Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 7
Kiri Te Kanawa náðst geti sú samstilling sem á hálffrönsku fagmáli er kölluð „gott ensemble" og feiur það í sér meðal annars, að heildin er sett ofar einstökum þáttum hennar, — enginn „glansar" á kostnað annarra. Sumir meta þetta meira en stjömuleikinn, hversu glæsi- legur sem hann kann að vera, og má styðja það ýmsum rökum. Sumar þær óperusýning- ar sem mér hefur fundist mest til koma hef ég séð í meðalstórum óperuhúsum í Þýska- landi, þar sem engir heimsfrægir gestir hafa prýtt hlutverkaskrána, og svo ef til vill í Stokkhólmsóperunni hér fyrr á árum. Það sem þar gerði gæfumuhinn var þessi sam- stilling margra listamanna, áunnin í löngu samstarfi. Borgaróperan Borgaróperan í New York á ef til vill meira sameiginlegt með slíkum óperuhúsum heldur en Metropolitan-óperunni. Hún stær- ir sig ekki af sama stórstjömuvali, en hún hefur á að skipa miklum fjölda ágætra söngvara sem margir eru ungir og flestir Bandaríkjamenn. Sjálfsagt eru sumir þeirra á leið skáhallt yfir torgið. Hún er röskum sextíu árum yngri en Metropolitan og ekki nándar nærri eins ráðsett og hefðbundin í verkefnavali. Stofninn í verkefnaskránni er að vísu sá sami og í öllum öðmm ópemhús- um í heimi, nokkrir tugir verka sem em endurtekin í sífellu. En hér hefur verið leit- að á fleiri mið. Sýndar hafa verið amerískar ópemr, nýjar af nálinni, meiri háttar sýning- ar sem áður hafa gengið á Broadway-leik- húsum hafa verið settar á svið að nýju, og talsvert hefur verið gert að því draga fram evrópsk verk, sem virðast hafa fallið í gleymsku austan hafsins, og gæða þau hér nýju lífi. Á þessari haustvertíð vom á sýn- ingarskrá ópemnnar ekki færri en 19 verk- efni af ýmsu tagi og sýningar 7—8 á viku í 10 vikur. Segja má að Borgaróperan sé eins konar aiþýðuleikhús, samanborið við Metropolitan, verkefnaval flölbreyttara og að hluta létt- ara, og verð aðgöngumiða, að minnsta kosti í bestu sætin, miklu lægra en þar. Engu að síður er stórvel vandað til sýninga í Borgarópemnni og íburður í leiktjöldum og búningum ekki skorinn við nögl. Mér er sagt að ldæðaburður leikhúsgesta sé óform- legri en í Metropolitan og meðalaldur þeirra lægri. Eg held, ef ég byggi í New York, að mér þætti ekki síður áhugavert að fylgjast með því unga listafólki sem starfar í Borgaróper- unni og þeim nýjungum sem þar er brotið upp á heldur en að fleyta ijómann af heims- listinni í Metropolitan-ópemnni, þó að sjálf- sagt sé þetta best hvað með öðm. Þaulsætnir Óperugestir Við hjónin sáum fimm sýningar í Borgar- ópemnni þessa viku sem við vomm í New York í haust, auk sjónvarpssýningarinnar á „Rigoletto" sem fyrr var nefnd. Fjórar þeirra vom nokkuð hefðbundnar, af því tagi sem sjá má í flestum góðum ópemhúsum: „Luc- ia di Lammermoor", „Tosca“, „La traviata" og „Töfraflautan", allt ágætar sýningar, frísklegar og sumar glæsilegar þótt ekki sé ástæða til að hafa mörg orð um þær hér. Ekki sá ég betur en hvert sæti væri skipað á þessum sýningum öllum. Sviðsbúnaður í „Luciu" var mjög íburðar- mikill og Sheryl Woods sem fór með titil- hlutverkið gerði því frábær skil. Um „Toscu" má segja að óvenjuléttur blær var yfir fyrsta þættinum, djákninn mjög kímilegur, galsa- fengnir kórdrengir og margt