Alþýðublaðið - 29.09.1988, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 29.09.1988, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 29. september 1988 3 FRÉTTIR Rimma um ráðherrastóla Jón Baldvin vildi fjármálin # Steingrímur iönaðinn en Ólafur Ragnar utanríkismálin Verkaskiptingu í nýrri ríkis- stjórn Steingrims Hermanns- sonar lyktaði hvorki á þann veg sem formaður Framsókn- arflokksins eða formaöur Al- þýðuflokksins höfðu kosið. Samkvæmt öruggum heimild- um Alþýðublaðsins lagði Steingrimur Hermannsson fram óskalista sinn um skipt- ingu ráðuneyta síðdegis í gær, og lak sá óskalisti til fjölmiðla nær samstundis. Óskir Jóns Baldvins Hanni- balssonar voru hins vegar allt aðrar. Um þessa tvo lista ásamt óskum Ólafs Ragnars Grímssonar var tekist á á löngum fundi formannanna þriggja í nótt. Samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins var óskalisti Steingríms eftirfarandi: Fram- sóknarflokkur fengi forsætis- ráðuneytið (ásamt Hagstofu), sjávarútvegsráðuneytið, iðnaðarráðuneytið og heil- brigðisráðuneytið. Alþýðu- flokkur fengi utanríkisráðu- neytið, viðskiptaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og fé- lagsmálaráðuneytiö. Alþýðu- bandalag fengi fjármálaráðu- neytið, menntamálaráðuneyt- ið, landbúnaðarráðuneytið og samgönguráðuneytið. Óskalisti Jóns Baldvins hljóðaði hins vegar svo, sam- kvæmt heimildum Alþýðu- blaðsins: Framsóknarflokkur: Forsætisráðuneytið (ásamt Hagtofu), sjávarútvegsráðu- neytið, heilbrigðisráðuneytið og iðnaðarráðuneytið. Al- þýðuflokkur: Fjármálaráðu- neytið, utanríkisráðuneytið, félags - og samgöngumála- ráðuneyti. Alþýðubandalag: Viðskiptaráðuneytið, dóms- málaráðuneytið, landbúnaðar- ráðuneytið og menntamála- ráðuneytið. Óskir Ólafs Ragnars Grímssonar voru nokkuð óljósari en m.a. mun for- maður Alþýðubandalagsins farið þess á leit I upphafi um- ræðnanna að fá utanríkis- ráðuneytið í sinn hlut og þá einnig iðnaðarráðuneytið. Þessum óskum höfnuðu Framsóknarflokkur og Al- þýðuflokkur alfarið. Rimmu formannanna um ráðherrastólana lyktaði seint i nótt og á annan hátt en þeir höfðu allir upphaflega kosið — eins og alþjóð veit. Steingrímur afhenti Jóni Baldvin lyklana að utanríkisráðuneytinu eftir rikisráðsfundinn á Bessastööum. Ekki var annað aö sjá en þeir væru sáttir við skiptin. A-mynd/Wlagnús Reynir. KOSIÐ UM HUNDAHALD Kosið verður um hunda- hald í Reykjavík 24. til 30. október n.k. Anddyri Laugar- dalshallar verður kjörstaður og verður kjörskrá sú sama og gilti við forsetakosning- arnar sl. sumar. Er þetta gert i samræmi við reglur um undanþágu frá banni við hundahaldi i Reykjavík, sem gilt hafa s.l. fjögur ár. Á kjör- seðlinum verður spurt: Viljið þér leyfa hundahald í Reykja- vík með þeim skilyrðum, sem gilt hafa síðustu fjögur ár? Ýmis skilyrði eru fyrir leyfi til hundahalds. Má þar nefna að leyfið sé bundið við nafn og heimili eiganda, óheimilt er að selja það, og búi við- komandi í fjölbýlishúsi, þarf skriflegt leyfi sameigenda. Skylt er að ábyrgðatryggja hunda vegna tjóns sem þeir kunna að valda og skal færa þá til hreinsunar árlega, auk þess sem þeir skulu merktir nafni og heimili eiganda. Leyfishafi skal sjá um að hundurinn valdi ekki óþæg- indum eða óþrifnaði. Valdi hundur hættu, sé ekki til leyfi fyrir honum eða gangi hann laus utanhúss skal hann tekinn úr umferð. Heim- ilt er að lóga hættulegum hundum þegar í stað. Leyfis- hafi sem brýtur reglur um hundahald, getur átt á hættu að missa leyfið. Kjörstaður verður opinn mánudag til föstudags frá kl. 16 til 19, og 14 til 20 um helg- ina. Ólympíuleikarnir Martröd gegn Sovét eru þvl engin nýmæli að tapa stórt fyrir þessum austan- tjaldsþjóðum, þær eru ein- faldlega mun betri og blasir ekkert annað við okkur en a gerast B-þjóð á ný. Miðstjórn Alþýðubandalagsins Ásmundur á móti Sovéska handboltalands- liðið beinlinis tætti landslið íslands í sig i Seoul í gær- nótt. Vongóðir og væntingar- fullir landsmenn máttu horfa upp á 19:32 tap í leik sem líktist verstu martröö. 