Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1986, Blaðsíða 9
Bliadur Mínótárus. Viðfangsefni úr forn-grískum goðsögnum voru Picasso afar hugstæð. ríska raunsæismálarann Helnwein. ts, bæði konur almennt, svo ogeiginkonur at slegið á ólíka strengi, eru hérportret þótt hann værifyrir iöngu genginn ndaf Olgu konu sinni í raunsæisútfærslu 'j Maar, sem síðar varð eiginkona hans, uáluð 1937. umgerð svipmynda úr lífinu, — þetta eru meginstefnin í verkum Picassos. Maðurinn Innan svimandi hrynjandi stflþróunar Picassos og á öllum æviskeiðum hans birtist ímynd mannsins æ ofan í æ eins og fastur þáttur. Stundum eru það andlitsmyndir af ættingjum og vinum, stundum dansmeyjar, beinamenn, trúðar, nautabanar, riddarar og stríðsmenn, framan af á raunsæisskeiðinu með fáum formbreytingum, en síðar meir með áberandi afmyndunum andlita og lík- ama. Maðurinn er meginstef hugsunar hans og sköpunar, hvort heldur ímjmd hans birt- ist okkur ljúf og notaleg á bláu og bleiku tímabilunum, sundruð á skeiði kúbismans og síðar, afmynduð en þó þekkjanieg í súrr- eaiisma hans og í höggmyndunum, eyðilögð á tímum borgarastyrj aldarinnar á Spáni og svo endurheimt og fullþroska á síðasta æviskeiði hans. MÁLARINN, FYRIRSÆTAN OGKONAN Picasso tekur oft fyrir stefið um málarann að vinnu andspænis fyrirsætunni, kemur þar sjálfur að eins og hver annar áhorfandi og leggur sig fram um að sýna yndisþokka fyrirsætu sinnar og stellingu. Mjúkar línur líkama fyrirsætunnar eða einstaklega frjálslegar stellingar verða til- efni margvíslegra formhugleiðinga og flytja okkur ímynd konu, hvort heldur hún aðhefst ekkert ellegar hefur sig í frammi í samskipt- um sínum við málarann. Konan er eitt höfuðstefið í verkum Picass- os, sem uppspretta innblásturs, sem tákn lífeins, sem félagi, í erótískum tilbrigðum, hún er það stef sem langsamlega oftast kemur fyrir. Áhyggjulaus hreinskilni hans í kynferðismálum og sú sannfæring hans að skynjanir mannsins í æsku séu öðrum dýrmætari, svo og barátta hans gegn ellinni, kemur fram í þeim ótal mörgu elskendum í innilegum faðmlögum sem birtast í verkum hans. Sem andstæðu þessarar munúðarfullu ímyndar konunnar sýnir hann okkur í ótal myndum af móður og bami ákaflega ljúfa og vinalega konuímynd. Skepnur Og Skrímsli Picasso gaf alla tíð mikinn gaumi heimi dýranna, allt frá því hann var fróðleiksfús drengur heima í Malaga. Þar urðu til fyrstu teikningar hans af dúfum, hönum, lömbum, geitum, hestum og einkum og sérílagi nautum, sem ætíð voru eitt af eftirlætisvið- fangsefnum hans. Dýrið, skepnan, var honum kjörið tæki til að túlka óraunsæjar tilfinningar. Þess vegna gerir hann manninn líkan dýri og dýrin mannleg að því marki að þau verða að skrímslum, tákn sundur- tættra vera sem þjást, eru full ótta og ástríðna, sem fæðast í hugarflugi lista- mannsins á sögulegu augnabliki þar sem listrænar afmyndanir hans samsvara hrika- legri eyðileggingu manna í Evrópu á þessum árum. Er hann svo, á árunum eftir 1950, að heimsstyijöldinni iokinni, kemur aftur heim til Miðjarðarhafsslóðanna gamalkunnu birtast á ný í verkum hans hinar þekkilegri ímyndir skógarpúkans, kentársins sem leik- ur á flautu sína, dísarinnar sem dansar, kiðlinganna sem lofsyngja sólina og allt umhverfis himinn og jörð í hreyfingarlausu ríki náttúrunnar, þar sem lifandi verur þurfa að koma til ef eitthvað á að gerast. Naut Og Nautaat Einstakt dálæti Picassos á nautunum byijaði þegar í bemsku er hann vann sér inn með teikningum sínum peninga til þess að komast á nautaat síðdegis á sunnudög- um. Hann var alla ævi tryggur aðdáandi nautaatsins, þessarar baráttu upp á líf og dauða milli manns og skepnu. Jafnvel