Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1990, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1990, Blaðsíða 7
Edvald Eilert Möller fékk atkvæði allra erþátt tóku íkosningunum, eða 12aIIs. Ari Sælmundsson umboðsmaður, 9 atkvæði. dilk á eftir sér. Velja átti fimm bæjarfull- trúa og einn endurskoðanda bæjarreikninga. Tólf neyttu átkvæðisréttar síns. Fyrsti kjós- andinn til að fá nafn sitt skráð í kjörbók Akureyrar var „madame“ Vilhelmína Lever. Það óskiljanlega við þetta er að konur á íslandi fengu ekki rétt til þátttöku í opinber- um kosningum fyrr en 1882, og þá aðeins til sveitarstjórna. Vilhelmína varð þannig fyrsta konan hér á landi til að taka þátt í opinberum kosningum. Kannski er skýring- una á þessum snemmborna rétti hennar að finna í óaðgæslu íslenskra þingmanna og merkingarmun orða í íslensku og dönsku. Þegar fjallað er um kosningaréttinn í 3. grein tilskipunarinnar frá 29. ágúst 1862 er rætt á dönskunni um „alle fuldmyndige Mænd“. En í frumvarpnu, sem fór frá al- þingi til konungs 1859, var á sama stað talað um „menn“. Danirnir hafa vafalítið átt við karlmenn eina og enda þótt frændur þeirra norður í Ballarhafi væru svolítið fijálslyndari í kvenréttindamálum þá er ekk- ert sem bendir til þess að þeir hafi strax í öndverðu ætlað að veita konum kosninga- rétt til bæjarstjórna á Akureyri. En tungu- málið lýtur ekki nema að litlu leyti kreddu hvers tíma og á Islandi er kona líka mað- ur. Þetta er raunar eina sennilega skýringin á því að kjörstjórnin skyldi ekki hindra Vil- helmínu í að kjósa. En vegna þess að kjör- skráin sjálf er týnd verður ekki séð hvort Stefán sýslumaður setti hana ótilneyddur á skrá, þá í skjóli borgaralegrar stöðu hennar og útsvarsgreiðslna eða hvort hún sótti kosningaréttinn með kæra.51 Jafnhliða því að Vilhelmína kaus bæjar- fulltrúa eftir sínu höfði var öðrum málsmet- andi borgara á Akureyri meinað að gera eins. Þetta var hinn sextugi ritstjóri Norðan- fara og fyrrverandi hreppstjóri í kaupstaðn- um Björn Jónsson. Björn virðist þó ekki hafa hreyft málinu af neinum krafti fyrr en nokkrum mánuðum síðar og þá án árang- urs. Þremenningarnir í kjörstjórninni neit- uðu staðfastlega röksemdum ritstjórans og vitnuðu í sveitarbók Hrafnagilshrepps. Þar stóð svart á hvítu að Björn hefði ekki greitt nema 16 fiska í útsvar yfir fardagaárið sem gerði 1 ríkisdal og 85 skildinga. Björn sætti sig illa við þetta svar enda hafði hann hýst óvinsælasta sVeitarlim hreppsins, Jóhann Mohr, lengur en honum bar og því fengið niðurfellingu á útsvarinu sem hreppstjóri Hrafnagilshrepps mat upp á 12 fiska. En kjörstjórnin hvikaði ekki frá skoðun sinni. Ekkert af þessu um Mohr og Björn var skráð í hreppsbókina. Þar stóð aðeins að Mohr hefði verið komið fyrir hjá Steincke verslunarstjóra og með honum lagðir ár- langt 343 fiskar sem þótti há upphæð.52 Og við þetta sat. En kjörstjórnin fékk annað og sýnu alvar- legra verkefni að glíma við þegar niðurstöð- ur kosninganna lágu ljósar fyrir. Sá maður Jón Finsen læknir fékk 11 atkvæði. Níu kusu barnakennarann Jóhannes Halldórsson. sem fengið hafði flest atkvæði, tólf alls, neitaði að taka sæti í bæjarstjórninni. Þetta var selaskyttan, smiðurinn og verslunar- stjórinn Edvald Eilert Möller. Strax sama dag og kjörið fór fram lýsti Möllerþví yfir að í ljósi þriðju greinar kaupstaðarreglu- gerðarinnar fyrir Akureyri, sem bannaði hjúum að kjósa og vera