Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Blaðsíða 11
Brunngata 10. Húsið heitlr Ásbyrgi og var byggt árið 1910. Þetta hús hefur verið stórvirki í byrj-
un steinsteypualdar, en gluggum á framhliðinni hefur verið mikið breytt og engan veginn til
bóta. Sjá má á gaflinum að upphaflega hefur verið líkt eftir gluggum timburhúsa, en umfram allt
eru það hinar voldugu og sérkennllegu svalir sem einkenna þetta hús.
Túngata 5. Steinhús með klassísku sniði, sem Steínar Steinsson teiknaði og byggt var 1933.
Hér má sjá góða tilfinningu fyrir hlutföllum. Enda þótt komið sé fram yfir 1930 og útskúfunar
fúnksjónalismans á öllu skrauti byrjað að gæta á íslandi, er enn unnið með einfaldar skreytingar
í þessu húsi og þær hafa eins og annað í því staðizt tímans tönn.
Aðalstræti 10. Húsið, byggt 1874, á sér langa og merka sögu því það er eitt af Miðkaupstað-
arhúsunum. Hér er öllu vel við haldið svo til fyrirmyndar er og ísfirzka anddyrlð er svo stórt á móti
sjálfu húsinu að það er hér að segja má í viðhafnarútgáfu með fallegum dyraumbúnaðl og skreyti
yfir dyrunum. Lóðin er harla lítll, en er fallega afmörkuð með grindverkl í stíl við húsið.
Smiðjugata 1. Húsið var byggt 1904, en útllti þess var breytt umtalsvert fyrir um áratugi og þá
byggð við það sólstofa. Meðal gömlu húsanna á ísafirði vekur þetta hús ævlnlega mikla athygli
gesta enda hefur verið lögð mikil vinna og alúð í samræmdar skreytingar. Enda þótt sólstofan
rími ágætlega við húsið, á hún sinn þátt í að það hefur fjarlægst upprunalegt útlit. Það kann að
þykja galli, en alltaf er notalegt að sjá þegar bersýnilega er unnlð af ástúð.
Tangagata 12. Húsið var reist 1903 við Brunngötu, en síðar flutt á þennan stað. Það var lengi
bústaður skólastjóra Barnaskólans. Þetta er i sjálfu sér einfalt tveggja hæða hús með lágu risi,
en fær sterkt svipmót af hvítmáluðum gluggaumbúnaði og ekki sízt af hvítmáluðum svölum og
útskornum spymustoðum yfir inngangi.
Túngata 3. Húsið var flutt frá Hattardaiseyri 1930. Grímur Kristgeirsson, faðir Ólafs Ragnars
forseta islands, lét reisa húslð á ísafirðl og þar var æskuheimili Ólafs Ragnars. Hér er eitt af
mörgum húsum á Vestfjörðum sem sýna norsk áhrif. Húsin við Túngötu em byggð eftir skipulagi
Guðjóns Samúelssonar og Guðmundar Hannessonar, sem staðfest var í marz 1927.
Tangagata 23. Á húsinu er fallega unninn skjöldur þar sem stendur að húsið sé reist 1888. Hér
má sjá þetta sérstaka, ísfirzka einkenni, að byggt er yfir anddyrið, sem verður einskonar andlit
hússins með svipmiklum vlndskelðum og íburðarmiklu skreyti á dyraumbúnaði og yfir gluggum.
Sú viðhöfn hefur ekki átt sér stað á viðbyggingu til hægri.
Smiðjugata 2. Upprunalega er þetta eitt af elztu íbúðarhúsunum á ísafirði, byggt 1853, en
stækkað og breytt mlkið 1978. i húsinu bjó smlðurinn Jens Kristján Arngrimsson, en nafn göt-
unnar er dreglð af smiðju hans. Húsið hefur verið stækkað um helmlng eða meira. Að utanverðu
er það klætt með svartbikaðri listaklæðningu, sem ásamt hvítmáluðum gluggum gefur húsinu
nokkuð af 19. aldar svipmóti.
'i
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. DESEMBER 2000 1 1