Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1993, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1993, Blaðsíða 10
 * r „Hvað æðst ist í heimi66 Hugleiðing um Njólu Björns Gunnlaugssonar Lífíð er hverfult og lánið er valt“, segir í gömlum húsgangi og víst er að okkur mönnunum veit- ist flestum erfítt að treysta lífínu. Að treysta því að einhver tilgangur sé með lífí okkar. Að þetta ferðalag um „lífsins táradal“ skipti máli, í fari þessa hógværa spekings - sem kallaðaur var spekingurinn með barnshjartað - virðast tvennskonar eiginleikar hafa verið ríkjandi. Stærðfræðigáfan sem færði honum tvenn verðlaun á háskólaárum hans, en hinsvegar barnsleg einlægni. Eftir ÁGÚSTU P. SNÆLAND ekki aðeins fyrir okkur sjálf heldur einnig fyrir umhverfi okkar og samferðamenn. Úr því að við erum gædd meðvitund um tilveru okkar, þjáningar og gleði er ekki nema eðlilegt að við veltum fyrir okkur hvort að baki búi einhver áætlun, og þá hver, eða hvort framvindan öll og við með séum aðeins til fyrir óskiljanlega röð tilviljana sem engan tilgang hefur. Einn tilvistarvandi mannsins er sá að fínna sér stöðu, jafnvægispunkt, milli tveggja aug- ljósra þverstæðna. Annars vegar er hin óend- anlega stærð alheims og hins vegar smæð mannsins gagnvart honum; skiptum við þrátt fyrir það máli? Það eru ekki aðeins við „þetta venjulega bláttáfram fólk“, sem glímir við hinar sígildu sjsurnir um tilgang eða tilgangsleysi lífsins. Otal spekingar hafa frá upphafi velt þeim fyrir sér og komist að niðurstöðum sem oft virðast benda sín í hvora áttina. Einn þeirra sem komst að því að lífið hafi tilgangi, sé raunar megintilgangur sköpunar- verksins, er stærðfræðingurinn Björn Gunn- laugsson. Björn var helst þekktur fyrir það afrek sem hann vann er hann mældi upp ísland „milli fjalls og fjöru“ og gerði af því uppdrátt sem prentaður var árið 1849 og gefinn út sem fyrsta nútímalega kortið af landinu. I fari þessa hógværa spekings, sem kall- aður var spekingurinn með barnshjartað, virð- ast tvennskonar eiginleikar hafa verið ríkj- andi. Annarsvegar stærðfræðigáfan sem færði honum tvenn verðlaun á háskólaárum hans, ásamt þekkingu á stjörnufræði og nátt- úruvísindum, þ.e. vísindamaðurinn, en hins vegar hin barnslega einlægni sem einkenndi framkomu hans og sumir hæddust að, en ýmsir kölluðu hann ofvita. Björn var kennari við Bessastaðaskóla á árunum 1822—46. Árið 1842 kom út á vegum skólans rit eftir hann sem hann nefndi Njólu (eða Nótt). Njóla er einskonar fræðikenning eða, eins og segir á titilblaði: „Hugmynd um alheimsáformið af skoðun guðs verka og krist- indómi". Þessi fræðikenning er fram sett í ljóðum, 518 erindum alls. I upphafsljóðinu ákallar Björn skaparann: „Meistari himna miklu þú mig þinn andi hneigi, svo huprinn nokkuð hugsa nú um hátign þína meigi.“ Síðan beinir hann sjónum að næturhimn- inum og íhugar „þakið bláa" og allan þann aragrúa hnattá, sóla og sólkerfa, sólkerfa á sólkerfí ofan, vetrarbrauta á vetrarbrautir ofan sem í því eru og „hringdansinn him: neska“ sem þær stíga í ómælisgeimnum. í 58. og 59. versinu er hann kominn að þeirri niðurstöðu, að „hvað æðst sýnist í heimi“ sé „lífið og ódauðleigleikinn*'. Röksemdin fyrir henni er þessi: „Sú mikla himinsins bygging boðar einhveija stóra fyrirætlan, en í öllu sem vér sjáum á himni og