í kjöri, hefði hann hvorki atkvæðisrétt né kjörgengi. Kjör- stjórnin brá við hart, hafnaði túlkun verslun- arstjórans og vísaði málinu til amtsins. Þrímenningarnir gátu engan veginn fallist á þá túlkun Möllers að faktor væri ekki annað og meira en venjulegt vinnuhjú.53 Skoplega hliðin á þessu máli var sú að jafn- framt því að Stefán Thorarensen, sýslumað- ur og formaður kjörstjórnarinnar, fann rök- semdir faktorsins léttvægar fól hann amtinu að leggja dóm á deiluna. En Pétur Havstein hafði farið utan árið áður og var enn í Kaupmannahöfn. Sýslumaður Eyfirðinga, formaður kjörnefndar Akureyrarkaupstaðar og amtmaðurinn yfir Norður- og Austurum- aæminu var því einn og sami maðurinn, Stefán Thorarensen sjálfur. Ekki var alveg frítt við að hinir nýkjörnu bæjarstjórnarfulltrúar, Jón Finsen læknir, Jón Stephánsson timburmaður, Jóhannes Halldórsson barnakennari og Ari Sæmunds- en umboðshaldari, kímdu að þessum ógöngum sem kjörnefndin var lent í. Hinn 4. apríl 1863 komu þeir saman í fyrsta skipti og kusu Ara til að vera oddvita og Jóhannes varaoddvita. Möller lét ekki sjá sig. Níu dögum síðar söfnuðust bæjarfulltrú- arnir saman öðru sinni. Þeim hafði verið boðin stofa á leigu undir fundi bæjarstjórn- arinnar á 32 skildinga fyrir hvert skipti sem Timburmeistarinn Jón Chr. Stepháns- son, 11 atkvæði. hún væri notuð. Fjórmenningunum þótti bærinn of fátækur til að borga slíka leigu og ákváðu að fyrst um sinn skyldu þeir skiptast á um að skjóta skjólshúsi yfir fundi bæjarstjórnarinnar. Möller var enn við sama heygarðshomið og mætti ekki. Hann var staðráðinn í að hafa úrskurð kjörstjórnarinn- ar að engu. Félögum hans í bæjarstjórninni sýndist að dráttur gæti orðið á því að málið leystist „þarsem kjörstjórinn er nú einnig settur amtmaður, og þykir þannig að líkind- um fara, að það er kjörstjóri úrskurðar, muni amtmaður í sömu persónu trauðlega ónýta.“54 Það fór líka svo að Stefán vísaði deilunni til dómsmálastjórnarinnar í Kaupmannahöfn en hún lét málið í hendurnar á Pétri Hav- stein, sem var ennþá í borginni, og sagði honum að skera úr því.55 Pétur var sam- mála kjörstjórninni og skipaði Möller að taka sæti sitt í bæjarstjórninni. Möller hlýddi enda er ákaflega ólíklegt að honum hafi gengið nokkuð annað til en skyldurækni við húsbændur sína og bæinn þegar hann hleypti deilunni af stað. í september komu allir bæjarfulltrúarnir fimm saman í fyrsta sinnið. Skipti á ómögum höfðu þá þegar farið fram og í október var rekið smiðshöggið á aðgreiningu Akureyrarkáupstaðar frá Hrafnagilshreppi.56 Aðskilnaðurinn hafði farið fram í sátt og samlyndi og þeirri reglu fylgt að því sem kom til deilingar, hvort sem um var að ræða sveitarlimi, skuldir eða annað, skyldi skipt upp í hlutföllunum '/* og 5A þar sem lægra hlutfallið, 4A, kom á bæinn en það hærra á hreppinn. Þetta hlut- fall var fundið með því að reikna út útsvars- greiðslur þessara tveggja aðila til sveitarinn- ar síðastliðin tólf ár og var það mál manna að hér væri mjög réttlátlega að verki staðið og ef eitthvað þá gengi „heldur út yfir Akureyri, en ekki hreppinn".57 Höfundur er sagnfræðingur. 48Tíðindi frá Alþingi íslendinga, 1861, 1. b., bls. 696. 49Þjskj., sss. Eyjaf. IV. B. 27., 3. jan. [hefur misrit- ast fyrir 3.feb.] 1863, „Akureyri", Norðanfari mars 1863, bls. 22. “Hskjs. Ak.Eyf., H-10. 4„ bls. 351-361. s Gísli Jónsson, Konur og kosningar, bls. 7-8; Lovs. for Isl., 18. b„ bls. 39 og 401. “Hskjs. Ak.Eyf., S-8. 