13 marka tap er einhver versta útreið okkar manna sem um getur. Á hinn bóginn er sllkt tap ekkert einsdæmi. Á síðast liðnum 10 árum hefur A- landslið okkar tapað nú sam- tals 11 sinnum með 10 marka mun eða meira. Hálft þetta tímabil hefur Bogdan séð um landsliðið og 4 þessara miklu ósigra gerðust undir hans stjórn. Það er athyglivert að af þessum 11 ósigrum með 10 mörkum eða meira hafa 5 tapast fyrir Sovétríkjunum og 4 fyrir þeirri þjóð sem við mætum nú í keppni um sjö- unda sætið, Austur Þýska- landi! Stærstu ósigrarnir hafa verið 15 marka ósigur (12:27) gegn Sovétríkjunum í Graasten í janúar 1986, 14 marka ósigur (18:32) gegn Ungverjalandi í Barcelona í Mars 1979, 13 marka ósigur (17:30) gegn Sovétríkjunum í Moskvu í desember 1986 og ósigur með sama mun í Seoul nú. Mestu hrakfarir ís- lenska landsliðsins urðu hins vegar árið 1973 í Rostock, þegar okkar menn töpuðu með 21 marka mun (14:35) gegn A-Þýskalandi, næstu andstæðingum okkar. Það Miklar umræður voru á miðstjórnarfundi Alþýðu- bandalagsins á þriðjudags- kvöld þegar greidd voru at- kvæði um stjórnarþátttökuna og stefnuyfirlýsingu rikis- stjórnarinnar. Rúmlega fjórð- ungur fundarmanna greiddi atkvæði á móti og í þeim hóþi var Ásmundur Stefáns- son forseti Alþýðusambands- ins. Samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins var Ásmundur sérstaklega óánægður með ákvæði í stefnuyfirlýsingunni um nýja kjarastefnu, m.a. vegna þess að ekkert samráð hafði verið haft við hann af hálfu félaga hans í Ajlþýðu- bandalaginu sem stóðu í stjórnarmyndunarviðræðun- um. Alþýðublaöinu tókst ekki að ná sambandi við Ásmund Stefánsson i gær. Jón Baldvin Hannibalsson Kveð fjármála- ráðuneytið með söknuði Jón Baldvin Hannibalsson sagðist i gær kveðja fjár- málaráðuneytið með sökn- uði, en jafnframt með stolti. „Þegar ég kvaddi starfsfólkið mitt þar gat ég sagt, sann- leikanum samkvæmt og með nokkru stolti: Við höfum á einu ári komið á stað- greiðslukerfi skatta. Við stokkuðum upp tollakerfið og löguðum það að því, sem er að gerast á meginlandi Evrópu, með einu átaki. Við endurskipulögðum sölu- skattskerfið; komum á eins þreps samræmdum sölu- skatti, sem allir fjármálaráö- herrar í heiminum öfunda okkur af. Og við lögfestum virðisaukaskattsfrumvarpid." Allt eru þetta mál sem eiga aðdraganda langt aftur í tímann. „Það var nokkuð rösklega gert að keyra þetta allt I gegn á einu þingi. Þessar miklu breytingar munu standa. Að þessu leyti er ég ánægður með veru mína þar,“ sagði nýi utan- ríkisráðherrann, en bætti við: „Að vera í fjármálaráðuneyt- inu er að vera galeiðuþræll. Hart djobb. Ráðuneytið er fá- liðað, undirmannað og þeir sem halda þar um stjórnvöl- inn eru afbragðsmenn. Það er mér hins vegar eftirsjá, að ég var ekki búinn að Ijúka mínu verki.“ Jón Baldvin sagði að þýð- ingarmikil göt hefðu verið eftir, þótt búið hefði verið að endurskoða fjóra fimmtu af tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs: „Að endurskoða frá grunni skattlagningu fyrirtækja og taka upp skynsamlega lög- gjöf um skattlagningu fjár- magnstekna. Rannsaka betur og aðlaga þetta nýja skatta- kerfi að tekjujöfnunaráhrifum þess og loks meö lengri tíma, að endurskipuleggja frá grunni alla framkvæmd skattakerfisins. Bæta þjón- ustu við skattgreiðendur jafn- framt því að bæta skattskil og innheimtu. Grafa þar með gröf þeim ömurlega móral, sem hefur spillt þessu þjóð- félagi. Þessi mórall felst í þvl, að menn geta ekki treyst því að einhverjir forréttinda- hópar velti ekki sanngjörnum byrðum yfir á aðra. Þetta hefði ég gert ef ég hefði fengið ár í viðbót. Ég sé eftir því,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.