Alþýðublaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 1
Jón Baldvin um rekstrarvanda Landakotsspítala: EKKI BORDLEGGJANDI AD RÍKID KOMI TIL BJARGAR Fjármálaráðuneytið mun krefjast skýringa á því hvers vegna spítalinn fór umfram ramma Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráöherra, segir ekki boröleggjandi að ríkið leggi fram fjármagn til bjargar Landakostsspitala. í helgar- blaði Alþýöublaðsins var greint frá þvi að spítalinn á við gifurlega rekstrarerfið- leika að striða, vegna halla- reksturs síðustu ára. Talið er að vanskil nemi hátt i tvö hundruð milljónum króna. Landakotsspitali er sjálfs- eignarstofnun og stendur því utan við rikisspitalakerfið. Ef björgunaraðgerðir koma ekki til, er talið að loka þurfi deildum. I samtali við Alþýðublaðið í gær sagði Jón Baldvin vitað að spítalinn hefði verið rekinn með halla á árunum 1982;85, svo og á árinu 1986. Við gerð fjárlaga þessa árs lágu hins vegar ekki fyrir staðfestir endurskoðaðir reikningar fyrir árið 1986. Niðurstaóan var því sú að fjárlagatillögur voru miðaðar við afkomu Landakots ’85, en gert ráð fyrir umtalsverðri hækkun rekstrargjalda. Miðað var við tæplega 50% hækkun rekstrargjalda, en á sama tímabili hafði framfærsluvisitala hækkað um 30% og byggingarvísitala um 35%. „Menn töldu því að þarna væri verið að gera býsna vel við stofnunina. Hún ætti að geta starfað innan ramma þessara fjár- lagatillagna," sagði Jón Baldvin. Rikisendurskoöun var falið að fara ofan I saumana á rekstri spítalans. Því verki er nú lokið en tillögur hafa ekki verið ræddar i fjármálaráðu- neytinu, eða fjárlaga- og hag- sýslustofnun. Máliö er til um- fjöllunar í heilbrigðisráðu- neytinu og verður líklega kynnt fjármálaráðuneytinu á næstu dögum. Gert er ráð fyrir því að veigamiklir útgjaldaþættir fjárlaga verði á ári hverju fjárlaga ár eftir ár. tekmr til heildarrannsóknar. Að sögn Jóns Baldvins er undirbúningur hafinn hjá fjár- laga- og hagsýslustofnun, hvað varðar útgjöld I heil- brigðiskerfið, sem eru um 40% af fjárlögum. Megintil- gangur er að draga úr sjálf- virkri útgjaldaaukningu. M.a. hefur verið rætt um, að leita til bandarisks ráðgjafafyrir- tækis, sem hefur sérhæft sig i rannsóknum og tillögum um lækkun tilkostnaðar í rekstri heilbrigðisstofnana. Vandi refabúanna rœddur í ríkisstjórn: EKKI MÁL SKATTGREIÐENDA segir Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra „Aðalatriðið er það að ég fellst ekki á það að skatt- greiðendur geri út sérstakan björgunarfeiðangur og leggi fram fé úr rikissjóöi til þess að greiða meö refabúum. í staðinn legg ég til að þeir aðilar sem hingað til hafa annast stuðning og fyrir- greiðslu til refabúa leysi sin mál sjálfir," sagði Jón Bald- vin Hannibaisson fjármála- ráðherra i samtali við Alþýðu- blaðið. Málefni refabænda sem eiga í gífurlegum erfiðleikum verða til umfjöllunar hjá ríkis- stjórninni í dag. Fyrir liggur álit þingmannanefndar stjórnmálaflokkanna um ráð- stafanir til stuðnings refa- búunum. Þar er m.a. lagt til aö rfkið leggi beint fram 17 milljónir króna. Þessu er fjár- málaráðherra ekki sammála. Þeir aðilar sem hingaö til hafa aöallega annast fjár- hagslega fyrirgreiðslu til loð- dýraræktar, eru fyrst og fremst Stofnlánadeild land- búnaðarins, Framleiðnisjóður og að hluta til