Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 10
Komdu að spila, Páll - Þrjár þjóðsögur með athugasemd og eftirmála - Svo sjálfsögð skemmtan sem það hefur lengst af þótt, að grípa í spil um jólaleytið, var þá sumstað- ar talin versta óhæfa að hafa slíkt um hönd á sjálfa jólanóttina. Áttu menn þá á hættu að tveir yrðu tígulkóngarnir í spilunum og væri annar Bomar em saman þrjár frásagnir af því sem átti sér stað á Stórólfshvoli á síðustu öld og þótti mikil óhæfa: Að fólk fór á jólanótt út í kirkju og spilaði og hafði uppi glens og gleði, sem skyndilega var bundinn endi á. ÞORSTEINN FRÁ HAMRI TÓK SAMAN þeirra myrkrahöfðinginn sjálfur. Fylgdi þeim spilagesti ósjaldan alvarleg misklíð með heitingum og bölbænum, ýmist sem undanfari eða afleiðing. Einkum mun slíkt hafa þótt við bera ef fólk spilaði alkort, þar sem tígulkóngur er hæstur. Sú saga er víða á ferli og uppi höfð í viðvörunarskyni, að fjandinn hefðu fundið upp spilin í því skyni að auka að nýju á siðblindu mannkynsins, þegar honum þótti straumurinn til helvítis með dræmasta móti. Hafi einhverjir orðið hugsi við þessi tíðindi var kannski ekki að furða þótt samvizkan gæfi hressiiega utan- undir þegar meðferð spilanna snerist í guð- lastan og ögranir við helga dóma. Ólafur Davíðsson hefur eftir Þorsteini Erlingssyni skáldi að tveir tígulkóngar komi í spilin einungis „þegar alkort sé spilað á altarinu, jólanóttina sjálfa“. Sú hafi verið trú manna á Suðurlandi. A síðustu öld öndverðri varð atburður í Hvolhrepp austur, sem mjög virðist hafa minnisstæður orðið og í frásögur færður. Hvar sem hún kann að dyljast, hin innsta rót þeirrar reynslu sem frá er skýrt, hlaut sagan að ýta undir ugg og hroll; þar er á ferð ungæðisfull og bíræfin léttúð sem læt- ur ekki staðar numið fyrr en inni við altarið í lítilli sveitakirkju á hinni helgu nótt. Refsitáknin láta heldur ekki á sér standa; saga þessi er að því leyti náin ættingi sagn- anna af dansinum í Hruna og Galdra-Lofti. Um er að ræða þrjár frásagnir af at- burði þessum, sem í mörgu ber saman en greinir á um annað, allar með ósviknum þjóðsagnablæ — ásamt hinni fjórðu, sem dregur efnið fram í dagsbirtuna að því leyti sem völ er á. Fara þær hér á eftir. Fyrst er stutt saga úr safni Ólafs Davíðssonar, skráð 1901 eftir sögn séra Magnúsar Helga- sonar, en hann hafði eftir Sigríði Guð- mundsdóttur (f. 1815, d. 1896), konu séra Gísla Isleifssonar í Kálfholti: Spilamennska á Stórhólfshvoli. Einhverju sinni andaðist vinnumaður að Stórólfshvoli austur ekki alls fyrir löngu, skömmu fyrir jól, og var hann jarðsettur, eins og lög gera ráð fyrir. Svo bar til, áð prestur var ekki heima jólanóttina, og fór fólkið út í kirkju til þess að spila. Vinnu- kona var þar á bænum, ung og gáskafuil. Um leið og hún gekk út til kirkjunnar, rak hún fótinn í leiði vinnumannsins og sagði: „Komdu nú og spilaðu við okkur, greyið mitt, efþú getur. “ Pegar fólkið hafði spilað stundarkom, kom moldargusa í kirkjuhurð- ina, og gekk svo nokkra stund. Fólldð varð hrætt, en ekki tók betra við, því að svipur vinnumannsins kom inn á kirkjugólfíð, og sáu hann allir, sem við voru staddir. Fólkið hljóp þá út í ósköpum, og komust allir óskemmdir út úr kirkjunni nema vinnukon- an; hún varð vitskert og var það alla ævi upp frá því. Sagt er, að hún hafí lifað fram um 1880. Næst segir af þessari spilamennsku í Þjóðsögu Einars Guðmundssonar, og lúta þar að henni tvær sögur. Hin fyrri bindur atvikið ^ekki í tíma og er skráð eftir sögn Önnu Amadóttur, ekkju frá Syðra-Lang- holti í Hrunamannahreppi: Komdu að spila, Páll. Svo bar við endurfyrirlöngu um aðfanga- dagskvöld á prestssetrinu Stórólfshvoli í Hvolhreppi, að prestur var eigi heima, svo að ekkert varð úr aftansöng. Á staðnum var margt hjúa, og hét ein griðkonan Björg, og þótti hún ærið upp á heiminn. Þegar messufólk allt var horfíð frá, hafði hún orð á því við hin hjúin, hvort ekki