Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 12
fyrir þá sem þekkja staðhætti á Núpi er auðvelt að setja sig í spor hans og taka undir með honum þegar hann tjáir þökk sína til þess Guðs sem allt hefur skapað og öllu gefið líf sem andardrátt hefur. Guð allur heimur eins í lágu og háu, er opin bók, um þig er fræðir mig, já, hvert eitt blað á blómi jarðar smáu er blað, sem margt er skrifað á um þig. Þá morgunsólin upp í austri stígur, á æðra himinljós hún bendir mér, og þá er sólin hægt í vestri hnígur, á hvíld og frið hún bendir mér hjá þér. Og í næst síðasta erindi þessa sálms sér hann náttúruna sjálfa lofa hinn mikla meist- ara sköpunarverksins í atferli fuglanna. Þar segir á svo áhrifamikinn hátt: Þá heyri ég glaða himinfugia syngja þeir hrósa þinni dýrð, sem öllum skín, og andvörp þau, er einatt hjörtun þyngja, þó upp um síðir leita, Guð til þín. Það skyldi engan undra þótt skáld sem svo gat kveðið ynni hug og hjörtu sóknar- bama sinna. Og það skyldi heldur engan undra þótt kveðskapur hans nyti hylli langt út fyrir þau mörk sem hann kaus sér að starfa innan. Enda var honum sýndur ýmis virðingarvottur i þakklætisskyni fyrir ljóð sín. Hann var sæmdur Dannebrogsorðunni af konungi, riddarakrossi Fálkaorðunnar og stórriddarakrossi, og á 75 ára afmæli hans sæmdi guðfræðideild Háskóla íslands hann doktorsnafnbót í heiðursskyni fyrir allan þann dýra fjársjóð sálma og andlegra Ijóða sem hann eftirlét þjóð sinni og það gagn sem hann vann kirkju sinni. STÓRI-NÚPUR er ekki lengur Prestssetur Við fráfall sr. Valdimars hvarf af sjónar- sviðinu einhver mesti og glæsilegasti höfð- ingi íslenskrar kirkju. En þó hann sé nú allur hafa ljóðin hans og sálmamir reynst sá óbrotgjami bautasteinn sem standa mun á meðan kristni lifir í landinu og Guði er sungið til dýrðar. Áhrifa hans gætir enn í sveitinni enda getur ekki farið hjá slíku jafn dáður yfirburðamaður og hann var í sínu samfélagi. Og minningin um hann er furðu lifandi þótt hálf öld sé hú liðin frá því að hann var borinn til grafar að Stóra-Núpi og orpinn moldu framan við kirkjudymar þar. Prestsseturshúsið hans stendur reist og fallegt við hlið kirkjunnar og setur svip á staðninn og umhverfí allt, minning þess ljóma sem hann brá yfir sveitina forðum. En nú er það hús autt og hljótt mestan hluta ársins, hluti þess afdrep sumargesta úr höfuðborginni, niðja hans sem reyna þó eftir getu að varðveita þar á einum stað það sem til er af persónulegum munum skáldsins. Þeir fáu sem eiga þess kost að ganga þar inn um gættir geta séð skrifstof- una þar sem hann sat löngum við borð sitt og ritaði þær ljóðaperlur sem hann af ör- læti færði þjóð sinni. En húsið er í hættu. Tíminn og afskiptaleysið hafa unnið þar sitt verk og veitist það léttara eftir því sem fram líða stundir. Það vantar einhug um að yarðveita húsið. Árið 1914 var prestssetrið og jörðin Stóri-Núpur seld, kirkjan á þar ekkert leng- ur, hefur þar engin ítök, situr eins og ómagi á þeirri jörð sem hún átti fyrrum og hóf til vegs. Prestamir sem þjónað hafa eftir sr. Valdimar hafa hrökklast um sveitina, stund- um hér, stundum þar, eins og ístöðulausir þurrabúðarmenn. Mikið gæfuspor væri það ef tækist að efla samstöðu um þetta fyrrum prestsseturshús að Stóra-Núpi og varðveita það í minningu skáldsins. Að þar yrði minja- safii um þetta ástkærasta sálmaskáld sem íslendingar hafa átt síðan Hallgrímur Pét- ursson leið. Að þar yrði tekist á af myndug- leik við þau tortímingaröfl náttúru og manns sem hægt og sígandi vinna því mein, óbæt- anlegar skemmdir uns það að lokum hlýtur að jafnast við jörðu. Við það mundi hvoru tveggja gerast í senn, að hinn tígulegi svip- ur þessa staðar, sem enn má sjá, myndi hverfa og minningu sr. Valdimars yrði svívirðing gerð. Slíkt má ekki koma fyrir. Kirkjan hans íslenska, sem hann var for- söngvari í, og hefur þegið af auðlindum hjarta hans, má ekki láta slíkt koma fyrir. En geigur um þessi örlög kemur upp í hug- ann þegar gengið er um hlöðin á Stóra- Núpi til kirkju. Með þessu húsi er minningu hans skipaður sess á þessum ákveðna stað sem hann