Byggðastofn- un. „Ég hef út af fyrir sig engar athugasemdir að gera ef þessar lánastofnanir treysta sér til að gera út björgunarleiðangur vegna refabúa. Hins vegar legg ég til að menn spyrji sig hvert stefna eigi I framtíðinni." Jón Baldvin benti á að lánafyrir- greiðsla hefði verið mjög ótæpileg vegna uppbygging- ar loðdýrabúa og fóður- stöðva. Að sögn Jóns er búið að verja um 700 milljónum króna I formi lána og styrkja á seinustu árum. Ef tekin er fyrirgreiðsla til fóðurstöðva sem samsvarar eignahlut refabúa, þá er búið að verja um 850 milljónum. í mörgum tilfellum er um aö ræða styrki eða lán á niðurgreiddum vöxtum, allt niður I tvö prósent vexti. Þar við bætist niðurfelling á opinberum gjöldum. „Þetta hefur verið gert án þess að skuldbinda þessa fyrirgreiðslu skilyrðum um að búin og fóðurstöðvarnar séu staösett þannig að hag- kvæmni sé gætt við rekstur." Jón Baldvin sagði að landa- fræðin sagði mönnum að fóðurstöðvar væru best komnar í sem mestri nánd við sjávarpláss og loðdýra- búin þyrftu einnig að vera í grennd við fóðurstöðvarnar. í trássi við þetta hafa búin risið tvist og bast um landið. Jón Baldvin sagði að fram- tíðin virtist ekki björt fyrir þessa grein. „En ég tel að ráðstafanir þessara stofnana og sjóða þurfi að miða að því að tryggja áframhaldandi rekstur einhverra af þessum búum til þess að fjárfesting, reynsla og þekking fari ekki forgörðum." Mikið fjölmenni var i Karphúsinu i gær. Fundur hófst með sáttasemjara um tvö leytið og voru fulltrúar mættir frá um 40 félögum víða af landinu. A-mynd/Róbert. SNÓT STUDD AFRAM ASÍlagði 500 þúsund í verkfallssjóðinn Á fundi miöstjórnar Al- þýðusambands Islands i gær var samþykkt samhljóða að leggja 500 þúsund krónur í verkfallssjóð Snótar í Vest- mannaeyjum. Jafnframt skorar miðstjórn ASÍ á öll aðildarfélög að tryggja að hvergi verði gengið inn í störf þeirra sem í verkfalli eru. „Auðvitað hefðum við viljað að fleiri færu að sýna stuðn- ing i verki, en þetta er mjög jákvætt fyrir okkur,“ sagði Vilborg Þorsteinsdóttir for- maður Verkakvennafélgsins Snótar Þegar Alþýðublaðið bar henni fréttirnar í gær. Að sögn Vilborgar hafa framlög verið að berast og segir hún að afstaða mið- stjórnar ASÍ komi til með að styrkja stöðu félagsins enn betur. í gær fór hluti af samning- anefnd Snótar til Reykjavíkur þar sem einnig voru mættir fulltrúar frá tæplega 40 öðr- um félögum á fund með sáttasemjara. Vilborg sagði að Snót hefði farið út í að- gerðirnar til þess að þrýsta á heima fyrir. „Ég finn hins vegar greinilega að atvinnu- rekendur eru að gera sér vonir um að hægt sé að slá þessu saman í einhvern pott. En þaö er ekki þar með sagt að sú verði raunin. Við eigum fyrst og fremst i deilum vió Vinnuveitendafélag Vest- mannaeyja." Arthur Bogason hjá Tinnu sf. i Eyjum fékk gagntilboð frá Snót fyrir helgi. hann hefur síðan haft tilboðið til umhugsunar. í gær var hann ekki búinn að gefa Snótar- konum svar. Snót hefur óskað eftir því við félög viða um land að ekki verði unnið að löndun úr fiskiskipum frá Eyjum á meðan verkfallið stendur. Nokkur félög hafa svarað formlega, m.a. Eining á Akur- eyri sem segir skýlaust að löndun úr Eyjabátum muni ekki fara fram á félagssvæð- inu við þessar aðstæður.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.