Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.1997, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.1997, Blaðsíða 3
LESBÖK MORGliNBLAÐSINS ~ MENMNG LISTIR 27.tölublað - 72. árgangur EFNI Fimmtíu ár eru síðan Líf Leifs, 17 ára gömul dóttir Jóns Leifs, drukknaði á sundi við vestur- strönd Svíþjóðar. Dótturmissirinn var Jóni ákaflega þungbær, og hann sneri sér þegar í stað að tónsmíðum til að fá útrás fyrir sorg sína og reiði. Arni Heimir Ingólfsson fjallar um þessa sorglegu sögu og tónverk- in fjögur, sem Jón Leifs samdi í minningu Lífar, og segir Arni þau meðai fegurstu og áhrifamestu verka hans og í þeim gefi hann sínum viðkvæmustu tilfinningum, sem hann var annars ekki vanur að flíka í tón- list sinni, lausan tauminn. Gallerí Suðurgata 7 starfaði í fjögur ár og er þess nú minnzt með sýningu í Nýlistasafninu. Magnús Gestsson segir í grein, að syndsamieg þögn hafi ríkt um félagsskapinn frá því að hann leið undir lok og húsið varð safngripur á Arbæjarsafni. Valsakóngurinn er heiti sem Björgvin Halldórsson velur Jóni heitnum Jónssyni frá Hvanná en fyrsta geislaplatan með lögum hans er komin út. Töfrablik heitir hún og geymir ellefu lög, þeirra á meðal eru Selja litla og Capri Catarina, sem borið hafa hróður hans víða. Saga Flóka Vilgerðarsonar heitir sýning á málverkum Kathe Oien sem nú eru sýnd í tengsium við víkingahátíðina í Hafnarfirði. Kristín Ástgeirsdóttir var fengin til að opna sýn- ingu á þessum myndum í Noregi og hún segir þær hafa haft sterk áhrif á sig og leitt hugann til þess hve mikinn fjársjóð við eigum í öllum okkar sögum, kvæðum og goðsögnum, sjóði speki og frásagna um mannleg örlög sem eiga erindi til allra á öllum timum. Jóhannes Geir listmálari er nýorðinn sjötugur og í dag verður opnuð sýning á sögulegum stemmn- ingsmyndum hans sem byggðar eru á at- burðum úr Sturlungu. „Meðan ég var að mála upplifði ég atburðina úr Sturlungu svo sterkt að mig dreymdi suma þeirra á nóttunni," segir listamaðurinn m.a. í sam- tali við Hildi Einarsdóttur. í þessu samtali rifjar Jóhannes Geir upp ýmislegt frá liðn- um dögum, segir samtimanum til synd- anna, en horfir líka fram á veg, því hann er ekkert á þeim buxunum að hætta; sjötug- ur gengur hann óhræddur til þess sem hann væntir að verði hans beztu verk. Á forsíðunni er hluti af málverki Jóhannesar Geirs, Sturla á hlaði Miklabæjar. CARL SANDBURG GRAS STEINN STEINARR ÞÝDDI Ég er gras. Og ég græ yfír spor ykkar. Skreytið hendur og eyru með glitrandi gimsteinum. Haldið dansleiki og veizlur undir vorbláum himni. Hrópið afreksverk ykkar og hetjudáðir af húsaþökunum. Ég er gras. Og ég græ yfír spor ykkar. Byggið hallir og musteri úr drifhvítum marmara. Leggið götur og stræti úr gulum og rauðum sandsteini. Reisið tuma og vígi, sem enginn kemst yfir nema fuglar himinsins. Ég er gras. Og ég græ yfír spor ykkar. Sendið milljónir manna út á vígvöllinn hjá Verdun og Ypres. Hlaðið líkum hinna föllnu í fjallháa hlaða: 10 ár, 50 ár, 100 ár. Og einhver vegfarandi horfir með ólundarsvip út um gluggann á járnbrautarklefanum og spyr: Hvar erum við nú? Ég er