Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lesbók Morgunblašsins

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |

Ašalrit:

Morgunblašiš


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lesbók Morgunblašsins

						GARÐAR Cortes stjórnar kóræfingu fyrir tónleikana f Laugardalshöll.

Morgunblaðið/Golli

SINFONÍAN OG GESTIR FLYTJA TURANDOT ILAUGARDALSHÖLL

Viðamesta verkefnið til þessa

SINFÓNIUHLJOMSVEIT Islands ásamt

einsöngvurum og kórum flytur óperuna

Turandot eftír Giacomo Puccini í Laugardals-

höll laugardaginn 6. mars kl. 16. Stjórnandi

verður Rico Saccani og kórstjóri Garðar

Cortes.

Að sögn Helgu Hauksdóttur tónleika-

stjóra Sinfóníuhljómsveitar íslands er þessi

uppfærsla á Turandot viðamesta verkefni

sem hljómsveitin hefur tekist á hendur til

þessa og hefur ekkert verið til sparað til að

gera hana sem glæsilegasta. Þátttakendur

eru á þriðja hundrað talsins, níu einsöngvar-

ar, 115 kórsöngvarar og 80 manna hljóm-

sveit.

Til að bæta aðstóðu tónleikagesta í Laugar-

dalshöll verða gerðar breytingar á áhorfenda-

gólfi, sætaraðir verða hækkaðar upp. Þá segir

Helga að nýjustu tækni verði beitt til að gera

hljómgæði eins mikil og kostur er.

Gestir Sinfóníuhljómsveitarinnar á tónleik-

unum verða einsöngvararnir Veronika

Fekete, Daniel Munoz, Lucia Mazzaria,

Sergio Fontana, Þorgeir Andrésson, Bergþór

Pálsson, Istvan Rozsos, Ferenes Gerdesits og

Gábor Nemeth, auk Kórs Islensku óperunn-

ar, Unglingadeildar Söngskólans í Reykjavík

og Barnakórs íslensku óperunnar. Sviðsetn-

ingu annast Randver Þorláksson og

ljósameistari er Jóhann Bjarni Pálmason.

KAMMERMUSIKKLUBBURINN

TVEIR STRENGJAKVARTETTAR

í BÚSTADAKIRKJU

TÓNLEIKAR Kammermúsíkklúbbsins verða í

Bústaðakirkju á sunnudag kl. 20.30 og eru þeir

fimmtu í röð tónleika á þessum vetri sem

klúbburinn gengst fyrir.

Að þessu sinni verða fluttir strengjakvar-

tettar eftir Edvard Grieg og Ludwig van Beet-

hoven. Flytjendur eru þau Auður Hafsteins-

dóttir, 1. fiðla, Greta Guðnadóttir, 2. fiðla, Guð-

mundur Kristmundsson, lágfiðla, og Bryndís

Halla Gylfadóttir, knéfiðla.

Á fyrri hluta tónleikanna verður fluttur

strengjakvartett í g-moll op. 27 eftir Edvard

Grieg frá árinu 1878. Eftir hlé verður fluttur

strengjakvartett í a-moll, op. 132 eftir Ludwig

van Beethoven sem saminn var árið 1825.

í efnisskrá segir um tónskáldin: „Grieg

samdi sinfóníu í c-moll, sem var frumflutt 1864.

En þessa sinfóníu dró hann til baka og lagði

bann við að hún yrði flutt. Það vakti furðu, en

ástæðan er talin vera, að eftir frumflutninginn

heyrði hann fyrstu sinfóníu vinar síns, Johans

Svendsens, og fannst hún miklu betri en sín.

Bannið var ekki rofið fyrr en 1981 í Bergen.

Hljómsveitarstjóri var þá Karsten Andersen.

Ekki samdi Grieg aftur sinfóníu og ekki önn-

ur verk í stóru eða ströngu formi en píanó-

konsertinn alkunna, op. 16 og svo strengja-

kvartettinn op. 27, sem nú er fluttur í fyrsta

sinn í Kammermúsíkklúbbnum. Grieg samdi

reyndar vel fyrir hljómsveit, en líkt og

Schumann lét honum best að semja ljóðræn pí-

anólög og Ijóðasöngva. Hann var ágætur pí-

anóleikari og tilfinningaríkur stjórnandi.

