Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2000, Blaðsíða 16
1
SÝNING FRÁ SUÐUR-AFRÍKU OPNUÐ Á KJARVALSSTÖÐUM í DAG
ENN OF SNEMMT AÐ RÆÐA
UM „SUÐUR-AFRISKA LIST"
A.R.E.A. 2000 er
yfirskrifi sýningar á verk-
um 49 listamanna frá
Suður-Afríku sem
opnuð verður
á Kjarvals-
stöðum í
dag kl. 16 og stend-
ur t il 7. janúar nk.
MARGRÉT SVEIN-
BJÖRNSDÓTTIR fór að
finna sýningarstjórann,
Gavin Younge, og í jóra
af listamönnunum, þar
sem \ >eir voru að setja
upp sýninguna.
✓
ASÝNINGUNNI, sem er í
vestursal og miðrými
Kjarvalsstaða, eru verk
eftir 20 myndlistarmenn
frá Suður-Afríku sem
margir hverjir eru einnig
vel þekktir utan heima-
landsins. Þeir vinna í ólík
Morgunblaðið/ Halldór Kolbeins
Verk Claudette Schreuders: Glötuð stúlka, Melankólískur drengur og Eigandi tveggja sundbola.
form og má þar m.a. nefna skúlptúra, Ijós- hluti af dagskrá Reykjavíkur menningar- ela Ferreira, Bernie Searle, Bonita Alice,
myndir, grafík, myndbandsverk, tölvumynd- borgar Evrópu árið 2000. Claudette Schreuders, Greg Streak, Jane
ir, textílverk og innsetningar. Sýningin er Listamennirnir heita Andries Botha, Ang- Alexander, Jeremy Wafer, Jo Ratcliffe,
SVARTUR BLETTUR, FJÖLSKYLDUMYNDIR,
BOLTAVÖLLUR OG BARUJARN
VÐSTADDIR opnun sýningarinnar á
Kjarvalsstöðum í dag verða fimm af
listamönnunum frá Suður-Afríku.
Morgunblaðið hitti að máli fjóra
þeirra, þær Bemie Searle, Bonita Alice,
Kathryn Smith og Terry Kurgan, en Angela
Ferreira var rétt ókomin til landsins þegar
viðtalið fór fram.
Listakonumar vom að byrja að taka verk
sín upp og finna þeim stað í sýningarrýminu.
Þeim hafði gengið misvel að vakna þennan
fyrsta morgun norður á íslandi eftir nærri
sólarhrings ferðalag frá Suður-Afríku daginn
áður. Þær lögðu af stað í 34 stiga hita og þó að
þær hafi verið vel klæddar við komuna til
Keflavíkur var kuldinn bítandi. „Svo ætlaði
ég aldrei að geta vaknað í morgun," sagði
Bemie Searle. „Eg er vön að vakna í birtu og
hávaða. Hér er svo dimmt og hljótt.“
Blaðamaður bað listakonumar að lýsa
verkunum sem þær hyggjast sýna. Fyrst
varð iyrir svömm Kathryn Smith sem sýnir
verkið „Dauðagildrur“, gríðarstóra stafræna
stækkun á ljósmynd sem hún tók í alrnenn-
ingsgarði í Jóhannesarborg. Á myndinni get-
ur að líta mannlausan bekk á grasflöt, há tré
að baki og fugla á flötinni. „Opnir grænir
garðar em svæði sem h'ta oftast út fyrir að
vera öragg og hættulaus,“ segir hún en bætir
við að glæpatíðnin sé gífurleg í Jóhannesar-
borg og garðar borgarinnar því langt frá því
að vera ömggir. „Maður getur sest niður á
bekk í fallegum garði og borðað nestið sitt en
Morgunblaðið/ Halldór Kolbeins
Kathryn Smith, Terry Kurgan, Gavin Younge, Bernie Searle og Bonita Alice.
það er ekki gott að segja hvað leynist í
skugga trjánna á bak við bekkinn," segir
Kathryn Smith.
„Völlur“ er heiti verks eftir Bonita Alice.
Það samanstendur af þremur útgáfum af
verki sem hún vann við Bamato Park-skól-
ann í Berea í Jóhannesarborg. Sviðið er
knattspyrnuvöllur og þar koma við sögu
bárajámsplötur sem virðast svífa yfir jörð-
inni. Þar líkir hún eftir tækni sem íþrótta-
áhugamenn kannast við, þegar auglýsingar
era málaðar á leikvelli og virðast svifa yfir
vellinum. Hluti af verldnu er líka sérmerktir
íþróttabúningar sem listakonan lét gera og
ýmsar textatilvitnanir sem tengjast m.a. yfir-
ráðum og eignarhaldi á landi. „Við þekkjum
það úr sögunni að menn hafa alla tíð barist
um yfirráð yfir landsvæðum - það er ekkert
nýtt. Knattspyma er keppni, menn fara yfir á
svæði andstæðinganna og berjast um yfirráð
yfir boltanum," segir hún. Bárajárnsplöturn-
ar segir hún vísa til hins mikla fjölda heimilis-
lausra í Jóhannesarborg sem reisa sér bráð-
abirgðaskýli úr bárajámi. „Jóhannesarborg
var líka upphaflega byggð úr bárujárni," bæt-
ir hún við.
Skráning á f jarveru
fremur en nærveru
Terry Kurgan sýnir innsetningu sem sam-
anstendur af tíu myndum stækkuðum á org-
anza-silki og kallar þær „Tapað-fundið“. Fyr-
ir verkið fékk hún fyrr á þessu ári
Vita-verðlaunin, sem eru helstu verðlaun sem
veitt era fyrir samtímalist í Suður-Afríku.
Myndimar hanga niður úr loftinu á gangi
Kjarvalsstaða og þurfa sýningargestir að
ganga svo að segja innan um verkið til þess
að geta skoðað það. Listakonan segir það
1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 18. NÓVEMBER 2000