gras. Og ég græ yfír spor ykkar. Carl Sandburg, 1878-1967; bandariskt skáld af sænskum ættum. EINOKUN - HVERJUM TIL GÓÐS? RABB ISLENDINGAR bjuggu lengi við verslunareinokun og undu því illa. Því var verslunarfrelsinu fagnað sem merkum áfanga í sjálfstæðis- baráttu þjóðarinnar. Enn búum við samt við ástæðulausa einokun á ýnysum sviðum. Ótrúlega margir, jafnvel heilir stjórnmálaflokkar, hafa haft þá skoðun að frelsi til dæmis í innflutnings- og gjaldeyris- málum gæti verið varasamt, ef ekki beinlín- is þjóðhættulegt. Þess vegna bjuggum við við höft og hömlur lengur en allar grannþjóð- ir okkar. Með viðreisnarstjórninni fór þessu að linna og allt stefnir þetta í rétta átt. Margt af því sem áður var hömlum háð þykir beinlínis broslegt núna. Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur muna eftir Viðtækjaverslun ríkisins. Ríkiseinokun á innflutningi útvarpstækja! Yngra fólk man, að enginn mátti selja síma nema Póstur og sími. Gott ef símkerfið átti ekki að bíða verulegt tjón, jafnvel hrynja ef öðrum yrði leyfður innflutningur á símtækjum. Það var leyft. Hvað gerðist? Ekki neitt nema senni- lega hefur fjölgun símtækja fjölgað sím- tölum og þar með aukið tekjur Pósts og síma. Mig minnir líka að allt hafi átt að fara til fjandans á landsbyggðinni þegar Skipaútgerð ríkisins var lögð niður. En það gerðist ekki neitt. Var það ekki líka svo að aukið frelsi í gjaldeyrismálum átti að tæma gjaldeyris- sjóði ríkisins? Líklega er ekki nema rúmlega hálfur annar áratugur síðan undirritaður fór fram á það við viðskiptabanka sinn að fá greiðslukort til nota á ferðalögum erlendis. Jú, það var hægt, en með semingi þó og skrifa þurfti sérstakt bónarbréf til Seðla- banka sem allra náðarsamlegast veitti leyfið. Hvað gerðist með auknu frelsi í gjaldeyr- ismálum? Ekkert, nema fólki varð lífið held- ur auðveldara. Aukið frelsi í þessum efnum hefur nefnilega aldrei verið fólki til bölvun- ar heldur til blessunar. En einokunin lifir enn góðu lífi á íslandi með öllu því illa sem einokun fylgi: Við- skiptavinurinn skiptir ekki miklu máli. „Hann verður hvort sem er að versla við okkur. Getur ekki farið annað. Þess vegna getum við sett honum kosti, jafnvel afar- kosti, ef okkur býður svo við að horfa.“ Svo bar til hér á dögunum, að brúðkaups- veisla stóð fyrir dyrum í fjölskyldunni og rabbritari var sendisveinn í fáeina daga. Tveimur dögum fyrir veisluna þurfti að gera þrennt, fara í þtjú fyrirtæki sem öll voru nánast á sama blettinum. í fyrsta lagi kaupa 60 dósir af sýrðum ijóma, í öðru lagi töluvert magn gosdrykkja og síðan freyði- vín. Undirritaður sá í hendi sér að best væri að fara í Mjólkursamsöluna til að þurfa ekki að elta uppi 60 dósir í mörgum búðum, í nánd voru svo Vífilfell og ÁTVR. Til öryggis hringdi undirritaður í Mjólkursamsöluna til að kanna málið. - Nei, því miður Mjólkursamsalan selur ekki til einstaklinga. Fyrirtækið bauðst hinsveg- ar eftir nokkurt þref til að senda 60 dósir af sýrðum ijóma í þá verslun sem ég til- nefndi. Ekki var um annað að ræða en una því. Samdi svo við hverfiskaupmanninn um að hann