9„ 31. mars og 2. nóv. 1863, H-10. 4„ bls. 363. 53Þjskjs„ sss„ Eyjaf. III. 9„ Stefán Thorarensen til amtsins 14. apríl 1863. SJHskjs. Ak.Eyf., A-25. 1„ 13. apríl 1863. ^Tiðindi um stjórnmáiaefni íslands, 1. b„ bls. 729-730. “Þjskjs., sss„ Eyjaf. IV. B. 27., 17. apríl og 1. okt. 1863. "TíðindifráAlþingi[siendinga, 1859,1. b„ bls. 684. ÞORVARÐUR HJÁLMARSSON Götumynd við Vetrar- höllina í úrhelli Kona með grátandi barn í fangi biður ekki um leyfi hennar heimur er ekki húsið hátt og hlýtt heldur kjökrið við brjóstið. Morgunn á brautar stöðinni Nytsemd nauðhyggjunnar miklu: að hrifsa ... gamlir menn á brautarpöllunum, skrýddir heiðursmerkjum riðandi hallast þeir fram á stafprik sín og gaumgæfa útundan sér framandi andlit. Við minnsta titring brautarpallsins líta þeir upp oghorfa með augum án fagnaðar, án værðar, án vonar, beygðum augum óbærilegrar vitneskju og gleyma ekki eina einustu stund að ekkert er utan það sém var og hægt er eilíflega að tengja, sífelldri endurnýjun óskapnaðarins. Höfundur er ungt skáld og hefur gefið út 2 Ijóðabækur. EYÞÓR RAFN GISSURARSON Finndu Heyrirðu hvernig vindurinn ýlfrar ungi maður hlustaðu á þytinn í laufinu þegar haustar Finndu þögnina þegar kvöldar á miðjum vetri Nemurðu alla þá strauma sem lífið ber með sér Og óttinn, hreystin, gleðin og sorgin búa öll í þér og þú veist, þú veist að það vakir einhvei; yfir þér Höfundur er ungur Kópavogsbúi. Saga Akureyrar l.bindi Sögu Akureyrar er skipt í þrjá meginhluta og greinist hver þeirra í sérstaka kafla. Fyrsti hlutinn nær frá landnámsöld og fram til þess tíma að Akureyri fékk kaupstaðarrétt- indi í fyrra sinni, árið 1786. Segir þar frá komu Helga hins magra til Eyjafjarðar, land- námi, harðindum og mannfelli. Næsti meginhluti hefst árið 1787 og greinir frá margvíslegum hremmingum kaup- manna, deilum um kaupstaðarlóðir á Akureyri, fyrsta hjónaskilnaðinum í kaupstaðnum og aðdraganda þess að Akureyri breyttist úr kaupstað í höndlunarstað, svo eitthvað sé talið. Þriðji og seinasti meginhlutinn þekur tímabilið frá 1836 til 1862 en í ágúst það ár fékk Akureyri kaupstaðarréttindin öðru sinni, þeim er hún hefur haldið óslitið síðan. Fjöl- yrt er um brauðstrit bæjarbúa á þessu árabili, baráttuna fyrir prentsmiðju og kirkju, lög- gæslu og fyrstu bæjarstjórnarkosningarnar. Reynt er að draga upp mynd af umráða- svæði kaupmanna og hvernig bærinn tók smám saman að vaxa út frá eyrinni neðan undir Búðargili; fyrst upp gilið og suður Fjöruna og síðar út á Oddeyri. I bókinni bregður fyrir fjöldamörgum einstaklingum. Ritstjörinn Björn Jónsson kemur víða við enda var hann flestum eljusamari að efla hag Akureyrarkaupstaðar. Vilhelmína Lever stígur fram á sjónarsviðið en hún varð fyrst íslenskra kvenna til að taka þátt í opinberum kosningum þegar hún kaus í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri 1863. Vilhelmína var við ýmislegt riðin um dagana, stundaði kaupmennsku, veitingastörf og var um tíma ábúandi Möðruvalla í Hörgárdal. Þá kynnumst við Geirþrúði Thorarensen, einni ríkustu konu íslands, og baráttu hennar við „kerfið“ og tengdasynina. Saga Akureyrar, 1. bindið, endar þar sem bærinn hefur fengið kaupstaðarréttindi og bæjarbúar hafa kosið sér bæjarstjórn, þá fyrstu í sögunni. LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 17. NÓVEMBER 1990 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.