jörðu er lífið það æðsta og allt er þess vegna gjört, og það er aðaltil- gangur hins sýnilega heims: 59. Lífið öllu langt af ber líS duptið þjónar líB birtan löguð er líf sér haminn pijónar." í mjög stuttu máli má segja samkvæmt kenningum Njólu: Sköpunarverkið allt hefur það takmark að hýsa lífið, búa því stað. Lífið sjálft má kalla Ijós eða lýsandi kraft, sem „logar á alheimi". Það er öllum öðrum Ijósum æðra því án þes væru önnur Ijós ósýnileg. Þetta ljós lýsir innávið og gerir bjart fyrir sér jafnvel aðra heima. Það ímyndar sér og skoð- ar jafnvel tíma og rúm, meira að segja eilífð- ina og sjálfan pkaparann, hina æðstu veru. Lífið nýtur hinna dauðu hluta en þeir hvorki lífsins né sjálfra sín. Sérhver týra af þessu Ijósi aðgreinir sig frá öllu öðru og kallar sig í huga sínum „ég“. Heimurinn, þetta mikla sköpunarverk, væri einskis virði ef ekki væri lífið til að njóta þess og nýta. Þar af leiðir að það hlýtur að vera eilíft og hafa tilgang. Guð er ekki að kveikja þess- ar smátýrur sér til gamans snöggvast, ef þær eiga að slokkna aftur. Björn segir að það væri líkast „vitskertra manna athæfi sem byrja á mörgu efnilegu verki en hafa ekki ráðdeild eða staðfestu til að fullkomna neitt af þeim. Þessar slökktu týrur yrðu þá til einsk- is, eins og gleymdir draumar eða útþurrkuð skrift sem enginn hafði lesið". „Hugmyndin um algjörlegleikan bendir til að lífið geti tekið á móti óendalegri fullkomn- un með óendalegri eilífð." Það að menn deyja á öllum aldri sýnir að aðaláform guðs er ekki að fullkomna menn hér í lífi, heidur er hið eiginlega líf óséð og eilíft. Þar fyrir eru öll líkindi til segir Bjöm, að lífið komi einhvern veginn í ljós aftur þó það hverfi í dauðanum. Hinar athyglisverðu lýsingar Björns Gunn- laugssonar á gerð og eðli alheimsins verða ekki tíundaðar hér en skýringarnar á einstakl- ingslífinu og tilgangi þess eru svo heillandi að freistandi er að gera þeim einhver skil. Þessi „lýsandi kraftur" sem Iífið er, streym- ir fram sem vilji skaparans um allt skapað og gæðir það framfarahvöt. I hverri frumögn efnisins útganga aflstraumar í allar átti eins og geislar. Þetta sírennandi streymi vitnar um „að alheimur sé eintómur gagntær, guð- dómlegur kraftur eða vilji, en ekki meiningar- laust og óþjált efni eins og Plató hélt." Samkvæmt rétttrúnaði fyrri tíma var mað- urinn fæddur syndugur og spilltur vesalingur sem dæmdur var af grimmum guði til eilífra kvala og glötunar ef hann gerði ekki yfirbót og fetaði hinn þrönga stíg sem kirkjan bauð. I Njólu er allt önnur mynd af manninum. I stað volaðs vesalings sem aldrei gat verið viss um að sleppa „gegnum nálaraugað", hvort það eitt að hafa mannlegt eðli og kennd- ir verði honum til sakfellingar á „efsta degi", er þar að sjá einstakling sem hýsir innra með sér afskammtað afl sjálfs skaparans, ljós af ljósi hans. Hvað meira er, hann er vaxtar- broddur þess sem dýrmætast er af öllu: lífs- ins sjálfs. Þroskaferill mannsins miðar að því að hann geri sér þetta ljóst. Að hann þróist frá þekk- ingarleysinu, þ.e. sakleysinu gegnum marg- víslega reynslu mannslífsins, til skilnings og þroska. Óðlist visku. í 174. erindi segir: Eins og bókfell óskrifað er sakleysið téma ákvörðun nær ekki það ef ei fær vitsins ljóma. Og vitsins ljómi fæst ekki nema af reynslu sem maðurinn öðlast smátt og smátt við aga lífsins. Sú ögun vekur vitund hans til dáða: 194. Djúpan sváfum dúrinn vér dautt þá vorum efni vor að hálfu vöknuð er viskan af þeim svefni. 