unni og kaus sér að búa á og þar sem til urðu þau ljóð sem hafa sungið sig inn í hjörtu allra íslendinga og sem kirkju landsins og kristni eru kærust. Höfundur er sóknarprestur á Stóra-Núpi. Að átta sig á Vmlandi Frægasta ritsafn sem skráð var að fomu í Húna- vatnsþingi og enn er varðveitt mun nú vera rösklega sex alda gamalt; fróðir menn telja að það hafi verið skrifað í Víðidalstungu á árunum 1282—1287. Fyrsti eigandi þess og frumkveð- Undarlegt má það heita ef Guðríður kona Karlsefnis hefur engan þátt átt í varðveizlu þessara sagna. Hún virðist hafa náð háum aldri og lifði bónda sinn langa hríð, að því er sennilegt má teljast. Hún gekk suður til Rómar eftir að Snorri sonur hennar kvongaðist og er síðan í horninu hjá honum. Öldruð nunna og einsetukona í Glaumbæ hefur hún kunnað frá mörgu að segja. Eftir HERMANN PÁLSSON Stytta Einars Jónssonar af ÞorGnni Kariseihi. ill var Jón Hákonarson stórbóndi þar, en bók- fell skrifuðu tveir prestar, Magnús Þórhalls- son og Jón Þórðarson. Þótt enginn vafi leiki á um uppruna þess, þá er þetta mikla ritverk nú kennt við Flatey á Breiðafírði og gengur því undir nafninu Flateyjarbók. Þess verður stundum vart að þeir sem vitna í þetta safn- rit gleyma uppruna þess, enda þykir Flatey skipta meira máli en höfuðból í Víðidal. Eng- inn þarf að efast um bókakost Jóns í Víði- dalstungu; auk þess var ekki langt að fara í annað bókasafn: Þingeyraklaustur í næstu sveit. I þessum mikla doðranti sem klerkar skrifa fyrir Tungubónda eru margar sögur og þættir; sumt af því er hvergi annars stað- ar að finna á fomum skrám þjóðarinnar, svo sem Grænlendinga saga sem Jón Þórðarson setti á bókfell með styrkri hendi. Með því að þessi saga er ein helsta heimildin 'um Vínland að fomu, mun óhætt að gera ráð fyrir því að Jón prestur hafí verið fróðari flestum lær- dómsmönnum annars staðar í álfunni um þetta leyti; en nokkmm árum eftir að klerkur lauk þeirri þrifnaðarskýrslu að koma Græn- lendinga sögu á skinn siglir Kólumbus prúð- lega vestur yfir Atlantsála, og síðan tekur að þróast suður við Miðjarðarsjó haldbetri þekking á Vesturálfu en íslendingar öðluðust að fomu. ■ Ovíst er hvenær Grænlendinga saga var sköpuð og þó þykir sennilegt að hún hafi orðið til um aldamótin 1200. Hið nýjasta sem skrifað hefur verið um aldur sögunnar er formáli Ólafs Halldórssonar að Eiríks sögu rauða (1985) en þar rekur hann þá snjöllu tilgátu að Grænlendinga saga kunni að hafa verið rituð í sérstöku tilefni á fyrstu misserum tólftu aldar; þá kom fram sú hugmynd að láta taka Bjöm biskup Gilsson (1147—1162) í heilagra manna tölu, þótt Norðlendingar létu sér síðar nægja Jón helga einan. Nú var Bjöm biskup niðji þeirra hjóna Þorfinns Karls- efnis og Guðríðar í Glaumbæ, sem bæði höfðu dvalist um hríð á Grænlandi og Vínlandi; Bjöm var sonar-dóttur-sonur þeirra. Og sá Hólabiskup sem lét þvo bein Bjamar Gilsson- ar árið 1197 eða 1198, að þvi er best verður séð, var Brandur Sæmundarson (1163— 1208), annar niðji þeirra Karlsefnis og Guðríð- ar; Snorri Karlsefnisson sem forðum fæddist á Vínlandi var afi Þórunnar, móður Brands biskups. Það eru því ærnar ástæður til að ætla að Hólamenn og aðrir skagfírskir niðjar Vínlandsfara hafí ekki látið sér fymast það sem forðum gerðist vestan hafs og síðar varð höfundi Grænlendinga sögu að yrkisefni. Sögunni lýkur með svofelldri málsgrein: „Fjöldi manna er frá Karlsefni kominn, og er hann kynsæll maður orðinn. Og hefir Karls- efni gerst sagt allra manna atburði um farar þessar allar, er nú er nokkuð orði á komið.