Alþýðublaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 1
alþýðu- m Þriöjudagur 16. desember 1986 242. tbl. 67. árg. Freðfiskútflutningur: Japansmarkað- ur sækir á Frá Hvammstanga. Daufara er nú yfir atvinnulifinu á Hvammstanga en oft áður, vegna minnkandi rœkjuafla. Sjá frétt á bls. 3. Steinullarverksmiðjan Sauðárkróki: Bæjarstjórnin sammála um að auka hlutafé Umtalsverðrar breytingar er að merkja í freðfiskútflutningi lands- manna í ár. Hlutur Bandaríkja- markaðar hefur talsvert minnkað i heildarútflutningnum. í fyrra var um 50% frystra sjávarafurða flutt út á Bandaríkjamarkað, en fyrstu 9 mánuði ársins var hlutfallið um 41%. — Samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins hafa helstu tilfærslur orðið til Vestur Evrópu en einnig í nýlegri könnun Félagsvísinda- stofnunar Háskólans um afstöðu þjóóarinnar tii nokkurra þátta op- inberrar þjónustu, kom m.a. fram að um 80% aðspurðra vilja efla þjónustu við aldraða. Þetta er mun hærra hlutfall en komið hefur fram í hliðstæðum könnunum sem gerð- ar hafa verið á hinum Norðurlönd- unum. í þessari sömu könnun, sem Vinnan tímarit ASÍ birti, kemur einnig fram að um 42% vilja efla al- mannatryggingakerfið og mikill meirihluti hafnar einkarekstri í menntakerfi og heilbrigðiskerfi. Þessar niðurstöður hljóta að telj- ast mjög merkilegar. í liósi bess að hefur Japans- og Suður- Kóreu- markaður verulega stækkað. í fyrra voru þangað flutt um 4,7% af heildarútflutningnum en fyrstu níu mánuði ársins nemur útflutningur þangað um 8,2%. í fyrra fluttu landsmenn út um 132 þúsund tonn af freðfiski og stefnir í, þrátt fyrir aukningu í gámafiski, að útflutningur verði ekki minni í ár. ýmsir þjóðfélagshópar sem eiga allt sitt undir stjórnvöldum komið, hafa átt mjög undir högg að sækja að undanförnu. Þessir þjóðfélags- hópar eiga yfirleitt ekki neina eigin- lega málsvara og hafa ekki tök á því að sækja rétt sinn sem þrýstihópur. í því sambandi er eflaust nær- tækasta dæmið, aldraðir í landinu sem í desember fá skammtaðar 15.907 krónur í ellilífeyri og tekju- tryggingu frá velferðarþjóðfélag- inu“. Talið er að um 9000 íslending- ar 67 ára og eldri hafi aldrei greitt í lifeyrissjóð og þurfi því stór hluti þeirra að draga fram lífið á efri ár- Bæjarstjórn Sauðárkróks hefur einróma samþykkt að beita sér fyrir því að hægt verði að auka hlutafé um á slíkum smánargreiðslum. Eins og kunnugt er hafa stjórnvöld lýst því yfir að ellilífeyrir muni á næst- unni taka við af almennum hækk- unuin launa á vinnumarkaði, og því ekki um að ræða að þessi lágtekju- hópur fái neinar verulegar úrbætur á sama tíma og lægstu laun á vinnu- markaði hafa verið lyft úr 19 þús- undum í 26.500 á mánuði. Nýlega hafa samtök aldraðra skýrt frá að nú liggi fyrir um þús- und umsóknir um byggingu hús- næðis fyrir aldraða í Reykjavík. Talið er að um helmingur þess þurfi að vera leiguhúsnæði. bæjarins í Steinullarfélaginu sem er eignaraðili Steinullarverksmiðj- unnar sem á í miklum fjárhags- vanda um þessar mundir. Stjórn- endur verksmiöjunnar telja að um 60 milljónir þurfi nú að koma til svo áframhaldandi rekstri verði borgið á næstunni. Ríkisstjórnin hefur einnig lýst yfir vilja sínum um að áframhaldandi rekstur verði tryggður. Bæjarstjórnin hélt fund með stjórn verksmiðjunnar strax í sept- ember síðast liðnum þar sem vandi verksmiðjunnar var ræddur. í framhaldi að því hélt bæjarstjórnin fund 28. október s.l. þar sem gerð var samþykkt um að standa fyrir aukningu hlutafjár svo fremi að aðrir hluthafar gerðu það og að næðist að semja við lánadrottna. En verksmiðjan var að mestu fjár- mögnuð með erlendum lánum. Stjórnendur hennar telja að í dag hafi Steinullarverksmiðjan tekjur svo hægt sé að brúa reksturskostn- að en fjármagnskostnaður er mjög erfiður og ekki fyrirsjáanlegt að hægt verði að standa við skuldbind- ingar, nema samið verði um leng- ingu lána og breytingu vaxtaskil- yrða. Aukið eigið fé dugir ekki til áframhaldandi reksturs og því samningar um skuldbreytingar óumflýjanlegir. Björn Sigurbjörnsson fulltrúi Alþýðuflokksins í bæjarstjórn Sauðárkróks sagði í samtali við Al- þýðublaðið að Ijóst væri að bæjar- félagið þyrfti á lánafyrirgreiðslum að halda svo hægt yrði að standa við loforð um aukningu hlutafjár. Hann sagði hins vegar að hér væri um það brýnt mál að ræða fyrir Sauðárkróksbúa að allra leiða yrði leitað svo áframhaldandi rekstur Steinullarverksmiðjunnar yrði tryggður. Framsóknarflokkurinn 70 ára 16. desember Þingflokkur framsóknarmanna og Framsóknarflokkurinn eiga 70 ára afmæli 