Alþýðublaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 1
alþýðu- lílRT'IM Miðvikudagur 18. mars 1987 53. tbl. 68. árg. Skoðanakönnun Hagvangs: Alþýðuflokkurinn með 19,9 °/o Minnkandi fylgi Framsóknar Frambjóðendur A Iþýðuflokksins eru önnum kafnir þessa dagana í kosningastarfi. Vinnustaðafundir hafa mœlst mjög velfyrir og fara frambjóðendurnir víða með fundi. Á meðfylgjandi mynd sjáum við Jón Braga Bjarnason prófessor og fimmta mann á lista Alþýðuflokksins íReykjavík ávarpa starfsmenn ÁTVR ímatsalþeirra að Borg- artúni 7. Ljósm. AB. Jón Baldvin um könnun Félagsvísindastofnunar: Þurfum meiri stuðning Samkvæmt niöurstöðum skoð- anakönnunar Hagvangs, sem fram fór dagana 5.—13. mars, sögðust 19,9% aðspurðra mundu kjósa Al- þýðuflokkinn ef efnt yrði til kosn- inga á næstu dögum. 13,9% sögð- ust mundu kjósa Alþýðubandalag- ið, 0,6% Bandalag jafnaðarmanna, 12,7% Framsóknarflokkinn, 9,1% Kvennalistann, 40,5% Sjálfstæðis- flokkinn, 0,8% Flokk mannsins, 1,2% sérframboð Stefáns Valgeirs- sonar og 1,4% Þjóðarflokkinn. Könnun Hagvangs náði til 1000 manns. Brúttó svarprósenta var um 78% og nettó um 82,8%. Þátt- takendur voru á aldrinum 18—67 ára. Könnunin náði til alls landsins og var framkvæmd símleiðis. Skoð- anakönnunin var hluti af spurn- ingavagni Hagvangs og hnýtt aftan við aðrar spurningar. Þegar Hagvangur kynnti niður- stöður á blaðamannafundi í gær sagði Gunnar Maack fram- kvæmdastjóri að könnunin stað- festi að Alþýðuflokkurinn héldi flugi, að skoðanakönnunin gæfi vísbendingu um minnkandi fylgi Framsóknar og að Samtök um Kvennalista hefði fest sig í sessi og aukið fylgi sitt frá síðustu Alþingis- kosningum. Gunnar taldi þetta helstu vísbendingar sem lesa mætti úr þessari könnun. I könnuninni sögðust um 2,4% ætla að skila auðu, 6,1% sögðust ekki ætla að greiða atkvæði 15,4 sögðust ekki vita hvað þeir ætluðu að kjósa og 9,6% neituðu að svara. Þetta hlutfall er svipað og í öðrum skoðanakönnunum að undan- förnu. í könnuninni voru kjósendur einnig spurðir um afstöðu sína til ríkisstjórnarinnar. 53,7% sögðust styðja núverandi ríkisstjórn. Það er nokkuð minna en í könnun Hag- vangs í desember, þegar 57,2% sögðust styðja ríkisstjórnina. Hlut- fall þeirra sem sögðust ekki styðja stjórnina var svipað og í desember, eða 29,1% samanborið við 29,5% í desember. Um 15% tóku ekki af- stöðu eða neituðu að svara. „Þessi skoðanakönnun sem aðr- ar kannanir sem birst hafa að und- anförnu, staðfesta að Alþýðuflokk- urinn er næststærsti stjórnmála- Jón Baldvin Hannibalsson: „Könn- unin staðfestir að Alþýðuflokkur- inn er nœststœrsti stjórnmála- flokkurinn.“ flokkurinn á Islandi“, segir Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins um þjóðmála- könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands hefur gert fyrir Morgunblaðið og birt var i gær. í könnuninni fær Sjálfstæðisflokk- urinn 38.9% fylgi kjósenda, Al- þýðuflokkurinn 18%, Framsóknar- flokkurinn 13.8%, Alþýðubanda- lag 15.8% og Kvennalistinn 7.2%. „Ef þetta væru kosningaúrslit væru þau samt ekki nógu hagstæð fyrir Alþýðuflokkinn;* segir Jón Baldvin jafnframt. Ef kjósendur vilja raunverulega nota það tæki- færi sem nú býðst til að koma fram breytingum á þjóðmálum, þá verð- ur það að veita Alþýðuflokknum meiri stuðning en kemur fram í þessari könnun. Ella sitjum við í sama farinu, því könnunin sýnir ótvírætt líkur á áframhaldandi óbreyttri ríkisstjórn og ávísun á áframhaldandi Framsóknarvist og sérhagsmunavörslu Sjálfstæðis- flokks“ Alþýðuflokkurinn hlaut 17.8% fylgi í Reykjavík i könnun Félags- vísindastofnunar HÍ. Jón Baldvin var spurður hvort hann óttaðist sem 3. maður á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík, að missa þingsæti sitt. „Ég segi sem Ingjaldur í Hergilsey í Gísla sögu Súrssonar: „Ég hef vond klæði og hryggir mig ekki þó ég slíti þeim eigi gerr“ Úrslit kosninganna er ekki spurning um þingsæti mitt heldur hvort menn vilja einsflokks- kerfi í Reykjavík eða ekki. Spurn- ingin er: Vilja menn