Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1986, Blaðsíða 12
 Freudisti eins og þú hlýtur þegar að hafa gert þér grein fyrir. Ég trúi á lífshvötina og dauðahvötina. Þetta gerði Freud, því skyldi ég ekki gera það líka. Það er atvinna mín að trúa því. Það var í fyrstu hugsjón, hugljómun, en með árunum, þessum enda- lausu endurtekningum, þá er Freud ekkert annað en brauð. Eg ét Freud." Hann hló við. Ég kannaðist við fátt eitt af því sem hann var að tala um, en samt roðnaði ég lítið eitt við að heyra þetta nafn, Freud. Mér fannst eins og bæði Emir og Freud væru að gera gys að mér eða gerðu sér ódýrt gaman á minn kostnað. Ég tók eftir því að gretta færðist yfír andlit hans. Hann fór að ókyrrast og ég vissi af gamalli reynslu að þetta væri undanfari stórra tíðinda. Hann tók stórt reyksog og púaði beint í andlit mér. Horfði síðan á mig dágóða stund og yfír hann færðist ísköld ró. „Þegar þú sagaðir kranann sællar minningar í sundur þá varstu ómeðvitað að hafna eiginmanni þínum. í kynferðislegum skilningi fór hann beint á öskuhaugana." Ég rak upp skellihlát- ur. Hann leit alvarlegum augum á mig og ég fann að ég hafði hlegið á vitlausum stað í leikritinu. „Það er löngu orðið ljóst af samtölum okkar að ofheym þín stafar af niðurbældu kynferðislegu hatri á eiginmanni þínum, Eyjólfi. Losaðu þig við hann og fáðu þér annan." Ég sá strax að hér var hægara um að segja en í að komast. Gat kona á mínum aldri, 43 ára gömul, haft efni á slík- um munaði? Og bömin, ekki mundu þau liggja á athugasemdum sínum í þessu efni. Það kumraði í honum er hann heyrði mót- bámr mínar og honum virtist einhvem veginn svo innilega skemmt. „Alltaf má fá annað skip og annað fömneyti. Ertu ekki sammála?" Ég hrökk upp. Ég hafði gleymt mér alveg. Þetta hafði allt saman komið mér svo á óvart. „Já, er það? Jú, það hlýtur að vera hægt að fá sér nýjan farangur, ég meina fömneyti. Það hlýtur að vera,“ end- urtók ég og reyndi að brosa dálítið sann- færandi. Hann hélt áfram: „Þið konur emð alltof lengi að átta ykkur á hveijir em hinir raunvemlegu böðlar lífs ykkar." Hann gerði hlé á ræðunni og fékk sér tog af vindlinum. „Þið emð sífellt að kenna sjálfum ykkur um, eilffar sjálfsásakanir, alltaf að sækja vatnið yfír lækinn. Það er hin misheppnaða sköpun í alsheimsklukkunni sem slær vit- laust og setur ykkar eigin klukku úr jafn- vægi.“ „Hefur þá nokkum tilgang að vera, þú veist, að skipta um,“ spurði ég og ég fann að rödd mín skalf lítið eitt. „Auðvitað, auðvitað. Það em ekki allar klukkur jafn vitlausar. En hvað þér viðvíkur þá hittumst við aftur á miðvikudaginn í næstu viku á sama tíma.“ Hann brosti til mín, stóð upp, gekk að dyrunum, opnaði hurðina, leit hvatlega til mín og sagði: „Já, hvað meðulum viðkemur, þá geturðu bara tekið þig saman í andlitinu, farið að ráðum mínum og hent þeim. En að öðmm kosti þetta venjulega, 2—3 töflur af hverri sort yfír daginn. Og reyndu nú endilega að taka þetta inn á rétt- um tíma.“ Ég jánkaði þessu öllu saman, en sá að einhver hugdetta var að fæðast með honum. „Þú ættir að skrifa þér til hugar- hægðar um samskipti okkar. Þau em orðin löng og ströng. Þú ættir að geta skrifað eitthvað um þau.“ Hann leit glettnislega til mín um leið og hann sagði: „En í guðanna bænum láttu það ekki birtast nokkurs staðar á prenti, enda sjálfsagt vandfundinn sá asni sem yrði svo vitlaus að gefa það út.