Alþýðublaðið - 30.05.1990, Blaðsíða 1
MMÐUBLMfi
79. TOLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAGUR
30. MAÍ 1990
2
Hvað verður um
Nýjan vettvang?
IUm þaö má lesa í fréttaskýr-
ingu eftir Ingólf Margeirsson
þar sem hann veltir því upp
hvort Nýr vettvangur hafi unn-
Kópavogur:
Hvað segja efstu
menn A-lista?
Hvaö segja A-listamenn um
úrslit kosninganna í sinni
heimabyggð? Alþýðublaöiö
haföi samband viö suma þeirra
í gær og innti þá eftir áliti þeirra
á niöurstööum kosninganna.
Persónudýrkun
eða kærleikur?
Jónas Jónasson segir sína
skoðun í blaöinu í dag. Hann
fjallar m.a. um kosningar og
kosningabaráttu fyrr og nú.
Eru menn orðnir hundleiöir á
stjórnmálum og stjórnmála-
mönnum?
Sigurður Geirdal
nýr bœjarstjóri?
FLOTI VESTMANNAEYJA SIGLIR í LAND: vest-
mannaeyjaflotinn var á innleið í gærkveldi til að mótmæla
þeirri ákvörðun Aflamiölunar að skerða útflutningsleyfi
gámaútflytjenda í Vestmannaeyjum. Þeir höfðu orðið upp-
vísir að þvi að flytja út mun meira af gámafiski en þeir
höfðu leyfi til.
NORSKAR PRINSESSUR FÁ JAFNAN RÉTT:
Norska stórþingið samþykkti breytingu á stjórnarskrá
landsins í,gær sem veitir konum sama rétt til ríkiserfða og
körlum. Akvæðið nær þó ekki til dóttur núverandi ríkis-
arfa.
SLÆMAR ATVINNUHORFUR SKÓLAFÓLKS:
Tíu umsóknir eru nú um hvert starf atvinnumiðlunar
námsmanna en á sama tíina í fyrra voru þær fjórar og tvær
árið þar áöur. Atvinnumiðlun hefur farið fram á að ríkis-
stjórnin leggji fram fé til atvinnubótavinnu líkt og gert var
i fyrra.
FÆREYINGAR HAFNA TILLÖGUM EB: Færeyska
stjórnin hefur hafnað tillögum Evrópubandalagsins um
gagnkvæma verslunarsamninga. heir sætta sig ekki við
háa tolla á fullunnum fiskafurðum. Færeyingar vilja ekki
blanda saman fiskveiðisamningum og verslunarsamning-
um við bandalagið.
MEIRIHLUTAR OG KÆRUR KOSNINGAÚR-
SLITA : Nú er víða unnið að því að mynda nýja meirihluta
í bæjarstjórnum. Á þremur stöðum á landinu hefur taln-
ing atkvæða verið kærð. Það er í Keflavík, á Skagaströnd
og í Vestmannaeyjum.
AXIS-HÚSGÖGN í PARÍS OG LAUSANNE: Ax-
is-barna og unglingahúsgögn verða á næstunni á boðstól-
um í virtum húsgagnaverslunum ,,La Beautique Danoise"
í París og Lausanne í Sviss. Axis sýndi þessa hlið fram-
leiöslu sinnar nýlega á húsgagnasýningu í Bella Center í
Danmörku og fékk mikið hrós, bæöi fyrir góða smíð og
hagstæð verð. Var það mál manna að fyrirtækið stæöi fylli-
lega öðrum framleiðendum á sporði. Undirbúningsviö-
ræður standa yfir um sölu framleiðsluréttar á Axis-hús-
gögnum til markaössvæða sem Axis getur ekki sinnt frá ís-
landi.
EIGAMEIRA EN MILLJARÐ: Fulltrúaráð Sjómanna-
dagsins í Reykjavík og Hafnarfirði býr viö góðan hag, í nýj-
ustu reikningum samtakanna kemur í ljós að eignir alls
nema einum milljarði króna og raunar 45 milljónum betur.
Skuldir eru um 62 milljónir. Hrafnystuheimilin tvö voru
hinsvegar rekin með halla í fyrra, sem nam samtals 37
milljónum króna. Pétur Sigurðsson var endurkjörinn for-
maður fulltrúaráðsins til næstu þriggja ára, hann hefur
gegnt því embætti i 28 ár.
