Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1998, Blaðsíða 8
SAN FRANCISCO, ein fegursta borg Bandaríkjanna stendur á hæðum við flóann sem kenndur er við borgina. Sé farið úr borginni yfir brúna sem sést á
AÐ VITJA gömlu háskóla-
stöðvanna sinna eftir óra-
langan tíma getur vakið í
brjósti manns bæði gleði og
trega, jafnvel sárustu von-
brigði. Ekkert stendur í
stað og hin margrómaða
íramþróun geysist áfram
og tekur á sig sundurleitustu myndir, sem falla
mönnum misvel í geð. Öldnum blöskrar tíðum
allt þetta brölt í þeim ungu. Auðsætt er t.d. að
háskólabærinn Berkeley, og þá einkum há-
skólalóðin, hefur ekki farið varhluta af þessu
óhemjumikla byggingabrölti á síðustu áratug-
um.
Kalifornía hefur miklar náttúrugersemar að
geyma ekki síður en vor ástkæra ættjörð, Is-
land, og nægir t.d. að nefna risafuruskóginn
Muir Woods, skammt norðan við Gullinbrú,
svo og skóg sömu gerðar en þó með öllu hrika-
legra svipmóti í grennd við Josemite-dalinn. Sá
dalur er ýkjulaust með þeim töfrafyllstu stöð-
um, sem mannleg augu fá litið. Hann er eins og
furðulegt sambland af Þórsmörk og Ásbyrgi og
þó á hann engan sinn líka í náttúruundranna
auðuga safni. Þar fengu indíánar að búa óá-
reittir til ársins 1852 þegar hvítir menn héldu
fyrstu innreið sína inn í þessa náttúruparadís
þeirra, sem var svo langt úr alfaraleið.
Háskólabærinn Berkeley stendur einnig á
undirfögrum stað við San Francisco-flóa, gegnt
sjálfri drottningu Vesturstrandarinnar, San
Francisco. Fegurra borgarstæði er naumast
hægt að ímynda sér en einmitt þar. Brattar
hlíðar á skógivöxnum skaga, með Kyirahafið á
aðra hönd og eyjaflóann á hina. Berkeley hefur
af engu slíku að státa, enda dreifist byggðin
þar um sléttur, lágar hæðir og skógivaxna ása.
I kjölfar sívaxandi aðsóknar háskólanema
hefur fjöldi nýrra bygginga og mannvirkja ris-
ið af grunni á undanförnum áratugum á há-
skólalóðinni og við það hefur yndislegum ber-
svæðum vitanlega mjög fækkað og er það mið-
ur. Nýbyggingar þrengja tíðum svo að gömlum
og glæsilegum stórhýsum, að hvorki hið nýja
né hið gamla fær lengur notið sín. Frá fagur-
fræðilegu sjónarhorni séð er nábýlið beggja
bani, ef svo má að orði kveða. Dæmi um slíkt er
að finna um víða veröld og er ísland ekki und-
anskilið. En þrátt fyrir allar þessar óstöðvandi
og ef til vill óhjákvæmilegu byggingarfram-
kvæmdir býr „campusinn" eða háskólalóðin
enn yfír sínum yndisþokka og fegurð. Ljósleitu
og bolfögru ilmviðimir eða tröllatrén
(eucalyptus), upphaflega flutt frá Ástralíu og
gróðursett í Kaliforníu, standa þama enn óá-
reitt og halda því enn sinni reisn og glæsileika.