væri ráð að fara út í kirkju og slá í einn hring af a1- korti, fyrst engin gleidd önnuryrði á staðn- um. Þótti hjúunum þetta snjallræði, ogfóru út í kirkju með spil og kerti til að spila við. En er þau gengu um sáluhliðið, staldr- aði eitt þeirra við hjá nýjasta leiðinu í kirkjugarðinum, spymti við því fæti og sagði: »Komdu að spila, Páll«, en svo hét maðurinn, sem þar var nýbúið að setja nið- ur. Kom fólkið sér svo fyrir innan við grád- urnar og spilaði nú um hríð af kappi og í ofsakátínu. Þá hafði einhver spilamannanna orð á því, að hann hefði fengið tvo tígul- kónga á höndina. í sama bili varð öllu spila- fólkinu litið fram eftir kirkjunni, og sá það þá draugílínklæðum standa innan við dym- ar, og kenndi það þar Pál, manninn nýjarð- aða, sem boðið hafði verið í spilin. Leið hann inn eftir kirkjunni og inn að altari, og sáust síðar á því torkennileg fíngraför. Varð fólkið fyrst höggdofa, en kastaði síðan spilunum, steypti niður kertinu í fátinu og hljóp í dauðans ofboði út úr kirkjunni og til bæjar. Björg varð síðust út úr kirkjudyr- unum, og varð hún svo skelfd, að hún brjál- aðist. Var hún brjáluð alla æfí upp frá því og mátti ekki spU sjá, svo að ekki setti að henni óstjórnlega spUafíkn. Síðari sagan í safni Einars Guðmundsson- ar nefnist Vofan og tígulkóngurinn á HvoU og er allmiklu ýtarlegri, „rituð eftir sögn þeirra manna, sem kunna munu gjörst skii á“: Það mun hafa verið um 1837-8 á Stórólfs- hvoli, er séra Sigurður G. Thorarensen var þar prestur og ætlaði að halda aftansöng aðfangadagskvöld jóla á annexíu sinni, Sigluvík í Vestur-Landeyjum, að heimafólk hans hafði orð á því, áður en hann fór, að það mundi fam út í kirkju og spUa þar um kvöldið. Húsfreyju hans, Guðrúnu Vigfús- dóttur Thorarensen, hafði verið lítið gefíð um spUaskvaldur í bænum ogjafnvel bann- að fólkinu að spUa inni eða þar, sem heyrð- ist tU þess. Það vissi prestur og bannaði fólkinu að fara út í kirkjuna tíl þess, því að ekki væri viðeigandi að spUa þar. — Prestur leggur af stað í Ijósaskiftunum í góðu veðri, logni og tunglsljósi og heldur svo sem leið liggur fram á Þverá, sem var á ís. Þegar hann var kominn út á miðja ána, verður honum litið aftur upp að Hvoli; sér hann þá Ijós borið úr bænum út í kirkj- una og gmnar þá, hvað í efni sé; snýr þó ekki aftur. Þegar prestur er fyrir nokkm fai-inn, kemur fólkinu saman um að fara með spU út í kirkju og spUa þar í ró og næði fram eftir kvöldinu. Tvær persónur eru sérstak- lega nefndar, sem héldu þessu íram: Guð- rún, sem var að nokkru leyti upp alin eða lengi hafði verið hjá þeim hjónum, og vinnu- maður, Árni Benónýsson. Fólkið fór með glensi og hávaða tU Mrkjunnar. Þegar út í garðinn kom, hafði Árni spyrnt fæti í ný- legt leiði og sagt: »Það vildi eg, að þú vær- ir kominn að spUa við okkur í kvöld, lags- maður!« Þegar fólkið hafði spUað dálitla stund, fór að bera á ýmsu óvanalegu. Fyrst komu fram tveir tígulkóngar í spUunum, og svört vofa, stór, sást við hurðina; leið hún hægt og hægt inn eftir kirkjunni, norð- anmegin stólanna, o'g óvanaleg fíngraför sáust á altarinu, þar sem fólkið var með spilin. Þetta kom flatt upp á, svo að fólkið varð frávita afhræðslu og vissi ekki, hvem- ig það komst út úr kirkjunni. Guðrúnu varð svo mikið um sýn þessa, að hún lagðist í rekkju og lá 2-3 vikur og var þó taUn aldr- ei fyllUega jafngóð. SpUalöngun hennar þvarr þó ekki, því að þegar hún tók að hressast í rúminu, vUdi hún fá spU sér til skemmtunar, en fékk ekki. Hún fíuttist með prestshjónunum út að Hraungerði 1839 og giftist þaðan Andrési nokkrum. Þau bjuggu að Holti fyrir ofan Stokkseyri. Ámi bjó síðar í Dufþekju. Hann var frá- bitinn spUum eftir þetta kvöld og hafði helzt farið af bæ, ef hreyfð vom spU, að því er haft var eftir fóstursyni hans. Árni mun hafa verið sonur Benónýs, sem bar strokkinn heim úr fjósinu í Odda 1798 og greinUega er frá sagt í »ÞorraþræIsbylurinn í