Alþýðublaðið - 07.10.1986, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 07.10.1986, Blaðsíða 4
alþýðu- ■ n rr.rr.a Þriðjudagur 7. október 1986 Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 681976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Jón Daníelsson, Ása Björnsdóttir, Kristján Þorvaldsson, Framkvæmoastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 43. flokksþing Alþýðuflokksins 70 ára afmælisþing ÍSLAND FYRIR ALLA Forseti Alþýðusambands íslands virtu og dáðu heiðursgestir fulltrúar Alþjóðasambands jafnaðarmanna og erlendra bræðraflokka íslenskir jafnaðarmenn kæru vinir og samherjar. Ég býð ykkur öll hjartanlega vel- komin til 43. flokksþings Alþýðu- flokksins — til 70 ára afnuclis- þings. Sérstakar þakkir flyt ég ölluni þeim félögum okkar sem á undan- förnum vikum hafa lagt nótt við nýtan dag við að undirbúa þing- haldið. Ég er þess fullviss að þcssi Fyrri hluti samverustund hér að Hótel Ork verður okkur öllum til gagns og gamans. Þetta er reyndar í fyrsta sinn á 70 árum sem flokksþing Al- þýðuflokksins er haldið — úti á landi. Það er því ekki eitt, heldur allt, sem ætlar að verða sögulegt við þetta þing okkar. Ég ávarpaði hér áðan fyrstan manna forseta Alþýðusambands ís- lands. Það var engin tilviljun. Sanit bið ég fréttaþyrsta fjölmiðlamenn að hrapa í engu að ályktunum sín- um — fyrirfram. En sú var tíðin, að forseti Alþýðusambandsins var hvort tveggja í senn: formaður Al- þýðuflokksins og Alþýðusam-- bandsins. Sú skipan hélst fyrsta ald- arfjórðunginn í sögu þessara syst- urhreyfinga. Brautryðjendurnir, sem við minnumst í dag, litu svo á, að kröfugerðin við samningaborðið um kaup og kjör og baráttan á Al- þingi og í sveitarstjórnum fyrir fé- lagslegum réttindum vinnandi fólks, væru tvær hliðar á saina máli. Mannréttindabaráttu alþýðu. Við þurfum ekki nema að bregða upp samtíðarspegli okkar þjóðle- lags í dag til að sjá, hversu skarp- skyggnir á eðli máls og framsýnir brautryðjendur Alþýðusambands- ins og Alþýðuflokksins voru. En í dag er einmitt þetta kjarni málsins: Ef við ætlum okkur ekki aðeins að verja — heldur að endurreisa vel- ferðarkerfi hins vinnandi fólks — verða þessar tvær svsturhreyfingar Molar Og hvað œtli það sé nú sem iðnað- arráðherrann okkar notar ofan á brauðið sitt um þessar mundir? Auðvitað ál — egg. að stilla sarnan strengi; að sam- rænra vinnubrögð sín og einbeita kröftum sínum að sameiginlegu markmiði. Til þess að rétta hlut vinnandi fólks frammi fyrir valdi fjármagns og forréttinda í þessu þjóðfélagi. Það var draumur brautryðjend- anna. Okkur, sem nú erum uppi, ber skylda til að bregðast ekki þeim vonum; það er á okkar valdi að láta þá drauma rætast, aðeins ef við ber- um gæfu til að láta mistök sögunn- ar okkur að kenningu verða. Áður fyrr var forntanni Alþýðu- flokksins og forseta Alþýðusam- bandsins ætlaður einn stóll. Verk- hyggnir menn vita, að því aðeins helst stóll uppi, að undir honum séu fjórir fætur. Það er óráð að saga stólinn i sundur og klambra undir hann spelkur. Það verður seint kall- að völundarsmíð. Sú kentur tíð, á tímum vaxandi virðingar í'yrir forn- unt hagleik og handverki, að stóll- inn verður færður til sins uppruna- lega horfs. Á meðan það verður ekki þurf- um við Ásmundur, eða aðrir sem stólinn sitja, að minnast þess: að þröngt mega sáttir sitja. Ég þakka forseta Alþýðusam- bandsins fyrir árnaðaróskir í tilefni 70 ára afmælisins. Og fyrir hönd ykkar allra sem hér eru saman kom- in, og fyrir hönd allra íslenskra jafnaðarmanna, endurgeld ég árn- aðaróskirnar. Við óskum Alþýðu- sambandinu og verkalýðshreyfing- unni allra heilla á þessum tímamót- um og látum í Ijós þá einlægu von, að samstarf þessara tveggja systur- hreyfinga megi reynast heilsteypt og árangursrík á komandi árum. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, að aðdragandi þessa flokksþings hefur verið nokkuð sögulegur. Það þurfti reyndar óvænta heimsfrétt um leiðtogafund risavelda í Reykjavík til þess að þoka fréttum af þessu flokksþingi úr fókus fjölmiðla og af forsíðum dagblaða. Við skulum reyndar vona að Reykjavíkurfundar þeirra Reagans Bandaríkjaforseta og Gorbatsjefs aðalritara verði minnst síðar nteir sem fundi „söguiegra sátta“; að þeir nái samkomulagi um að binda Afmælisgjöf í tilefni 75 ára afmælis Háskóla íslands afhenti Haraldur Ágústs- son viðarfræðingur Líffræði- stofnun Háskólans að gjöf smá- sjársneiðartæki (microtome) af vönduðustu gerð ásamt fylgihlut- um. Tæki þetta kostar samkvæmt núverandi verðgildi um 220.000 krónur. Það er notað til að gera þunnsneiðar af plöntu- og dýra- vefjum fyrir smásjárskoðun. Kristján Jóhannsson, óperusöng- vari, lœtur ekki eiga neitt inni hjá sér þegar á hann er yrt. Hreiðar Jónsson, íþróttavallarvörður á Akureyri, mœtti Kristjáni einu sinni á götu og verður þá að orði, „Hvað helvíti ertu orðinn feitur maður.“ Kristján barði sér á bumbu, skellihló og svaraði, „Veistu ekki að þetta er hljóðfœri maður.“ SETNINGARRÆÐA Jóns Baldvins Hannibalssonar formanns Alþýðuflokksins endi á það brjálaða vígbúnaðar- kapphlaup, sem nú hótar okkur öll- um með heimsendi og ragnarökum. Við íslenskir jafnaðarmenn erum hluti af alþjóðahreyfingu lýðræðis- jafnaðarmanna. Sem slíkir eigum við erindi við þessa tvo æðstu menn risaveldanna: Fulltrúa auðhyggj- unnar annars vegar og sovétkomm- únismans hins vegar. Þó ekki væri nema vegna þess, að alþjóðahreyf- ing lýðræðisjafnaðarmanna er mesta friðarhreyfing okkar tírna. Þess eru engin dæmi að lýðræðis- jafnaðarmenn hafi hrifsað völd i neinu riki með ofbeldi. Lýðræðið sjálft er okkar pólitíska aðferð. Og lýðræðið er aðferð til að leysa ágreiningsmál manna — án ofbeld- is. Vöxtur og viðgangur alþjóða- hreyfingar lýðræðisjafnaðarmanna Einnig hefur Haraldur ánafnað Háskóla íslands viðarsafn sitt sem í dag telur um 1700 sýni. er þess vegna þýðingarmesta fram- lag til friðar í heimi, sem er að drukkna í vopnum og ofbeldi. Vandamál mannkynsins á okkar tímum virðast við fyrstu sýn vera risavaxin og illviðráðanleg. Þau birtast okkur daglega á sjónvarps- skjánum sem ímynd stríðs eða frið- ar, lífs eða dauða, hungurs eða hag- sældar, örbirgðar eða allsnægta, harðstjórnar eða lýðræðis. Öll eru þessi vandamál okkar vandamál. Þau eru sameiginlegt úrlausnarefni alls mannkyns. Því að við byggjum eina jörð. Og örlög hennar og fram- tíð eru í okkar höndum. Stjórnmálahreyf'ing sem skír- skotar til alls mannkyns á því að- eins brýnt erindi, að hún geti í verki fært mannkyni frið, frelsi og hag- sæld. Margir skoða þessi vandamál í ljósi tvískiptingar heimsins: milli austurs og vesturs, milli komntún- isma eða kapítalisma. Þetta er mik- ill misskilningur. Sovétkommúnisminn byggði á hugmyndum um ríkiseinokun efna- hagsstarfseminnar og þar nteð alls efnahagslegs og pólitísks valds. Reynslan kennir okkur að þjóðfé- lög af þessu tagi eru ósamrýmanleg lýðræði og frelsi. Þeim er haldið saman með valdbeitingunni einni saman. Þessi þjóðfélög eru hættu- leg heiinsfriönum, vegna þess að þau byggja á ofbeldi og fótumtroða