Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Blaðsíða 3
fFCTáHT M ® fil Sö GE W ffi iti H Sl S B [g E Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoð- arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns- son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 691100. Forsíöan Myndin er af myndverki eftir Guðjón Bjarnason, og er á sýningu sem hann opnar á Kjarvalsstöðum í dag. Guðjón hefur numið arkitektúr og myndlist í New York og er búinn að vera þar í áratug. Myndin, sem er bæði máluð og unnin í tré, heitir Súfí og felur í sér tilvísun í austurlenzk trúarbrögð. Ljósmynd: Stefán Karlsson. Vélsledar hafa skapað mönnum ný tækifæri til vetrarferða um hálendið og með aðstoð lórantækja fara menn þangað þótt ekki sjáist út úr augum. Hér segir Ólafur Sigurgeirsson frá leiðangri vélsleðamanna frá Reykjavík, norður Kjöl, norður á Hólsfjöll og austur á Austurland. Karajan og öll Berlínarfílharmonían varð furðu lostin, þeg- ar 13 áratelpa, Anne Sophie Mutter, lék af þeirri snilld, sem undrabörnum er einum lagið. Hér er nánar sagt frá Anne Sophie. Heilagur Mikjáll, hunang og sítrónur, er fyrirsögn á ferðagrein eft- ir Björn Finsen. Hann segir á gamansaman hátt frá ferðalagi í Suður-Spáni. STEINN STEINARR KREML Sjálfur dauðinn sjálfur djöfullinn hefur byggt þessa bergmálslausu múra Dimmir, kaldir og óræðir umlykja þeir eld hatursins, upphaf lyginnar, ímynd glæpsins. Dimmir, kaldir og óræðir eins og Graal - Graal hins illa. B B ÆT I nafni jaf naðar og mannúðar Atburðirnir í Austur- Evrópu undanfama mánuði hafa vakið mis- munandi kenndir hjá fólki. Að sönnu eiga fallnir einræðisherrar sér formælendur fáa og fréttir um gerræði þeirra og grimmdarverk vekja óhug hjá öllum þeim sem einhvern snefil hafa af sómatilfínningu. Og ef til vill er óhugurinn mestur í brjóstum þeirra, sem töldu eitt sinn í barnaskap sínum að Sjáseskú, Úlbrikt og aðrir slíkir kónar væru boðberar jafnaðar og mannúðar. Nú kunna einhveijir að glotta og segja sem svo, að langt sé síðan helstu staðreynd- ir um glæpaverk kommúnista hafi verið dregnar fram í dagsljósið. Þeir benda á inn- rásina í Ungveijaland árið 1956, afhjúpun Krútsjefs á Stalín sama ár og innrásina í Tékkóslóvakíu árið 1968. Þeir benda á frá- sagnir rithöfunda, listamanna, blaðamanna og fjölmargra flóttamanna frá Austur- Evrópu og segja nánast sigri hrósandi: — Við vissum þetta allt fyrir löngu. En þeir íslendingar, sem gengu sósíalismanum á hönd í eymd kreppuáranna, í skugga kjarn- orkusprengjunnar eða í umróti sjöunda ára- tugarins höfðu ekki eins greiðan aðgang að upplýsingum og við á fjölmiðlaöld. Þeir sáu ýmsa missmíð og misrétti í vestrænum samfélögum og töldu að lausnarinnar væri að leita í sameignarstefnunni fyrir austan. Þeim gekk býsna vel 'að brynja sig gegn sívaxandi upplýsingaflæði með því að hér væri einungis um að ræða harðsvíraðan áróður auðvaldssinna sem ekkert mark væri á takandi. En þar kom að sú brynja var ekki lengur skotheld og hryllingurinn blasti við í allri sinni nekt. Eg er nú einu sinni svo barnaleg að halda að í upphafi ferðar hafi ýmsir leiðtogar Austur-Evrópuríkjanna hafí ekki verið verr innrættir en margur annar. Ef til vill hafa þeir eitt sinn verið sannir hugsjónamenn sem trúðu því í einlægni að roðinn úr austri myndi færa mannkyninu fegurri heim. En þeim, sem komast í þá aðstöðu að hafa vald á lífi og limum samborgara sinna, er ævin- lega hætt og skiptir þá litlu máli í nafni hvers þeir stjórna. Þetta hefur mannkyns- sagan sýnt og margsannað, hvort sem í hlut hafa átt herstjórar, smákóngar eða leið- togar heimsvelda. Eins og nú standa sakir er ekki betur að sjá en að heimskommúnisminn sé að líða undir lok. Að vísu reyna ýmsir að berja höfðinu við steininn eins og elskulegur bóndi norðan úr landi sem kenndi misvitrum mönnum um ófarir stefnunnar og sagði: — Merkið stendur þótt maðurinn falli. En hveijir aðrir en menn geta haldið uppi merk- inuíög framfylgt stefnunni? Þeir eru orðnir margir mennirnir sem hafa fengið að spreyta sig og merkið hefur orðið þeim öllum ofviða. Hinu megum við samt ekki gleyma að til eru fleiri merki og fleiri stefnur en komm- únisminn og fleirum hefur orðið hált á svelli valdsins en leiðtogum hans. Margs konar öfgastefnur hafa náð fótfestu víða í heiminum og andlegir og veraldlegir leið- togar drottna yfir fátæku og fáfróðu fólki, til að mynda í ýmsum ríkjum Múhameðstrú- armanna. Og ekki er mannslífið í miklum metum þar sem blind gróðahyggja ræður ferðinni, til dæmis í sumum ríkjum Róm- önsku Ameríku. Spyija má hvort lýðræðis- leg réttindi komi að miklu gagni því fólki sem hvorki hefur menntun né aðrar forsend- ur til að hafa áhrif á gang mála í heimalönd- um sínum. Það er jafnvel verr sett en Róm- arlýðurinn til forna sem gat þó heimtað brauð og leiki fyrir atkvæði. Og ef við lítum okkur nær og skyggn- umst um í okkar eigin samfélagi fer því fjarri að fögur mynd blasi við. Stéttleysið, sem við höfum hingað til gumað af, virðist nú heyra sögunni til. Bilið milli ríkra og fátækra breikkar óð- fluga og dæmi eru til að ráðherrar þiggi laun og fríðindi á við fjórtán verkamenn. Að undanförnu hafa ýmsir láglaunamenn kveðið sér hljóðs í dagblöðum og kallað það hræsni að senda gamalt kjöt til sveltandi fólks í Rúmeníu þar sem þeir sjálfír hafi ekki efni á að snæða slíkar krásir. Og ekki þarf mikla reikningslist til að komast að raun um að fimmtíu þúsund króna mánaðar- laun leyfa lítt annað en soðningu og hafra- graut, hvað þá klæði, menntun handa börn- unum og eitthvert krydd í tilveruna. Á meðan stórir hópar fólks þurfa að sætta sig við slíka forsmán sitjá menn á stóli valds- ins, veita milljörðum til vonlausra gæluverk- efna og skammta sjálfum sér laun og fríðindi. í nafni hvers stjórna þeir menn? Gæti hugsast að það sé í nafni jafnaðar og mannúðar. Guðrún Egilson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 10. MARZ 1990 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.