Alþýðublaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 1
Greiðslustöðvun á Von/Veritas í Danmörku: SKULDAR 2 MILUONIR DANSKAR íslenska meðferðarstöðin á Lálandi undir smásjá yfirvalda vegna vangoldinna launa til danskra iðnaðarmanna. Aðrar skuldir margfaldar. Framkvæmdastjórinn hefur sagt af sér. Stefnir í gjaldþrot? Greiðslustöðvun hefur verið sett á rekstur áfengismeðferðarstöðvar- innar Vqn/Veritas á Láland í Dan- mörku. íslenskir aðilar eiga og reka stöðina að stórum hluta, m.a. þeir Björgólfur Guðmundsson og Hendrik Berndsen. Skiptaréttur í Danmörku úrskurðaði greiðslu- stöðvun á fyrirtækið vegna beiðni danskra iðnaðarmanna sem telja sig eiga um 2 milljónir danskar hjá fyrirtækinu vegna innréttinga og vinnu við að endurhanna skólahús- næði sem fyrirtækið keypti til rekstursins. Forsvarsmenn Von/ Veritas hafa fengið frest til 25. maí að lúka skuldum sínum við iðnað- armennina. Dagsbrún: „Launin þurfa að hækka um 10-15% Laun félagsmanna innan Verkamannafélagsins Dagsbrúnar þurfa að hækka um 10—15% til að jafna út það misgengi sem skapast hefur vegna kjarasamninga sem gerðir hafa verið að undanförnu. Þetta kemur m.a. fram í ályktun aðalfundar félagsins sem haldinn var s.l. fimmtudag. í ályktuninni um kjaramál segir: „Frá síðasta aðalfundi hafa orðið mikil umrót á vettvangi samnings- og kjaramála. Sú launastefna sem ákveðin var með desembersamningum ASÍ hefur ekki hlotið brautargengi í þeim samningum sem á eftir hafa fylgt. Því hefur orðið verulegt misgengi í launaþróun þeirra sem í aðalatriðum fylgdu samningum ASÍ og hinna sem á eftir komu. í ljósi þess að forsendur desembersamninganna eru ekki lengur fyrir hendi, hefur stjórn félagsins krafist endurskoðunar á launalið kjarasamninga félagsins við vinnuveitendur. Aðalfundur Dagsbrúnar haldinn 7. maí 1987 ítrekar kröfur stjórnar félagsins um endurskoðun samninganna. Fundurinn telur að hækka þurfi laun Dagsbrúnarmanna um 10—15% til að jafna út það misgengi sem skapast hefur. Ljóst er að reynsla verkalýðshreyfingarinnar af samningum undanfarinna ára krefst nýrra vinnubragða og breyttra áherslna. Til að tryggja betur samræmi í kjörum og aukinn kaupmátt í stöðugu en þó vaxandi efnahagslífi þurfa samtök íslensks launafólks fyrir sitt leyti að gera verulegt átak í skipulagsmálum sínum. Tengja þarf betur saman samninga á vinnustöðum og innan starfsgreina um leið og félagseiningar eru stækkaðar án þess að það leiði til miðstýringar úr einni átt. Aðalfundurinn felur stjórn félagsins að hafa forgöngu um umræður innan hreyfingarinnar um þessi mál. Þá leggur fundurinn áherslu á að verkalýðshreyfingin knýi á um róttækar breytingar á uppbyggingu atvinnulífsins með stærri og sérhæfðari einingar að leiðarljósi. Um leið verði stefnan í fiskveiðimálum tekin til endurmats og undirstöður efnahagslífsins styrktar. íslenskur verkalýður getur ekki lengur sætt sig við að þurfa að búa við lág laun þrátt fyrir met framleiðslu og góð ytri skilyrðií* Vegur vonarinnar Alþýöublaðið birtir i opnu í dag valda kafla úr ævisögu pólska verkalýðsleiðtogans Lech Walesa. Bók Walesa sem ber nafnið „Veg- ur vonarinnar“ var smyglað út úr Póllandi og var gcfin út hjá franska forlaginu Fayard nýverið. Fyrir nokkrum dögum birti danska blaðiö „Det Fri Aktuelt“ kafla úr bókinni sem endursagðir eru í Alþýðublaðinu. Bokin kem- ur út á dönsku i haust. í „Vegur vonarinnar“ lýsir Wal- esa uppreisn verkamanna við skipastöðvarnar í Gdansk, allt frá 1970, verkföllunum sem urðu að þjóöarhreyfingunni Samstöðu, lokaósigrinum og úthlutun Friö- arverðlauna Nóbels. Lech Walesa Yfirmaður meðferðarstöðvar- innar, Ebbe Christiansen hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 9. apríl. Að sögn danskra aðila sem Alþýðu- blaðið hefur