Alþýðublaðið - 11.11.1986, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 11.11.1986, Blaðsíða 1
Bœnaskjal Alþýðubandalagsins: „Sýnir styrk Alþýðuflokksins“ — segir Jón Baldvin Hannibalsson „Það er til marks um vaxandi styrk Alþýðuflokksins og málefna- legt frumkvæði hans, að þegar þeir Alþýðubandalagsmenn koma sam- an til miðstjórnarfundar og setja saman stjórnmálaályktun, þá fjall- ar hún um Alþýðuflokkinn en ekki Alþýðubandalagið", sagði Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins í gær í samtali við Alþýðublaðið um ríkisstjórnarhug- myndir Ólafs Ragnars Grímssonar, sem komu fram í tímaritinu Heims- mynd á dögunum og blessun var lögð yfir á miðstjórnarfundi Al- þýðubandalagsins um helgina. Hugmyndin gengur út á samstarf Alþýðubandalags og Alþýðuflokks og hugsanlega Kvennalistans, í rík- isstjórn og verði það einnig lagt fyr- ir kjósendur í næstu kosningum. „Að vísu er þessi Heimsmyndar- kenning Ólafs Ragnars ekki ný af nálinni", sagði Jón Baldvin. „í árs- byrjun ’85 settu þeir frá sér hug- myndir sem þeir kölluðu „nýtt landsstjórnarafl" og var nákvæm- lega þessi sama hugmynd, en fékk þá engar undirtektir. Að sjálfsögðu er rétt að bíða með umræðu um þetta mál þar til þeir hafa birt sínar ályktanir, en engu að síður er sjálfgefið að gera nokkrar einfaldar athugasemdir. — í fyrsta lagi, Alþýðubandalagið gerir ekki Alþýðuflokknum upp skoðanir hvorki á málefnum né samstarfs- möguleikum í íslenskri pólitík. — í annan stað, til marks um alvöru- leysið í þessu, að bænaskjalinu fylgja kröfur sem þeir mega vita fyrirfram að verður ekki ansað. Eins og t.d. kröfur um það að Al- þýðuflokkurinn breyti fastmótaðri stefnu sinni í utanríkis- og öryggis- málum, sem ekki er á dagskrá. I þriðja lagi er á það að benda, að þótt þessi hugmynd hafi verið sam- þykkt einu sinni enn, þá skyldu menn ekki halda að það sé neinn einhugur um þetta innan Alþýðu- bandalagsins. Það er t.d. Ijóst að forystumenn Alþýðubandalagsins innan verkalýðshreyfingarinnar, þeir sem nú eru að ganga fram fyrir skjöldu í forvali flokksins í Reykja- vík, hafa sett fram aðrar hugmyndir um líklega stjórnarmyndunar- möguleika að loknum kosningum. T.d. ítrekaðar yfirlýsingar Þrastar Ólafssonar, framkvæmdastjóra Dagsbrúnar, sem hefur að vísu mælst til samstarf við Alþýðu- flokkinn, en hefur gjarnan sett þær hugmyndir fram í samhengi ný- sköpunarhugmyndar. Það er einnig vitað að í þingflokki Alþýðubanda- lagsins eru þó nokkrir þingmenn sem eru enn áhangendur samstarfs Alþýðubandalags og Framsóknar, þ.e. þeirrar hefðbundnu vinstri- stjórnar sem við reyndum á verð- bólguáratugnum. Þannig að þrátt fyrir þessa samþykkt þá liggur ljóst fyrir, að ekki er einhugur innan Al- þýðubandalagsins. Þetta er nánast eins og hálmstrá sem þeir grípa nú í til þess að reyna að marka Alþýðu- bandalaginu einhverja stöðu. Að því varðar möguleika til stjórnarsamstarfs við Kvennalist- ann, þá er mjög eðlilegt að menn hafi um það efasemdir. í mínum huga, þegar ég lít til baka yfir þing- feril Kvennalistans, þá er eiginlega Framh. á bls. 2 Prófkjörið á Reykjanesi: Kjartan Jóhannsson í 1. sæti — Karl Steinar í 2. — Rannveig Guðmundsdóttir hlaut 3. sœtið Urslit í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar, sem fram fór um síðustu helgi, liggja nú fyrir. Kjartan Jóhannsson hlaut 2022 atkvæði í fyrsta sæti, Karl Steinar Guðnason 2351 í fyrsta og annað, Rannveig Guðmundsdóttir 1910 atkvæði og Guðmundur Oddsson 1227. Elín Harðardóttir hlaut 1868 atkvæði og hafnar í fimmta sæti. Alls kusu 3578. Ógildir og auðir seðlar voru 73. Gildir