mannréttindi. Sagan er stundum harður skóli. Hér á meðal okkar er að finna kær- kominn gest frá Eistlandi. Jóhann- es Mikhelsson, formann jafnaðar- mannaflokks Eistlendinga — í út- legð. Eistar brutust undan erlend- um yfirráðum og endurheimtu sjálfstæði sitt sama árið og við ís- lendingar, í lok fyrri heimsstyrjald- ar, árið 1918. Örlög þessara þjóða eru ólík. Örlög Eista segja meira en mörg orð um lífsháska smáþjóðar, sem átti sjálfstæði sitt undir því komið, að stórveldið handan landa- mæranna virti hlutleysi þess. Hvað getum við lært af þeirri sögu? M.a. það að lýðræðisjafnað- armenn þurfa að heyja pólitíska baráttu gegn alræðis- og ofbeldis- öflum, sem ýmist kenna sig við hægri eða vinstri. Friðarpólitík okkar jafnaðarmanna hlýtur því að byggjast á forsendunni um sam- stöðu og samstarf lýðræðisríkj- anna. Lýðræði hefur ekki leyfi til að vera veikt. Lýðræðið á að verja sig. Lýðræðisöflin eiga því að auka samstöðu sína og efla sameiginlegt öryggiskerfi sitt. Sjón er sögu ríkari. Á sl. sumri sótti ég fyrir ykkar hönd 17. þing i Alþjóðasambands jafnaðarmanna, 'sem í fyrsta sinn var haldið utan Evrópu, í Lima í Perú. Þar hafði ég fyrir augununt í sjö daga skelfilegar félagslegar afleiðingar óheftrar valdstjórnar spilltrar yfirstéttar fjármagnseigenda. Þjóðfélag, sem hafði umskautast í ósættanlegar andstæður allsnægta og forréttinda — allsleysis og örbirgðar. Þá sann- færðist ég um að það er rétt, sem við höfum sagt: Kapítalismi er þjóðfé- lagsskipan, sem er siðferðilega for- dæmanleg. Einu takmörkin fyrir arðráni og kúgun verkafólks í slíku kerfi eru fólgin í skipulegu andófi og styrk fjöldahreyfinga, verka- lýðshreyfingar og stjórnmála- flokka. Hvert sem litið er um heims- byggðina í dag má sjá þjóðfélög, sem vegna stjórnleysis markaðs- kerfisins, eru á barmi sprengingar: íran er þegar sprungið í loft upp; Mexíkó, Brasilía, S-Kórea og jafn- vel Indland eru dæmi um þjóðfélög á barnti sprengingar. Örbirgð fjöldans í þessum þjóð- félögum leiðir til örvæntingar. Ör- vænting leiðir ævinlega til ofbeldis. Kapítalisminn getur þess vegna hvorki boðid mannkyni upp á frið né hagsæld. Sovétkerfið byggir tilveru sína á ofbeldi. Hið óhefta markaðskerfi leiðir til umskautunar þjóðfélags- ins milli allsnægta og örbirgðar. Þessar þjóðfélagsgerðir leiða þvi báðar eðli sínu samkvæmt til ófrið- ar. Pólitísk heimspeki og hagstjórn- arhugmyndir okkar jafnaðar- manna eru hins vegar forsenda þess að lýðræðislegt stjórnarfar fái þrif- ist. Með fyrirbyggjandi félagslegum umbótum í tæka tíð komum við í veg fyrir skiptingu þjóðfélagsins í tvær þjóðir: Annars vegar þá, sem býr við allsnægtir og forréttindi; hins vegar réttlausan og undirokað- an öreigalýð, sem er sviptur mann- réttindum. Og þar með voninni um bjartari framtíð og betri daga. Þess vegna endurtek ég það, vegna þess að það er sannleikurinn umbúðarlaus: Vöxtur og viðgangur alþjóðahreyfingar lýðræðisjafnað- armanna er þýðingarmesta framlag til friðar í heimi, sem er að drukkna i vopnum og ofbeldi. Þess vegna vex stjórnmálahreyf- ingum lýðræðisjafnaðarmanna nú óðum ásmegin með þjóðum þriðja heimsins, sem hafa mátt þola 150 styrjaldir frá lokum heimsstyrjald- ar. Meirihluti aðildarflokka Al- þjóðasambandsins er starfandi í löndum þriðja heimsins nú þegar. Þetta hefur gerst á rúmum áratug. Tveir af leiðtogum okkar, þeir Willy Brandt og Olof Palme, eiga öðrum fremur heiður skilinn fyrir að hafa stuðlað að þessari þróun. Framh. á bls. 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.