Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 10
„Eitt mesta sálmaskáld sem heimurinn hefur eignast44 Hinn 4. september síðastliðinn dreif fjölda að kirkju á Stóra-Núpi til þess að vera við messugjörð og afhjúpun minnisvarða um sálmaskáldið sr. Valdi- mar Briem vígslubiskup. Tilefni þess var að 140 ár voru liðin frá fæðingu hans. Við þetta tækifæri var venju fremur vandað til messugjörðarinnar, kirkjukórinn á Stóra-Núpi söng sálma sr. Valdimars ásamt Kristni Sig- Um séra VALDIMAR BRIEM á Stóra-Núpi í tilefni þess að honum var á sl. hausti reistur minnisvarði á 140 ára afmælinu. Annað sálmaskáld, séra Matthías Jochumsson, var meðal aðdáenda Valdimars Briem og skrifaði honum m.a. svo: „Hálfdauðar höfuðsóttarkindur stökkva upp og lofa Guð, þegar sálmarnir þínir hljóma í kirkjunni. Þeir eu gullið í soranum, blika í þessari bók í ruslinu. . .þittandríki er alveg eins og fenomen, því þó ég rífi mig í tómar tuskur, gæti ég ekki ort þesskonar ljóð, og það án þess að þreytast. Ó, hvað gaman er að gáfum manna og snilld.“ Eftir séra FLÓKA KRISTINSSON Séra Valdimar Briem. mundssyni, óperusöngvara, við undirleik Steindórs Zóphóníassonar, organista kirkj- unnar. Að lokinni messugjörð gekk mann- fjöldinn út í blíðviðrið og safnaðist saman umhverfis minnisvarðann sem Katrin Briem, langafabam sr. Valdimars, afhjúpaði. Aðalhvatamaður að því að þessi minnis- varði yrði reistur var Ásólfur Pálsson, fyrrver- andi formaður sóknarinnar að Stóra- Núpi. Hann sagði í ræðu sem hann hélt að þessu tilefni, að þeim færi nú óðum fækkandi sem geymdu enn lifandi mynd í huga sér af hinum merka skáldpresti. Þó væri elsta fólki í bams- minni höfðingleg ásýnd hans og sá ljómi sem stafaði af nafni hans og sú virðing sem fylgt hefði honum í sveitinni. Það væri því ekki seinna vænna fyrir sveitunga hans að varð- veita með traustum hætti minningu hans, áður en hún gulnaði á blöðum sögunnar. I framhaldi af því var leitað til myndhöggvar- ans Helga Gíslasonar og hann beðinn að kveða til skáldsins á sinn sérstaka hátt. Steinn sá er hér stendur og Helgi hefur fest ljóð sitt á er kominn sömu götuna og sr. Valdimar Bri- em fyrir meira en 100 árum er hann ungur prestur flutti frá Hrepphólum að Stóra-Núpi til að dvelja hér æ síðan. Minnisvarðinn, sem hér um ræðir, er stuðla- bergsdrangur, u.þ.b. 3 metrar á hæð og feng- inn úr svokölluðum Hólahnúkum í landi Hrepphóla, þar sem sr. Valdimar þjónaði fyrstu prestsskaparár sín. Á tvær slípaðar hliðar þessa steindrangs hefur Helgi höggvið með fínlegu mynstri. Einnig hefur hann skreytt hann á hliðum með ryðfríu stáli og ofan á hann kemur snigill eins og á biskups- bagli eða fiðluhálsi. A minnisvarðanum er eirskjöldur með nafni sr. Valdimars og 6 ljóðlínur úr sonnettu eftir hann sem Katrín Briem valdi. Þessar ljóðlínur hljóða svo: Einn geisli lýst upp getur myrkan klefa, einn gneisti kveikt í heilum birkilundi, einn dropi vatns sér dreift um víðan geiminn. Ein hugsun getur útrýmt öllum efa, eitt orð í tíma vakið sál af blundi, einn dropi líknar Drottins frelsað heiminn. Minnisvarðanum var valinn staður ofar- lega í brekkunni neðan og norðan við kirkj- una og kirkjugestir eiga leið fram hjá honum er þeir ganga til helgidómsins á stundum gleði og sorgar. Umhverfí og aðkoma að Stóra-Núps- kirkju hefur tekið miklum stakkaskiptum síðastliðin tvö ár. Þá var Hjörleifur Stefáns- son, arkitekt húsfriðunamefndar, fenginn til þess að teikna umgjörð um hana en kirkj- an hefur verið friðlýst hin síðustu ár. Sam- kvæmt tillögum hans hefur verið unnið við að endurreisa forna hestarétt sem stendur við kirkjuna og reisa gijótvegg úr hraun- gijóti sem ná á frá bæjarhlaðinu og niður að réttinni. Göngustígur og þrep liggja svo upp brekkuna að kirkjunni innan þessa veggjar. Þetta verk er nú vel