Alþýðublaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 1
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um ríkisreikning árið 1987 DÆMI UM 1600 YFIRVINNUTÍMA HJÁ EINSTAKA STARFSMÖNNUM Viðgerðarkostnaður þriggja bíla lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli nam 3,7 milljónum króna Rikisendurskoðun hefur gert athugasemd við viðgerð- arkostnað bifreiða hjá embætti lögreglustjóra á Keflavikurflugvelli. A síðasta ári var viöhaldskostnaður þeirra þriggja bíla sem við- haldsfrekastir voru samtals 3,7 milljónir kr. en svæðið sem bílarnir eru notaðir á er ekki stórt og mestallt á bundnu slitlagi. Telur Ríkis- endurskoðun þetta alltof háan viðgerðarkostnað sem nauðsynlegt sé að taka til endurskoðunar. Þetta kemur fram i glæ- nýrri skýrslu frá Ríkisendur- skoðun um endurskoðun rík- isreiknings fyrir árið 1987. Þar eru gerðar athugasemdir við starfsemi fjölmargra rikis- stofnana og taldar upp ástæður þar sem farið hefur veriö fram ur fjárlögum. Rikisendurskoðun gerir m.a. athugasemdir við bók- hald Háskólabíós. Kemur fram að bókhald fyrirtækis- ins er ekki með þeim hætti sem gera verður kröfu um. ‘ „Athugasemdir hafa verið gerðar um slaka innheimtu, skort á uppgjöri og greinar- gerö frá innheimtulögfræð- ingi, ásamt ónákvæmni í skýrslugerð," segir í skýrslu Rikisendurskoðunar. Þá kemur fram að Ríkis- endurskoðun hefur gert fjölda athugasemda við reikningsskil Bændaskólans á Hólum. Athugasemdum á undanförnum árum hefur Stjórn Verkamannafélags- ins Hlifar i Hafnarfirði hefur sent frá sér áskorun á mið- stjórn Alþýðusambands ís- lands að hafa forgöngu að víðtækum mótmælaaðgerð- um vegna afnáms samnings- réttar og kaupfrystingar. Leggur Stjórn Hlifar til að fyrstu mótmælin verði þau að launþegar fari sér hægt við vinnu i einn eða tvo daga. Engin fordæmi eru fyrir því að samtök launafólks taki höndum saman með mót- mælaaðgerðum af þessu tagi en Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, segir að þetta hafi stundum verið rætt og hann hafi sjálfur orðað þenn- an möguleika á formanna- fundi samtakanna s.l. sumar. Ásmundur sagði i samtali við Alþýðublaðið að þessi leið kæmi til álita innan sam- takanna þegar rætt verður um hvernig haga beri samn- ekki verið svarað þrátt fyrir ítrekanir og telur Rikisendur- skoðun það með öllu óviðun- andi. Ríkisendurskoðun telur aó Þjóðleikhúsið verði aldrei fært um að greiða niður skuldabagga sinn sem nam tæplega 129 milljónum kr. um síðustu áramót, „og að óraunhæft sé að taka ekki á þessu máli bæði til skamms tíma og til lengri tíma og gera forsvarsmönnum hennar kleift að reka stofnunina skv. raunhæfum áætlunum," seg- ir þar. Vakin er athygli á að vinnu- ingaviðræðum á næsta ári. „Nú erum við að athuga hvernig staðið verði að þeim samningum sem eru fram- undan og hvaða áherslur verða gerðar í kröfugerð. Við munum nota janúar til að móta okkar linur. Það er stefnt að formannafundi fljót- lega eftir áramót og þar verð- ur rætt um það frekar hvernig við beitum okkur í samning- unum og til að tryggja það að þeir fái staðist.,“ sagði hann. Undanfarið hafa staðið yfir viðræður innan miðstjórnar ASÍ um línurnar fyrir samn- ingana á komandi ári en Ás- mundur sagði að þær um- ræður ættu líka eftir að fara fram innan aöildarfélaganna og engar ákvarðanir hefðu verið teknar- hvorki um kröfu- gerð né hvernig staðið verði að samningunum. Ásmundur sagði að þrátt aflsnotkun er viða ábótavant. Hafa yfirskoðunarmenn ríkis- reiknings rekist á nokkur dæmi þess, að einstakir rík- isstarfsmenn hafi fengið greiddar um eða yfir 1600 yfirvinnustundir á árinu. „Slíkt vinnuframlag er með ólíkindum og bendir til að pottur sé brotinn í skipulagi eða stjórnun," segir í skýrsl- unni. I árslok 1987 skulduðu inn- heimtuembætti í ríkissjóöi rúmar 237 milljónir kr. en áttu á móti í sjóöi og á banka- reikningum rúmar 263 mill- jónir kr. Gerir Ríkisendur- fyrir að aðgeróum á borð við þær sem Hlíf mælir meó hafi aldrei verið beitt sem al- mennum aðgerðum verka- lýðssamtaka hafi þetta