Árið 1824 veiktist Beethoven illa og þótti

honum horfa þunglega um líf sitt. En hann

náði sæmilegri heilsu á ný. Þá tók hann að

semja strengjakvartetta. Það hafði hann ekki

gert um árabil.

Kvartettarnir eru op. 127, 130, 131, 132, 135

og „Stóra fúgan" op. 133. Þeir eru taldir tO

stórvirkja í tónlistinni.  Þrír þeirra eru þó

Morgunblaðlö/Keli

Á ÆFINGU fyrir tónleika sunnudagsins: Bryndís Halla Gylfadóttir, Greta Guðnadóttir, Auður

Hafsteinsdóttir og Guðmundur Kristmundsson.

stærstir í sniðum, op. 130,131 og 132. Miðkafl-

inn, sem er hægur, ber yfirskriftina: „Heilagur

þakkaróður til Guðdómsins frá manni, sem hef-

ur fengið bata - í lýdiskri tóntegund". Og yfir

fjórða kafla stendur: „Mér vex þróttur á ný".

Síðasti kaflinn er efni, sem Beethoven ætlaði

að nota í lokaþátt níundu sinfóníunnar, áður en

han ákvað að Ijúka henni með kórsöng.

Lýdiska tóntegund má heyra, ef slegnar eru

hvítu nóturnar á píanó og byrjað á F. Lýdia

var í fornöld nafn á landi vestast í Litlu-Asíu.

Þessir kvartettar urðu síðustu stórvirki

Beethovens og tónlistar-testament hans. Þar

losar hann  um  hefðbundin form og beitir

óvenjulegum samhljómum, sem sumir sam-

tímamennn töldu vera afleiðingu af heyrnar-

leysi hans, en nútímamenn láta sér vel líka. Og

Beethoven opnar hug sinn meira en í flestum

öðrum verkum sínum. Kvartettarnir eru ekki

auðveldir við fyrstu áheyrn en endast þeim

mun betur. Batinn, sem Beethoven þakkaði

Guðdómnum svo vel fyrir, varð ekki langur.

Tveimur árum síðar var hann allur.

Kvartettinn op. 132 hefur einu sinni áður

verið fluttur í Kammermúsíkklúbbnum. Það

gerði Arco-kvartettinn frá Köln í Þýskalandi

árið 1978."

MENNING/

LISTIR

NÆSTU VIKU

MYNDLIST

Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum

Ásmundar Sveinssonar.

Gallerí Fold, Kinglunni Hrafnhildur Bern-

harðsdóttir. Til 6. mars.

Gallerí Fold, Rauðarárstíg Ómar Stefáns-

son. Til 14. mars.

Gallerí Horn Alan James. Til 3. mars.

Gallerí Stöðlakot Gunilla Möller. Til 7. mars.

Gerðarsafn Svala Þórisdóttir Salman. Til 7.

febr.

Menningarmiðstöðin Gerðuberg Þetta vil ég

sjá: Kristján Davíðss., Magnús Kjartanss. og

Sigtryggur B. Baldvinss. Til 28. febr.

Hallgrímskirkja Kristján Davíðss. 15. apríl.

Hafnarborg  Gun  Johansson.  Sverrissalur:

Sigurlaugur Elíasson. Til 1. mars.

Ingólfsstræti  8  Ivar Valgarðsson.  Til 21.

mars

Kjarvalsstaðir   Austursalur:   Jóhannes   S.

Kjarval. Til 24. maí. Vestursalur: Britt Smel-

vær. Til 7. mars. Miðrými: Einar Garibaldi

Einarsson. Til 14. mars.

Listasafn   ASÍ   Ásmundarsalur   og   svalir:

Brynhildur    Þorgeirsd.    Gryfja:    Steinunn

Helgadóttir, myndverk og hljóðverk Sveins

Lúðvíks Björnssonar. Til 7. mars Arinstofa:

Ný aðfóng.

Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti

Opið laugardaga og sunnudag 14-17.

Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.

Listasafn íslands Salur 1: Fjórir frumherjar;

Þórarinn B. Þoriáksson, Ásgrímur Jónsson,

Jón Stefánsson og Jóhannes S. Kjarval. Til

11. apríl. Salur 3: Sigmar Polke. Til 28. mars.

Salur   4:   Gunnlaugur   Scheving,   Jóhann

Briem, Jón Engilberts, Nína Tryggvadóttir,

Þorvaldur Skúlason og Snorri Arinbjarnar.

