Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1998, Blaðsíða 2
Sýningar á Stóra sviði Þjóðleikhússins ganga vel
FRUMSÝNINGU
Á KRÍTARHRINGNUM
FRESTAÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur ákveðið að fresta
frumsýningu á Krítarhringnum í Kákasus
eftir Bertold Brecht, sem vera átti á Stóra
sviðinu í apríl, fram á næsta leikár. Segir
Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri alltaf
leiðinlegt að þurfa að fresta frumsýningum
en að þessu sinni sé ástæðan hins vegar
ánægjuleg. „Sýningamar sem færðar hafa
verið upp á Stóra sviðinu í vetur hafa gengið
vonum framar og fyrir vikið er ekki pláss
fyrir nema eina sýningu til viðbótar á sviðinu
á þessu leikári, Óskastjömuna eftir Birgi
Sigurðsson. Við eigum því ekki annarra
kosta völ en að fresta frumsýningu á Krítar-
hringnum í Kákasus til næsta leikárs."
Fimm verk eru sýnd á Stóra sviðinu um
þessar mundir, Meiri gauragangur eftir Ólaf
Hauk Símonarson, Hamlet eftir Shakespe-
are, söngleikurinn Fiðlarinn á þakinu,
Grandavegur 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur og
bamaleikritið Yndisfríð og ófreskjan, en sýn-
ingum á því lýkur reyndar um aðra helgi.
Segir Stefán að helst hefði eitt verk til við-
bótar þurft að víkja fyrir Óskastjömunni,
þar sem geymslurými fyrir leikmyndir sé
takmarkað við Stóra sviðið, að þessu sinni
verði aftur á móti reynt að komast hjá því í
lengstu lög. „Eðli málsins samkvæmt viljum
við helst ekki hætta að sýna leikrit sem upp-
selt er á helgi eftir helgi.“
Auglýst eftir leikurum
og leikstjórum
Þá hefur Þjóðleikhúsið auglýst lausar
stöður leikstjóra og leikara við húsið frá 1.
september næstkomandi. Um tvær leik-
stjórastöður er að ræða en samningar Hall-
mars Sigurðssonar og Kolbrúnar Halldórs-
dóttur, sem verið hafa fastráðin við Þjóðleik-
húsið undanfarin þrjú ár, renna út í vor. Seg-
ir Stefán Baldursson þetta vera í samræmi
við þá stefnu sem hann markaði í upphafí
ferils síns sem Þjóðleikhússtjóri, að skipta
fastráðnum leikstjórum út á tveggja til
þriggja ára fresti. „Þetta fyrirkomulag hefur
gefíð góða raun en vonandi eiga Hallmar og
Kolbrún eftir að starfa fyrir okkur áfram að
einstökum verkefnum.“
Stefán gerir ráð fyrir að ráðið verði í tvær
til fjórar leikarastöður fyrir næsta leikár en
endanlegur fjöldi sé háður verkefnavali.
Ekki munu leikarar vera að hætta við Þjóð-
leikhúsið, þannig að hér er um hreina viðbót
við leikaralið þess að ræða.
Morgunblaöiö/Ásdís
ÞORSTEINN Gauti Sigurðsson kemur fram á píanótónleikum í Listasafni ísiands annað kvöld.
ÓVÆGIN RÓMANTÍK
ORSTEINN Gauti Sigurðsson píanó-
leikari heldur einleikstónleika í Lista-
safni Islands annað kvöld kl. 20 - sína
fyrstu í þrjú ár.
A fyrri hluta efnisskrárinnar eru eingöngu
þekkt verk eftir Chopin, valsar, etýður, Póló-
nesa í As-dúr og fleira. „Óvægin rómantík,“
eins og píanóleikarinn kemst að orði.
Eftir hlé munu rómantískir tónar áfram
streyma um salinn, þegar Þorsteinn Gauti
vindur sér í verk eftir Debussy, Rachmaninoff
og Liszt. Eina „hliðarsporið" á tónleikunum
verður sónata eftir Prokofíeff.
„Þetta er gamaldags efnisskrá en verkin
eiga það öll sameiginlegt að njóta mildllar
hylli og vera frábærlega vel skrifuð fyrir
hljóðfærið - þetta er svona „rjómapró-
gramm“,“ segir Þorsteinn Gauti, sem stendur
nú frammi fyrir sínum fyrstu tónleikum með
rómantískri efnisskrá á höfuðborgarsvæðinu.
Hann flutti sömu efnisskrá á nokkrum tón-
leikum úti á landi fyrr í vetur.