kirkjufólk. Þeim mun skuggalegri urðu síðari þættim- ir, og aldrei hef ég séð Scarpia veginn jafn- Mirella Freni. Luciano Pavarotti. vandlega og með öðmm eins tilþrifum. Linda Roark-Strummer (Tosca) og Robert Gray- son (Cavaradossi) em stórglæsilegir söngv- arar. Sýningamar á „La traviata" og „Töfraflautunni" vom hefðbundnar, en einn- ig þar komu fram- frábærir söngvarar: m.a. Frances Ginsberg (Violetta), Stehen O’Mara (Alfredo), Paul Austin Kelly (Tamino), Virg- ina Sublett (Næturdrottningin) og Elizabeth Hynes (Pamina). Allar þessar óperar vom sungnar á fmmmáli (talaði textinn í „Töfra- flautunni" var lika á þýsku) en enskum þýðingum bmgðið upp á tjald, líkt og hér hefur verið gert bæði í íslensku óperanni og Þjóðleikhúsinu. Þetta er tækni sem leik- húsin hafa lært af sjónvarpinu. Á þessu var sá einn galli í þessu leikhúsi að textinn birt- ist yfir miðju sviði svo hátt að sjónarhorn varð mjög óþægilegt frá bestu sætunum. RASPUTIN Fimmta verkið sem ég sá þama er glæný bandarísk ópera sem hafði verið fmmsýnd 17. september, „Rasputin" eftir Jay Reise, 38 ára gamlan kennara við Pennsylvaníu- háskóla sem áður hefur samið þrjár sinfón- íur og fjölda annarra tónverka. I sýningar- skrám Borgarópemnnar á þessu hausti var mikið skrifað um þetta nýja verk og söguna Placido Domingo. Margaret Price. James Levine, tónlistarstjóri í Metro- politan óperunni. sem að baki liggur. „Ef nokkur maður lifði lífi sínu í ópemstíl,“ segir þar á einum stað, „var það Grigori Rasputin, þessi umdeildi sveitamaður frá Síberíu sem gerðist helgur maður, ráðgjafi rússnesku keisarahjónanna, Alexöndm og Nikulásar II, og örlagavaldur Rómanoff-ættarinnar." Þetta er saga um losta og valdagræðgi, kraftaverk og mann dráp, sem sé „það efni sem ópemr em gerð- ar úr,“ — nema það vantar músíkina. Það kom í ljós, þegar Beverly Sills fól Jay Reise að semja nýtt verk fýrir Borgar- óperana, að hann hafði í smíðum ópem um Rasputin. Hún kannaði drög að verkinu sem fýrir iágu, féllst á efnisvalið og fékk Frank Corsaro, einn af aðalleikstjómm ópemnnar, til liðs við höfundinn og höfðu þeir sam starf um textagerðina. Corsaro setti síðan verkið á svið. Sviðsetningin er mjög stflfærð, búnaður allur í lágmarki og mjög óíkur íburðinum í „Toscu“ og „La traviata“ sem Corsaro hef- ur einnig sviðsett, likt og hér sé tjaldað til einnar nætur og ekki gert ráð fyrir langlífi sýningarinnar. Ef til vill er þar rétt til get- ið. Samt er sýningin alls ekki leiðinleg. Það er mikið að gerast þama á þessum byltinga- tímum og síðustu ámm keisaraveldisins í Rússlandi og ýmislegt af því sést og heyrist á sviðinu. En illkvittinn maður gæti sagt, að enn vanti músíkina í þessa ópem. Langtímum saman er það beinlínis stað- reynd. T.d. setur Lenín á langar tölur í æsingaræðustíl án allrar tónlistar. Sú yfir- lýsta tilætlun höfundar að einkenna keisara- fólkið annars vegar með ómþýðri róman- tískri tónlist en byltingaröflin hins vegar með stríðari tónum í stíl tuttugustu aldar virtist mér renna út í sandinn og ekki ná þeim tilgangi sínum að undirstrika þessar andstæður eins og til var ætlast. Bernstein-Tónleikar FÍLHARMONÍUSVEITARINNAR Fflharmoníuhljómsveit New York-borgar var nýlega komin úr Evrópuför þegar hún hóf vetrarstarfið í haust og hún heldur 