á veg komið og hefur notið stuðnings og fjárframlaga ýmissa velunnara kirkjunnar, bæði brott- fluttra og heimamanna, sem hafa haft um- sjón með verkinu. Fyrir lítinn sveitasöfnuð em framkvæmd- ir af þessu tagi ætíð stór fjárhagslegur biti að kyngja. En hér hefur komið til aðstoð margra, bæði einstaklinga og fyrirtækja, sem hafa sýnt í verki að þar nýtur hún sr. Valdimars og þeirrar virðingar sem hann vakti fyrir skáldskap sinn. Staða Stóra- Núps óx með honum langt umfram það sem þessu annars rýra brauði hefði verið skipuð. EITT HELSTA SÁLMASKÁLD Landsins Sr. Valdimar lauk embættisprófi frá Prestaskólanum haustið 1872. Honum var veitt Hrepphólaprestakall 21. febrúar 1873 og vígðist hann þangað 27. apríl sama ár, aðeins 25 ára gamall. Þarna í nágrenni við æskuheimili hans kom fljótt í ljós hver hæfíleikamaður bjó í honum. Og er hann var þrítugur árið 1878 steig biskup landsins það gæfuspor sem þjóðin mun seint þakka er hann skipaði hann í nefnd þá sem vinna skyldi að útgáfu nýrrar sálmabókar. Þar í nefndinni voru sr. Matthías Jochumsson, Steingrímur skáld Thorsteinsson, sr. Björn Halldórsson í Laufási, sr. Stefán Thoraren- sen og sr. Páll Jónsson í Viðvík. Kom sálma- bókin fyrst út 1886. Með framlagi sínu til hennar helgaði^ hann sér sæti meðal helstu sálmaskálda íslands. Af frumkveðnum sálmum í bókinni átti sr. Valdimar lang- flesta, eða 106 samtals, en auk þess 36 þýdda sálma. Með útkomu sálmabókarinnar skaut nafni hans upp á skáldahimininn í einu vetfangi, hróður hans barst um allt landið og var á hvers manns vörum. Og það var ekki að ástæðulausu. Hann hafði þann hæfíleika sem býr í öllum sönnum lista- mönnum að geta á skáldlegan hátt tjáð það sém býr í bijósti hvers manns, og það með þeim hætti að hveijum og einum finnst að orðin spretti fram á tunguna eins og af sjálfu sér. Orð hans og hugsun eru svo ein- læg og eðlileg að hver maður hlýtur að geta tekið undir. Enda hafa sálmar hans orðið óaðskiljanlegir kristnu trúarlífi og tjáningu meðal þjóðarinnar hvort heldur þeir eru ortir við stef stórhátíða kirkjunnar eða áfanga á vegferð mannlífsins. Hver getur hugsað sér aðventuna án þess að sunginn sé sálmurinn „Slá þú hjartans hörpustrengi"? Eða jólin án sálmanna „í Betlehem er bam oss fætt“ og „í dag er glatt í döprum hjörtum"? Óaðskiljanlegir páskum og hvítasunnu eru sálmarnir „Sig- urhátíð sæl og blíð“ og „Skín á himni skír og fagur“. Þannig mætti lengi telja og reynslan hefur sýnt að sálmamir hans hafa skipað sér þann sess í kirkjunni sem endast mun. í hinni nýju sálmabók kirkjunnar er nú 81 sálmur eftir sr. Valdimar. Gaman er að bera saman ummæli frá ólíkum tíma um skáldskap sr. Valdimars. í bréfi sem Matthías Jochumsson ritar honum 1888 segir hann: „Mikill heros ertu orðinn hjá okkur fyrir þína sálma. Þú berð líka bókina uppi og átt að gera það. „ . . . GULLMUÐUR GULL- HREPPANNA GÓÐU“ Þú ert fæddur skáld og andans maður af fyrsta flokki. Guð lengi þína daga.“ Vor- ið 1891 segir hann í öðm bréfí til skálds- ins: „Þú ert eins konar Crysostomus eða gullmuður Gullhreppanna góðu. Hálfdauðar höfuðsóttarkindur stökkva upp og lofa Guð, þegar sálmamir þínir hljóma í kirkjunni. Þeir eru gullið í soranum, blika í þessari bók í ruslinu... Þitt andríki er alveg eins og fenomen, því þó ég rífi mig í tómar tuskur, gæti ég ekki ort þess konar ljóð, og það án þess að þreytast. Ó, hvað gaman er að gáfum manna og snilld!" í útvarpsþætti sem fluttur var á hvíta- sunnu í ríkisútvarpinu nú í vor segir sr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, m.a.: „Hann átti ríka skáldgáfu, en það er ekki nóg til að gera góðan sálm. Menn þurfa líka að skilja það hlutverk sem sálmur gegnir. Hann er þáttur í helgiþjónustu, sem miðar að því

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.