tæki við þessu. Síðdegis þegar ég sótti til hans 60 dósir af sýrðum íjóma sagði hann að þeir hefðu nú reyndar orðið að koma tvisvar frá Mjólkursamsölunni því þeir hefðu talið vitlaust í fyrra skiptið! En hversvegna í ósköpunum fékkstu þetta ekki í fjögurra lítra fötum, spurði hann? Ég varð að játa, að mér hafði ekki hugkvæmst að spyija um stærri umbúðir ogtveimur viðmælendum mínum hjá MS hafði ekki dottið í hug að segja frá þessum mögu- leika. Einfaldara hefði verið bæði fyrir mig og MS ef ég hefði fengið að sækja þetta til þeirra. Að maður tali nú ekki um um- búðasparnað, eldsneytissparnað og vinnu- sparnað. Slíkt skiptir einokunarfyrirtæki auðvitað ekki máli. Þá hringdi ég í Vífilfell. Gjörðu svo vel. Þú getur ekið upp að dyrum og sett gosið í bílinn. Vertu velkominn. í gosdrykkjasölu er nefnilega ekki einokun. Þá var bara ÁTVR eftir. Þangað var óþarft að hringja. En þegar kom að því að borga upphæðina, sem verslað var fyrir, rúmlega fimmtíu þúsund krónur þá kom babb í bátinn. - Því miður tökum við ekki avísanir sem eru hærri en tíu þúsund krón- ur. Ég veifaði íslensku VISA-korti, debet- korti og VISA-korti frá norskum banka, en allt kom fyrir ekki. Mér var bent á hrað- banka úti í horni. Þá varð ég að viðurkenna að ég nota hraðbanka svo sjaldan að ég mundi ekki leyninúmerið og auðvitað hlýði ég þeirri aðvörun bankans að geyma númer- ið ekki í veskinu með bankakortinu. Ég spurði hvort ég gæti ekki fengið að tala við forstjórann uppi á næstu hæð, ég væri næsta viss um að hann treysti mér til að vera borgunarmaður fyrir umræddri upp- hæð. Því var fálega tekið. Loks var mér boðið að skilja eftir óútfyllta, undirritaða ávísun. Því hafnaði ég. Þá var í lagi að ég skildi eftir ávísun útfyllta á rétta upphæð, en kæmi síðan og skilaði því víni sem af- gangs yrði. Leikar fóru þannig að ekki þurfti að skila víni og ávísunin gleymdist uns ég sá á bankareikningnum að ÁTVR hafði innleyst hana. Vera kann að einhveijum þyki þetta heldur ómerkilegt nöldur. Þetta snýst um úrelta viðskiptahætti og vonda þjónustu. Þessu er einfalt að kippa í liðinn. Það er hægt með því að afnema einkarétt Mjólk- ursamsölunnar og knýja hana til að laga sig að viðskiptafrelsi nútímans þar sem samkeppnin kemur viðskiptavininum til góða. Þá væri rétt í leiðinni að afnema ein- okun ÁTVR. Hún þjónar engum tilgangi. Ríkið getur tryggt sér sömu tekjur af sölu áfengis án einokunar. Það gilda ekkert önnur hagfræðilögmál á Islandi en annars staðar. Samkeppni er af hinu góða. Þegar einokun rikissímans í Noregi á útlandasímtölum var afnumin tókst íslenska sendiráðinu í Ósló að spara verulegar fjárhæðir í símkostnaði með þvi að gera samning við sænskt símafyrirtæki sem bauð langtum betri kjör á útlandasím- tölum en norski ríkissíminn og alveg jafn- góða þjónustu. Það væri verðugt markmið að hrista af okkur þær einokunarleifar sem enn eru við lýði í landinu áður en við stígum inn í næstu öld. Það væri öllum til góðs. EIÐUR GUÐNASON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 1 2. JÚLÍ 1997 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.