Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Blaðsíða 20
4 CtS t» anumtö t ftítttm cttts nott trfít .ptofírtaltttmttr>CT Fyrsti Davíðssálmur, upphafsstafur og myndlýsing. Gotneskur stíll frá 14. öld. i ij i idú i i 1 í ■1.11 §J % S £ jp $ - Myndlýsingar í íslenskum handrftum eru elsta grein íslenskrar myndlistar. Myndir af sögupersónum eru oft felld hafsstafl eins og hér sést: Ungur madur tekur við föður sínum og bamf til framfærslu. Ur Jónsbókarhandriti (Sl AHUGI á fomri menningu þjóða hefur farið vaxandi undanfarin ár og hafa ferða- lög til framandi menningar- svæða oft orðið til þess að opna augu manna fyrir menningu eigin þjóðar. Einn merkasti menningararfur okkar er miðaldahandritin, en þrátt fyrir að þau fái mikla umfjöllun hafa myndlýsingamar í þeim verið minna kynntar. Myndlýsingamar gefa þó til kynna að handritaskrifarar okkar hafa fylgst vel með straumum og stefnum í myndskreyt- ingum á handritum í Evrópu á miðöldum. Fyrstu myndlýsingamar sem þekktar eru í ís- lenskum handritum eru írá um 1200 og koma fram í handritabrotum úr Physiologus og Róm- verja sögu og þykir stíllinn í þeirri bók bera vott um engilsaxnesk áhrif. Myndimar þykja mjög faglega unnar og bera með sér að skreytinga- listin hafi þá þegar verið orðin vel þróuð hér á landi. Myndlýsingar í handritum eiga sér foma sögu, þær vora iðkaðar á dögum Fom-Egypta eins og sjá má í „Bók hinna dauðu“ sem er frá 1250 f. Kr. í þessum egypsku bókum, sem era uppvafðar bókarollur úr papýras, era myndlýs- ingar sem áttu að leiðbeina hinum látnu í næsta lífi. „Lýsing“ í handritum þýðir að handritin vora skreytt með litríkum teikningum, glæsi- legum upphafsstöfum og máluðum „miniature" en svo nefndust myndskreytingar í fomum handritum og fengu nafn sitt af rauða litnum sem notaður var. í dag er „miniature" notað yfir litlar myndir. Myndlýsingar í handritum hafa farið í gegnum mörg þróunartímabil og stíl- breytingar í aldanna rás og renna þau oft saman svo ekki er auðvelt að greina hvenær ný stílgerð hefur tekið við af annarri eldri. Myndlýsingar handrita vora iðkaðar á tímum Grikkja og Róm- verja og frá þeim þróuðust stflgerðir sem höfðu mildl áhrif víða í hinum kristnu löndum á miðöld- um. Bókagerð er talin hafa þróast fyrst á skipu- EFTIR MARGRÉTI ÞORVALDSDÓTTUR Elstu myndlýsingarnar í íslenskum handritum eru írá um 1200, en myndlýsingar í handritum eiga sér forna sögu, eða allt frá dögum Forn-Egypta. Þetta form myndlistar blómstraði glæsilega í keltneska stílnum sem þróaðistá Irlandi á ó. öld, en síðar fengu myndlýsingar á sig einkenni sem kennd eru við Karlamagnús, rómanskan stíl, endurreisnina og gotneskan stíl. Lindisfarne-guöspjöllin voru skrifuð í munka- klaustri á Norðumbralandi laust fyrir árið 700. ITJCípirrtUí S'&' cff'A-ywjýt' aiuu in iu6o(T 'm-gw A cw<J> tismaicptjus oaxruicínn uo Semnoue disapuíus Sacaulmiurn luisnatiei legan hátt í hinni fomu Alexandríu í Egypta- landi undir verndarvæng Ptolemaic konunga sem réðu yfir Egyptalandi frá 300-30 f. Kr. Bókagerð var einnig talsverð á tímum Agúst- usar keisara í Róm og frá Rómartímanum hafa varðveist góð sýnishom af bókum um vísindi, læknisfræði og klassísk verk. Flestar bækur sem varðveist hafa eru frá miðöldum og era um kristileg efni og voru þær búnar til og varð- veittar í klaustram. Fyrsta myndskreytta hand- ritið um kristileg efni sem varðveist hefur er Bók Genesis rituð á grísku á 5. öld og er hún geymd í konunglega bókasafninu í Vín. Ur henni hafa varðveist 26 blöð úr kálfskinni, purpuralit- uðu, með 88 myndum og gull- og silfurletruðum texta. Myndskreyttar helgisiðabækur gegndu mik- ilvægu hlutverki við útbreiðslu kristninnar. Þær vora skrifaðar guði til dýrðar og gerðu mynd- skreytingamar prestum auðveldara að ná at- hygli fólksins í kirkjum og boða hið heilaga orð. Mikil áhersla var lögð á að klaustur og kirkjur ættu veglegar helgisiðabækur og virðist svo einnig hafa verið hér á landi. í elsta máldaga Hólakirkju frá 1318 er þess getið að 80 kirkjur eigi að meðaltali tíu helgisiðabækur sem nú era að mestu glataðar. í handrit vora aðallega notuð lambskinn (pergament) og kálfskinn (vellum) og fom gerð af pappír (papýras). í alfræðibók Colliers segir að notkun á pergamenti hafi verið ævafom. Eumenes II sem var konungur í Pergamum í Mysiu (Mið-Austurlöndum) um 150 f. Kr. er sagður hafa endurvakið notkun á pergamenti til bókagerðar. Sagan segir að hann hafi haft mikinn áhuga á að byggja upp stærra og betra bókasafn en bókasafnið í Alexandríu, en Potelomy Epiphanes konungur hafi í afbrýði harðneitað að láta papýras af hendi. Eumenes hafi þá ákveðið að pergament, þ.e. skinn, yrði notað í stað papýras, en hann kom frá Egypta- landi og er talið að hann hafi verið notaður þar í 3000 ár. Papýrus er því mun eldri en bæði lamb- og kálfskinn sem bókfell í handrit. Papýras var notaður í Grikklandi, á Ítalíu og í öðram Evr- ópulöndum allt fram á miðja tíundu öld, og þá aðallega til bréfaskrifta og í reikninga en einnig í bækur. Stundum var blöðum úr kálfskinni brugðið á milli blaðsíðna úr papýrus, til stuðn- ings. Til era sjö til átta slíkar bækur á evrópsk- um söfnum. Kálfskinn var eftirsóttara til bókagerðar en lambskinn þar sem það þótti bæði þynnra og stífara. Skinn af ófæddum kálfum var kallað „ut- erine vellum", þótti það þynnst og fínast og er 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. DESEMBER 2000 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.