Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Blaðsíða 7
Egil Jacobsen: Nashyrningur, 1944-45.
Pierre Alechinsky: Norðrið, 1960-61.
EVROPSK ABSTRAKTLIST
Að rækta ímyndunaraflið
Að þessu sinni eru það
verk eftir stórstjörnur
frá 6. áratugnum sem
prýða veggi véstursalar
Kjarvalsstaða, en _þar
stendur nú yfir sýning á
evrópsku formleysismál-
verki. Þar gefur að líta
hvernig L’Art Informel birtist í Evrópu eftir
stríð með ólíkum áherslum eftirfarandi lista-
manna: Pierre Alexhinsky, Karel Appel, Ro-
ger Bissiere, Corneille, Olivier Debré, Lucio
Fontana, Sam Francis, Egill Jacobsen, Asger
Jorn, Per Kirkeby, André Landskoy, Jean
Messagier, Serge Poliakoff, Antonio Saura,
Marie Helene Vieira Da Silva, Franciscoi
Toledo og Jacob Weidemann.
Á síðastliðnu ári samþykkti menningar-
málanefnd Reykjavíkur að efna til sýningar
á evrópskri abstraktlist. Þegar farið var að
undirbúa þessa sýningu var okkur bent á
þann möguleika að setja saman sýningu á
evrópskri abstraktlist úr einkasafni Riis sem
varðveitt er í Sonie Heine-Niels Onstad-
safninu í Osló. Við nánari skoðun kom í ljós
að þetta safn reyndist hinn mesti fjársjóður.
Það nægði greinilega í fjölda sýninga á ólíkum
myndgerðum. Við ákváðum þó að einbeita
okkur að formleysismálverki eftirstríðsár-
anna, en Riis-safnið er sérstaklega sterkt
hvað varðar þá myndgerð. Á þessari sýningu
eru sýnd verk eftir 17 listamenn frá ólíkum
menningarsvæðum í Evrópu, en megináhersl-
an er þó lögð á verk eftir þá listamenn sem
tengdust Cobrahópnum sem fram kom í lok
5. áratugarins.
I forsal Kjarvalsstaða höfum við ennfremur
komið fyrir málverkum eftir Svavar Guðnason
í eigu Reykjavíkurborgar, en Svavar var á
sínum tíma einn af merkari brautryðjendúm
þessarar myndgerðar í Norður-Evrópu. Hann
var náinn vinur og samstarfsmaður þeirra
dönsku listamanna sem síðar tóku þátt í form-
legu ævintýri Cobra-hópsins. Verk Svavars
eru máluð á árunum 1942 til um 1960 og
Nú stendur yfír á
Kjarvalsstöðum merkileg
sýning úr einkasafni Riis
í Osló á svonefndu
formleysismálverki frá 6.
áratugnum í Evrópu. Þar
á meðal er
Cobra-hópurinn, sem
Svavar Guðnason
tengdist og því eru verk
eftir hann sýnd
sérstaklega og er fróðlegt
að bera saman, því
Svavar var byrjaður á
þessari myndgerð talsvert
löngu á undan hinum.
Eftir GUNNAR B.
KVARAN
Asger Jorn: Gulur himinn, 1961.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 10. MARZ 1990 7