„Ég lærði flest þessara verka á unglingsár-
unum en hafði ekki hugsað mér að spila þau
fyrir aðra en sjálfan mig,“ segir Þorsteinn
Gauti en viðurkennir að hafa „verið með putt-
ana“ í þeim annað veifíð.
„Síðan kom upp sú hugmynd að ég léki
þessi verk inn á geislaplötu og fyrst ég er á
annað borð að æfa þau upp í topp, hvers
vegna ekki að spila þau á tónleikum fyrir þá
sem hafa yndi af rómantískri píanótónlist?“
Hljóðversvinna bíður píanóleikarans á
næstu vikum og geislaplatan ætti að vera
komin í verslanir síðar á þessu ári.
Þorsteinn Gauti kveðst njóta þess að spila
verkin, sem hljóma munu í listasafninu og á
geislaplötunni, fara ofan í þau og finna á þeim
nýja fleti. „Þetta eru meistaraverk og það er
endalaust hægt að fínna nýja fleti á verkum af
því tagi.“
En strembin eru þau í flutningi. „Það er
erfítt að spila öll þessi verk, líka litlu verkin,
eins og valsana hans Chopins, enda erum við
að tala um meistara píanótónlistarinnar -
hvað tæknina snertir hefur litlu verið bætt við
frá dögum Chopins og, einkum og sér í lagi,
Liszts. Það er því gott að æfa þessa tónlist
reglulega til að vera í sem bestu sambandi við
hljóðfærið."
Þorsteinn Gauti hefur komið víða fram sem
einleikari og ásamt öðrum í Evrópu, Banda-
ríkjunum, Kanada, Rússlandi og á Norður-
löndunum. Einnig hefur hann leikið einleik
með Sinfóníuhljómsveit Islands, og með Sin-
fóníuhljómsveitum í Noregi og Finnlandi.
Þorsteinn Gauti hlaut Tónvakaverðlaun Rík-
isútvarpsins 1993. Til er einn geisladiskur
með leik hans þar sem hann leikur tvo píanó-
konserta eftir Rachmaninoff með Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Þorsteinn Gauti kennir við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Reuters
Skeggrætt um Matisse
GESTIR Hermitage-safnsins í Pétursborg
í Rússlandi ræða saman af ákafa fyrir
framan mynd franska impressjónistans
Henri Matisse, „Kona í hvítu klæði“.
Myndin er hluti Matisse-safns listasafns
danska ríkisins og er þetta í fyrsta sinn
sem allar Matisse-myndir þess eru sýndar
utan Danmerkur.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Asmundar Sveinssonar.
Gallerí Fold
Þorfinnur Sigurgeirsson. Til 8. mars
Gallerí Listakot, Laugavegi 70
Steinn Sigurðsson. Til. 22. mars.
Galleríi Sævars Karls, Bankastræti
Bjarni Sigurbjörnsson og Helgi Hjaltalín Eyjólfs-
son. Til 2. apríl.
Gallerí Sýnibox: Sýning á símbréfum.
Gallerí Hlust: Haraldur Karlsson kynnir „Harð-
stjórann“. Síminn er 551 4348.
Gallerí Barmur: Sigurður Árni Sigurðsson.
Listasafn Akureyrar
Vatnslitamyndir Ásgríms Jónssonar. Til 19. apríl.
Listasafn Kdpavogs - Gerðarsafn
Elías B. Halldórsson, Matthea Jónsdóttir og Einar
Þorláksson. Til 29. mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning vetrarins nefnist Svífandi form. Verk eftir
Sigurjón Ólafsson. Til 5. apríl.
Listaskálinn í Hveragerði
Óli G. Jóhannsson. Til 15. mars
Listhús Ófeigs Björnssonar, Skólavörðustíg 5
Jóhann G. Jóhannsson. Til 29. mars.
Hafnarborg
Victor Cecilia. Til 16. mars. Joan Backes. Til 18.
mars.
Hallgrímskirkja, anddyri
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar í list Sveins
Björnssonar.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Sigurður Árni Sigurðsson. Til 29. mars.
Landsbókasafn Islands - Háskólabókasafn
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar - frá handriti
til samtíðar. Til 9. apríl.
Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur, Freyjugötu 41
Ásmundarsalur: Kristinn E. Hrafnsson. Gryfja:
Margrét Jónsdóttir. Til 8. mars. Arinstofa: Ný að-
föng. Til 29. mars.
Listasafn íslands
Salur 4: Ásgrímur Jónsson, Þórarinn B. Þorláks-
son, Jón Stefánsson Jóhannes Kjarval.