197. Heimskan, freisting, syndir sút er sannur písla vepr en loks úr myrkri leiðir út í ljósið visku dregur. Hið illa er vöntun hins góða. Eins og nótt- in er vöntun sólarljóssins er hið illa vöntun andlega ljóssins. Það er heimskan. Að vita ekki hvað gott er og rétt. Að þekkja ekki sannleikann og vanta því þau gæði sem af réttri breytni leiða. „Hið illa meiðir með árekstrum með sam- viskusting og ótal hegningum sem hvetja til umhugsunar". Því að: 208. Örðugleika allskonar einmitt krapta nærir aptur lífsins blíðan bar birtu er hressing færir. Annað sem eflir framgang lífsins er framf- aramagnið. Það er lögmál sem ber allt með sér líkt og straumelfur sem rennur voldug og óstöðvandi sarnkvæmt guðs ráði. Með þeim straumi berst allt líf „um eilífðanna ei- lífðir upp til ljóssins hæða". Með honum berst einnig mannkynið og fer margbreytilegar leið- ir til að leita viskunnar, hver einstaklingur fyrir sig: 230. Ef allir gengju eina leið einginn hinar sæi, mannleg viska’.á myrkrið heið í mjóum einstíg lægi. Viskan er ætluð til að lærast, ekki að skap- ast í manninum í einu. 191. Svo er allt líf og sálin manns sér ei mjög það flýtir góða mundin gjafarans gáfunum lángsamt býtir. Ef maðurinn vitkaðist í einu stökki væri það líkt og að gefa óþyrstum að drekka. Þá væru systurnar „alvídd fríð og eilífð kær" óþarfar. 328. Öll náttúran er svo gerð að aldar leiki’ á hjólum; ætlað lífí er eilíf ferð eins og himinsólum. Þannig er lífið og sköpunarverkið sam- kvæmt Njólu eilíf hringrás eða síhækkandi spírall knúinn af vilja skaparans til fullkomn- unar. Þar fer fremstur maðurinn í leit að „vitsins ljóma". Leit mannsins er í Njólu einnig líkt við fjall- göngu. Þar kannar hann viskufjallið sem á sér rætur í þessum heimi, en nær langt upp- fyrir sjónsvið hans í óendanlegar hæðir al- spekinnar. Gegnum allt skín „guðs dýrðar sól“, sem ekki verður greind fyrr ein einstakl- ingurinn nær þeim þroska að með honum opnast skilningarvit sem gera honum kleift að meðtaka geisla hennar einn af öðrum. í þessu lífi veitast þau í þessari röð: 1. Tilvera. Frumefni. í því er maðurinn eins og dauður hlutur. 2. Jurtalífið — þannig vex fóstrið eins og jurt hugsunarlaust. 3. Dýralífið — byijar með fæðingunni. Þá fer maðurinn að gera mun þess þæga og óþæga eins og dýr. 4. Skynseminnar líf— þá fer hann að gera mun góðs og ills, þá fara geislar guðs dýrðar fyrst að sjást eða þekkjast. 5. Andlega lífið — þá fer maðurinn að geta greint dýrðarinnar sól eða sjá að geisl- arnir koma frá einni uppsprettu, þekkja guð. „Hér endar sá tröppugangur sem vér höfum af að segja í þessum heimi, en í öðrum heimi mun hann halda áfram um alla endalausa eilífð" segir spekingurinn með bjarnshjartað í Njólu. Það er fróðlegt að kynna sér hugsanir annarra og bera saman við eigin skoðanir og reynslu. Víst er að lífssýn Björns Gunnlaugs- sonar í Njólu er björt hvað varðar lífið og gildi þess. Þótt ekki boði hún þrautalaust hóglífí heldur sókn og átök við „erfiðleika allskonar" bendir stefnan vegna þeirra og um þá til ljóssins hæða. Höfundur er auglýsingateiknari og húsmóðir. 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.