áfram yfirráð Sjálfstæðisflokks í höfuðborginni á Alþingi og eitthvað flokkakraðak með eða vilja menn kosningaúrslit sem verða ávísun á breytt flokka- kerfi og nýja rikisstjórní1 Guðlaugur Þorva/dsson, ríkissáttasemiari: „Hef í mörg horn að líta núna“ Fjölmörg félög hafa boðað verkföll alveg á nœstunni „Ég er síður en svo atvinnulaus núna og það bendir ýmislegt til að ég hafi eitthvað við að vera á næstunni. Það verður að segjast eins og er að hóparnir eru orðnir ansi margir sem lagt hafa fram sínar sérkröfur. Það er rnikil breyting frá því sem áður var, þeg- ar þetta var mikið til í tveimur fé- lögum“, sagði Guðlaugur Þor- valdsson ríkissáttasemjari i sam- tali við Alþýðublaðið í gær. „Það sem er framundan og þar sem búið er að boða verkfall og kemur þá sjálfkrafa hingað inn á borð hjá okkur, er ekki annað en verkfall Hins íslenska kennarafé- lags. Sáttafundur í þeirri deilu var haldinn í fyrradag, en ekki kom þó það út úr þeim fundi það sem menn höfðu þó ef til vill vonast til. Síðan er búið að vísa til mín einu máli frá Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja, þ.e.a.s. Starfsmannafélagi ríkisstofnana, en þeir eru þó ekki búnir að boða verkfall og í þeirri deilu verður ekki haldinn fundur fyrr en séð verður hvernig atkvæðagreiðslan fer vegna samninganna við Reykjavíkurborg. En það eru ýmsir hópar, t.d. í sjúkrahúsgeiranum, sem standa í samningamálum. Þetta eru þó yf- irleitt frekar Iitlir hópar. En á miðnætti í nótt þá hefst bæði verkfall sjúkraþjálfara og há- skólamenntaðra hjúkrunarfræð- inga. Það voru viðræður í gangi í Borgartúni 6 á sama tíma og samningafundur stóð yfir hér hjá okkur vegna kennaradeilunnar, en mér er ekki enn kunnugt um niðurstöður fundanna í Borgar- túninu. Þar stóðu yfir viðræður við viðskiptafræðinga og kennara utan H.Í.K. Og þá mun einnig hafa staðið til að ræða við hjúkr- unarfræðingana og fleiri aðilar munu hafa verið með sín mál í gangi þar einnig. Það er rétt að það var bjartsýni ríkjandi fyrir fundinn með kenn- urunum, en þar kom upp svolítil sprenging. Kennarar komu þar fram með nýtt innlegg í málið. Ég vil hins vegar ekki láta hafa það eftir mér, þar sem þær tillögur eða kröfur voru munnlegar og þar af leiðandi ekki bókaðar formlega hjá okkur. Því er rétt að þeir svari því sjálfir sem lögðu málið fram. En ég get hins vegar sagt það, að samninganefnd ríkisins taldi að þarna væri komin fram ný krafa sem myndi þýða verulega hækk- un, en hvaða mat kennarar leggja á þá skoðun samninganefndar ríkisins, get ég ekki sagt um. Ég veit einnig að það er bréf á leiðinni til mín frá Félagi íslenskra náttúrufræðinga. Og það eru margir fleiri hópar. Má þar nefna Iðjuþjálfa, Félag íslenskra fræða, sálfræðinga og næringafræðinga. Það er sem sagt fjöldinn allur af hinum smærri hópum sem búinn er að boða verkfall. Og þau verk- föll fara að skella á, það fyrsta í kvöld og svo eitt og eitt næsta hálfan mánuðinn. Það er svo sem í mörg horn að líta. Fundir eru að hefjast með múrurum, málurum, pípulagn- ingamönnum og veggfóðrurum í Reykjavík, en það eru einu bygg- ingarmennirnir sem eru eftir. Hinn svonefndi uppmælingahóp- ur, eða uppmælingaaðallinn, eins og hann var einu sinni kallaður. „Þessi mánuður og sá nœsti verða sennilega með fjörugra móti hjá. okkur. En vonandi get ég sofið eitthvað svolítið í sumar“, sagði Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis- sáttasemjari. Þannig að þetta er ansi ströng lota núna sem er í gangi. Þetta hafa þó ekki verið neinar óþolandi langar vökur hjá mér í einu, en stundum dálítið fram á nóttina, og ég get ekki betur séð en að svona verði þetta þennan mánuð og þann næsta. En svo hugsa ég mér gott til glóðarinnar og get þá vonandi sofið eitthvað svolítið í sumar!“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari. • n 1111» AAUSTURLANDI í Alþýðublaðinu eru í dag 8 eíður helgaðar Austurlandi og er blaðinu dreift inn á hvert heimili á Austurlandi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.