seðlar 3505. Kjartan „Þetta er dúndurlisti, þingmenn- irnir hafa hlotið gott traust. Endur- nýjun listans er sigurstrangleg, þau Rannveig og Guðmundur hafa get- ið sér gott orð fyrir störf sín að sveitarstjórnarmálum. — Sigur okkar í sveitarstjórnarkosningun- Karl Steinar um á Reykjanesi var mikill og eftir- minnilegur og góður grundvöllur til að byggja á. Þetta þýðir að við get- um gert okkur vonir um fjölgun í kvennaliði Alþýðuflokksinsánæsta þingi. — Guðmundur var á seinasta kjörtímabili formaður Rannveig framkvæmdastjórnar og það fer ekki á milli mála að hann er vaskur maður," sagði Jón Baldvin Hanni- balsson formaður Alþýðuflokksins í gær í saintali við Alþýðublaðið eftir að úrslit i prófkjöri flokks- ins i Reykjancskjördæmi lágu fyrir. Niðurgreidd bankaþj ónusta „Það er engin spurning að bæði lántakendur og sparifjáreigendur greiða niður ýmsa þjónustu sem bankarnir veita“, sagði Pétur Blön- dal framkvæmdastjóri Kaupþings í samtali við Alþýðublaðið í gær. „Þetta gerist með því að sparifjár- eigendur fá lægri vexti en þeir myndu annars fá og lántakendur greiða hærri vexti, en þeir þyrftu annars að greiða. — Millifærslur, tékkareikningar og annað slíkt er stórlega niðurgreitt, m.a. af vaxta- muninum á milli inn- og útlána“. Pétur sagði að eflaust myndu nýju bankalögin leiða til þess að kostnaður yrði nú tekinn eins og hann myndaðist. „íslendingar hættu þá kannski að gefa út tékka upp á hundrað kall, þegar kostar 20 krónur að meðhöndla hann“. „Verðbréfamarkaðirnir eiga mjög eftir að auka sinn hlut“, sagði Pét- ur. „Þeir skutla peningum ódýrar frá sparifjáreigendum til lántak- enda. Það verður mikið atriði í Framh. á bls. 2 Málefni fanga á íslandi: Halldór Fannar: Eru framin mannréttinda- brot á geðsjúkum föngum? — skrifað frá Litla-Hrauni 1983 I blaðinu Vernd, tímariti Fangahjálparinnar, 3. tbl. 1983, er grein eftir Halldór Fannar, skrifuðfrá Litla-Hrauni. Þar er kastað fram þeirri spurningu hvort framin séu mannréttindabrot á geðsjúkum föngum. Ekki hefur Alþýðublaðið frétt að slík bylting hafi átt sér stað til leiðréttingar á aðbúnaði fanga, að greinin eigi ekki rétt á sér enn þann dag í dag. Það er vissulega umhugsunarefni, hvers vegna þær stéttir í þjóðfélaginu, sem ekki hafa einhvern „þrýstihóp“ á bak við sig, ná svo seint og illa fram rétti sínum. Er það virkilega orðið svo að ráðamenn í Iandinu taka ekki mark á neinu nema hótunum? Fangar er sá hópur í íslensku samfélagi sem hvað síst getur borið hönd fyrir höf- uð sér. Málefni þessa fólks eru feimnismál fyrir íslenska ráðamenn. Ekkert gerist til bóta í málum og aðbúnaði fanga svo árum skiptir. Ekki heyrist orð frá ráðherra dómsmála um fanga almennt. Fangar er það fólk sem ráðamenn íslensku þjóðar- innar virðist skammast sín fyrir. Nauðsyn er að á því verði snögg og afgerandi breyting. verið fjölmargir undirskriftarlist- ar með áskorunum um að þessu fólki verði sleppt tafarlaust. En hvernig væri nú að líta sér nær og skoða málefni geðsjúkra afbrotamanna í lýðræðisríkinu ís- landi? Er eitthvert réttlæti í því að geðveikum mönnum skuli hafnað af yfirvöldum geðsjúkrahúsanna Framh. á bls. 2 Það er full ástæða til að láta frá sér heyra varðandi þá mfðferð sem geðsjúkir menn eru látnir sæta hér á landi, hafi þeir brotið eitthvað af sér. Okkur berast nær daglega frétt- ir í gegnum fjölmiðla um mann- réttindabrot á saklausu fólki sem sett er á geðveikrahæli vegna póli- tískra skoðana sinna. Auðvitað erum við hneyksluð á þessu sví- virðilega ranglæti og sendir hafa U: í

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.