oft verið reynt á einstökum vinnustöðum. „Það er á margan hátt auðveldara að beita þessari aðgerö á af- mörkuðum sviðum,“ sagði hann. í ályktun Hlífar segir að það gerist sífellt algengara að íslensk stjórnvöld setji lög sem afnemi sjálfsögð mannréttindi. „Það oft hafa þau leikið þennan leik að hætta er á að hann fari að verða þeim vanabundinn, nema samtök launafólks hefjist nú þegar handa um að skipuleggja og framkvæma víðtækar mótmælaaðgerðir er komi stjórnvöldum í skiln- ing um að afnám samnings- réttar og kaupfrysting verði skoðun sérstaklega athuga- semdir við skil sýslumanns- embættisins á Blönduósi sem stofnunin segir að „hafi ekki verió meö þeim hætti sem áskilja verður af inn- heimtumönnum ríkissjóós. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað gert athugasemdir við skil embættisins á inn- heimtufé ríkissjóðs, en þrátt fyrir það hefur embættið haldið uppteknum hætti og notað fé rikissjóðs i ýmsa lánastarfsemi," segir í skýrsl- unni. Þá er og gerð athugasemd við skipulag fangelsismála ekki liðin,“ segir þar enn- fremur. En af hverju er stungið upp á þeirri aðgerð að launþegar fari sér hægt við vinnu? „Að minu viti og margra annarra er þetta sú aðgerð sem viö ættum oftast aö grípa til,“ sagði Siguröur T. Sigurðsson formaður Hlifar. Og aðgerð- irnar felast í eftirfarandi að sögn Sigurðar;„Það er aö mæta á vinnustaðinn, finna ekki verkfærin, fara sér hægt við vinnu, segja já viö öllu en passa vel upp á að afköstin verði í algjöru lágmarki. Brosa svo út að eyrum út af öllu saman. Þetta hefur geng- ið á einstökum vinnustöðum og atvinnurekendur geta ekk- ert gert viö þessu ef samtök eru um aðgerðirnar. Þetta er sú mótmælaleið sem við mælum með,“ sagði Sigurður I samtali við Alþýðublaðið. og fangavarða. Segir „að vegna smæöar fangelsanna eru fangaveróir mun fleiri en vera þyrfti ef rekstrareining- arnar væru stærri. Lætur nærri að fjöldi starfsmanna fangelsanna nálgist fjölda fanga." Einnig dregur Ríkisendur- skoðun í efa að innheimta málagjalda fyrir Lögmanna- félag Islands hjá dómstólun- um standist lög. Ennfremur eru gerðar athugasemdir viö rekstur sjúkrahúsa og sjúkra- stofnana sem skorti sam- ræmt bókhald og reiknings- skil. Ferskfiskútflutningur 28% samdráttur í gámaútflutningi Útflutningur á ferskum fiski i gámum dróst saman um 28% og löndun erlendis á botnfiski til sölu frá fiski- skipum dróst saman um 30% fyrstu 8 mánuöi þessa árs miöaö við sama tima i fyrra. Til samans minnkaöi magniö úr 90.403 tonnum i 64.514 tonn eöa um 25.889 tonn. Þetta kemur fram í svari sem utanríkisráðherra lagði nýlega fram á þingi við fyrir- Sþurn Páls Péturssonar. Gámaútflutningur á þorski minnkaði um 30%, á ufsa um 52,7%, á karfa um 46,6% og á grálúðu um 36,9%, en hins vegar jókst gámaútflutningur á ýsu um 13,4%. Af einstök- um kjördæmum að nefna varö samdrátturinn í magni gámaútflutnings mestur hjá skipum af Vestfjörðum og Suðurlandi, en eina kjör- dæmiö sem sýndi aukningu á milli tímabila var Austur- land. í löndunum erlendis varð enn fremur samdráttur i öllum kjördæmum nema hjá skipum af Vesturlandi og Norðurlandi vestra, en salan minnkaði mest hjá skipum frá Reykjavík og Vestfjörðum. Árekstrar í afleitu skyggni Að sögn lögreglunnar voru árekstrar fjölmargir í höfuð- borginni i gær, enda veöur afar leiðinlegt, vont skyggni og hvasst. Fljúgandi hálka var á Kjalarnesi og Hellis- heiöi, og reyndar á öllum veg. um út frá Reykjavík. Árekstr- artíðni var meö meira móti, enda skyggni afleitt, og var mikið leitað til lögreglunnar. Slys á mönnum voru fá. % v Núliöuróöum að áramótum, og má meö sanni segja að flugeldasalan fyrir þau tima- mót sé farin aö glæðast. Úrval flugelda eykst meö hverju ári, og eins og sést á myndinni er engin undan- tekning á þvi núna. Þaö verö- ur þó aldrei of - varlega fariö í meðferö þeirra, og því vissara að leika sér ekki aö eldinum i eiginlegum /J skilningi þess a— orös. Áskorun Hlífar til ASÍ LAUNAFÓLK FARI SÉR HÆGT VID VINNU

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.