“ Hann hló stórkarlalega. Áður en ég vissi af var ég komin út á götu. — Ég var stödd meðal blómakeijanna eins og sagði frá í upphafi þessarar sögu. Ég var á leiðinni, án þess að hafa hugmynd um það þá, í mitt síðasta viðtal til Emis. Hann tók brosandi á móti mér: „Hvemig höfum við það í dag, munað eftir pillunum, þú heitir nú aftur?" hann leit spyrjandi á mig og ég sagði honum nafn mitt. „Já, já, alveg rétt, þetta er allt saman héma í plögg- unum. Hefur Svarti seppi nokkuð komið í heimsókn? Þú manst, Churchill ogþunglynd- ið. Nei, fyrirgefðu. ■ Ég er með kolvitlaust| spjald, eða sjálfur orðinn vitlaus.“ Hann hló. Fann auðsjáanlega rétta spjaldið og spurði: „Hefurðu munað eftir að taka töfl- umar reglulega?" „Nei, ég henti þeim í klós- ettið eins og þú ráðlagðir mér, hripaði niður nokkur minnisatriði um samskipti okkar, skellti mér svo niður á Morgunblað og talaði við þá þar, eins og þú hafðir skipað mér og þeir lofuðu mér að þessi „spegilmynd" mundi birtast í Lesbók Morgunblaðsins í dag, sunnudag. Er ekki sunnudagur í dag?“ Ég leit á Emi og sá að augu hans sem alltaf vom svo dauf vom nú orðin fallega blá, fagurvatnsblá og augnaráðið fjarrænt eins og eilífðin. Allt endurtekur sig eilíflega áir hugsuðir hafa haft jafn mótandi áhrif á nútímann og þýski heimspekingurinn Friedrich Nietzsche. Margar kenninga hans eru sveipaðar dularfullu andrúmslofti spámannsins og sé litið til sögu tuttugustu aldarinnar sést að þar hefur Um heimspekinginn Friederich Nietzsche og kenningar hans Vegna kenningarinnar um ofurmennið hefur Nietzsche verið tengdur upphafi þýzka nasista- flokksins. Én sannleikur- inn er sá, að hann hafði fyrirlitningu á þýzkri þjóðemishyggju og um Þjóðverja hafði hann þetta að segja: „Þeir hafa á samvizkunni sérhvern þann glæp sem framinn hefur verið gegn menn- ingunni á síðustu fjórum öldum.“ honum fátt skjátlast. Þrátt fyrir að hann lægi í undarlegu þagnargildi meðal sam- tímamanna sinna, varð hann seinna andlegt yfírvald þeirra sem vildu sameinað Þýska- land og þjóðemissinna sem í tilbeiðslu fylktu sér um kenningu hans um hið beinskeytta ofurmenni sem þeir töldu homsteininn að Þýskalandi jámagans og þeir boðuðu. Þó var það menning Frakka og Miðjarðar- hafsþjóðanna sem Nietzsche var meira að skapi, ekki „Kultur" germönsku þjóðanna. Hann hafði megna andúð á andgyðinglegum áróðri, fordæmdi allt kynþáttahatur og bar lof á gyðinga. Hann átti í hatrömmum deil- um við systur sína, þegar hún giftist manni nokmm sem hugðist stofnsetja nýlendu í Nietzsche & yngri árum. Suður-Ameríku, þar sem gyðingum væri meinaður aðgangur. Hann hafði fyrirlitn- ingu á þýskri þjóðemishyggju og um Þjóð- veija hafði hann þetta að segja: „Þeir hafa á samviskunni sérhvem þann glæp sem framinn hefur verið gegn menningunni á síðustu fjómm öldum." Hann boðaði þjóðskipulag þar sem aðall- inn og herinn drottnuðu og varaði við hug- myndum hnignandi borgarastéttar um fé- lagslegt jafnræði og lýðræði, sem var í óijúf- andi tengslum við fyrmefnda kenningu um „ofurmennið". Á því leikur hins vegar lítill vafí að Hitler og hyski hans hefðu ekki sótt í greipar hans annað en fyrirlitningu, því Nietzsche var fyrst og síðast húmanisti. Meðal eftirlætis orðtaka hans sem lýsa áttu viðbjóði vom: „almúgi", „þýlyndi", og „rót- leysi" og „hjarðdýr" og þessum orðum hefði hann vissulega beitt til að skilgreina nánar eðli nasistanna, sem á hinn bóginn vísuðu til hans sem andlegs leiðtoga síns. Höfuðástæðan fyrir þessum mistúlkunum er sú að Nietzsche var fremur „sjáandi" og skáld en kerfísbundinn heimspekingur. Viðfangsefni sín túlkaði hann af einstæðri málfarslegri snilld og skýrleika, en þau mynda ekki heilsteypt kerfí kenninga og í þeim gætir töluverðrar ósamkvæmni. Flest verka hans em samsafn