16. desember n.k. Þann dag árið 1916 komu átta þingmenn saman til fundar í AI- þingishúsinu og stofnuðu þing- flokkinn sem fyrstu árin gegndi hlutverki landsmálaflokks. Fyrsti formaður var Ólafur Briem þingmaður Skagfirðinga. í tilefni afmælisins verður opið hús i Súlnasal Hótel Sögu milli klukkan 16.30 og 19.00 á afmælis- daginn. Einnig verður afmælisins minnst á kjördæmasamböndum og flokks- félögum víðsvegar um land. Kjör aldraðra: Þjóðin vill efla þjón- ustu við aldraða — Skilningur stjórnvalda hins vegar ekki mikill Frumvarp fjármálaráðherra um virðisaukaskatt: „Þarf að semjaþaðupp á nýtt“ — segir Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins Fjármálaráöherra lagði á Al- þingi í síðustu viku fram frum- varp sitt um virðisaukaskatt. Stjórnarandstaðan lagðist gegn frumvarpinu og ýmsir framsókn- armenn telja sig ekki geta stutt það í óbreyttri mynd. Alþýðublaðið hafði samband við Jón Baldvin Hannibalsson, formann Alþýðuflokksins og bað hann að lýsa sjónarmiðum þing- flokks Alþýðuflokksins til frum- varps fjármálaráðherra: „Hringlandaháttur fjármála- ráðherra og ríkisstjórnar í skatta- málum er farinn að valda jafnvel stjórnarliðum áhyggjum", sagði Jón Baldvin. „Lengi hefur staðið til að endurskoða rækilega handahófskenndar tollaálögur og leggja fram lagabreytingar til ein- földunar og lækkunar á tollum. Þetta hefur vafist fyrir ríkis- stjórninni, þrátt fyrir að þetta hafi verið boðað síðastliðin tvö ár. Ríkisstjórnin boðaði sem nýj- an skatt, sérstakan orkuskatt á innfluttar olíuvörur en kippti því til baka á seinasta augnabliki fyrir aðra umræðu fjárlaga. Nú hefur ríkisstjórnin lagt fram í annað skiptið frumvarp til laga um virðisaukaskatt sem á að koma í staðinn fyrir söluskatt. Frumvarpið er hins vegar svo illa undirbúið og meingallað að tals- menn allra annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins snerust al- gjörlega gegn því eða höfðu slík- an fyrirvara á stuðningi sínum, eins og t.d. þingflokksformaður Framsóknar, að það þykir borin von að frumvarpið nái fram að ganga á þessu þingi. Þingmenn Alþýðuflokksins hafa verið harðastir gagnrýnend- ur á þingi á liðnu kjörtímabili á núverandi skattakerfi. Sú gagn- rýni hefur beinst bæði að tekju- skatti og söluskatti. Alþýðuflokk- urinn náði þeim áfangasigri að fá samþykkta á þingi þingsályktun- artillögu um afnám tekjuskatts í þremur áföngum. Það gerðist með þeim hætti að tvær tillögur, annars vegar frá Alþýðuflokkn- um og hins vegar frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins voru brædd- ar saman og náðu meirihluta sam- þykki. Ríkisstjórnin hefur aldrei staðið við nema fyrsta áfangann af þessum þremur um tekjuskatts- lækkun. Nú er talað um breyting- ar á tekjuskattinum sem eigi að taka gildi árið 1988, en það er sýnt að það verkefni bíður nýrrar ríkis- stjórnar. Gagnrýni okkar Alþýðuflokks- manna á söluskattinn hefur nú borið þann árangur að í greinar- gerð með virðisaukaskattsfrum- varpinu er viðurkennt, að sú gagnrýni eigi við óhrekjanleg rök að styðjast. Hún beinist að því að undanþágur frá söluskatti eru allt of margar og handahófslcenndar. Skilgreiningar á söluskattsstofn- inum eru ekki til. Erfiðleikar t.d. í almennri verslun og viðskiptum við að gera upp á milli vöru sem er söluskattsskyld og vöru sem er undanþegin eru slíkir að eftirlit með framkvæmdinni er vonlaust. Það er almennt viðurkennt að undandráttur eða vanskil á greiddum söluskatti nema að minnsta kosti á annan milljarð króna, eins og staðfest var í skatt- svikaskýrslunni síðastliðinn vet- ur. Með öðrum orðum greinir menn ekki lengur á um, að sölu- skattskerfið er með öllu ónýtt og tekjuskattslögin svo ranglát að þau verða að teljast höfuðmein- semd í íslenskri stjórnsýslu. Þess vegna hlýtur það að valda miklum vonbrigðum, þegar ríkis- stjórnin loksins leggur fram frumvarp til laga um virðisauka- skatt sem á að leysa söluskattinn af hólmi, þá er frumvarpið þannig úr garði gert að ekki er hægt að styðja það. Ástæðurnar eru þessar helstar: í fyrsta lagi er álagningarprósent- an í hinum nýja virðisaukaskatti allt of há. Söluskatturinn sem byrjaði sem 3% skattur urn 1960 er nú kominn upp í 25%. Það er ein ástæðan fyrir því að hvatinn til vanskila og skattundandráttar er svona mikil. Ríkisstjórnin leggur til að virðisaukaskattprósentan verði 24%. Það eitt út af fyrir sig Framh. á bls. 2 í Alþýðublaðinu eru í dag 8 síður helgaðar Norðurlandi Vestra og er blaðinu dreift inn á hvert heimili í kjördæminu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.