Alþýðublaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 8
Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi: Skipulögð verði byggð 200 verkamannabústaða „Ohress meö lina afstööu stjórnar Verkamannabústada“ segir Bjarni. Lagði fram bókun uegna þess aö Búseti hefði ekki fengið lóð fyrir 105 íbúða fjölbýlishús. Bjarni P. Magnússon, borgarfulltrúi Alþýðu- flokksins, iagði í gær fram tillögu fyrir borg- arstjórn þess efnis að borgarskipulagi verði falið að hefja þegar í stað viðræður við stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík um úthlutun og skipulagningu á svæði fyrir að minnsta kosti 200 íbúðir. Þá lagði Bjarni fram bókun vegna neikvæðrar afgreiðslu á umsókn Búseta um ióð undir fjölbýiishús. „Ég lagði í vor fram til- lögu í borgarráði um að borgin úthlutaði 200 lóðum til stjórnar Verkamannabú- staða, þannig að hægt yrði að tvöfalda framboðið á íbúðum á næsta ári. Stjórn Verkamannabústaða sendi umsögn, sem ég var af- skaplega óhress með. Ég er óánægður með þessa linu afstöðu í Ijósi þess að um- sóknarfjöldi hefur tvöfald- ast úr um 700 í nærri 1.300 á tveimur árum. Þeir virð- ast telja nóg að auka þetta um 30—40 íbúðir, sem er út í hött. En einn liður í um- sögninni var hugmynd um að borgaryfirvöld veittu þeim möguleika á svæði þar sem þeir gætu skipu- lagt byggingu a.m.k. 200 íbúða. Ég hef ákveðið að taka stjórnina á orðinu og flyt því þessa tillögu" sagði Bjarni í samtali við Alþýðu- blaðið í gær. Hvað Búseta varðar ligg- ur fyrir að borgin var að út- hluta lóðum undir hátt í 300 íbúða fjölbýlishús. Bjarni lét í gær bóka mót- mæli sín „við þeirri stefnu að jafn fjölmennt áhuga- mannafélag borgara sem Búseti er skuli ekki njóta jafnræðis á við aðra aðila og á það þá einkum við um byggingaverktakabrans- ann“ sagði Bjarni. Búseti sótti um lóð undir 105 íbúða fjölbýlishús. í skoð- anakönnun innan félagsins kom í Ijós að 75% félags- manna óski eftir því að búa í Reykjavík. „Sem þýðir að um 3.000 Búsetamenn óska eftir því að fá íbúð í Reykjavík og það sýnir kannski hráskinnaleikinn í málatilbúnaði meirihlut- ans, þegar hann heldur því fram að það sé til nægt lóðaframboð í Reykjavík, þegar 3.000 aðilum er í engu sinnt" sagði Bjarni. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisrúdherra: Afvopnun í höfunum Þvímeiri árangur íafvopnun á heföbundnum vopnum þeim mun meira freist- andi er fyrir stórveldin aö halda morötólum sínum í og á höfunum. Jón Baldvin Hannibals- segir að því meiri árangur meginlandi Evrópu með son utanríkisráðherra sem næst í afvopnun á kjarnavopn og hefðbundin Skóflustungan tekin í gœr: Fyrstu kaupleiguíbúðir höfuðborgarsvæðisins í gær hófst í Kópavogi bygging fyrstu kaupleigu- íbúðanna á höfuðborgar- svæðinu. Jóhanna Sigurð- ardóttir, félagsmálaráð- herra tók þá fyrstu skóflu- stunguna að nýju fjölbýlis- húsi sem reist verður við Trönuhjalla 19.—23. í hús- inu verða 24 íbúðir en nú þegar hefur verið tekin ákvörðun um byggingu 40 kaupleiguíbúða í Kópa- vogi. VEÐRIÐ ÍDAG Heldur hægari norðaustan átt á landinu öllu. Rigning Norðanlands en úrkomu- lítið syðra. heldur hlýn- andi veður. Kaupleiguíbúðir eru nýj- ung hérlendis og voru veru- lega umdeildar þegar laga- frumvarp um þetta húsnæðis- form var til umræöu á Al- þingi. Allnokkuð hefur verið byggt af kaupleigu íbúðum víða um land að undanförnu, en íbúðirnar við Trönuhjalla eru þær fyrstu sem byggðar eru á höfuðborgarsvæðinu. Þessar íbúðir verða fjár- magnaðar með lánsfé úr Byggingarsjóði verkamanna og heyra því til hinum félags- lega hluta kaupleigukerfisins. Siðar er áformað að byggja og kaupa alls 16 almennar kaupleiguíbúðir í Kópavogi. í kaupleigukerfinu geta íbúar valið um hvort þeir vilja kaupa íbúðir