Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2000, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.2000, Blaðsíða 6
CQSMOS JÓNS GUNNARS , I LISTASAFNIISLANDS ILISTASAFNI Islands verður opnuð sýning í sal 2 á verkinu Cosmos eftir Jón Gunnar Árnason (1981-1989) í dag kl. 11. Verkið er innsetnmg fynr afmarkað rými og var fyrst sýnt á Tvíæringnum í Feneyjum 1982. Cosmos tilheyrir rðð verka sem Jón Gunnar hóf að vinna að í Flatey á Breiðafirði á miðjum áttunda ára- tugnum og tengjast sólarorkunni og aðdrátt- araflinu. I þessum verkum leitaðist Jón Gunn- ar við að fanga rýmið og orkuflæðið í alheiminum inn í verk sín og notaði til þess bæði spegla og steina. Verkin tengjast hug- myndum Jóns Gunnars um vistfræði og sam- skipti manns og náttúru í sem víðustu sam- hengi, auk þess sem framkvæmd og uppsetning verkanna fékk á sig yfirbragð rit- úals eða helgiathafnar er helguð var sólinni sem frumuppsprettu lífsins á jörðinni. Hið kunna verk Jóns Gunnars, Sólfar, sem stend- ur við Skúlagötu, er frá svipuðum tíma og er unnið út frá skyldum hugmyndum og Cosmos. Jón Gunnar var leiðandi myndlistarmaður á því umbrotaskeiði í myndlist sem kennt er við SÚM-hreyfinguna. Hann stundaði mynd- listarnám á yngri árum, en vann lengi sem vélvirki og hönnuður allt þar til hann kynntist svissnesk-þýska myndlistarmanninum Dieter Roth i lok sjötta áratugarins. Þau kynni urðu til að vekja með honum varanlegan áhuga á myndlist sem virku afli til mótunar þjóðfélags og vitundar. Jón Gunnar var einn af fjórum stofnendum SUM-hópsins árið 1965 og gekk fram fyrir skjöldu í róttækri endurskoðun á islenskri myndlist, bæði með eigin verkum og félagsstörfum. Hann var m.a. einn af stofn- endum Myndhöggvarafélagsins, Nýlistasafns- ins og norrænna samtaka um umhverfislist. I rýmisverkum sínum fór hann inn á nýjar brautir þar sem gengið var út frá verkinu sem stað, þar sem menn upplifa rýmið og ger- ast þátttakendur. I verkinu Cosmos er við- fangsefnið hið óendanlega rými og jafnframt aðdráttarafl jarðar. Verkið er í eigu Listasafns Islands og var sfðast sýnt þar árið 1994 á yfirlitssýningu á verkum hans sem bar yfirskriftina Hugar- orka og sólstafir. Sýningin stendur til 9. apríl. Jón Gunnar Árnason: Cosmos, 1982. MARGIR MENN OG EINN PORTÚGALSKA skáldið Fernado Pessoa sagði einhverju sinni að menn væru margar raddir í senn á aðeins einu andartaki. Mönn- um getur sjálfsagt orðið það á að álykta eitthvað þessu líkt, að allir menn séu margir menn í einum manni. En ef svo er og maðurinn er slíkt ólíkindatól og þama er gefið til kynna, hvar skyldi þá þetta margraddaða andartak eiga upptök sín? í framtíðinni eða í fortíðinni, eða jafnvel í hugboðum sem heilinn vinnur úr og raðar saman í það sem við nefnum nútíð - annarsvegar úr efni sem er löngu farið, hins- vegar úr efni - sem ennþá er með öllu ókomið? Ráðgátur af þessu tagi hafa orðið mörgum mönnum tilefni heilabrota en upptökin undar- legu kölluðum við þó sennilega minni. Allt þetta og eilítið til má rifja upp með sjálf- um sér á sýningu sem Steinunn Þórarinsdóttir opnar í dag, laugardaginn 11. mars, í Ásmund- arsafni. Þar sýnir hún verk sem hún hefur unn- ið að undanfarið ár. Þegar Steinunn var að alast upp í Vogunum í Reykjavík fór hún oft í rann- sóknarleiðangra inn í Laugardal. Á þeim tíma var Laugardalurinn að mestu ónuminn og óbyggður og því sannkallað ævintýraland upp- átækjasömum krökkum. En þama í dalnum var eitt dulúðugt