laustengdra, iýsandi spakmæla sem snerta á heimspeki, félags- fræðum, bókmenntum, siðfræði og trúar- brögðum og í mörgum þeirra fólst biturt andóf við ríkjandi kennisetningar. Sérstaklega var Nietszche uppsigað við kristindóminn og fylgikvilla hans, „þrælasið- ferðið". í síðustu verkum sínum, sjálfur á mörkum bijálsemi, gaf hann sér nafnið and-Kristur. Þegar hér var komið hafði andi uppreisnar leitt hann í hring og nú réðst hann að rótum þess trúarlega uppeldis sem honum hafði í æsku hlotnast. Því í raun var hann á sinn hátt eplið sem féll af eik prestsetursins. Það var ekki nóg með að faðir hans væri prestur heldur var hann kominn af klerkum langt aftur í ættir. Og sjálfur var hann predikari, í vissum skiln- ingi, allt til æviloka. Nietzsche deildi ákaft á kristindóminn, þó sjálfur fyndi hann mikið af siðferðilegum anda hans í sjálfum sér. Þessi meðvitaða nærgætni og góðmennska sem honum var eðlislæg, leiddu hann út í harkalegar árásir, eins og til að bæta fyrir að vera haldinn þessum kristilegu dyggðum. Á svipaðan hátt brást hann við veikbyggðum líkama sínum (hann var alla tíð heilsulítill). Hann hlóð hinn ljósa, sterkbyggða norræna kynstofn ómældu lofti. Skírlífí sitt og feimni gagnvart konum bætti hann sér upp með skjalfestri fyrirlitningu sinni á þeim. Hann þreyttist aldrei á því að skammast út í konur. í „Also sprach Zarathustra" (Svo mælti Zaraþústra) segir hann konur, enn sem komið er, ekki hæfar til að stofna til vináttu, þær séu enn kettir eða fuglar eða í besta falli kýr. „Manninn á að þjálfa til hemaðar, konuna til að geta hermenn. Allt annað er flónska." NafnKóngsins Hann fæddist 15. október í Röcken, þorpi nálægt Lútzen í Prússlandi. Þannig vildi til að sá dagur var einmitt afmælisdagur keis- arans, Friedrich Wilhelms IV. Faðir hans var í sjöunda himni yfír þessari tilviljun. Hann hafði kennt mörgum úr hinni keisara- legu fjölskyldu og nú skírði hann soninn eftir keisaranum. Þetta hafði þær ánægju- legu afleiðingar fyrir Friedrich að í bemsku hans voru afmælin almennir hátíðisdagar. Hann varð fyrir þungu áfalli þegar hann missti skyndilega föður sinn þijátíu og sex ára gamlan. Upp frá því tóku konumar á heimilinu við uppeldi hans og dekmðu við hann og gerðu hann næstum kvenlega næman. Hans mesta ánægja var fólgin í því að loka sig af og lesa úr Biblíunni eða lesa úr henni fyrir aðra af svo mikilli innlif- un að viðstaddir támðust. Hann var átján ára þegar hann missti trúna og það sem eftir lifði ævi hans leitaði hann nýrrar trúar, sem hann seinna taldi sig hafa fundið í fagnaðarboðskap „ofur- mennisins". Hann varð bölsýnn eins og sá sem hefur lagt allt sitt undir í teningaspili og tapað. Hann tók upp lífemi stúdentanna við háskól- ann í Bonn og Leipzig. Það er næstum fullvíst að hann hafí smitast af sárasótt á þessu tímabili sem aftur leiddi til andlegs áfalls hans 1888. Vitfírrtur og einmana lést hann 25. ágúst aldamótaárið 1900. Skömmu eftir komu hans til Leipzig 1865, uppgötvaði Nietzsche rit Schopenhauers „Heimurinn sem vilji og hugmynd", sem gjörbylti andlegu lífí hans. Seinna skrifaði hann að í þessu riti hafi hann séð „spegil sem ég skoðaði heiminn í, lífíð og eðli mitt af skelfílegri tign“. Svartnættið í heimspeki Schopenhauers varð ekki afmáð úr hugsun Nietzsches, þrátt fyrir að hann í riti hafnaði svartsýni fyrirrennara síns og kröfu hans um afneitun, mótstöðu gagnvart viljanum. Hermannadýrkun Tuttugu og tveggja ára var Nietzsche kvaddur í herinn en viðdvöl hans þar varð 12 NÉMMWMm

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.