Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1995, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1995, Blaðsíða 7
SKÚLATÚN 2 - aðsetur borgarstjórnar þar til ráðhúsið var byggt. Ljósmyndir: Allar litmyndirnar hefur Pétur Sörensson, Ljósmynasafni Reykjavíkur, tekið. MELASKÓLLNN. Auk skólastarfsins fóru þar fram opinberar móttökur á vegum Reykjavíkurborgar. ;.výv ;f. 'isf LAUGALÆKJARSKÓLL. Steinsteyptu krossformin ístóru gluggunum, sem Einar notaði þarna og víðar, eru til styrkingar, en setja aukþess sinn svip á bygginguna. ingum hans og skipulagsúrlausnum má því oft greina togstreitu hefðbundinna og framsækinna viðhorfa. Annað megi- neinkenni Einars sem einnig má rekja til menntunar hans, var kunnátta hans í tæknilegum efnum. Fullyrða má að hann hafi verið einn fjölhæfasti oggagn- mennaðasti sérfræðingur á sviði bygg- ingartækni í stétt íslenskra arkitekta. Einar var ágætur stærðfræðingur og átti áhuginn á þeirri grein rætur í námi hans við stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík, sem á þeim tíma var ný- stofnuð og einungis fáir sóttu. Hann reiknaði sjálfur út burðarþol og jáma- styrkleik í mörgum húsa sinna og vann nákvæmar verklýsingar og kostnaðar- áætlanir. Athugaði hann oft burðarút- reikninga verkfræðinga í stærri verkefn- um oggerði athugasemdir, ef niðurstöð- um bar ekki saman. Stærðfræðin nýttist Einari ekki aðeins sem hjálpartæki í hagnýtumn viðfangsefnum heldur hafði hún einnig bein áhrif á listsköpun hans. Sérþekking hans á burðareiginleikum steinsteypu gerði honum kleift að setja fram óhefðbundnar lausnir sem aðeins var á fárra valdi að útfæra. Einar beitti reikningskunnáttu sinni til að sýna fram. á hagkvæmni og raunhæfni byggingar- hugmynda sem erfitt hefði reyst að rétt- læta út frá formrænum forsendum ein- um. Þekking hans á útfærslum og efnis- vali veldur miklu um að byggingar hans hafa staðist álag veðurs og notkunar betur en önnur hús. En þó Einar væri snjall tæknimaður beindist hönnun hans ætíð að því að sameina listræn og tækni- leg sjónarmið. Hann var áhugamaður um listir og átti frumkvæði að því að listamenn væru fengnir til þess að vinna verk í byggingar sínar. Ber sérstaklega að geta vináttu hans og Asmundar Sveinssonar, sem gerði myndir m.a. í Laugarnesskóla, Melaskóla og Heilsu- verndarstöðina. “ Við þettta má bæta því, sem raunar kem- ur fram annarsstaðar í ritgerðinni, að Einar fékk einnig Jóhann Briem til þess að mála myndröð, sem gerir hið sérstæða og glæsi- lega miðrými Laugarnesskóla enn eftir- minnilegra. Þarna mættu nút.íma arkitektar gjarnan taka Einar meira til fyrirmyndar, því engu er líkara en þeir forðist að gera ráð fyrir myndverkum í nýjum byggingum. Hlutverk Sólarljóssins Hugmyndafræði fúnskjónalismans var ákaf- lega heiðarleg, ef svo má að orði komast. Mergurinn málsins var að „fúnksjónin“, það sem gert er í húsinu, ráði útliti þess. Ekki BORGARSJÚKRAHÚSLÐ í Fossvogi, sem Einar teiknaði ásamt Gunnari H. Ólafssyni. HELLUVERNDARSTÖÐLN við Barónsstíg að innanverðu. Þar eru ýmis fagur- lega unnin smáatriði og Einar notar þar oft sveigðar línur, sem sízt af öllu voru í tízku þegar húsið var byggt. sé eytt fjármunum í óþarfa skraut, en að innanverðu átti rýmið að nýtast sem bezt og byggingar áttu helzt ekki að vera dýpri - eða þykkari - en svo að sólarljósið næði til allra herbergja. Þessa kenningu hafði Einar viðrað í merkilegri grein, sem hann skrifaði í tímaritið Húsakost og híbýlaprýði árið 1939. Þar er ágæt heimild um þær breyttu áherzlur sem Einar og aðrir arki: tektar fúnksjónalismans komu fram með. í greininni segir hann m.a. svo: Eitt af mikilverðustu atriðum viðfyrir- komulag hverrar íbúðar er það, að her- bergjaskipun hennar sé rétt gagnvart sól. Frá heilsufræðilegu sjónarmiði þurfa helst öll íbúðarherbergi að njóta sólar minnst 1-2 tíma á dag. Ákjósanlegast er, að sólartími hvers herbergis falli sam- an við þann tíma, sem herbergið er aðal- lega notað, og því er eftirfarandi her- bergjaskipun æskileg: Svefnherbergi og barnaherbergi hafi glugga móti austri eða suðri, borðstofan gegn suðri og einn- ig gegn austri, ef því verður við komið. Dagstofan hafi glugga gegn suðri og vestri, til þess að fá eftirmiðdags- og kvöldsólina. Oft er t.d. með útbyggingu, einnig hægt að fá austurglugga á dag- SALURLNN ímiðhluta Laugarnes- skólans var nýstárleg lausn, en þar að auki listræn og glæsileg. stofuna, og það er mjög æskilegt. 1 stærri íbúðum er oft um þriðju stofuna að ræða og liggur hún best gegn vestri. Eldhús og baðherbergi gegn norðri eða norð- austri. Inngangur og stigahús eru oftast gegn norðri eða vestri, og er það dálítið háð afstöðu hússins gagnvart götu, en þó ber að gæta þess, að inngangur sé ekki gegn verstu rigningaráttinni. “ Við þetta er svo því að bæta að nýtt ríki- dæmi í kjölfar stríðsgróðans, gerði Einari erfitt um vik að láta sólina njóta sín sem skyldi. Menn vildu byggja stærra en áður; íbúðarhús urðu dýpri af þeim sökum og afleiðingin varð „holið“ inni í miðju húsi, sem nýttist illa og var venjulega sólarlaus vistarvera. Bætt fjárráð stuðla ekki alltaf að betri byggingum. Brautryðjandi í Gerð Fjölbýlishúsa Oft hefur þessi Lesbókarskrifari virt fyrir sér fjölbýlishúsin við Hringbraut og Löngu- hlíð, sem Einar teiknaði á árunum 1942- 1945, og spurt sjálfan sig og stundum aðra: hvernig í ósköpunum má það vera að þess- ar elztu blokkir í Reykjavík eru síungar og meira en það: Þær bera hreinlega af fjöl- mörgum sambyggingum fyrir íbúðir sem byggðar hafa verið á áratugunum síðan. Arið 1942 var Einari falið að teikna tvær LESBÓKMORGUNBLAÐSINS 18. NÓVEMBER 1995 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.