Alþýðublaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 3
Miövikudagur 30. nóvember 1988
3
FRÉTTIR
W
Útvarp
w
NYJAR STOÐVAR SKJOTA UPP KOLLINUM
Utvarpsstöðin Hljóðbylgjan
á Akureyri mun á morgun
hefja útsendingar í Reykjavík
og telur Pálmi Guðmundsson
útvarpsstjóri að þrátt fyrir
samdrátt á auglýsingamark-
aðnum muni stöðinni takast
að ná til sín nokkrum hluta,
ekki síst vegna lægra auglýs-
ingaverðs en á öðrum stöðv-
um. Fram til áramóta mun
Hljóðbylgjan senda út bæði
frá Akureyri og Reykjavík. Þá
eru þrír ungir Akureyringar
að hefja sendingar á Akureyri
undir nafninu Ólund.
Að sögn Pálma Guðmunds-
sonar útvarpsstjóra Hljóð-
bylgjunnar munu útsending-
arnar sem hefjast á morgun
ná yfir sama svæði hér sunn-
anlands og Bylgjan og
Stjarnan að Vestmannaeyjum
frátöldum. Sent verður út
bæði frá Reykjavík og Akur-
eyri og þvi þörf fyrir tvöfaldan
mannskap. „Það er dýrt fyrir
okkur að gera þetta, en eftir
áramót fáum við línu að norð-
an.“
Hljóðbylgjan erorðin 1 1/2
árs gömul og sagði Pálmi
Stéttarsamband bœnda
SAKAR RÁÐHERRA
UM RANGFÆRSLUR
Stjórn Stéttarsambands
bænda harmar ummæli Jóns
Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra á flokksþingi Alþýðu-
flokksins þar sem hann kem-
ur fram með þá hugmynd um
að efna til herferðar meðal
almennings um að hætta að
kaupa frá vissum svæðum
landsins ákveðnar kjötteg-
undir til að knýja fram bann
við lausagöngu búfjár með
áherslu á gróðurvernd. Telur
Stéttarsambandið að ráðherr-
ann fari beinlínis með rangt
mál.
Stjórn Stéttarsambandsins
bendir á að engin hross séu í
lausagöngu á umræddum
afréttarsvæðum, að kjöt í
smásölu sé á engan hátt að-
greint eftir framleiðslustað
og því yrði með aðgerðum
ráðherrans gerð atlaga að öll-
um kinda- og hrossakjöts-
markaði í landinu. Þá benda
bændur á að umbylting hafi
orðið í beitarmálum á..undan-
förnum árum, sauðfé hafi
fækkað um þriðjung á einum
áratug og sérstaklega á þeim
svæðum sem Landgræösla
ríkisins telur að njóta þurfi
sérstakrar verndar. Ríkisút-
gjöld tengd landbúnaði hafi
svo farið lækkandi sem hlut-
Á skyggðu svæðunum hefur
sauðfé fækkað á árunum 1977-
1987 um 110 þúsund eða 30,34%.
Stéttarsambandið bendir á að
sauðfjárbændur á þessum svæð-
um hefi fengið hagstæðustu til-
boð sem fram hafa komið um kaup
og leigu á fullvirðisrétti, unnin i
samráði við Landgræðslu ríkis-
ins. Með öðrum orðum er þetta til-
boð um fækkun sauðfjár til gróð-
urverndar.
fall af öllum rlkisútgjöldum
undanfarin ár og stórlega
dregið úr fjárfestingum og
vöruinnflutningi til landbún-
aðar. í Ijósi þessara atriða
virðast ummæli viðskiptaráð-
herrans byggö á ónógri þekk-
ingu.
Jón Sigurðsson í kratakaffi
Kratakaffi hefst að nýju i
kvöld eftir nokkurt hlé. Ráð-
gert er að halda þeim áfram
fram undir jól og siðan viku-
lega eftir áramót.
