Alþýðublaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 21.08.1987, Blaðsíða 1
MÞYBUBUBID - ----STOFNAD ] _ Föstudagur 21. ágúst 1987 | 1919 j-”——^ tb|™ árg. Jón Sigurösson viðskiptaráðherra: „MÁLIÐ VERÐUR LEYST" „Þetta mál þarf að leysa og það verður leyst,“ sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra í samtali við Al- þýðublaðið í gær. Jón sagði enn- fremur að ákvörðun í Útvegs- bankamálinu yrði liklega tekin eftir helgi. Ríkisstjórnarfundi sem halda átti um málið i gær var frestað óákveðið.“ Þetta er á borðinu hjá mér og það er ég sem tek endanlega ákvörðun,“ sagði Jón Sigurðsson. Viðskiptaráðherra fundaði með til- boðsgjöfum í gær, en varðist allra frétta um niðurstöður þeirra funda. Hann sagði einungis að málin yrðu án efa áfram rædd fram yfir helgi. Samkvæmt heimildum Alþýðu- blaðsins er sú lausn æ sterkar inn í myndinni að rikið selji Samband- inu Búnaðarbankann en aðilarnir 33 fái Útvegsbankann. Þar með væri væntanlega komin ró á Sjálf- stæðisflokkinn, stjórnarsamstarfið og tilboðsgjafana.“ Það getur vel verið að það sé lag til að róa nú og snúa andstreymi í meðbyr. Þetta gæti gefið betra tækifæri en marg- ur hugði, til að framkvæma stærra skref í stefnu ríkisstjórnarinnar í bankamálum,“ sagði viðskiptaráð- Enn ber mikið á milli í samninga- viðræðum fulltrúa ríkisins og líf- eyrissjóðanna um vexti og lánstíma á skuldabréfum frá Húsnæðis- stofnun. Samtök lífeyrissjóðanna hafa bæði hafnað tilboði ríkisins og i gær var ekki vitað hvort sam- tökin legðu fram gagntilboð fyrir helgi. Á sameiginlegum fundi full- trúa Landssambands lífeyrissjóða og Sambands almennra lífeyris- sjóða sl. miðvikudag tókst sam- komulag um að standa saman að samningsgerðinni. í gær voru aðeins þreifingar í „Máliö er á boröinu hjá mér og það erég sem tekendanlegaákvöröun," segir Jón Sigurðsson viðskiptaráö- herra. herra aðspurður um Búnaðar- bankalausnina. Afstaða sjálfstæð- ismanna í málinu virðist hins vegar enn óljósari og hefur sérstök skoð- anakönnun sem forsætisráðherra gangi milli samningsaðila og hafði ekki verið boðað til formlegra við- ræðna. Væntanlegir íbúðakaup- endur verða því enn að bíða eftir að útgáfa lánsloforða hefjist hjá Hús- næðisstofnun ríkisins. Stofnunin hefur ekki gefið út lánsloforð síðan í mars vegna þess að ósamið hefur verið við sjóðina. Talið er að hátt á þriðja þúsund manns bíði eftir svari frá Húsnæðisstofnun. Hjá lífeyrissjóðunum hafa kom- ið fram hugmyndir um 7,5% vexti vegna skuldabréfakaupa á árinu 1988 og ’89. Ríkið hefur hins vegar boðið 6,25% vexti umfram verð- „Það er ekki á stigi stjórnarslita,“ segir Þorsteinn Pálsson forsætisráöherra — Búnaðar- bankalausnin æ sterkar inn í myndinni. lét framkvæma hjá flokknum ekki auðveldaó ákvörðunartökuna. For- sætisráðherra hafnar algjörlega til- boði Sambandsfyrirtækjanna og er að svo stöddu ekki rciðubúinn að taka afstöðu til þess hvort selja eigi SÍS Búnaðarbankann. „Málið er ekki komið á það stig,“ sagði Þorsteinn Pálsson for- sætisráðherra í gær þegar blaða- maður Alþýðublaðsins spurði hann hvort slíta ætti stjórnarsamstarfinu næði meirihluti ríkisstjórnarinnar samkomulagi um að selja Sam- bandinu og nokkrum fyrirtækja þess hlutabréf ríkisins í Útvegs- banka íslands h.f. Forsætisráð- herra lét með skipulögðum sím- hringingum frá Valhöll kanna sjón- armið flokksráðsmanna, um 250 talsins, til málsins. Meirihluti var þeirrar skoðunar að slíta ætti sam- starfinu stæðu Alþýðuflokkur og Framsókn saman um að selja Sam- bandinu. Aðspurður um eigin skoð- un sagði Þorsteinn: „Það þarf ekki að koma á óvart að ég er þeirrar skoðunar að taka eigi tilboði aðil- anna 33ja. — Það er ekkert nýtt.“ Hann sagði aðspurður að þetta væri ekki pólitískt mat, heldur ein- tryggingu vegna kaupa á árinu 1988, í stað 5,9% sem gildandi sam- komulag gerir ráð fyrir. Á árinu 1989 býður ríkið 6% og 5,75% á ár- inu 1990. í tilboðinu felst að láns- tími verði 25 ár á skuldabréfunum fyrir árið 1988 30 ár fyrir ’89, og 35 ár fyrir skuldabréf á árinu 1990. „Það er enn sem komið er mjög langt á milli aðila. Menn eru að reyna að skoða málin betur og finna flöt og það er fullur vilji hjá báðum aðilum að reyna að ljúka þessu sem allra fyrst,“ sagði Hrafn Magnús- son framkvæmdastjóri í samtali við Alþýðublaðið í gær. „Þaö veröur ekki afgreitt af viöskiptaráöherra f ágreiningi við forsætisráöherra,“ segir Þorsteinn Pálsson forsætisráöherra. falt mat á þeim tilboðum sem fyrir liggja. „Tilboðið er einfaldlega hag- stæðara