Alþýðublaðið - 03.02.1989, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 03.02.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 3. febrúar 1989 3 FRÉTTASKÝRING 7,2 milljarða rekstrarhalli ríkissjóðs 1988 1.650 MILLJONA AUKAFJARVEIT- INGAR Á ÞREMUR MÁNUÐUM Jón Baldvin um aukafjór- veitingarnar: Rollukét — þar á meðal ferð Þorsteins Pálssonar til Finnlands. Hallarekstur i heilbrigðisgeiranum — frá Landakoti og áfram. Fyrirgreiðsla við bágstaddar atvinnugreinar. Fjármálaráöuneytiö sendi frá sér greinargerö í gær um afkomu rikissjóös á síðasta ári. Greinargerðin byggir á bráöabirgðatölum um rekstr- arafkomuna, sem sýnir að hún var neikvæð um 7,2 milijarða króna. Greiðslu- afkoman, þ.e. að meðtöldum lánahreyfingum, varð mun já- kvæðari, eða neikvæð um 4,2 milljarða, eins og það er orð- að i greinargerðinni. í frétta- tilkynningunni segir siðan: „Á fjárlögum hafði hins vegar verið gert ráð fyrir hallalaus- um rekstri. Hinn mikli munur, sem er á útkomu ársins og upphaflegri fjárlagaáætlun, á sér ýmsar orsakir. I stórum dráttum má þó skýra hann með þvi, að heildarútgjöld ríkissjóðs fóru rúmlega fjóra milljarða króna fram úr fjár- lögum á meðan tekjurnar urðu 3 milljörðum króna lægri en þar var gert ráð fyr- ir.“ Sérstaka athygli vekur aö aukafjárveitingar siðustu þrjá mánuðina nema 1.670 milij- ónum. Ekki er birtur listi yfir þær í greinargerðinni, en Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr- um fjármálaráðherra, segir að stóran hluta megi rekja til „útflutnings á rollukéti", hallarekstrar í heilbrigðis- geira og aðgerða vegna bág- staddra atvinnugreina. I greinargeröinni segir aö þessi mikli rekstrarhalli end- urspegli þau snörpu umskipti sem urðu í efnahagslífinu á síðasta ári, einkum þó á síö- ari hluta þess. Þetta sjáist m.a. á því, aö framvinda ríkis- fjármálanna á fyrri hluta árs- ins hafi veriö langt frá því sem áætlanir fjármálaráðu- neytisins geröu ráö fyrir. Þannig var rekstrarhallinn fyrstu sex mánuðina tæplega 3 milljaröar, eöa hálfum millj- aröi umfram upphaflega áætlun. Skýringin á því að áætlanir gerðu ráö fyrir halla- rekstri á fyrri hluta ársins var einkum sú, að ekki var reikn- aö meö aö skattkerfisbreyt- ingarnar, sem tóku gildi á síðasta ári, skiluöu sér aö fullu inn í ríkissjóö fyrr en nokkuð væri liöiö á áriö. Meðal annars af þessum ástæöum var talið, segir i greinargerðinni, aö siöari hluti ársins ætti — ef ekkert óvænt kæmi upp — aö skila betri~útkomu en sá fyrri. GENGISFELLINGAR OG AUKIN VAXTAÚTGJÖLD „Þegar fyrstu níu mánuö- irnir eru gerðir upp er hallinn 9 milljarðar og skiptist gróf- lega þannig, aö þaö er að tveimur þriöju hlutum fall í tekjum vegna mikils sam- dráttar þegar líða tekur á áriö og aö einum þriðja hluta að útgjöld fara fram úr áætlun," segir Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra, fyrrum fjármálaráöherra. Þessi auknu útgjöld má rekja til eftirtalinna þátta, aö sögn Jón Baldvins: 1) Vegna tveggja gengisfellinga í febr- úar og maí, sem röskuöu öll- um forsendum fjárlaga. 2) Vegna annarra ákvarðana rík- isstjórnar. 