og skrýtið fyrirbæri, kúluhús um- kringt furðuverkum sem voru undarlega seið- mögnuð og full galdurs. Nú mörgum árum síðar snýr Steinunn aftur á þessar fomu slóðir og opnar sýningu í töfrahúsinu á myndverkum sín- um. Samhliða sýnir hún sitt eigið úrval á verk- um eftir húsráðandann fyrrverandi, Ásmund Sveinsson, höfund allrar þeirrar dulúðar, fram- andleika og töfra sem heilluðu hana forðum. En er Steinunn ef til vill á æskuslóðum í fleiri en Ég hef verið að vinna með manninn í félagi við aðra og sjálfan sig í fortíð og nútíð, segir Steinunn Þórarins- dóttir sem í dag kl. 16 opnar sýningu í Ásmundarsafni í Laugardal á eigin verkum og völdum verkum eftir meistara Ásmund Sveinsson. Maður um mann nefnir Steinunn sýningu sína. ÞORVARÐUR HJÁLAAARSSON brá sér í Laugardalinn. einum skilningi? „Þeg- ar ég var lítil stelpa var dalurinn aðeins tún, engi og skurðir,“ svar- ar Steinunn. „Villtur staður og spennandi. Okunnugt ævintýra- land sem gaman var að kanna. Það er ánægju- legt að koma hingað aftur og stórkostlegt að setja verkin upp í safninu. Það er kara- kter í rýminu og áhugavert að sjá verk- in sín á þessum stað. Ég hafði húsnæðið í huga þegar ég vann að' verkunum. Hvað varð- ar val á verkum Ás- mundar þá reyndi ég Ásmundur Sveinsson verkefni í listinni; það er maðurinn. Ásmundur sagði einhvern tímann að maðurinn hefði ekki einn svip heldur marga. Ekki eitt andlit, heldur mörg og að maðurinn ætti alltaf að sigrast á hinu ómögulega, en það hefur oftar en ekki verið viðfangsefni „minna manna“. Ásmundur sagði líka að andlegur vöxtur mannsins væri ekki án sársauka, en ef til vill væri maðurinn aldrei jafn stór og í baráttu sinni.“ Afhjúpunarleikur Fyrir framan okkur standa tvær afsteypur af höfði Einars Benediktssonar og horfast í augu. Þær eru nákvæmilega eins, en þó mis- stórar. Annað höfuðið er mun stærra en hitt. Margir menn og einn eða tveir, gæti maður að láta þau ríma við mín. Ég tók mér þetta bessaleyfl. Sum verka minna eru einskonar fjölfeldi eða endur- tekningar á sömu fyr- irmynd. Hvað verk Ás- mundar snertir læt ég þau kallast á með svip- uðum hætti, kalla fram einskonar bergmál. Það má segja að þessi hugsun tengist ákveð- inni hugmynd um manninn sem ég hef unnið nokkuð mikið með, að menn eru ekki aðeins einn maður heldur margir. Við Ás- mundur eigum sam- eiginlegt uppáhalds- freistast til að halda? „Meðan ég vann að sýningunni las ég heil- mikið um Ásmund og verk hans,“ segir Stein- unn, „m.a. skemmtilega viðtalsbók hans og Matthíasar Johannessen. Þar segir frá því að Einar hafi sagst vera tveir menn. Ásmundur sagði sjálfur að í sínum huga væri Einar tröll og þess vegna fannst mér þessar styttur ágæt- ar saman. Ásmundur sá í Einari andstæður sem sameinuðust í persónunni og skáldinu Einari Benediktssyni. í honum var bæði tröll- skapur hins stóra og þess góða. Tvö tröll sem aldrei töluðust við en stækkuðu hvort annað. Þetta eru tveir menn andspænis hvor öðrum, merkingin verður önnur.“ Við nemum staðar við verk sem Steinunn kallar Horfur. Álútur maður horfir niður á ryð- salla við fætur sér. „Ryðið er hluti af honurn," segir Steinunn. „Hann er úr pottjárni sem er byrjað að ryðga. Þetta er ákveðinn leikur, afhjúpunarleikur. Maðurinn er að umbreytast. Það er þungi í efn- inu og aldur. Það býr yfir sinni eigin sögu.“ 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 11. MARS 2000 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.