Alþýðublaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 1
Vestfirðir; Sameinast gegn kvótaskerðingu OECD-ríkin: 28 milljónir án atvinnu Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, stýrði í París í gær fundi með sam- tökum verkalýðsfélaga og at- vinnurekenda hjá OECD- ríkjunum. A fundinum kom fram, að þrátt fyrir minnk- andi atvinnuleysi eru 28 milljónir manns atvinnu- lausir í löndunum. Fundur ráðherranefndar- innar hefst í dag. Þar verða atvinnumálin ofarlega á baugi, svo og ráðstafanir gegn vaxandi verðbólgu i OECD-ríkjunum og trygging áframhaldandi hagvaxtar. Jón Sigurðsson er í forsæti ráðherranefndarinnar. Sjávarsíðan Sjávarsíðan, sem hefur verið fastur liður í blaðinu á miðvikudögum, fer í sumarfrí en verður tekin upp að nýju í haust. Al- þýðublaðið mun hins vegar birta vikulega í sumar upp- lýsingar um helstu fersk- fisksölur erlendis, svo og verð á stærstu íslensku fiskmörkuðunum. Öll verkalýðs- og sjó- mannafélög á Vestfjörð- um, auk Utvegsmannafé- lags Vestfjarða, hafa sam- einast um fund gegn kvóta- skerðingu. Samtökin halda fundinn á laugardag, dag- inn fyrir sjómannadag. „Þetta er mjög breið samstaða og að ég hygg víðtækustu almennu mót- mæli gegn kvótaskerðingu sem verið hafa,“ sagði Reynir Traustason, for- maður Skipstjóra- og stýramannafélagsins Bylgjunnar í samtali við Alþýðublaðið. „Málið snýst um það, að búið er að skerða þorsk- kvóta Vestfjarðaskipanna i gegnum allt kvótakerfið. Alveg frá því kerfið tók gildi árið 1984 og til þessa dags.“ Reynir sagði að Vestfirðingar byggðu af- komu sína aðallega á botn- fiskveiðum. Þeir byggðu ekkert á síld, loðnu eða humri, enda hefðu þeir ekki slíka kvóta. Því sagði hann að öll skerðing kæmi mjög harkalega niður strax og svo er nú um skerðingu á grálúðu. Þrátt fyrir skerðingar á þorskinum náðu Vest- fjarðaskipin að bæta það að einhverju leyti upp með grálúðuveiðum út af Vest- fjörðum. Grálúða var utan kvóta á sóknarmarki, en sett í kvóta í ár, þannig að nú fá allir 550 tonn sem eru á sóknarmarki. Það þýðir umtalsverða skerðingu fyr- ir vestfirsku togarana. Reynir sagði að þetta þýddi, að Austfjarðaskip, sem væru sem dæmi með eiginn kvóta innan við 100 tonn, fengju 550 tonn í sóknarmarki. „Núna í dag er staðan sú, að 5 af Vest- fjarðaskipunum eru fyrir austan að veiða þorsk. A1 íka margir Austfirðingar eru týrir vestan að veiða grálúða. Það sér auðvitað hvert mannsbarn að verið er að taka af okkur og færa annað. Auk þess hljóta menn að sjá hvað þetta er heimskulegt." Félögin buðu Halldóri Ásgrímssyni, að sækja fundinn á sem haldinn verður í Alþýðuhúsinu á Isafirði á laugardaginn, en hann er bundinn af heim- sókn páfa. Reynir sagði að ráðherrann hefði óskað eftir því að fundurinn yrði færður til, en félögin töldu það ekki gerlegt því líkur væru á góðri fundarsókn, þegar sjómenn væru komnir í hafnarfrí daginn fyrir sjómannadag. Skipstjórafélagið Bylgj- an hefur leitað eftir lög- fræðilegu áliti vegna þeirra kvótaskerðinga sem bitnað hafa á Vestfjarðaskip- unum. Utanríkisráðherro í Brussel: Tillögur Islands voru ekki dregnar til baka Jón Baldvin Hannihals- son utanríkisráöhcrra segir það ekki rétt, sem fram hafi komið í fjölmiðlum í gær, að ísland hafi dregið til baka tillögur sínar um afvopnun á og í höfunum á leiðtogafundi NATO, sem nú stendur yfir í Brussel. Þessar hugmyndir njóti skilnings þótt enginn full- trúa annarra ríkja á fund- inum hafi séð ástæðu til að lýsa yfir stuðningi við þær. Jón segir að fyrirfram hafi verið búist við því að fundurinn myndi jafnvel springa í loft upp vegna ágreinings Vestur Þjóð- verja annars vegar og Breta og Bandaríkjamanna hins' vegar. Lausn fannst hins vegar á því máli i tengslum við óvæntar tillögur Bush Bandaríkjaforseta í af- vopnunarmálum. Þessar nýju tillögur fela jafnframt í sér að boltanum hafi verið sparkað yfir á vallarhelm- ing Sovétmanna hvað árangur varðar í viðræðun- um um skammdræg kjarnavopn og hefðbund- in. Að sögn Jóns var ekki tekið undir tillögur íslands um afvopnun á og í höfun- um, t.d. af Noregi og Dan- mörku, þar sem fulltrúar ríkjanna vildu ekki stuðla að ósamkomulagi á þess- urn afmælisfundi NATO. Ráðherra segist hins vegar hafa lagt fram bókun á fundinum og ritað aðal- ritara NATO bréf um að við áskildum okkur allan rétt til að fylgja þessum hugmyndum eftir innan NATO og á öðrum vett- vangi — við værum ekki fallnir frá tillögunum. Sjá nánar bls. 3. Mörður og Silja Tveir af þremur ritstjórum Þjóðviljans munu hætta störfum nú um mánaðamót- in, þau Mörður Árnason og Silja Aðalsteinsdóttir. Eftir situr Árni Bergmann. Þau hætta Mörður og Silja voru bæði með samning við útgáfu- stjórnina til 1. júní og höföu ekki áhuga áað framlengja. Alþýðublaðið náði tali af Merði Árnasyni, en hann vildi ekkert tjá sig um málið. Fyrri samningur sem Mörður hafði við blaðið rann út um síðustu áramót en eftir nokkrar deilur innan útgáfu- stjórnarinnar var ákveðið að framlengja samninginn til sex mánaða. Silja tók hins- vegar til starfa um síðustu áramót og endurnýjar ekki sinn samning. SÓDASKAPUR Þessir þrír ungu menn böðuöu sig í læknum i Nauthólsvik- inni i gær. Það verður þó vart sagt að lækurinn sé fýsilegur til böðunar þvi svo uppfullur er hann af allskyns drasli og rusli. Greinilegt er að gestir skilja allan úrgang eftir i og við lækinn, gildir þá einu hvort um er að ræða sjampóglös eða brennivinsflöskur. A-mynd/E.ÓI.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.