3)Hallinn framkall- aöi verulega aukin vaxtaút- gjöld. Samkvæmt greinargeröinni eru umskiptin mjög mikil á síðasta ársfjóróungi þegar 4 milljarðar bættust við. 2 millj- aröar eru vegna áframhald- andi falls í tekjum, sér í lagi vegna vörugjalds tolla og söluskatts. Hins vegar bætt- ust 2 milljarðar viö vegna aukinna útgjalda. ÓSKILGREINDAR AUKA- FJÁRVEITINGAR Athygli vekur, varöandi út- gjöldin síóasta ársfjóröung- inn, aó aukafjárveitingar nema 1.650 milljónum króna. Þegar grein var gerö fyrir aukafjárveitingum fyrstu 9 mánuðina voru þær rúmlega 500 milljónir. Þannig aó auka- fjárveitingar hafa verið veittar umfram það sem nemur 1150 milljónum. Þegar saman er tekiö á síöasta ársfjórðungn- um nema aukafjárveitingar og ákvaróanir ríkisstjórnar um aukin útgjöld alls tæp- Iega2,7 milljörðum króna. I greinargerðinni kemur ekki skýrt fram hvernig auka- fjárveitingarnar skiptast. Jón Baldvin segir aö hér sé í raun og veru um aö ræöa uppgjör sem taki til 13 mánaöa en ekki 12. Hann segir Ijóst aö útgjöldum, sem samkvæmt venju hefðu fallið á áriö ’89, hafi veriö komið yfir á áriö ’88, —sérstaklega meö þeim hætti að setja sem allra mestar aukafjárveitingar á það ár. EFNAHAGSUMSKIPTI OG FERÐ ÞORSTEINS TIL FINNLANDS Hvað varðar tekjuhallann er gerö betri grein fyrir þvi en áöur hversu umskiptin í efna- hagslífinu höfðu gríöarleg áhrif á ríkisfjármálin. Talin eru upp dæmi um aó afla- verömæti hafi aukist um 8—9% áriö ’87, en dregist saman um 2—3% áriö 1988. Þá hafi heildarútflutningur minnkaó um 4%, en aukist um 4% ’87. Heildarinnflutn- ingur dregist saman um 2,5—3%, en aukist um 22% áriö á undan. Ráðstöfunar- tekjur heimilanna hækkuöu um 43% ’87, en innan viö 20% á árinu 1988. Einka- neysluútgjöld höfðu aukist um 16,5% áriö ’87, en minnk- uðu 2,5—3% á síöasta ári. Aö endingu jukust fjárfest- ingaútgjöld um 19% áriö 1987 en minnkuðu um 2—3% árið 1988. „Þetta er auðvitað stór partur af skýringunni, ásamt þeirri röskun á forsendum fjárlaga, sem fólst í þremur gengisfellingum á árinu,“ segir Jón Baldvin. Hann bæt- ir viö aö þetta skýri aðeins 6 milljarða, en ekki þær auka- fjárveitingar, sem ekki hafi verið í samræmi viö þá aó- haldsstefnu sem fylgt hafði verið á fyrri hluta ársins. Skýrsla fjármálaráðuneytis- ins tilgreinir ekki þessar aukafjárveitingar. En hvaö er á þeim lista: „Þaó er Ijóst aö stórar upphæóir á honum eru vegna útflutningsbóta á rollu- két. — Þar á meðal vegna feröar Þorsteins Pálssonar til Finnlands. Hallarekstrar í heilbrigðisgeiranum — frá Landakoti og áfram. Þá er um aö ræða útborganir í tengsl- um viö efnahagsaðgerðir og fyrirgreiöslu viö bágstaddar atvinnugreinar," segir Jón Baldvin Hannibalsson. FRÉTTASKÝRING ER DEILAN UM LÁNSKJARAVÍSI- TÖLUNA DAUTT JAFNTEFLI? Öll spjót fjármagnsmarkað- arins beinast nú að viöskipta- ráðherra fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar vegna breyting- anna á lánskjaravisitölunni, sem enginn vill kannast við að hann muni njóta góðs af. Þetta mál hefur tvær hlið- ar. Önnur lýtur aö réttmæti og lögmæti breytingarinnar. Hin