I kvöld verður Jón Sigurðs-
son viðskipta- og iðnaðarráð-
herra gestur kvöldsins og
gefst fólki því kostur á að
ræða viö hann um þjóðmálin
almennt. Að sögn Asgerðar
Bjarnadóttur hefur kratakaff-
ið fallið niður að undanförnu
vegna stjórnmálaskóla Al-
þýðuflokksins og landsfund-
ar flokksins, en nú sé mein-
ingin að halda áfram á hverj-
um miðvikudegi fram til jóla
og síðan eftir áramót.
Þessir fundir hafa vakið
athygli fyrir það hve óform-
legir þeir eru og sagði Ás-
gerður að aðsókn hafi
almennt veriö mjög góð.
Kratakaffið er að Hverfisgötu
8-10 og hefst klukkan 20:30.
Arafat neitað um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna
JÓN BALDVIN HARMAR
AFSTÖÐU BANDARÍKJAMANNA
„Utanrikisráðherra, Jón
Bafdvin Hannibalsson, harm-
ar ákvörðun bandariskra
stjórnvalda um að neita
Yassir Arafat, leiðtoga Frels-
issamtaka Palestínu (PLO),
um vegabréfsáritun tii Banda-
ríkjanna og hindra þannig að
hann geti ávarpaö allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna,“
segir í frétt frá utanríkisráðu-
neytinu.
Án tillits til afstöðu Banda-
rikjanna til PLO, telur utanrík-
isráðherra umrædda stjórn-
valdsaðgerð vera brot á
skyldum Bandaríkjanna sem
'gistilands Sameinuðu þjóð-
anna og skapa hættulegt for-
dæmi um pólitisk afskipti af
starfsemi þeirra.
reksturinn hafa gengió vel
hingað til og væri farið af
stað í Reykjavík af bjartsýni.
Þrátt fyrir að útlit sé fyrir
samdrátt hjá öðrum útvarps-
stöðvum t.d. i auglýsingum
sagði Pálmi að í þeirra tilfelli
væru þeir að fara af litlu
svæði yfir á svæði sem sé
u.þ.b. tíu sinnum stærra. „Við
teljum að þarna sé miklu
stærri auglýsingamarkaður.
Þó svo að við séum að keppa
þar við nokkra stóra aðila,
teljum við okkur geta náð
einhverju inn, ekki síst þar
sem auglýsingaverð hjá okk-
ur er mun lægra en hjá öðr-
um stöðvum."
Pálmi sagði að nokkur
áhersla yrði lögð á eldri tón-
list t.d. frá sjöunda og átt-
unda áratugnum. Ekki verði
neinar fréttir á stöðinni, en
áhersla verði frekar lögö á
viðtöl inni í þáttum og ýmsar
nytsamar upplýsingar. I
Reykjavfk verður sent út frá
klukkan 8 á morgnana til
klukkan 1 að nóttu, en um
helgar verður sent út frá
klukkan 9 til klukkan 4 að
nóttu. Hljóðbylgjan í Reykja-
vík verður á FM 95,7 og sagö-
ist Pálmi vilja hvetja útvarps-
hlustendur til að stilla stöð-
ina og heyra nýjar raddir og
skemmtilega dagskrá.
En það eru fleiri útvarps-
stöðvar að hefja útsendingar
á öldum Ijósvakans. Útvarps-
stöðin Ólund mun senda út i
fyrsta sinn á Akureyri á föstu-
daginn. Aðstandendur henn-
ar segja stöðina vera frá-
brugðna öllum öðrum stöðv-
um. Það eru þrír ungir Akur-
eyringar sem að Ólund
standa og er öll vinna við
hana unnin i sjálboðavinnu.
Gert er ráð fyrir að félög og
einstaklingar geti keypt sér
útsendingartíma á stöðinni.
Útvarpað verður frá klukkan
19 öll kvöld miðnættis, en frá
klukkan 17 á föstudögum og
laugardögum. Stefna Ólundar
er að mælt mál veröi til hálfs
við tónlist, en hún verði frá-
brugðin tónlist annarra
stöðva. Þá verður hálftima
fréttatími á dag með nýrri
áherslu í fréttamati.