“ Enginn þarf að efast um þessa staðhæfingu, enda er ekki um marga ættliði að ræða milli Karlsefnis og ritunartíma sögunnar. Á hinn bóginn má það undarlegt heita ef Guðríður kona Karlsefnis hefur engan þátt átt í varð- veislu þessara sagna. Hún virðist hafa náð háum aldri og lifði bónda sinn langa hríð, að því er sennilegt má teljast. Hún gekk suð- ur til Rómar eftir að Snorri sonur hennar kvongaðist pg er síðan í hominu hjá honum. Öldruð nunna og einsetukona í Glaumbæ hefur hún kunnað frá mörgu að segja. í Landnámu og víðar bregður fyrir fróð- leikskomum sem komust ef til vill á bókfell einhvem tíma á tólftu öld og voru upphaflega sjálfstæðar greinar til minnis. Ari fróði mun ekki hafa verið eini fræðimaðurinn þá sem fékkst við slíka hluti. Vel mætti hugsa sér að einhver nákominn niðji Karlsefnis hafi skráð fróðleik um þennan forföður sinn, þótt slíkur hugarburður verði seint sannaður svo að ugglaust sé. En í þessu sambandi mætti minnast á sonarson Karlsefnis, Áma Bjamar- son, sem kemur við sögu árið 1133 og er kallaður „fróður og göfugur prestur". Á tólftu öld voru uppi ýmsir „fróðir" menn sem voru prestar og fengust við ritstörf. Þó skal þess getið að Ami Bjarnarson er ekki talinn með kynbomum prestum sem nefndir eru í skrá frá 1143, enda má vel vera að hann hafi þá verið látinn. Ekki er vitað hvar .hann þjónaði til prests, nema að það var víslega einhvers staðar fyrir norðan. Eftirfarandi glefsa gæti vel verið komin úr fróðleiksriti frá tólftu öld: „Þar var svo góður landskostur... að þar mundi engi fénaður fóður þurfa á vetrum. Þar komu engi frost á vetrum og lítt rénuðu þar grös. Meira var þar jafndægri en á Grænl- andi eða íslandi. Sól hafði þar eyktarstað og dagmálastað um skammdegi." Slík vitneskja á öllu fremur heima í landafræði en í frásögn af atburðum og er rétt að hyggja að þessari klausu áður en lengra sé haldið. 2 Lýsing sú sem nú var greind veit að stöðu Leifsbúða á Vínlandi og eftir þessum fróðleik hafa menn reynt að finna þverbauga staðar- ins; ekkert verður af lýsingunni ráðið um lang- bauginn, en slíkt skiptir minna máli þar sem um er að ræða austurströnd Vesturálfu. Hvar á meginlandi Ameríku austanverðu hagar svo til að þar er frostlaust um vetur og grös réna lítt? Og hvað merkir setningin: „Sól hafði þar eyktarstað og dagmálastað um skammdegi"? Um fyrra atriðið er það að athuga að nokkr- ar breytingar á veðráttu kunnu að hafa átt sér stað; má vera að hlýrra hafi verið á aust- urströnd Vínlands á elleftu öld en nú. En eftir því sem nú hagar til ættu Leifsbúðir að hafa staðið töluvert sunnar en New York, sem þolir hörkufrost og þar kyngir niður snjó á köldum vetrum. Um gróðurfar i grennd við Leifsbúðir er þess sérstaklega getið að vínvið- ur óx þar, og gefur það nokkra hugmynd um legu Vínlands, þar sem vínber munu ekki hafa þekkst fyrir norðan Nýja England, en á hinn bóginn þreifst vínviður langt suðureftir. Mun því sanni nær að Vínlands sé að leita á svæðinu frá Maine og suður í New Jersey. 3 Höfundur Konungs skuggsjár sem var alls ófróður um Vínland, eins og fyrr var drepið á í þessum púnktum, kveður svo að orði að menn telji víst, „að Grænland liggi á ystu síðu heimsins til norðurs. Og ætla eg ekki land út úr kringlu heimsins frá Grænl- andi nema hafið mikla, það er umhverfis renn- ur heiminn." Síðan víkur hinn norski meist- ari að veðurlagi og sólargangi á Grænlandi: „En þar skiptist stórum sólargangur, því að þegar sem vetur er, þá er þar nálega allt ein nótt. En þegar er sumar er, þá er nálega sem allt sé einn dagur. Og meðan er sól gengur hæst, þá hefír hún ærið afl til skins og bjart- leiks, en lítið afl til yljar og hita. En hefir hún þó svo mikið afl að þar sem jörðin er þíð, þá vermir hún svo landið að jörðin gefur af sér góð grös og vel ilmandi. Og má fólkið fyrir því vel byggja landið, þar sem það er þítt, en það er afar lítið.“ Hér er sem sagt gert ráð fyrir því að grænlenskar byggðir liggi langt fyrir norðan heimskautsbaug, og sýnir þessi undarlega fáfræði að höfundur Kon- ungs skuggsjár hafði aldrei komið til Græn- lands, en hins vegar gerðu íslendingar sér ljósa grein fyrir því að Eystribyggð var sunn- ar en ísland, eins og sjá má af Landnámu og öðrum ritum: „Eiríkur rauði sigldi undan Snæfellsjökli. En hann kom utan að Mið- jökli, þar sem Bláserkur heitir. Hann fór það- an suður með landi að leita þess ef þannig væri byggjanda." Enn skýrar kemur lega Grænlands í ljós annars staðar í Landnámu: Einn af þeim stöðum á susturströnd Bandaríkjanna, þar sem Leifsbúðir hefðu getað verið eitir iýsingu á staðháttum. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.