Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1987, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1987, Blaðsíða 4
Akrossfestingarstað voru úlnliðir hans negldir við þvertré, og eftir að það hafði verið fest upp á lóðréttan staur, voru fætur hans negld- ir við staurinn. Megináhrif krossfestingar frá sjónarmiði meinalífeðlisfræði eru öndunarerf- Eftir William D. Edwards, Wesley J. Gabel og Floyd E. Hosmer Jesús frá Nazaret var leiddur fyrir rétt hjá Gyðingum og Rómverj- um, hýddur og dæmdur til dauða með krossfest- ingu. Húðstrýkingin olli djúpum, rák- óttum, rifnum og tættum sár- um og veru- legum blóðmissi og sennilega hefur hún valdið blóðþurrðar- losti, enda var Jesús svo mátt- farinn á eftir, að hann gat ekki borið þvertré kross síns til Gol- gata. iðleikar. Dauðinn stafaði því fyrst og fremst af blóðþurrðarlosti og köfnun vegna ör- mögnunar. Til öryggis lagði hermaður spjót í síðu Jesú. Frá læknisfræðilegu sjónarmiði nú á dögum benda hinar sögulegu heimildir eindregið til þess, að Jesús hafi verið lát- inn, þegar hann var tekinn niður af krossin- um. Líf og kenningar Jesú frá Nazaret eru grundvöllur alheimstrúarbragða, kristninn- ar, hafa haft veruleg áhrif á rás mannkyns- sögunnar og hafa einnig stuðlað að þróun nútíma læknisfræði með hinni samúðarfullu afstöðu til hinna sjúku. Mikilleiki Jesú sem sögulegrar persónu og þær þjáningar og deilur, sem tengdar eru dauða hans, hafa orðið okkur hvatning til að rannsaka ítar- lega, eftir því sem tök eru á, allar aðstæður varðandi krossfestingu hans. Það er því ekki ætlun okkar að semja guðfræðilega ritgerð, heldur læknisfræðilega og sögulega greinargerð um hinn líkamlega dauða þess manns, sem kallaðist Jesús Kristur. Heimildir Heimildir um dauða Jesú eru safn rit- verka, en ekki safn líkamsleifa. Hversu trúverðug umfjöllun um dauða Jesú verður, er því fyrst og fremst háð áreiðanleika heim- ildanna. Þær heimildir, sem þessi grein er byggð á, eru rit fornra höfunda, bæði krist- inna og annarra, skrif nútíma höfunda og líkklæðið frá Tórínó. Rannsóknir fræði- manna frá réttarsögulegu sjónarmiði hafa staðfest áreiðanleika og nákvæmni hinna fornu handrita. Itarlegustu og nákvæmustu frásagnimar af lífi og dauða Jesú er að finna í guðspjöll- um Mattheusar, Markúsar, Lúkasar og Jóhannesar í Nýja testamentinu. Hin 23 ritin í Nýja testamentinu styðja, en auka ekki við hin einstöku atriði, sem frá er sagt í guðspjöllunum. Samtíma höfundar meðal kristinna manna, Rómverja og gyðinga, veita auk þess upplýsingar varðandi róm- verskt og gyðinglegt réttarfar á fyrstu öld og einstök atriði í sambandi við pyntingar og krossfestingu. Seneca, Livius, Plútarchos og fleiri lýsa framkvæmd krossfestingar í ritum sínum. Jesú eða krossfestingar hans er sérstaklega getið í ritum rómversku sögu- ritaranna Tacitusar, Pliniusar yngri og Suetoniusar og einnig söguritaranna Thal- lusar og Phlegons, í Talmúð, hinni trúarlegu lögbók gyðinga og háðsádeiluhöfundurinn Lúkíanos frá Samnosata minnist á hann sem og sagnaritarinn Flavius Josephus, sem var af gyðingaættum og var uppi á 1. öld, þótt vafi leiki á hluta af verkum þeim, sem hon- um eru eignuð. Líkklæðið frá Tórínó telja margir að sé hið raunverulega líkklæði Jesú, og ýmis- legt, sem skrifað hefur verið um dauða Jesú frá læknisfræðilegu sjónarmiði, er byggt á þeirri ætlun. Líkklæðið frá Tórínó og nýleg- ir fornleifafundir hafa gert menn stórum fróðari um aðferðir Rómverja við kross- festingar. Skýringar nútíma höfunda, sem byggðar eru á vísindalegri og læknisfræði- legri þekkingu, sem ekki var fyrir hendi á 1. öld, kunna einnig að varpa ljósi á ýmis atriði varðandi líkamsdauða Jesú. Þegar litið er á málið í heild — hina ítar- legu fyrstu vitnisburði bæði fylgismanna Krists og andstæðinga, hina almennu viður- kenningu þeirra á því, að Jesús hafi verið sannsöguleg persóna, siðferði guðspjalla- mannanna og hinn stutta tíma, sem leið á milli atburðanna og tilurðar handrita þeirra, sem varðveitzt hafa, sem og þá staðfest- ingu, sem frásagnir guðspjallanna hafa hlotið af hálfu sagnfræðinga og með forn- leifafundum — mynda þessar staðreyndir traustan grunn, sem hægt er að byggja á læknisfræðilegar skýringar að nútíma hætti á dauða Jesú. Getsemane Eftir að Jesús og lærisveinar hans höfðu neytt páskamáltíðarinnar í herbergi á efrí hæð í húsi í suðvesturhluta Jerúsalemborg- ar, héldu þeir til Olíufjallsins fyrir norðaust- an borgina. (Vegna ýmissa lagfæringa á tímatalinu eru fæðingar- og dánarár Jesú enn í óvissu. Þó er sennilegt, að Jesús hafi fæðzt annað hvort 4 eða 6 arum fyrir tíma- tal vort og dáið árið 30. Á páskahátíðinni árið 30 hefur síðustu kvöldmáltíðarinnar verið neytt fimmtudaginn 6. apríl og Jesús verið krossfestur föstudaginn 7. apríl). í Getsemane hefur Jesús liðið miklar sálar- kvalir. Hann hefur greinilega vitað, að stund dauðans nálgaðist, og 'sviti hans varð eins og blóð, að því er læknirinn Lúkas segir. Þýzki 16. aldar málarinn Grilnewald þykirhafa útmálað þjáningu Krists flestum framar, en það hefur alls ekki tíðkast, að listamenn íaldanna rás hafi málað Krist mjög blóðrisa eins oghann hefurþó verið eftir húðstrýkinguna og útskýrt er í greininni. |1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.