Arnarflug í erfiðleikum
Þingmenn tregir í taumi
Pilsfaldakapítalisminn mœtir andstöðu en á móti kemur uggurinn um
einokunaraðstöðu eins aðila.
Ríkisstjórnin skoðar nú
þann möguleika aö veita Arn-
arflugi aðstoð á einhvern hátt
vegna mikilla rekstrarerfið-
leika félagsins. Tap þess
fyrstu 9 mánuði ársins nam
100 milljónum króna og eig-
infjárstaðan er mjög bágbor-
in. Hlutafjáraukning félags-
ins hefur mistekist i stærstu
dráttum og fyrirtækið hefur
verið rekið með tapi flest hin
síðari ár. Nú er sérstaklega
rætt um að fyrirtækið selji
aðra þotu sína og að ríkið
hlaupi undir bagga með þvi á
einn hátt eða annan, gerist
jafnvel hluthafi. Þingmenn
virðast tvistígandi í máli
þessu af samtölum blaðsins
við nokkra þeirra í gær að
dæma.
„Mér þykir afar illt að heyra
að Arnarflug skuli eiga í
þessum erfiðleikum, ég tel
að fyrirtækið sinni hér á ýms-
an hátt mjög mikilvægu hlut-
verki. Það er viss samanburð-
ur á milli flugfélaganna og
þeim hefur tekist að byggja
upp ótrúlega vel flugið til
Amsterdam til dæmis. Það er
hins vegar vitanlega alvöru-
mál ef ríkissjóður gerist hlut-
hafi í einu félagi, eins og
gerðist þegar ríkissjóður varð
hluthafi í Flugleiðum þegar
það fyrirtæki átti í svipuðum
erfiðleikum á sínum tíma.
Þetta er mál sem verður að
skoða mjög vandlega, hvort
það er hægt að koma Arnar-
flugi yfir þessa erfiðleika nú
og nota tímann til að skoða
hvort t.d. samvinna á milli
Arnarflugs og Flugleiða komi
til greina. Ég held að við
þurfum á slikri samvinnu að
halda í þeirri vaxandi sam-
keppni í flugi hingað til lands
á næstu árum“ sagði Stein-
grímur Hermannsson forsæt-
isráðherra um málið í gær.
„Það hefur ekkert verið
fjallað um þetta mál sérstak-
lega meðal sjálfstæðis-
manna og sjálfur hef ég ekki
skoðað stööu Arnarflugs
eins og hún er í dag og get
því ekki metið hana. Almennt
teldi ég það hins vegar spor
aftur á bak að rikið gerðist
hluthafi í fyrirtækinu. Það
sem fyrst og fremst þarf að
gerast, sem kæmi fyrirtæk-
inu til góða, er að skapa skil-
yrði fyrir atvinnureksturinn
almennt. Það leiðir af sjálfu
sér að þessi fyrirtæki eins og
hver önnur eiga að geta stað-
Fridrik Þór
Guðmundsson
skrifar
ið á eigin fótum
er að tala um almenn rekstr-
arskilyrði, en ekki miðstýring-
ar- og millifærsluhugmyndir
sem uppi eru. í þessu dæmi
er sjálfsagt að samkeppni sé
ríkjandi, en þá verður það að
vera á þann hátt að allir aðil-
ar sitji við.sama borð“ sagði
Matthías Á. Mathiesen þing-
maður Sjálfstæðisflokksins
og fyrrverandi samgönguráð-
herra.
