Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1988, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1988, Blaðsíða 10
„ ... að losna við einn myndlistarmann úr haughúsi Thorsaranna“ Spjallað við Sverrí Ólafsson sem opnar sýningu nú um helgina á Kjarvalsstöðum. vað ég segi gott? Það fer algerlega eftir því hvernig á málið er litið, skal ég segja þér. Ég er á kafí við að undirbúa sýninguna mína en þarf jafnframt að standa í stríði við borgar- yfírvöld, aldeilis makalausu stríði. Ef ég Sverrir Ólafsson. Fæddur 1948. Nám í Kennaraháskóla íslands 1964—69. Myndlista- og handíðaskóla íslands 1973-76. Námí, Englandi 1980—83. Fyrsta einkasýningin 1978. Sýninginá Kjarvalsstöðum sem opnar nú um helgina er sjöunda einkasýning Sverris. Auk þeirra hefur hann tekið þátt í Qölda samsýninga, hér heima og úti. væri ekki nokkum veginn algert pólitískt viðrini héldi ég að ég sætti ofsóknum vegna stjómmálaskoðana. Því er ekki að heilsa. Jæja, komdu nú og fáðu þér kaffí. Viltu kannski heldur pilsner? Nú eða Vodka?" Sverrir lóðsar mig í gegnum vinnustofuna, ailt er á rúi og stúi við fyrstu 'sýn: stórvirk- ar vélar, logsuðutæki, einangmnarplast, koparvírar, verkfæri. Listaverkin heilsa glaðlega, jafn glaðlega væntan'.ega og á Kjarvalsstöðum nú um helgina. Sverrir bendir inn í dálitla skonsu innaf vinnustof- unni: „Gjörðu svo vel,“ segir hann og svipt- ir fána breska heimsveldisins frá dymnum. „Ég notaði bresku duluna fyrst sem rúm- teppi," segir Sverrir „en það var bara svo íjári vont að sofa á henni, því miður.“ Upp á vegg hangir annar fáni. Það er fáni þriðja ríkisins þýska. í skonsunni er borðskrifli, lúinn stóll og rúmbálkur með svampdýnu. Sverrir bregður sér frá og ég skoða herbergið. Símanúmer hafa verið skrifuð til minnis upp um alla veggi, ég kannast við nöfn ýmissa myndlist- armanna, önnur koma mér spánskt fyrir sjónir. Nema auðvitað Davíð Oddsson, skrif- að stórkallalega á vegginn: 18800 og 23856. Og í herberginu kennir ýmissa annarra grasa: fomar snjóþrúgur, glæsilegt módel af flaggskipi Kólumbusar, þrír hárbeittir goggar, loftbyssa, steinolíuluktir, sjúkra- kassi, Mein Kamp, bók Hitlers á dönsku (ég verð að muna að spyija Sverri betur út í pólitíkina, hugsa ég). Sverrir kemur aftur og hiammar sér nið- ur á rúmbálkinn. Ég spyr fyrst um stríð hans við borgaryfírvöld. „Forsaga málsins er sú að myndhöggvar- ar fengu inni á Korpúlfsstöðum fyrir mörg- um ámm, ég hef t.d. verið héma síðan 1977. Við fengum vinnustofumar með þeim skilyrðum að við mokuðum út skítnum sem var í kjallaranum — þetta var upphaflega Eftir HRAFN JÖKULSSON Skúlptúr. flór fyrir Thorsarabeljumar — og endumýj- i uðum raflagnir og þess háttar. í staðinn ' þurftum við ekki að borga leigu, en vita- skuld fylgdu því útgjöld að gera húsnæðið upp. Það hafði verið að grotna niður áram saman. Álmuna hér við hliðina þurfti til dæmis ekki bara að hreinsa, heldur líka kalka veggina til að drepa bakteríumar. Við voram með margar og stórar hugmynd- ir um hvemig hægt væri að nýta Korpúlfs- staði sem menningarmiðstöð, ekki bara fyr- ir myndlistarmenn, líka rithöfunda, tónlist- armenn, kvikmyndagerðarmenn, — í raun- inni allt galleríið, því aðstaðan er frábær héma.“ Sverrir þagnar og kveikir í gríðar- stóram vindli. Blæs frá sér og hálffyllir kompuna af höfugum reyk. „Nú, nú þegar við voram búin að gera allt saman upp, kom reikningur: Gjöra svo vel að borga leigu — og það tvö ár aftur í tímann! Flestir mynd- iistarmennimir sögðu nú bara takk fyrir og fóra, Gunnar Öm, Helgi Gíslason, Veturliði Gunnarsson. Það er hins vegar ekki hlaupið að því fyrir myndhöggvara að útvega sér vinnustofu á viðráðaniegu verði, svo ég pungaði út fyrir þessu og var áfram. Ég átti engra kosta völ. Og svo getur þú ímynd- að þér hvort ég vildi ekki vera um kyrrt í flómum héma!“ Sverrir hlær prakkaralega. Verður svo alvarlegur á svip. „Haustið 1986 gerðist það að heitavatnsleiðsla sprakk þeg- ar ég var í burtu. Nánast allt sem var héma á verkstæðinu eyðilagðist. Ég þurfti að fara með á annað hundrað myndir á haugana. Sömuleiðis eyðilögðust gífurleg verðmæti í bókum, bæði úr safni föður míns og því sem ég hafði viðað að mér. Verkfæri, efni, teikn- ingar, skyssur, verk eftir aðra myndlistar- menn — nánast allt var ónýtt. Tjónið var upp á milljónir. Þegar ógæfan skall á var ég langt kominn með undirbúning að sýn- ingu í Norræna húsinu. Verkin eyðilögðust öll meira eða minna. Ég gat ekki gert við þau, eða búið þau til upp á nýtt. Það hefðu alltaf orðið önnur verk. Eina nóttina keyrði ég einn míns liðs út í sveit og gróf þau í jörðu. Punktur." Hann þagnar og sýpur á glasinu. Hugsi. — Hvemig tilfinning fylgir því að urða eigin verk út í sveit, ónýt og óséð af öðram? „Hún er ótrúlega skiýtin. Þetta var bæði ónotaiegt og andstyggilegt. Það er kannski eins og hvert annað óeðli að vilja láta ann- að fólk njóta þess sem maður gerir. En þannig er ég. Og það ekki kemur til greina Máluð lágmynd. Málaður skúlptúr.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.