Odda«. (Fyrirlestrar Þoivalds Guðmunds- sonar, bls. 356-378). II Sú sagnanna, sem mest þykist hafa til síns máls og það fremur er sannara reyn- ist, rekur hér lestina. Hún er skráð af Guð- rúnu Hermannsdóttur (f. 1866), prófastsfrú frá Breiðabólstað, beinlínis til íeiðréttingar sögunni sem Ólafur Davíðsson skráði, og prentuð í Rauðskinnu séra Jóns Thorarens- ens 1945. Guðrún Hermannsdóttir skrifar: Eg er fædd og uppaUn í sveitinni, þar sem þetta gerðist, og í æsku minni heyrði eg oft á það minnzt; en greinUegast var það, sem móðir mín, Ingunn Halldórsdótt- ir, sagði mér þessu viðvUgandi. Hún var ættuð úr Landeyjum, og um fermingaraldur átti hún heima í Sigluvíkursókn, sem þá lá undir Stórólfshvol. Þá var síra Jón Eiríks- son þar prestur. Hann fermdi móður mína, og fór hún til hans í spurningar veturinn áður. Þetta mun hafa verið 1856 eða 7. Næsti prestur á undan síra Jóni var síra Sigurður Thorarensen, en í hans tíð gerðist saga þessi. Mun fólki í Hvolhreppnum hafa verið hún í fersku minni í tíð móður minnar og móðir mín þá heyrt hana oft sagða. Þá vík eg að sögunni. Það var á aðfanga- dagskvöldi, ekki er tUgreint, hvaða ár. Síra Sigurður var niðri í Landeyjum að halda kvöldsöng í Siglu víkurkirkju; var hans ekki von heim um kvöldið. Það hefír ekki þótt viðeigandi tU sveita að spUa á jólanóttina eða vera með glens eða gáska, en það var margt ungt og glaðlynt fólk á prestssetr- inu. Segir sagan, að það hafí notað sér það, að prestur var fjarverandi, svo að fóstur- dóttir prestshjónanna, Björg Eggertsdóttir, stakk upp á því að fara að spila alkort, sem þá var títt, en taldiréttast að fara út íkirkju, svo að prestskonan kæmist ekki að því. Þrír ungir menn fóru út með stúlkunni: Árni Benónísson, er síðar varð bóndi á Dufþekju í Hvolhreppi (eg man vel eftir honum, hann var duglegur maður og stór- orður; hann lifði fram yfír 1880), FUippus, er varð bóndi í Varmadal eftir íoður sinn (hann var dáinn fyrir mitt minni, en Stef- án, son hans, þekkti eg, hann bjó í Varmad- al eftir föður sinn). Fjórða spUamanninn hef eg ekki heyrt nafngreindan. — Um haustið hafði ungUngspUtur, er Páll hét, dáið á prestssetiinu. Er þetta fólk gengur út í kirkjuna fram hjá leiði Páls, er sagt, að Björg hafí drepið fæti við því og sagt: „Komdu að spUa, Páll, ef þú getur". Síðan fer fólkið að spUa í kirkjunni með glensi miklu. Bóndi á næsta bæ, er Snorri hét, þá miðaldra maðui; kom inn í kirkjuna og átaldi fólkið fyrir þetta athæfí að vera að spUa í kirkjunni. Það hló að honum, hélt áfram að spila og lét öllu verr en áður. Eftir nokkra stund kom Snorri aftur og skipaði því að hætta, annars mundi Ult af hljótast. Er í mæli, að Snorri hafí verið skyggn og hafí séð eitthvað við kirkjudyrn- ar. Að því búnu stendur spilafólkið upp og gengur út. En í kirkjudyrunum fellur Björg niður með voðalegum krampa. Var hún í því ástandi borin inn í bæ og var sjúk allan veturinn eftir þetta og vitskert, en komst loks tíl heUsu aftui; en var mjög breytt, alvörugefín ognokkuð þunglynd. Hún fíutt- ist með fósturforeldrum sínum að Hraun- gerði í Flóa, er síra Sigurður fékk það prestakall. Þaðan giftist hún bónda í sveit- inni og bjó þar við góðan orðstír. Þetta síð- asta hafði móðir mín eftir stúlku, er Sigríð- ur hét, ættuð úr Hvolhreppnum. Fór hún með fjölskyldunni út að Hraungerði og var þar um tíma. Síðan fór hún austur aftur og var nokkur ár hjá foreldrum mínum á Velli. Síðan giftist hún bónda þar í sveit. Sagt er, að pUtunum, sem spUuðu íkirkj-- unni þetta kvöld, hafí einnig brugðið mjög, er þeir komu í kirkjudyrnar, og talið víst, að fyrir þá hafí borið eitthvað mikUfeng- legt, enda þrættu þeir ekki fyrir það, en voru ófáanlegir tU að segja frá því. En öllu var þessu fólki það sameiginlegt, að það hafði megnustu óbeit á spUum eftir þetta. Síra Jón Eiríksson var síðasti prestur, 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.