Kólibrífuglamh- vekja jafnan athygli og aðdá-
un vegfarenda með litskrúði sínu, ótrúlegri
flugfimi og eldhröðum vængjaslætti. Þessar
örþyrlur geta nefnilega leikið þá list að vera
kyrrar á lofti á meðan langt nefið er á kafi í
blómi í leit að hunangslegi og smáskordýmm
og ekki nóg með það heldur fljúga þær afturá-
bak að loknum snæðingi. Tíst þeitra er hins
vegar ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Það var mér óneitanlega mikið gleðiefni að
sjá að ekki hafði verið þrengt að gamla og
glæsilega klukknaturninum og nýtur hann sín
því jafnvel og fyrr á ámm. í daglegu tali
manna gengur klukknaturninn undir ítalska
heitinu: „Campanile" og má með nokki’u sanni
segja að ég sé í vissum skilningi:
„campanilista" eins og ítalir segja, en
„campanilista" er sá eða sú sem tekið hefur
blindu ástfóstri við klukknaturninn í heima-
byggð sinni eða í mínu tilfelli við háskóla-
byggðina í Berkeley. „Campanilism" getur líka
oft haft neikvæða merkingu og því jafngilt
nesjamennsku á íslensku.
Hverfum nú um stund á vit fortíðar.
Skömmu eftir komu okkar Aðalsteins Sigurðs-
sonar, Jónasar Jakobssonar og undirritaðs til
Berkeley fengum við brátt fregnir af því að
fjórir ungir Islendingar væra þama við nám og
ÚT f HINN STÓRA HEIM FYRIR 56 ÁRUM - SÍÐARI HLUTI
NÁMSTÍMI í BERI
OG ENDURFUNDIR VIÐ STAÐINN
EFTIR ÓRALANGAN TÍMA
EFTIR HALLDÓR ÞORSTEINSSON
í síðustu Lesbók sagði Halldór Þorsteinsson fró för
þriggja norðanstúdenta með Goðafossi í október 1941,
en sl cipið komst naumlega undan jóýzkum kafbátum.
Hér rifjar greinarhöfundur upp námsárin í Berkeley-há-
s kóla; segir frá íslendingum sem voru þar og á San
Francisco-flóasvæðinu, og jafnframt segir hann
1 rá breytingunum sem hann sá nýlegc i á gömlu há-
skólastöðvunum sínum.
þrír þeirra meira að segja MA-stúdentar. Það
er ekki ofmælt að víða liggja leiðir landans.
Liggur nú beinast við að kynna íslensku há-
skólanemana og verður það gert hér af algjöru
handahófi, en námsgreinar og starfsferils getið
eftir bestu vitund: Jóhann S. Hannesson,
námsgrein: Enska, enskar bókmenntir og mál-
vísindi. Hann fékkst við ýmis störf, var t.d.
kennari í ensku og bókmenntum og jafnframt
bókavörður við Fiske-safnið í Cornell-háskóla
1952-1959. Skólameistari Menntaskólans á
Laugarvatni 1960-1970. Haraldur Ki'öyer,
námsgrein: Enska og stjórnmálafræði. Kona
hans, Ragna Hallgrímsdóttir, var þarna líka
með bónda sínum. Haraldur vann í utanríkis-
þjónustunni, lengstum sem sendiheira. Ragn-
ar Thorarensen, námsgi-ein: Rafeindaverk-
fræði. Hann vann sem yfirverkfræðingur og
forstöðumaður í rannsóknastofu Magna Vox
co. í Los Angeles 1953-1987 við hönnun fjar-
skiptatækja í geimför. Bjarni Jónsson, frændi
Bjarna Bjarnasonar læknis. Námsgrein:
Stærðfræði. Hann ílentist í Bandaríkjunum
eins og Ragnar og starfaði sem stærðfræðipró-
fessor við ýmsa háskóla og sakar ekki að geta
þess hér að hann nýtur verðskuldaðs álits sem
sérstakur algebrufræðingur. Thor Ó. Thors,
námsgrein: Viðskiptafræði. Starfsferill: Fram-
kvæmdastjóri Sameinaðra verktaka, síðar
framkvæmdastjóri íslenskra aðalverktaka.
