Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1985, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1985, Blaðsíða 6
Páll Guðmundsson ásamt höggmynd af Krístleifi bónda á Húsafelli sem Páll befur höggvið iír rauðleit- um steini. vera byggðar á eigin upplifun. Það sem byggt er á að apa eftir útlendum tímarit- um um list, getur naumast dregizt í þann dilk, enda gleymist það fljótt. Páll hefur búið á Húsafelli síðan hann lauk námi. En um þriggja vetra skeið hef- ur hann kennt teikningu við grunnskólann í Borgarnesi. Þar hefur hann kynnst og haft mikið saman að sælda við Hallstein Sveinsson, bróður Ásmundar myndhöggvara. Hall- steinn er 82 ára og dvelur á elliheimilinu í Borgarnesi og er sem fyrr mikill áhuga- maður um myndlist. Það hefur verið Páli hvatning að vera í sálufélagi við þennan merkilega öldung; kynslóðabil er ekki til þar, þótt aldursmunurinn sé 57 ár. En hversvegna er málarinn kominn suð- ur til Reykjavíkur með myndir unnar í grjót? Hann getur svarað því eins og fjallgöngumaðurinn, sem var spurður: Hversvegna í ósköpunum varstu að ganga á fjallið? Og hann svaraði: Vegna þess að fjallið var þarna. Grjótið var þarna, að vísu ekki heima við bæ á Húsafelli, heldur inni í gili, sem grafizt hefur í fjallið skammt frá Húsafelli. Þar sá Páll hentuga steina; sumir myndu kannski segja björg. Þau eru sum gráblá á litinn, en önnur rauðleit. Engu nema handaflinu verður við komið í gilinu og Páll varð að velta sumum steinunum heilan kílómetra. Það kemur sér að hann hefur krafta í kögglum, sem bezt sést af því, að hann getur tekið upp og gengið um með hina frægu kvíahellu Snorra prests í Húsafelli, sem margir kraftamenn hafa spreytt sig á. En hann getur ekki ennþá axlað hana eins og Guð- mundur faðir hans gerði æði oft og sýndi ferðamönnum, þar á meðal skrifara þessa pistils. Eitt er þó það bjarg, sem Páll hefur ráðist á með hamri og meitli, en ekki verð- ur hreyft. Það er jarðfast í Selsgili innan við Húsafell og meira en mannhæð, það sem uppúr jörðu stendur. Bjargið er áþekkt hálfunninni mynd af manni og Páll ætlar að ljúka því, sem náttúran byrjaði á. Hann er rétt að byrja á andliti risans, sem hann nefnir svo og ætlar að ljúka við það síðar. Lesbók/Friðþjófur Kjarvalsstaðir PÁLL Á HÚSA- FELLI SÆKIR EFNI- VIÐINN í GILIÐ Sreinbjörn allsherjargoði Stærri mannamyndirnar, t.d. þær sem eru af Kristleifi bónda á Húsafelli, Jó-' hannesi á Giljum í Hálsasveit og Svein- birni allsherjargoða á Draghálsi, hjó Páll heima við bæ á Húsafelli síðastliðið sumar. Páll hefur líka höggvið mynd af Hallsteini í rauðgrýti og margar minni myndirnar, þar á meðal af fótum og hendi, hjó hann hjá Hallsteini á elliheimilinu í Borgarnesi. Pyrsta tilraun Páls í þessa veru er mynd af hrúti sem einnig er á sýningunni, en þar má líka sjá Gretti að glíma við Glám. Einnig mannsmynd úr 500 kílóa líparítsteini. Préstur í hempu og með kraga og heitir raunar Húsafellsprestur. Myndin mótaðist af upphaflegu lagi steinsins og manni dettur óðar í hug séra Snorri, galdra- og kraftamaður, en ekki vildi Páll beint viðurkenna það. Framundan hjá Páli er námsdvöl í Þýzkalandi. Hann ætlar að hafa aðsetur Páll á Húsafelli er kominn í kaupstaðinn með grjót í farteskinu. Gráleitt grjót og rauð- leitt grjót, stórt og smátt. En fyrst og fremst eru þetta myndir; höggmyndir. Páll er myndhöggvari í skýrustu merkingu orðs- ins, og þeir eru fáir nú á dögum. Kannski þykir það of erfitt, of seinvirkt að kvarna úr hörðum steini með meitli og hamri. Sig- urjón gerði margar slíkar myndir hér fyrr meir, en síðasta spölinn á ferli sínum var hann þó að mestu hættur því. Páll er fæddur 1959 og hefur átt heima á Húsafelli. Faðir hans, Guðmundur Pálsson frá Hjálmsstöðum í Laugardal, kvæntist heimasætunni á Húsafellli og settist þar að. Páll er skýrður eftir afa sínum, Páli á Hjálmsstöðum í Laugardal, sem var lands- kunnur hagyrðingur og gleðimaður. „Áhugi á myndum og myndlist hefur verið í mér frá því ég var barn,“segir Páll á Húsafelli, þegar við göngum um salinn á Kjarvalsstöðum, þar sem hann er í óða önn að koma höggmýndum sínum fyrir á stöplum. „Svo lá leiðin í Myndlista- og handíðaskólann; þaðan útskrifaðist ég 1981.“ Mér eru minnisstæð málverk Páls frá samsýningu ungra listamanna á Kjarvals- stöðum 1982, — raunar minnisstæðust af öllu sem þar var sýnt. Kannski er það vegna þess, hve mjög myndefni Páls skar sig frá öllu hinu. Hann sýndi nokkur stór portret af bændum ofan úr Borgarfirði. Þetta voru veðraðir menn og hendur þeirra eins og kalkvistir. Þessar myndir voru áreiðanlega mjög sannar og þær höfðu eitt umfram annað á sýningunni: Að 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.