Til    18.    apríl.    Ljósmyndir    Inez    van

Lamsweerde. Til 14. mars.

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Yfirlitssýn-

ing á verkum Sigurjóns.

Listhús Ófeigs, Skölavörðustíg 5 Sigurður

Magnússon. Til 6. mars.

Norræna húsið Aðalsalur: Líf og list H.C.

Andersen.   Til   14.   mars.   Anddyri:   Ljós-

myndasýníng   af   rithöfundum   eftír   Ulla

Montan. Til 21. mars.

Nýlistasafnið Kristján Steingrímur, Helga

Þórsdóttir, Gunnar Straumland og Jón Sæ-

mundur Auðarson. Súmsalur: Safnsýning. Til

28. feb.

Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning.

Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14. maí.

Ráðhús   Reykjavíkur  Akríl-   og  vatnslita-

myndir þroskaheftra. Til 7. mars.

TONLIST

Laugardagur  Kirkjuhvolur,  Garðabæ:  Pí-

anókvartettar.      Guðný     Guðmundsdóttir,

Gunnar  Kvaran,  Helga  Þórarinsdóttir  og

Gerrit Schuil. Kl. 17.

Ráðhús Reykjavíkur: Stórsveit Reykjavíkur.

Kl. 17.

Sunnudagur Neskirkja:  Sinfóníuhljómsveit

áhugamanna. Einleikarar Ashildur Haralds-

dóttir og Elísabet Waage. Kl. 17.

Fella- og Hólakirkja: Tríó Reykjavíkur og

Alina Dubik. Kl. 17.

Bústaðakirkja:    Kammertónleikar.    Auður

Hafsteinsdóttir,   Greta   Guðnadóttir,   Guð-

mundur Kristmundsson og Bryndís Halla

Gylfadóttir. Kl. 20.30.

Þriðjudagur Salurinn, Kópavogi: Þorsteinn

Gauti Sigurðsson píanóleikari. Kl. 20.30.

Fimmtudagur

Háskólabíri: Sinfóníuhljómsveit íslands. Ein-

leikari Edda Erlendsdóttir. Kl. 20.

LEIKLIST

Þjóðleikhusið  Brúðuheimili,  lau.  27.  febr.

Tveir tvöfaldir, lau. 6. mars. Brððir minn

ljónshjarta, sun. 28. febr. Abel Snorko býr

einn, lau. 27. febr., lau. 6. mars. Maður í mis-

litum sokkum, iau. 27., sun. 28. febr., fim. 4.,

fös. 5., lau. 6. mars.

Borgarleikhúsið Pétur Pan, lau. 27., sun. 28.

febr., lau. O.mars. Horft frá brúnni, fós. 5.

mars. Sex í sveit, sun. 28. febr, lau. 6. mars.

íslenski dansflokkurinn Diving, Flat Space

Moving og Kæra Lóló, lau. 27. febr.

íslenska dperan Ávaxtakarfan, sun. 28. febr.

Hellisbúinn, sun. 28. febr., fós. 5., lau. 6.

mars. Hinn fullkomni jafningi, mán. 1., lau. 6.

mars.

Iðnó Leitum að ungri stúlku, mið. 3., fim. 4.,

fós. 5. mars. Rommí,    sun. 28. febr. Frú

Klein, lau. 6. mars.

Loftkastalinn Mýs og menn, fim. 4. mars

Kaffileikhúsið Hótel Hekla, fim. 4. mars.

Skemmtíhúsið,     Laufásvegi     22     Bertold

Brecht, sun. 28. mars.

Hugleikur: Nóbelsdraumur, lau. 27., sun. 28.

febr., fös. 5., lau. 6. mars.

Tjarnarbtó Svartklædda konan, lau. 27., sun.

28. febr., lau. 6. mars.

Möguleikhúsið v. Hlemm Snuðra og Tuðra,

sun. 28. febr. Hafrún, lau. 27. febr.

Snúður og Snælda Maðkar í mysunni og

Ábrystir með kanel,  lau. 27., sun. 28. febr.,

mið. 3. mars.

Bing    Dao-Renniverkstæðið    á    Akureyri

Rommí, lau. 27. febr., fim 4., lau. 6. mars.

Menningarmiðstöðin  Gerðuberg  Þumalína

eftir H.C. Andersen, sun. 28. febr.

2     LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 27. FEBRÚAR 1999

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20