Mokkakaffi
Nína Magnúsdóttir. Til. 2. apríl.
Norræna húsið
Anja Snell og Lisbet Ruth. Til 18. mars.
Norrænt ljós og myrkur: Rosa Liksom, Merja
Aletta Ranttila, Lars Pirak, Maj-Doris Rimpi, Erl-
ing Johansson, Bengt Lindström og Lena Sten-
berg. Til 22. mars.
Nýlistasafnið
Benedikt Kristþórsson, Anna Líndal, Andreas og
Michael Nitschke.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti 74
Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Til
marsloka.
SPRON, Álfabakka 14, Mjódd
Bragi Ásgeirsson. Til 5. júní.
Stöðlakot
Steindóra Bergþórsdóttir. Tii 22. mars.
TÓNLIST
Laugardagur 7. mars
Gerðuberg: Kristín María Gunnarsdóttir, Anna
Guðný Guðmundsdóttir, Kristín Lárusdóttir og
Stefán Jón Bernharðsson. Kl. 17.
Sunnudagur 8. mars
Hallgrímskirkja: Mótettukór Hallgrímskirkju og
Schola cantorum. Stjórnandi Erik Westberg. Kl.
1.7.
Listasafn Islands: Píanótónleikar; Þorsteinn Gauti
Sigurðsson. Kl. 20.
Salur Menntaskólans í Reykjavík: Hljómsveit Tón-
listarskólans í Reykjavík. Kl. 17.
Sólon íslandus: Djazzklúbburinn Múlinn. Oskar
Guðjónsson, Egill B. Hreinsson, Tómas R. Einars-
son og Matthías M.D. Hemstock. Kl. 21.
Mánudagur 9. mars
Digraneskirkja: Frönsk tónlist. Desire N’Kaoua pí-
anóleikari. Kl. 20.30.
Listaklúbbur Leikhúskjalíarans: Eggert Pálsson,
Pétur Grétarsson, Steef Von Oosterhout og Snorri
Sigfús Birgisson flytja tónlist Cage og Kagel. Kl.
20.30.
Þriðjudagur 10. mars
íslenska óperan: Finnur Bjarnason og Guðrún
María Finnbogadóttir. Kl. 20.30.
Miðvikudagur 11. mars
Norræna húsið: Háskólatónleikar; Eydís Franz-
dóttir, Bryndís Pálsdóttir, Herdís Jónsdóttir og
Bryndís Björgvinsdóttir. Kl. 12.30.
Fimmtudagur 12. mars
Háskólabíó: SÍ. West End. Söngleikjatónlist. Kl.
20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Hamlet, fim. 19. mars.
Grandavegur 7, lau. 7. mars.
Meiri gauragangur, sun. 8., fim. 12. mars.
Yndisfríð og ófreskjan, sun. 8. mars.
Kaffi, lau. 7., fim. 12. mars.
Poppkorn, sun. 8., fim. 12., fös. 13. mars.
Borgarleikhúsið
Galdrakarlinn í Oz, sun. 8. mars.
Islenski dansflokkurinn, lau. 7. mars.
Hár og hitt, lau 7., fös. 13. mars.
Feitir menn í pilsum, lau. 7., fós 13. mars.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, lau. 7., sun. 8. mars.
Fjögur hjörtu, lau. 7., fós. 13. mars.
Á sama tíma að ári, mið 11. mars.
Trainspotting, sun. 8., fim. 12. mars.
íslenska óperan
Ástrardrykkurinn, lau. 7. mars.
Hafnaríjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör
Síðasti bærinn í dalnum, lau. 7., sun. 8. mars.
Grafarvogskirkj a
Heilagir syndarar, þrið. 10., fös. 13. mars.
Skemmtiliúsið
Ferðir Guðríðar, lau. 7., sun. 8. mars.
Kaffileikhúsið
Svikamyllan, lau. 7., fös. 13. mars.
Revían í den, sun. 8. mars.
Leikfélag Akureyrar
Söngvaseiður, lau. 7., sun. 8. mars.
Herranótt, MR: Vorið kallar, lau. 7. mars.
Söngskólinn í Reykjavík: Töfraflautan, lau. 7., sun.
8. mars.
Leikfélag Umf. Hrunamanna, Flúðum: Gullna
hliðið, lau. 7., sun. 8. mars.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða
að hafa borist bréflega eða á netfangi fyr-
ir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morg-
unblaðið, Menning/listir, Kringlunni 1,
103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang:
menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBIAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. MARZ i 998
L