í ell- inni sótti hann reglulega nautaöt sem efnt var til í Arles til þess að halda beinum tengslum við list nautaatsins. Aðdáun Picassos á framvindu og stfgandi nautaatsins kemur hvað skýrast fram í aquatint-ætimyndunum frá 1976, sem til- einkaðar eru nautabananum Pepe Illo. Þar dregur listamaðurinn upp með leikandi hendi og ömggri tækni í skuggum og sveipum allar hinar fastmótuðu hreyfingar nautaats- ins og sýnir okkur stungumann (picador), veifupilt -(banderillero) og nautabanann sjálfan á örlagastundum í starfinu. StríðOgFriður Maður sem sífellt var með hugann við lífið og dauðann hlaut að endurspegla harm- leik stríðsins með engu minni þráhyggju- og ástríðuþunga í málverkum sínum. „Gueraica“ er óefað frægasta verk Picass- os. Það er ekki sögulegt málverk þótt það greini frá hræðilegum, sögulegum atburði, ekki heldur líkinga- eða táknsaga heldur er það ákall, neyðaróp málaralistarinnar gegn villimennsku, óraunsæi og grimmd mannskepnunnar. Ekki leikur nokkur efi á því að stríðin mörkuðu djúp spor í vitund hans og í mörgum málverkum sínum tjáir hann andstyggð sína á stríði. (Maison cham- el 1944, Masacre en Corea 1951, Guerra 1952.) LANDSLAGOG Mannamyndir Líklega hefur Picasso ekki gefíð jafn lítinn gaum að neinu viðfangsefni á afkastamikl- um ferli sínum og einmitt landslaginu. Landslag er í verkum hans alltaf háð öðrum meginsteflum, sem hann túlkaði í líki manna, dýra, atburða eða hluta. Landslagið var einungis eðlileg umgerð um viðburði mannlífsins, einatt umhverfi innanhúss, sem hann nýtti sér sem baksvið meginstefja sinna eða myndgerða. Mannamyndimar lúta öðmm lögmálum. Þær eru alltaf af fólki sem honum er nákom- ið eða nátengt, af vinum hans, konunum í lífi hans, sem vom margar. Francoise Gilot, Maia, Claude og Paloma, Marie Therése Walter, Dora Maar, Sylvette David og Jacqueline Roque, sem hann gekk að eiga árið 1961 og túlkar í verkum sínum á stilli- legri hátt. Teikningar þær er hann tileinkaði á sínum tíma Stravinsky og Erik Satie em meistara- legar og nefna má sjálfsmyndir hans, sem honum þótti sjálfum litlu máii skipta. Tónlistin Og Hljóðfærin Gítarinn, fiðlan, mandólínið og yfirleitt öll strengjahljóðfæri og svo flautumar birt- ast oft í verkum Picassos. Á kúbismatímabil- inu em þau oft sundurbútuð, ásamt dag- blöðum og borðum, í höndum hljómlistar- manna, eða sem vínskenkir, sem sérstök « listaverk gerð af einstöku hugarflugi, skemmtilegt stef og gagnlegt í listrænu tilliti, en hafði ekki neina sérstaka þýðingu í lífi hans. Er við íhugum hinn stórkostlega afrakst- ur af ævistarfi Picassos sjáum við að merki- legast við hið ótrúlega framlag hans til list- sögunnar er þó ekki myndefnið í sjálfu sér, heldur það sem kalla mætti staðföst sér- kenni hans, hinn skáldlega og lýsandi sann- leiksþorsta, sem gerir honum kleift að vera í senn vandfýsinn ogsfleitandi, eyðileggjandi og uppbyggjandi, stjómleysingi og góður »; skipuleggjandi. Með tilliti til hins mikla og margbreytilega framlags Picassos til listarinnar er ekki unnt að setja hann undir mæliker neins eins stfls, neinnar einnar tækni né tfmabils i listinni, persónuleiki hans og stef þau er endurspeglast í allri listsköpun hans em öllu heldur til marks um opinhuga listamann sem kann að hlita mannlegum tilfinningum og breyta þeim í sannfærandi myndir með óþijótandi sköpunargleði sinni. Sonja Diego þýddi. Aitor Yralo er lektor i spænsku við Háskóla íslands. Málarinn og fyrirsæta hans. Viðfangsefni, sem þó nokkuð oft kemur fyrir hjá Picasso. Myndin erfrá 1963. I LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 31.MAH986 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.