fyrir ríkissjóð." Komið hefur fram að Sambands- fyrirtækin eru reiðubúin að kaupa öll hlutabréf ríkisins og hækka út- borgun, líkt og gengið er útfrá í til- boði aðilanna 33ja. Sambandið lagði tilboð sitt fram á undan og forystumenn benda á að ekki sé um uppboðsmarkað að ræða, heldur beri að taka tilboðinu sem kom á undan. Einnig hefur verið látið að því liggja að í tilboði aðilanna 33ja sé ekki gerð nægileg grein fyrir tryggingum. Þorsteinn sagði um þessi atriði að fyrir lægi lögfræði- legt álit sem viðskiptaráðherra afl- aði, þar kæmi fram að fullkomlega væri heimilt að taka hvoru tilboð- „Það er vissulega komin fram greinargerð um þetta frá Stefáni Má, lagaprófessor við Háskólann. Það er auðvitað maður sem veit hvað hann syngur, en ég vil helst sjá rökin með eigin augum,“ sagði Friðjón Þórðarson alþingismaður í samtali við Alþýðublaðið í gær- morgun aðspurður um afstööu hans til tilboðanna í hlutabréf ríkis- ins í Útvegsbanka íslands. Friðjón hefur verið í kjördæmi sínu, á Vesturlandi, undanfarna daga og sagðist ekki hafa kynnt sér málið nægilega vel. Hann sagðist meðal annars eiga eftir að kynna sér orðalag útboðsins. Friðjón var sem kunnugt er dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen og er menntaður lögfræðingur. „Það er auðvitað ekki hægt að brjóta lög á Sambandinu frekar en öðrum,“ sagði Friðjón þegar hann var spurður hvort eitthvað væri því til fyrirstöðu að selja Sambandinu ef niðurstaðan væri um réttinn þeirra megin. Komið hefur fram sem hugsanleg lausn á málinu að selja Samband- inu sem væri. „Þessum tilboðum hefur ekki verið breytt og niður- staðan hlýtur því að vera augljós og fráleitt að hafa hana á annan veg,“ sagði forsætisráðherra. Viðskiptaráðherra hefur bent á að Útvegsbankamálið sé á hans borði og tilheyri hans fagráðuneyti. „Það er ég sem tek endanlega ákvörðun,“ sagði Jón Sigurðsson m.a. í samtali við Alþýðublaðið. Það hefur einnig verið bent á að málið sé ekki þess eðlis né af þeirri stærðargráðu að tilefni sé til að taka það út af borði fagráðherra. „Þetta er auðvitað mjög stórt mál og það verður ekki afgreitt öðruvísi en þeir aðilar sem taka þátt í ríkis- stjórninni fallist á það. Það verður ekki afgreitt af viðskiptaráðherra í ágreiningi við forsætisráðherra, það liggur í augum uppi,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Hann sagði ennfremur að ekki væri deilt um það að fjalla ætti um málið í ríkis- stjórn, né deilt um að málið væíi stjórnarfarslega í höndum við- skiptaráðherra. „Það er óumdeilt en málið er af þeirri stærðargráðu að um það er fjallað í ríkisstjórn. Nefnt hefur verið sem lausn á málinu að ríkið grípi nú tækifærið og selji Búnaðarbankann fyrst svo mikill áhugi er fyrir hendi um kaup á ríkisbönkum. Sjónarmið sjálf- stæðismanna virðast hins vegar í þá átt að ekki sé sama hverjum sé seld- ur banki og því sé jafn óhugsandi að sjálfstæðismenn vilji selja SÍS Búnaðarbankann, og þeir virðast tregir til að selja þeim Útvegsbank- ann. „Þetta mál hefur ekkert komið inn á okkar borð ennþá og ég get þess vegna ekki tekið afstöðu til þess,“ sagði Þorsteinn. inu Búnaðarbankann. Friðjón sagði að það væri algjörlega óskylt mál. „Það er auðvitað stórmál líka, sem ég er ekki viss um að allir sam- þykki á stundinni," sagði Friðjón. Friðjón Þóröarson vill sjá rökin meö eigin augum: „Þaö er ekki hægt aö brjóta lög á Sambandinu frekar en öðrum." Hafskipstollurinn: „Nefni enga tölu“ — segir Jón Baldvin fjármálaráðherra. „Ég hef aldrei nefnt neina tölu og tek enga ábyrgð á þeim sem nefndar hafa verið,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson í samtali við Alþýðu- blaðið um skuldbindingar ríkisins vegna Útvegsbanka Islands. Nefnt hefur verið að skuldbindingarnar geti numið um 1500 milljónum króna, en hlutafjárútboð ríkisins er aðeins upp á 764 milljónir króna, sem samsvarar yfirtöku á skuldum bankans hjá Seðlabanka. Ljóst þykir að talan 764 milljónir segi ekki alla söguna. Jón Baldvin sagði að taka þyrfti tillit til þess hver niðurstaða yrði af skuldauppgjöri, hvað mikið lenti á ríkissjóði og hve mikið verði bankans. Einnig á eftir að koma í Ijós hverjar skuldbind- ingar ríkisins verða vegna Iifeyris- greiðslna starfsmanna Útvegsbank- ans. „Allt í allt eru þetta stórar fjár- hæðir og þeim mun brýnna fyrir ríkið að koma hlutabréfunum nú þegar í verð,“ sagði fjármálaráð- herra. Viðræður ríkisins og lífeyrissjóðanna: Mikið ber á milli Friðjón tvístígandi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.