að áhrifum breytingarinn- ar á fjárskuldbindingar, þær sem geröar höfðu verið, og hinar sem á eftir að gera. Sé hægt aö tala um aöila málsins og sjónarmiö beggja skoöuð virðast báöir hafa talsvert til síns máls, en einn- ig er að finna veilur eða veik- ar hliöar á málatilbúnaöi beggja. Röksemd viöskiptaráöu- n'eytisins fyrir réttmæti breyt- ingarinnar er skýr og Ijós og um hana getur varla veriö ágreiningur. Um þetta var samið þegar ríkisstjórnin var mynduð, síöla september- mánaöar. Þetta þótti þá rétt aðgerð til aö fyrirbyggja mis- gengi launabreytinga og lánskjara. Meö því aö tengja lánskjör launakjörum forðast launamenn hættulegar sveifl- ur, en sparifjáreigendur njóta þá líka góös af hagsældar- tímum, þegar svigrúm gefst til launahækkana. Erfitt er aö koma auga á þaö hvers vegna forystusveit- ir verkalýðsfélaganna snúast af hörku gegn þessu. í þessu er þó að minnsta kosti fólgin veruleg áhættutrygging fyrir launþega, nokkuö sem Sig- túnshópurinn barðist fyrir á sinum tíma. Þaö væri þá helst aö þarna gæti þess sama tvískinn- ungs, sem birtist í hugmynd- um miðstjórnar ASÍ um kom- andi samningaviðræður, þar sem gert er ráð fyrir kröfu um aö atvinnurekendur greiði allt lífeyrissjóösiðgjald launþega, en slíkt myndi lækka launa- vísitölu um 4% og þar meö lánskjaravísitölu um rúm 2%. Þar er aö finna kröfu um lækkun lánskjaravísitölu, fengna meö því aö þátttaka í kaupum á Kfeyrisréttindum veröi skattfrjáls. Er þetta ekki þaö aö vilja í senn borða kök- una og geyma hana? Veikasta hliðin á rök- semdafærslu viöskiptaráö- herra fyrir breytingunni er e.t.v. sú forsenda fyrir lög- mæti hennar, sem sótt er i Ólafslög, aö unnt sé aö gera slika breytingu — aö því til- skildu aö hún gangi ekki á áunnin réttindi. Um þetta er í rauninni deilt, varla nokkuö annaö. Þaö er vegna þessa sem þeir Benedikt Davíðsson og Pétur Blöndal birta aug- lýsingar í öllum fjölmiðlum þessa dagana og hvetja menn til aö taka viö greiðsl- um af eldri lánum með fyrir- vara um lögmæti breytingar- innar, og meö fyrirvara um kröfu á hugsanlegum mun. Þó mun þetta ekki vera í fyrsta sinn sem breyting er gerö á lánskjaravísitölu, þannig að fordæmi er til. Áunnin réttindi sparifjár- eigenda, eöa áunnin réttindi lántakenda? Aftur er hér komið aö óvissupunkti varö- andi framþróun vísitölunnar, því engin leiö er til aö segja fyrir um hvort hún muni þró- ast sparifjáreigendum í hag eöa óhag. Vænkist hagur þjóðarstrympunnar má gera ráö fyrir því aö sótt veröi til aukins kaupmáttar. Þeir lán- takendur, sem þeirrar hækk- unar njótá, munu þá skila hluta þeirrar hækkunar til sjóöa, banka og annarra lán- ardrottna. Loks ber að nefna þann kynningarfrest sem hags- munaaðilar óneitanlega hafa haft til aö skoða málið og tjá hug sinn, þvi ásetningur rik- isstjórnarinnar var rækilega kynntur og staöfestur í stjórnarsáttmálanum í lok september. Góóur tími leið, vel á fjóröa mánuö, án þess aö hafðar væru uppi formleg- ar athugsasemdir eöa rök gegn þessum ásetningi borin fram.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.