967/9 - sé orðin nær tveggja áratuga gömul, hef- ir hún haldið velli og ber þar hæst frábæran söng Wunderl- ichs og listfeng tök Kempes á þeirri töfraveröld sem hann seiðir fram og býr að baki nótn- anna. A.K.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.