verið í sambandi við, sagði Christiansen upp stöðu sinni í mótmælaskyni við rekstur fyrir- tækisins. Von/Veritas er dótturfyrirtæki Vonarinnar sem rekur áfengismeð- ferðarstöð fyrir skandinavíska áfengissjúklinga á íslandi. Rekstur Von/Veritas á meðferðarstöð fyrir danska áfengissjúklinga í Dan- mörku hófst í september s.l. á Láland. Aðalhluthafar voru Björg- ólfur Guðmundsson fyrrum for- stjóri Hafskips hf., Hendrik Bernd- sen, fyrrum forstjóri Blóma og ávaxta og Þorsteinn Viggósson. Þorsteinn seldi sinn hlut í fyrirtæk- inu í fyrra en aðrir íslenskir aðilar hafa komið inn í fyrirtækið. Þá er Von/Veritas að hluta til í danskri eigu. Að sögn danskra heimilda hefur rekstur stöðvarinnar verið brösóttur, fáir sjúklingar fengist í meðferð og margir hverjir ekki greitt fyrir meðferðina. Þá hefur hár rekstrarkostnaður verið gagn- rýndur. Gangi forsvarsmenn Von/ Veritas ekki frá skuldunum fyrir 25. maí, má búast við að fyrirtækið verði lýst gjaldþrota. Sjúkrastöðin Von/Veritas var að langmestu leyti kostuð með lánsfé og voru það einkum tvö dönsk fyr- irtæki sem lögðu fram fé í því sam- bandi. Þetta voru Lálandsbanki og AB-finans, sem nú standa frammi fyrir því að tapa stórfé. Heildar- stofnkostnaður stöðvarinnar var á sl. hausti áætlaður um 5,5 milljónir danskar, en þar af var kaupverð gamals skólahúss, sem stöðin hefur verið rekin í, um 3,5 milljónir. Jón Baldvin hjá forseta „Þessar viðræður voru hvort tveggja í senn, gagnlegar og ánægjulegar," sagði Jón Baldvin Hannibalsson þegar hann kom af fundi með forseta íslands í gær- morgun. Jón Baldvin kvaðst hafa skýrt forseta íslands frá því, að hann teldi þann tíma sem forseti hefði veitt forystumönnum stjórn- málaflokkanna til óformlegra könnunarviðræðna, hafa komið að góðum notum. Þessi aðferð væri í alla staði skynsamlegri en að hefja stjórnarmyndunarviðræður með formlegu umboði áður en forystu- mönnum flokkanna hefði gefist tóm til að meta kosningaúrslit og samstarfsgrundvöll við aðra flokka. Það var klukkan hálf ellefu sem forseti kvaddi Jón á sinn fund. Við- talið stóð yfir í 50 mínútur. Viðræð- ur þær sem forseti hefur átt við for- menn flokkanna eru trúnaðarmál, en að fundinum loknum spurði Al- þýðublaðið Jón Baldvin um við- horf hans á þessu stigi óformlegra stjórnarmyndunarviðræðna. Jón Baldvin rifjaði upp að hann hefur nýtt tímann til óformlegra könnun- arviðræðna, fyrst við formann Sjálfstæðisflokksins, því næst við fulltrúa Kvennalistans með hálfs annars tíma fundi daginn eftir að kosningaúrslit lágu fyrir. Og loks við formann Alþýðubandalagsins. Jón Baldvin hefur tekið undir með formönnum annarra flokka, að fyrst beri að láta reyna á mögu- leika til myndunar þriggja flokka stjórnar. Samkvæmt niðurstöðum kosninga er engin slík ríkisstjórn möguleg án Sjálfstæðisflokksins. „Það er grundvallarstaðreynd sem ekki verður framhjá gengið. Af við- ræðum þeirra Þorsteins Pálssonar er ljóst, að það er samstarfsvilji milli Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks. Af ummælum þeirra má einnig ráða að þeir eru sammála í því mati að fyrst beri að láta reyna á málefni Kvennalistans, en jafn- framt hafa báðir lýst áhuga sínum á „nýsköpunarstjórn“, þ.e.a.s. ríkis- stjórn þessara tveggja flokka með aðild Alþýðúbandalagsins. Jón Baldvin tók það skýrt fram að ekki þýddi að ræða við Alþýðu- flokkinn um að gerast ,,-þriðja hjól undir vagni“ fráfarandi ríkisstjórn- ar. Jón sagði að meirihluti þeirrar ríkisstjórnar hefði fallið í kosning- unum og því hlytu nýjar stjórnar- myndunarviðræður að byrja á nýj- um grunni, þ.e, allt á borðinu: Mál- efnasamningur, verkaskipting, stjórnarforysta, þar sem þrír flokk- ar ræðast við á jafnréttisgrundvelli.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.