Þórhildur Þorleifsdóttir
Kvennalista kvaðst einnig
hafa of litlar upplýsingar í
málinu til að úttala sig um
það. „Mér finnst það hins
vegar of hættulegt að aðeins
eitt fyrirtæki sjái um alla
flutninga í lofti, það óneitan-
lega gefur einokunaraðstöðu
og hefur þá áhrif á fyrirkomu-
lag, miðaverð og annað. En
forsenda þess að til rikisað-
stoðar komi hlýtur að vera,
að það sé einhver samvinna
á milli félaganna þannig að
samkeppnin sé á heilbrigö-
um grunni — að ekki sé verið
að fljúga á sama stað á sama
tíma. Með öðrum orðum þarf
að vera bæði aðhald og sam-
vinna og hagræðing eftir því
sem við verður komið. Ef til
fyrirgreiðslu þarf að koma
verður hún að byggjast á ein-
hverjum raunhæfum áætlun-
um til þess að það verði ekki
enn einn bagginn sem hægt
yrði að velta yfir á ríkið."
Vitað er að innan Alþýðu-
flokksins er talsverð tregða
rikjandi gagnvart því að veita
Arnarflugi ríkisaðstoð eða að
ríkið gerist þar hluthafi. Árni
Gunnarsson varö fyrir svör-
um um málið. „í þessu máli
óttast ég ekki svo um minnk-
andi samkeppni gagnvart
Flugleiðum, ég hygg að hún
sé að verða svo mikil á næst-
unni að það komi varla til að
Flugleiðir geti notað þann
einkarétt sem þær hafa á til-
teknum flugleiðum. Þá á ég
auðvitaö við vaxandi hlut er-
lendra aðila á næstunni. Töl-
ur um innanlandsflugið
benda ekki beinlínis til þess
aó það sé keppikefli að halda
þeim flugleiðum áfram. Mér
finnst persónulega fráleitt að
rikið fari að leggja til stórar
fjárhæðir til þess að halda
þessu flugi áfram og ég held
að hluthafarnir verði að axla
þá ábyrgð sem því fylgir að
vera hluthafi i svona fyrir-
tæki, ef þeir hafa trú á þvi að
þetta geti gengið, þá eiga
þeir um leiö að auka hlutafé,
að afla fjár til þess. Mér
finnst að rikið sé búið í gegn-
um tiðina aó hlaupa í allt of
miklum mæli undir bagga hjá
einkarekstrinum. Þegar
svona er komið er rétt að tala
um pilsfaldakapítalisma í fin-
ustu merkingu þess orðs.
Á hinn bóginn finn ég til
með þessu áhugasama fólki
hjá Arnarflugi, sem hefur
gert marga góöa hluti og rek-
ið félagið af miklum dugnaði.
En ég held að þetta sé röng
stefna og einhvern voginn
held ég að siðasta björgunar-
aðgerðin hafi verið til þess
að bjarga Útvegsbanka ís-
lands, sem þá var i miklum
erfiðleikum vegna Hafskips-
málsins. Ég hygg að ef Arnar-
flug færi á hausinn færi
Útvegsbankinn sömu leið,
þar á milli munu vera miklar
skuldir."
Innan Borgaraflokksins
hefur ekki verið mótuð ákveð-
in ein stefna í þessu máli, en
Guðmundur Ágústsson sagði
það sitt viöhorf að nauðsyn-
legt væri að hafa hér tvö
flugfélög. „Við sjáum hvað
hefur gerst eftir að Hafskip
lagðist niður, að Eimskipafé-
lagið hefur náð mikilli einok-
unaraðstöðu og nýtt sér hana
út í ystu æsar. Farið að ná
tökum á ekki bara flutningun-
um heldurog ferðaskrifstofu-
rekstri, hótelrekstri, fiskeldi,
fjárfestingafélögum og fleira.
Eitt flugfélag er óæskilegt,
en annað mál hvort ríkið eigi
að gerast hluthafi í Arnar-
flugi. Ég held aö það sé
skylda gagnvart almenningi
að ríkið geri það sem það
getur til að halda þessu fyrir-
tæki á floti og mætti í þvi
sambandi hugsa sér þann
möguleika að ríkið lánaði til
ákveðins tíma þessar 80
milljónir sem það er búið að
leysa til sín með rfkisábyrgð-
inni.“