Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1997, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1997, Blaðsíða 8
- LISTIN ER AÐ MIÐLA EINHVERJUM GUÐDÓMI Brim brýtur á strönd, vatn flæóir, vindur skekur grös og kríur garga í íslenska skálanum á Fen- eyjatvíæringnum í sumar. Verkió nefnistORKA og er eftir Steinu Vasulku, sem er nú fulltrúi íslands á þessari 102 ára gömiu myndlistaruppákomu. Steina er kunn sem einn af frumkvöólum mynd- bandalistarinnar og hefur á löngum ferli þroskað meó sér persónulegan, Ijóórænan stíl. VERK Steinu Vasulku í ís- lenska skálanum á Feneyj- atvíæringnum vakti ótví- ræða athygli gesta fyrstu daga sýningarinnar. Fólk staldraði gjarnan lengi við og upplifði verkið; hljóð og mynd, í litla bláa skálanum sem Steina hafði stækkað furðulega mikið með myrkri og speglum, en hún varpaði myndfléttum sínum á þijú tjöld sem fjölföld- uðust í endurvarpi speglanna. Verkið tekur fimmtán mínútur í flutningi og er síendur- tekið. Á forsýningu tvíæringsins, sem stóð yfir í þijá daga og var ætluð fjölmiðla- og safnafólki og öðr- um boðsgestum, var ekki óalgengt að sjá fólk frá kunnum listasöfn- um og fjölmiðlum heimsækja íslenska skálann í hópum, til að upplifa verkið og hitta listamann- inn sem er vel þekktur sem einn af forsprökkum myndbandalistar- innar. En það sem gladdi listamann- inn sýnu meira voru undirtektir þeirra sem ekki höfðu fín nafnspjöld að veifa. Sem dæmi um hrifningu óviðbúinna gesta sagði Auður Ólafsdóttir listfræðingur, sem er varaformaður íslensku sýningarnefndarinn- ar og annaðist að miklu leyti undirbúninginn við þátttöku íslands, mér sögu af þremur konum sem nálguðust íslenska skálann á fyrsta degi forsýningarinnar. „Þetta voru eldri konur í rósóttum kjólum, og það leit helst út fyrir að þær hefðu villst inn á sýn- ingarsvæðið á leið sinni i hverfisverslunina að kaupa inn,“ sagði Auður. „Við Steina vissum alls ekki við hveiju ætti að búast þegar þær stungu sér inn fyrir svart tjaldið í dyrum skálans. Svo liðu fimmtán mínútur og aðrar fimmtán og ekki komu þær út. Þær birtust loks eftir klukkustund, klökkar, og sögðust hafa viljað vera til Ioka, í þijá tíma til, en það voru bara engin sæti inni í skálan- um svo þær voru orðar þreyttar. Þær sögð- ust ekki trúa því að hægt væri að verða fyrir eins mikilli upplifun af list og þær höfðu orðið fyrir þarna! Þetta sýnir kannski hvað Steina er í aðra röndina mikill rómantí- ker, en ólíklegasta fólk dvaldi mjög lengi yfir verkinu." Steina Vasulka fæddist í Reykjavík fyrir 57 árum, ólst upp sem Steinunn Bjarnadótt- ir, en hefur meginhluta ævinnar verið bú- sett erlendis. Hún lagði stund á fiðluleik, fór SYNINCA- SUMAR □ Miinster , o Kassel ÞYSKA- LAND Feneyjara ÍTALÍA í EVRÓPU Morgunblaóið/Einar Folur Ingólfsson STEINA Vasulka við íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum. KONUR BERA AF HÉRÍFENEYJUM Berg Nordal hafói í mörg feneysk horn aó lítg í kringum opnun tvíæringsins. Hún var formaóur nefndarinnar sem valdi íslenska fulltrúann og stóó aó sýningu hans og hún þurfti einnig aó skoóa aórar sýningar vel vegna hins nýjg starfs síns sem forstöóumaóur Kunsthalle í Málmey. DAGANA sem forsýning Feneyjatvíæringsins stóð yfir mátti sjá Beru Nordal koma af og til í íslenska skálann, að athuga hvort undirbúningur gengi ekki sem