Björn Thors, námsgrein: Byggingarlist. St-
arfsferill: Blaðamaður hjá Morgunblaðinu um
árabil. Eiginkona hans, Helga Valtýsdóttir, var
og með honum. Selma Jónsdóttir, námsgrein:
Fagurfræði og listnám. Starfsferill: Forstöðu-
kona Listasafns Islands. Sigidður Þ. Valgeirs-
dóttir, námsgrein: Líkams- og uppeldisfræði.
Starfsferill: Kennari við Kennaraskólann, síðar
prófessor við Kennaraháskólann. Ölafur
Thorarensen, bróðir Ragnars, námsgrein: Við-
skiptafræði. Starfsferill: Hann rak verslun,
hótel, síldarsöltun og kvikmyndahús á Siglu-
firði í áratugi, en frá árinu 1980 hefur hann
verið búsettur á Kanaríeyjum. Einar Eyfells,
námsgrein: Vélaverkfræði. Starfsferill: Auk
ýmissa annarra starfa, vann hann lengstum hjá
Sameinuðum verktökum. Eiginkona hans,
Unnur Nikulásdóttir, var þarna líka, bónda
sínum til trausts og halds. Einar Kvaran,
námsgrein: Vélaverkfræði. Starfsferill: Hann
vann sem verkfræðingur hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisins frá 1952-1958, en eftir 1959 starf-
aði hann á vegum FAO, Matvæla- og landbún-
aðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, aðallega í
Ceylon, nú Sri Lanka. Bragi Freymóðsson,
námsgrein: Rafeindaverkfræði. Starfsferill:
Hann veitti rafmagnsdeild Sambandsins for-
stöðu um fjöguira ára skeið, síðan fluttist hann
vestur um haf. Fyrst vann hann hjá Chicago
Transformer Corporation, en svo lengstum
sem framkvæmdastjóri hjá Magno Vox co.,
sama fyrirtæki og skólabróðir hans og náinn
vinur, Ragnar Thorarensen. Um Ingólf Aðal-
bjarnarson frá Hafnarfirði veit ég lítið, en ég
hygg þó að hann hafí annað hvort lagt stund á
verkfræði eða stærðfræði. Ungur veiktist hann
svo alvarlega að hann varð aldrei vinnufær.
Hilmar Kristjánsson, námsgrein: Viðskipta-
fræði. Starfsferill: Hann vann sém fram-
kvæmdastjóri við síldarverksmiðju á Raufar-
höfn, síðar hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á
Siglufirði, en lengstum hjá FAO eins og Einar
Kvaran. Kona hans, Anna Ólafsdóttir, vai- með
honum, en ég hygg að hún hafi ekki verið inn-
rituð I háskólann. Jón Löve, námsgrein: Gerla-
fræði og síðar læknisfræði. Starfsferill:
Lengstum starfaði hann sem barnalæknir við
stofnun fyrir sjúk börn í Kaliforníu og hefur
sérhæft sig í rannsóknum á arfgengum sjúk-
dómum, einkum barnasjúkdómum. Þráinn
Löve, bróðir Jóns, námsgrein: Jarðvegsfræði.
Starfsferill: Kennari við Ingimarsskólann og
síðar við Kennaraháskólann og hér með lýkur
þessari upptalningu.
í SAMKVÆMI á heimili Sigríðar Benónýsdóttur í Ber
Eyfells, Ingólfur Aðalbjarnarson (?), Ragnar Thorare
röðinni, frá vinstri: Unnur Eyfells og framan við hane
næst eru Kolbrún(?) frænka húsfreyjunnar, Steingrín
ýsdóttur, sem næst er í röðinni og við hlið hennar sit
en lengst til hægri í röðinni eru Garðar Ólafsson tan
ston Hannesson, kona Jóhanns Hannessonar með V
stúlka, síðan Kristín Halldórsdóttir listakona og eigin
sem síðar varð fegurðe
Á GÖMLUM slóðum eftir marga áratugi: Greinarhöfi
sinni, Andreu Oddsteins
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. ÁGÚST 1998
I