LEIÐARINN Í DAG
Staða ríkisstjórnarinnar í Ijósi úrslita sveitar-
stjórnarkosninganna ertil umræðu í leiðara Al-
þýðublaðsins í dag. Að mati blaðsins hefur rík-
isstjórnin styrkst, bæði vegna góðs árangurs
Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins og
batnandi og stöðugri efnahags. En einnig kem-
ur til veikari staða stjórnarandstöðuflokkanna á
landsvísu, sérstaklega Kvennalistans sem virð-
ist á útleið úr íslenskri pólitík.
Sigurður Geirdal, bæjar-
fulltrúi Framsóknar-
flokksins, verður næsti
bæjarstjóri í Kópavogi, að
því er traustar heimildir
Alþýðublaðsins hermdu í
gærkveldi. í gærkveldi
voru boðaðir fundir fram-
sóknar- og sjálfstæðis-
manna til að taka endan-
lega ákvörðun um meiri-
hlutasamstarf flokkanna í
bæjarstjórn Kópavogs.
Sigurður Geirdal og Gunn-
ar Birgisson oddviti sjálfstæð-
ismanna í bæjarstjórn Kópa-
vogs áttu með sér langan
fund í gær þar sem þeir munu
að stærstum hluta hafa geng-
ið frá helstu atriðum varð-
andi meirihlutasamstarf.
Samkvæmt heimildum sem
Alþýðublaðið metur traustar,
verður Sigurður Geirdal bæj-
arstjóri og fréttir um jafna
skiptingu flokkanna við kjör í
nefndir og ráð munu í megin-
atriðum eiga við rök að styðj-
ast.
Framsóknarmenn eru víð-
ar í meirihlutaviðræðum. Um
meirihlutaþreifingar á ýms-
um stöðum á landinu er fjall-
að á bls 3.
Foreldrar í Reykjavík og dagvistarmál:
Fáir óska eftir
heilsdags dagvist
Foreldrar sem svöruðu
spurningum í víðtækri
rannsókn sem Foreldra-
samtökin hafa gert undan-
farna mánuði í Reykjavík
vilja fyrst og fremst dag-
vistarþjónustu í 4—5 tíma
daglega fyrir börn sín.
Hér var um að ræða víð-
feðma rannsókn Foreldra-
samtakanna, sem tók til
flestra foreldra barna á aldr-
inum 1—5 ára í Reykjavík.
Faglega var að rannsókninni
staðið. Alls náðist til 925 for-
eldra. Fyrstu niðurstöður
rannsóknarinnar hafa nú ver-
ið kynntar.
Helstu niðurstöður í ör-
stuttu máli eru þessar: Af
þeim 92.5 foreldrum sem náö-
ist til höfðu 520 reynslu af
þjónustu dagmæðra og töldu
314 reynsluna góða eða mjög
góða. Alls 388 foreldrar sögð-
ust nota þjónustu dagvistar-
heimila en 424 ekki. Aðeins
528 vildu svara spurningu um
hvort sú þjónusta væri full-
nægjandi og töldu 263 hana
fullnægjandi.
Þegar spurt var um á hvaða
aldri barnsins fólk vildi helst
nýta sér dagvistunarrými.
Langflestir, eða 261 vildi nýta
sér slíkt þegar barnið væri
1,5 árs til 2 ára, 221 foreldri
vildi aldurinn 2 til 2,5 ára.
Spurningunni um lengd
dagvistarþjónustu á degi
hverjum var svarað svo að 31
foreldri vildi dcigvistaþjón-
ustu 2—4 tíma á dag, 478
vildu 4—5 tíma þjónustu, 129
vildu 5—6 tíma, 104 vildu
6—7 tíma og 129 foreldrar
vildu dagvistarþjónustu í
meira en 7 tíma daglega.
I bárujárnshúsi við Bergþórugötuna, vinna börnin, fóstrur og stundum foreldrar líka við ýmis
verkefni sem eiga aö glæða áhuga á sköpun umhverfis, efla listhneigð, þroska börnin og auka
öryggi þeirra. Barnaheimilið Ós er í eigu foreldranna sjálfra. A-mynd: E.ÓI.