skyldi og ræða við gesti, og síðan var hún komin á ferðina aftur á milli sýninga á aðal- svæði tvíæringsins eða annarra sýninga út um borgina. „Þetta er í þriðja skiptið sem ég er sýning- arstjóri íslenska skálans," sagði Bera þegar ég náði tali af henni eitt kvöldið og spurði um hlutverk hennar á Feneyjatvíæringnum. „Ég verð sífellt sannfærðari um að það skipt- ir miklu máli að við tökum þátt í þessum tvíæringi. Þrátt fyrir að það sé dýrt miðað við þá litlu peninga sem við höfum til um- ráða, þá tel ég að þeim peningum sé vel varið. Með því að leigja þennan skála af finnska ríkinu erum við mjög vel staðsett og út af fyrir okkur, erum ekkert upp á önnur Norðurlönd komin. Þessi þátttaka núna, með Steinu Vasulku, hefur tekist sér- staklega vel. Skálinn hefur líklega aldrei komið betur út, því Steina notar hann svo frábærlega vel; hún byggir verkið upp með speglum og skermum og stækkar rýmið þannig margfalt." Ég notaði tækifærið og spurði Beru um upplifanir hennar á sýningum tvíæringsins. „Það er spennandi við þennan tvíæring hvað konur eru sterkar,“ svaraði hún. „Þá vil ég sérstaklega nefna þijár sem bera af á boðssýningunni stóru í ítalska skálanum. Það er þessi ótrúlega sterki „performans" eftir Marinu Abramovic, þar sem hún geng- ur svo langt og svo nærri sér og sínum balkanska bakgrunni að það er með ólíkind- um. Síðan fannst mér verkið hennar Rebeccu Horn mjög fínt og málverkin hennar Agnes- ar Martin. Ég hreifst mjög af breska skálanum og þar voru líka verk eftir konu, Rachel White- read. Annars eru skálar þjóðanna mjög mis- jafnir, eins og gengur, en sumir eru mjög forvitnilegir og hafa jafnvel skýr þjóðarein- kenni. Það var gaman að franska skálanum og ég naut japanska verksins. Þjóðlöndin komust vel frá sínu í ár, betur en síðast. Ekki endalaust efni til að sýna Sýningarstjórinn Germano Celant ræður valinu á meginsýninguna og er mjög klass- ískur. Hann sýnir ýmsa uppáhaldslistamenn sína, bæði vini og eldri menn sem hann hefur unnið með gegnum tíðina, en þeir sýna þó allir ný verk. Það er óskaplega spennandi að sjá ný verk eftir listamenn eins og Oldenburg og Lichtenstein og eftir Mario Mertz og fleiri sem maður hefur séð lítið af nýjum verkum eftir síðustu ár.“ Við ræðum um þá sérstöðu Feneyjatvíær- ingsins að vera eina sýningin á samtímalist af þessari stærðargráðu, þar sem annars vegar er valið á stóra sýningu og svo eru þjóðirnar með eigin skála. Bera segir að ákveðin samkennd og jákvæður andi mynd- ist á sýningarsvæðinu af þessum sökum. „En það er líklegt að það hafi verið ákveð- ið að fara ekki út í mikla rannsókn á helstu straumum samtímalistarinnar hérna núna, vegna þess að Documenta hefst í Kassel eftir nokkra daga og þá væru sýningarnar komnar í samkeppni um að fá listamenn til að gera ný verk.“ — Þessar stóru sýningar þrjár, sem eru opnaðar svo að segja í sömu vikunni í Feneyj- um, Kassel og Múnster, hljóta að vera í ákveðinni samkeppni; bæði listrænni og um athygli? „Já, vitaskuld. Svo er Lyontvíæringurinn í byijun júlí, þannig að það er ótrúlega mik- ið um að vera á þessu sviði núna. Að auki eru flestir sýningarstaðir á þessu svæði Evrópu að reyna að setja upp mjög mikil- vægar sýningar." 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. JÚNÍ 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.