140—150 tónleika á þessu starfsári í Avery Fisher Hall í Lincoln-miðstöðinni. En efnis- skrámar em miklu færri, því að reglan er að sama efnisskráin sé flutt á þrennum og allt upp í átta tónleikum í röð. Auk þess er seldur við vægu verði aðgangur að 23 opnum aðalæfingum sem haldnar em að morgni fyrsta tónleikadags. Svo að hér er ekki slegið slöku við, markaðurinn líka stór og fjöldamargar áksriftarraðir í gangi. Nú í vetur em 45 ár liðin síðan Leonard Bemstein stóð fyrst á stjórnandapalli Fflharmoníusveitarinnar og hann varð líka sjötugur í ágústmánuði í sumar. Þessa er minnst í efnisvali Fflharmoníusveitarinnar í vetur með því að flytja mörg verka hans, bæði á tvennum sérstökum tónleikum sem helgaðir em honum og á víð og dreif í eftiis- skrám annarra tónleika. Við lentum á fyrri Bemstein-tónleikunum þegar þeir vom fluttir í annað sinn (af fjór- um) og fór sá flutningur fram á föstudegi kl. 2 síðdegis. Tímasetningin hefur sjálfsagt ráðið því að áheyrendur vom nær eingöngu gamalt fólk og líklega um 80 af hundraði konur. Zubin Mehta stjómaði hljómsveitinni og tveimur kómm sem þama komu fram, einsöngvari var Wendy White og kom í stað Montserrat Caballé sem hafði forfallast. Flutt vom tvö verk eftir Bemstein: „Chich- ester-sálmamir“ og Sinfónía nr. 3 (Kadd- ish). Bæði verkin em nokkuð „sláandi" og furðulega óhátíðleg, þrátt fyrir trúarlega texta. Þannig hefur tónskáldinu tekist að gera þau aðgengileg og jafnvel áhrifamikil, einkum fyrmefnda verkið. Bernstein hefur löngum kunnað að ná sambandi við áheyr- endur sína, bæði sem höfundur og hljóm- sveitarstjóri. í fyrri grein var minnst á þær breytingar sem gerðar vom á Avery Fisher Hall 1976. Ég kom þangað einu sinni áður og rámar í að mér hafí þótt salurinn glæsilegri þá, en hljómburðurinn var ekki góður og talinn með öllu óviðunandi af þeim sem við áttu að búa. Því var ráðist í breytingar og urðu þær mjög gagngerar. Eftir stendur fremur hversdagslegur en þó notalegur tónleikasal- ur með góðum hljómburði, um það bil helm- ingi stærri en sá sem við ráðgemm að verði í væntanlegu Tónlistarhúsi í Reykjavík. Ef til vill verður þessi salur svipminni en ella vegna þess að gólfið er mjög lítið upphækk- að, og hljómsveitin situr öll á einum fleti, en ekki þremur eða fjóram þrepum eins og víða tíðkast. Þrennar svalir á þijá vegu setja á salinn svolítið „gamaldags“ svip, en draga úr fjarlægðum milli flytjenda og áheyrenda, þótt sjónarhomið sé ekki alls staðar ákjósan- legt. Ég tók eftir að í New York hafa verið „seldir" stólar, eins og byijað er að gera hér, langflestir til minningar um einstakl- inga sem sjálfsagt hafa verið tryggir tón- leikagestir og eftirlifendumir vilja láta minnast á þessum stað. í fordyri tónleika- hússins em liðsmenn Fílharmoníusveitarinn- ar kynntir með myndum, allt frá starfandi aðalstjómanda og „lárviðarstjórnanda“ til hljóðfæraleikara á aftasta púlti. I efnis- skrám er líka verið að kynna hljóðfæraleik- ara sveitarinnar, tvo í senn, með myndum og stuttum greinum. Þetta er til marks um þá virðingu sem þessir listamenn njóta og mætti vera til fyrirmyndar. Höfundurinn er tónskáld i Reykjavik. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. JANÚAR 1989 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.