Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 17

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 17
7. JANÚAR 1989 Alpaland norðursins Fjallavatn — lítill bær í dalsbotni — og allir á skíðum. Noregur hefur lengi haft það orð á sér, að þar sé of dýrt að eyða skíðafríi og að norsk skíða- svæði séu meira fyrir gönguskíði. „Þetta er bara þjóðsögn,“ segja Norðmenn og við skulum líta á hvað þeir hafa fyrir sér í því. Nú er búið að ákveða, að Vetrar- Ólympíuleikamir 1994 verði í Lillehammer og Norðmenn ætla í tengslum við leikana að koma Noregi á heimskortið, sem „Alpal- andi norðursins“. Þeir hafa líka úr miklu að moða — um 700 skíða- svæði eru frá Kristjánssandi í suðri til Kirkjuness í norðri. Frá 1984 hafa yfir 130 nýjar lyftur verið byggðar — 45 nýjar lyftur voru teknar í notkun í fyrra og fleiri eru í smíðum. Norðmenn vinna stöðugt að því, að verð á gististöðum þeirra sé við allra hæfi. Hagstæðasta gistiverðið er á gistiheimilum, í norsku „hyttun- um“ eða í hjólhýsum. Mörg eldri skíðahótel hafa líka gjörbreytt gistiaðstöðu sinni, bæði endurnýj- að og byggt nýtt, þannig að gisti- möguleikar eru alltaf að verða fjölbreyttari. Norðmenn ætla sér í framtíðinni að vera með útsýnis- flug í þyrlum yfir stórbrotnasta flalllendið, svipað og hefur náð miklum vinsældum í Bandaríkjun- um, Nýja-Sjálandi og víðar. Kostnaður Skíðafrí í Noregi kostar álíka Á kortinu má sjá hvernig skíða- staðirnir liggja. og skíðafrí í Austurríki, en er yfir- leitt ódýrara en til dæmis í Sviss. Auðvelt ætti að vera að fá hag- stæð fjölskyldufargjöld til Noregs í gegnum íslenskar ferðaskrifstof- ur. Norsk skíðahótel fá svipaða einkunn í gæðaflokkun og þau frönsku í erlendum skíðablöðum, þó að vart sé hægt að hugsa sér ólíkari uppbyggingu. Lyftugjöld eru yfirleitt lægri í Noregi en á meginlandi Evrópu, kosta til dæmis um V3 af lyftugjöldum í Frakklandi. Hvað einkennir norsk skíðasvæði? Vissulega má þar nefna margt. Matur ber svipmót af hinu fræga „smörgás“-borði Norðurlanda, má þar nefna reykt hreindýrakjöt,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.