sínar eða leigja þær. Akvörðun um það verð- ur þó að taka í upphafi, þar sem leigan fæst ekki endur- greidd ef ákvörðun um kaup er tekin síðar. vopn þeim mun meira freistandi sé fyrir stór- veldin „að halda þessum morðtólum sínum í og á höfunum." Jón sagði í viðtali við Al- þýðublaðið i gær að vegna þessa væri sérstök ástæða fyrir þær þjóðir sem eigi þar mestra hagsmuna að gæta, að undirbúa að þetta eina svið afvopnunarmála sem ekki hafi verið tekið á hingað til verði tekið til alvarlegrar umræðu og könnunar. „Ég tel að við eigum að miða við að undirbúningur sé það vel á veg kominn og mat lagt á helstu tiilögur sem til greina þykja koma til að auka öryggi á og í höfunum að, það þurfi ekki að líða langur tími frá því að t.d. er skrifað undir afvopnunarsamninga um hefðbundin vopn til að hægt verði að snúa sér að höfun- um, enda eru það flókin mál og erfið og þurfa mjög vand- aðan undirbúning sem tekur langan tíma. Það er ekki eftir neinu að bíða." Jón sagði að vitað væri að engu breytti í þessu sam- bandi að dregið hafi úr um- ferð kafbáta beggja aðila í ná- munda við ísland undanfarin ár — þannig hefði uppbygg- ing kjarnorkuknúinna kaf- báta ekki stöðvast. „Fækkun sovéskra herflug- véla og kafbáta við ísland bendir fyrst og fremst til þess að efnahagur Sovétríkjanna sé slíkur að þeir hafi ekki efni á því að gera þetta út. Þetta er meginskýringin, sem á sér- staklega við um kafbátaflot- ann, en í annan stað er um breytta tækni að ræða, þeirra langdrægu eldflaugar ná mun lengra en áður þannig að þeir þurfa ekki eins að vera á ferli á úthöfunum til að vera í nánd við sín fyrirhug- uðu skotmörk. Þannig að ástæðurnar eru bæði já- kvæðar og neikvæðar" sagði Jón Baldvin. Fólk í dag er fimmtug Kvennalistakonan og þingkonan og ritstýran fyrrverandi Kristín Hall- dórsdóttir, sem nýlega var skipuð formaður Ferðamálaráös. Kristín ætlar að verða að heiman á afmælisdaginn, nánar tiltekið í Amsterdam, ásamt eiginmanni sínum, Jónasi Kristjánssyni, rit- stjóra DV. „Ég ætla að eiga þetta afmæli prívat og persónulega og láta Jónas, sem ég hitti mjög sjaldan núorðið, hjálpa mér að stíga yfir þessi erf- iðu landamæri. Við tök- um með okkur ferðabók- ina „Ævintýralega Amst- erdam“. Höfundur téðrar bókar er téður Jónas, en myndatöku annaðist téð Kristín! ★ Um næstu áramót læt- ur af störfum að eigin ósk forstöðumaður Orðabók- ar Háskólans, Jón Adal- steinn Jónsson. Þetta eru mikil tímamót hjá Jóni, sem starfað hefur hjá Orðabókinni í 34 ár, þar af sem forstöðumaður í áratug. Jón mun reyndar áfram starfa við sérstök verkefni hjá Orðabókinni og heldur áfram með þættina um íslenskt mál, ásamt Guðrúnu Kvaran og Gunnlaugi Ingólfssyni. Að sögn Jóns hefði hann í sjálfu sér átt að vera hætt- ur fyrir löngu „sam- kvæmt 95 ára reglunni", en Jón verður sjötugur á næsta ári. „Ég sest ekki í helgan stein, en losna við ábyrgðina og verð þá ábyrgðarlaus — nema gagnvart sjálfum mér.“ ★ I umræðunum á Al- þingi um heimildaiausar fjárveitingar, sem Pálmi Jónsson sjálfstæðismað- ur hóf máls á, var nokkuð talað um húsakaup og húsaframkvæmdir. Stef- án Valgeirsson fékk sína sneið og var undrandi á Pálma — orð hans yrðu geymd en ekki gleymd. Ásgeir Hannes Eiríksson greip tækifærið og sagði að dagskrárliðinn mætti kalla „Snaran í húsi hengda mannsins". Hann skoraði á fjármálaráð- herra að veita upplýsing- ar um kaup og notkun á Víðishúsinu við Lauga- veg, á húseign Mjólkur- samsölunnar þar skammt frá og síðast en ekki síst um „Flugstöðina, þetta Matthýsi okkar allra, sem er eins konar viðhafnar- skrifstofa, kosningastofa fyrir einn ágætan ónefnd- an stjórnmálaflokk með þetta 25% kjörfylgi".

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.